Morgunblaðið - 10.06.1978, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 10.06.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1978 47 Fyrsta mark IIM í Ar«entínu skorað. Eítir aðeins 32 sek. í leik Frakka og Argentínumanna skorar Frakkinn Lacombe með hörkuskalla. Fylkir vann Ármann FYLKIR lagði Ármann í 2. deildinni í knattspyrnu á Laugardalsvellinum í gær- kveldi. Sigraði Fylkir 2-1 og var það eftir gangi leiksins sanngjarn sigur. Er þetta fyrsti tapleikur Ármenn- inga í deildinni. Leikurinn var aðeins sex mín- útna gamall er Kristinn Guð- mundsson bakvörður Fylkis skor- aði. Finnbirni markverði Ármanns urðu á mistök og tókst ekki að halda knettinum. Fylkismenn sóttu mun meira allan fyrri hálfleik og voru mjög óheppnir að skora ekki. Á 30. mínútu fyrri hálfleiksins kom svo annað mark leiksins. Dæmd var aukaspyrna fyrir utan vítateig Ármenninga og var Guðmundur Einarsson eldfljótur að spyrna, sendi knöttinn inn á Gretti Gíslason sem skoraði. Má skrifa þetta mark á varnarmenn Ár- manns og markvörð sem voru mjög svifaseinir að stilla sér upp í vörninni. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks áttu Fylkismenn svo dauðafæri er Baldur komst innfyr- ir en mistókst hreint ótrúlega í góðu færi. Staðan í ieikhléi var því 2-0 Fylki í hag. Allan síðari hálfleikinn sóttu Ármenningar ákaft en tókst ekki að skapa sér verulega hættuleg markfæri. Það var ekki fyrr en á 35. mín. síðari hálfleiks að vítaspyrna var dæmd á Fylki. Var það furðulegur dómur. Hljóp línuvörðurinn inn að marki og benti á vítapunktinn og samþykkti dómarinn það orða- laust án þess nokkurn tíma að haf flautað eða gert athugasemd. Þráinn Ásmundsson tók víta- spyrnuna fyrir Ármann og skoraði hann með föstu skoti í bláhorn marksins. Þannig endaði leikurinn 2-1. Bæði lið sýndu allgóðan leik á köflum og var barátta leikmanna góð. Þó var fullmikil harka í leiknum og var hún óþörf. Hafði dómarinn Baldur Scheving lítil tök á honum. — ÞR Þór og Þróttur gerðu jafntefli Jafntefli varð milli Þróttar Nes- kaupstað og Þórs frá Akureyri í 2. deildinni í knattspyrnu í gærkveldi. Leikið var á Neskaupsstað. Þór skoraði fyrsta mark leiksins strax á 2. mínútu úr vítaspyrnu. Það var svo þjálfari Þróttara Helgi Ragnarsson sem jafnaði fyrir heimamenn. Þannig endaði leikur- inn 1.1. Þróttarar áttu mun mcira í fyrri hálfleik og áttu skot í stöng og þverslá, en ekki var heppnin með þeim og í netið vildi knötturinn ekki. Þórsarar sóttu í sig veðrið er líða tók á ieikinn og voru betri aðili í síðari hálfleik. 14 íslensldr handboltamenn leika erlendis næsta vetur UNDANFARIN ár hafa nokkrir af okkar bestu handknattleiksmