Morgunblaðið - 10.06.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1978
27
í TILEFNI aí því að Norður
landamótið í bridge hefst í dag
birtist hér listi yfir Norður-
landameistara frá upphafi. svo
og hvar keppnin fór fram og
hvaða ár.
Mótið hefst klukkan 13 í dag
með því að utanrikisráðherra
setur mótið, en síðan hefst
keppnin sem spiluð er í þremur
flokkum. Góð aðstaða verður
Brldge
Umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
fyrir áhorfendur. Opinn flokkur Kvennaflokkur
1946 Ósló Noregur Svíþjóð
1947 Kaupmannahöfn Svíþjóð Danmörk
1948 Stokkhólmur Noregury Svíþjóð
1949 Helsinki Svíþjóð Svíþjóð
1951 Ilankö. Ósló Noregur Danmörk
1953 Árósar Svíþjóð Svíþjóð
1955 Bástad Svíþjóó Danmörk
1957 Ilelsinki Svíþjóð Svfþjóð
1962 Kaupmannahöfn Svíþjóð Danmörk
1964 Ósló Svíþjóð Svíþjóð
1966 Reykjavík Noregur Svfþjóð
1968 Gautaborg Svíþjóð Svíþjóð
1971 Helsinki Noregur Kinnland
1973 Álaborg Danmörk Noregur
1975 Sole, Ósló Noregur Svíþjóð
1978 Reykjavík •> * ?
Mjólkurbú Flóamanna og
mjólkursamsalan hefja
sölu á appelsínusafa
MJÓLKURSAMSALAN í Reykja-
vík og Mjólkurbú Flóamanna eru
í þann veginn að feta í fótspor
fjölmargra annarra mjólkursam-
laga um allan heim en í næstu
viku hef ja þessi fyrirtæki pökkun
og sölu á appelsínusafa. Er
appelsínusafinn fenginn frá
Florida en sem kunnugt er hefur
Keflavik:
Tómas Tómas-
son forseti
bæjarstjórnar
Keflavík, 9. júní.
FYRSTI fundur nýkjörinnar bæj-
arstjórnar Keflavíkur var haldinn
í gær. Á fundinum var Tómas
Tómasson kosinn forseti bæjar-
stjórnar, 1. varaforseti Ingólfur
Halldórsson og 2. varaforseti
Hilmar Pétursson. í bæjarráði
voru kosnir Tómas Tómasson,
Hilmar Pétursson og Ólafur
Björnsson.
Á fundinum var Jóhann Ein-
varðsson kjörinn bæjarstjóri
áfram. Ingólfur.
Alþýðuflokkur og
frjálslyndir
mynda meirihluta
á Patreksfirði
ALÞÝÐUFLOKKURINN og listi
frjálsiyndra kjósenda hafa ákveð-
ið að starfa saman innan sveitar-
stjórnar Patreksfjarðar. Á síð-
asta fundi hreppsnefndar var
Ágúst H. Pétursson kjörinn
oddviti og (Jlfar Thoroddsen var
endurráðinn sveitarstjóri.
Á fundi hreppsnefndar var
einnig rætt um að stofna þriggja
manna hreppsráð en lokaaf-
greiðslu málsins var frestað til
næsta fundar hreppsnefndar.
Á síðasta kjörtímabili voru
sjálfstæðismenn og óháðir með
meirihluta í hreppsnefnd en á
miðju kjörtímabili sleit áháði
fulltrúinn samstarfinu og eftir það
var enginn meirihluti í hrepps-
nefnd.
annað íslenskt fyrirtæki um
nokkurt skeið flutt inn appelsínu-
safa frá þessum sama stað og selt
undir vörumerkinu Tropicana.
Að sögn forsvarsmanna Mjólk-
ursamsölunnar og Flóabúsins hafa
þeir yfir að ráða fullkomnum
vélabúnaði, sérmenntuðu starfs-
fólki og ákjósanlegri sölu- og
dreifingaraðstöðu, sem þeir telja
rétt að nýta betur en eingöngu til
mjólkurvinnslu með þessum hætti.
Appelsínusafanum verður pakk-
að hjá Mjólkurbúi Flóamanna, í
smitvarðar umbúðir eins og kókó-
mjólkinni og í sams konar umbúð-
ir. Verða umbúðirnar í V* ltr.
stærð. Safinn verður bæði seldur
tilbúinn til drykkjar eins og hann
er í appelsínum og svo sem þykkni,
sem neytandinn getur bætt í
þremur hlutum vatns heima hjá
sér, í stað þess að bera vatnið heim
úr verzluninni. Þessar tvær gerðir
eru aðgreindar með aðallitum
umbúðanna, safinn í hvítum en
þykknið bláum umbúðum.
I upplýsingum frá fyrirtækjun-
um kemur fram að nýmjólk er
auðug að næringarefnum og bæti-
efnum nema C-vítamíni. I 100 g af
hreinum appelsínusafa eru a.m.k.
40 mg af C-vítamíni en dagsþörf
fullorðinna er talin vera 60 mg.
— Mobutu
kemur á fót
Framhald af bls. 1
Hann sagði að bandarískir
sérfræðingar hefðu fundið skot-
hylki úr sovézksmíðuðum
Kalashnikov AK-47 rifflum —
almennt notaðir í herjum Varsjár-
bandalagsins — innan um lík
mörg hundruð svartra manna og
hvítra sem voru myrtir í Kolwezi
þá átta daga sem bærinn var í
höndum uppreisnarmanna.
Mobutu forseti viðurkenndi að
ein sveit Zaire-hers hefði misst
kjarkinn og hörfað fyrir upp-
reisnarmönnum (yfirmaður henn-
ar var dæmdur til dauða en síðan
náðaður). En hann kvað rangt að
draga þá ályktun að allur her hans
væri gagnslítill því að fallhlífaher-
menn hans hefðu aftur tekið
flugvöllinn hjá Kolwezi 48 tímum
áður en Útlendingahersveitin kom.
S j álf stæðisflokk-
ur og Framsókn-
arflokkur í meiri-
hluta í Borgamesi
BorKarnosi 9. júní.
SJÁLFSTÆÐISMENN og fram-
sóknarmenn hafa myndað með
sér meirihluta í hreppsnefnd
Borgarness. Fyrir síðustu
sveitarstjórnarkosningar voru
Framsóknarmenn. Alþýðubanda-
lagið, Óháðir og Alþýðuflokkur í
meirihluta, en Alþýðubandalags-
maðurinn rifti þessu meirihluta-
samstarfi á miðju s.l. kjörtíma-
bili.
Sjálfstæðismenn og fram-
sóknarmenn hafa nú gengið frá
málefnasamningi og helztu málin
sem þessir flokkar hyggjast beita
sér fyrir eru lagning hitaveitu til
Borgarness, varanleg gatnagerð og
viðbygging við grunnskólann á
staðnum.
Á fyrsta fundi hreppsnefndar
sem haldinn var í gær, var
Guðmundur Ingimundarson kos-
inn oddviti og varaoddviti Örn
Símonarson. Þá var Húnbogi
Þorsteinsson kosinn sveitarstjóri
áfram. — Fréttaritari.
— Varðskips-
menn
Framhald af bls. 48
fræði en þessi atriði séu ekki
tekin til greina hjá þeim. Þá
segja varðskipsmenn að þeir
séu eina stéttarfélagið í landinu
sem ekki geti farið í verkfall og
þeir séu í raun lögreglumenn.
— Málefna-
samningur
Framhald af bls. 48
gert með þeim fyrirvara að það
væri samþykkt í flokkunum.
Morgunblaðið spurði Björgvin
hvort ákvæði um greiðslu fullra
vísitölubóta á laun væri í málefna-
samningnum. Kvað hann það mál
enn vera í sérstakri nefnd og það
hefði ekki verið afgreitt þaðan, en
yrði tekið fyrir síðar, sérstök
þriggja manna nefnd ynni að
könnun þess.
— Birgir ísleifur
Framhald af bls. 3.
ársins komi inn og hvernig
útgjöld dreifist á árið. Reynslan
hefur verið sú undanfarin ár að
haustmánuðirnir eru erfiðastir.
Þá eru greiðslur vegna aðalfram-
kvæmdatíma ársins í hámarki en
tekjur koma frekar dræmt inn. Á
þessu hausti Verður greiðslustaða
borgarinnar vafalaust erfið en sá
vandi verður ekki meiri nú en við
blasti á sama tíma fyrir ári. Þá
virðist mér að áramótastaðan
verði svipuð og hún var í lok
ársins 1977. Þann vanda, sem
Framhald af bls. 15
Það er 200 mílna útfærslan og
Óslóarsamkomulagið sem kemur
til hæstaréttar þjóðarinnar 25.
þessa mánaðar. Lúðvík Jósepsson
kallar hvort tveggja „innantómt
grobb“ en framboðsritstjórarnir
„óþverraverk" og „háska“. Enginn
blasti við á vormánuðum 1977,
leystum við með niðurskurði
framkvæmda og aðhaldi og
sparnaði í ýmsum þáttum sem
snerta rekstur og með bráða-
birgðaláni að upphæð 300 millj.
kr. sem greitt var eftir áramót.
Niðurstaða mín er því nú, að
hinir nýju valdhafar í borgar-
stjórn taka við blómlegu búi og
vonandi tekst þeim að varðveita
það.
— Eignaskattur
Framhald af bls. 23
haust er repúblikaninn Evelle
Younger og hann var mjög fylgj-
andi eignaskattslækkuninni. í
skoðanakönnun sem birt var
skömmu fyrir atkvæðagreiðsluna
hafði Brown eitt prósent forskot á
Young, svo allt virðist geta gerst
í nóvember.
Nýju eignaskattslögin eiga að
taka gildi 1. júlí næstkomandi, en
vel má vera að þau taki aldrei
gildi, því að andstæðingar þeirra
hafa í hyggju að láta reyna á það
fyrir dómstólunum hvort þau séu
í fullu samræmi við bandarísku
stjórnarskrána.
— 70 millj. kr.
Framhald af bls. 18
fornleifaskráning á ákveðnu
svæði.
III.
Skrá efni, sem safnað var í
þjóðháttasöfnun stúdenta um frá-
færur og önnur skyld verk. Hafizt
verður handa um ýmiss konar
söfnun aðra eftir því sem fé
hrekkur til.
IV.
Ljósmyndun silfurgripa. Verkið
er hafið og er þegar búið að fara
um Austurland, fínkemba allar
kirkjur og söfn, og fá til mynduriar
og rannsóknar mikið af silfri í
einkaeign.
V.
Áformað er að hefjast handa um
að gera myndir eftir gömlum
ljósmyndaplötum safnsins.
VI.
Hafizt verður handa um við-
gerðir safngripa. Áformað er að
byrja á ákveðnum veftum (textil-
um), þ.e. altarisklæðum, augn-
saumuðum sessuborðum, höklum
o.þ.h.
F riðlýsingarsjóður
Samkvæmt skipulagsskrá Þjóð-
hátíðarsjóðs skal Friðlýsingar-
sjóður verja árlegum styrk til
náttúruverndar á vegum Náttúru-
verndarráðs. Náttúruverndarráð
hefur ákveðið að verja styrknum,
eftir því sem hann hrekkur til, í
eftirtalin verkefni:
1. Girðingar í Skaftafelli.
2. Göngubrú á Morsá, Skaftafelli.
3. Þjónustustöð í Jökulsárgljúfr-
um.
4. Girðingar að Búðum, við Dyr-
hólaey, Dímu og Gullfoss.
Alþingi ályktaði hinn 4. maí
sanngjarn íslendingur getur — í
ljósi viðblasandi staðreynda —
áréttað svo ranga skoðun, svo
tilhæfulaus orð, í stærsta hags-
munamáli þjóðarinnar, með
stuðningi við Álþýðubandalagið og
framboðsritstjórana á kjördegi.
sf.
1977 að heimila ríkisstjórninni að
setja Þjóðhátíðarsjóði skipulags-
skrá. Stofnfé sjóðsins er ágóði áf
útgáfu Seðlabanka Islands á þjóð-
hátíðarmynt í tilefni 1100 ára
búsetu á íslandi 1974. Forsætis-
ráðuneytið samdi skipulagsskrá
sjóðsins í umboði ríkisstjórnarinn-
ar og í samráði við dómsmálaráðu-
neytið og Seðlabanka íslands,
hefur hún birzt í B-deild Stjórnar-
tíðinda og er nr. 361 frá 30.
september 1977.
Tilgangur sjóðsins er að veita
styrki til stofnana og annarra
aðila, er hafa það verkefni að
vinna að varðveizlu og vernd
þeirra verðmæta lands og ménn-
ingar, sem núverandi kynslóð
hefur tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöf-
unarfé sjóðsins skal renna til
Friðlýsingarsjóðs til náttúru-
verndar á vegum Náttúru-
verndarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöf-
unarfé sjóðsins skal renna til
varðveizlu fornminja, gamalla
bygginga og annarra menning-
arverðmæta á vegum Þjóð-
minjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn
sjóðsins ráðstöfunarfé hverju
sinni í samræmi við megintilgang
hans, og komi þar einnig til álita
viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið
er í liðum a) og b).
Við það skal miðað, að styrkir úr
sjóðnum verði viðbótarframlög til
þeirra verkefna, sem styrkt eru, en
verði ekki til þess að lækka önnur
opinber framlög til þeirra eða
draga úr stuðningi annarra við
þau.
I stjórn sjóðsins eiga sæti: Björn
Bjarnason, skrifstofustjóri forsæt-
isráðuneytinu, formaður, Jóhann-
es Nordal, seðlabankastjóri, vara-
formaður, Eysteinn Jónsson,
fyrrv. ráðherra, Gils Guðmunds-
son, alþingismaður, og Gisli Jóns-
son, menntaskólakennari. Ritari
sjóðsstjórnar er Sveinbjörn Haf-
liðason, lögfræðingur.
— Pyntingar
í fangelsum
Castros...
Framhald af bls. 39
hæst hafa um mannréttinda-
brot í heiminum og virðast
beina sjónum sínum ein-
göngu til Suður-Afríku og
Rhódesíu. Eða eins og
Hubert Matos, sem af eigin
reynslu þekkir eðli hins
sósíalíska alræðis á Kúbu,
segir:
„Ekkert gerræði eða sví-
virða, sem Castró og þjóð-
félagskerfi hans drýgir, kem-
ur mér lengur á óvart. Eg er
orðinn löngu vanur líkam-
legri og andlegri þjáningu,
misþyrmingu og áreitni í
þeim gleymdu misþyrming-
arbælum, sem nefnd eru
fangelsi Castrós. En það er
annað sem ég ekki skil:
Hvers vegna er þetta ekki
opinberað, hátt og skýrt, dag
hvern á götum Caracas, í
háskólum Mexícó, frá
predikunarstólum skoskra
kirkna, í sjónvarpi Frakk-
lands, í kanadískum fjölmiðl-
um, hjá Sameinuðu
þjóðunum. .. það minnsta
sem hægt er að gera við
raggeit þá sem undir yfir-
skyni hins miskunnsama
postula skemmtir sér við að
kvelja hjálparlaust fólk í
fangelsiskompum, er að af-
hjúpa hann í áugsýn alls
heimsins". — EKG
— Lúðvík um 200
mílurnar 1973
Vantar þig umboð eða framleiðslu-
réttindi? Lestu þá Iðnaðarblaðið.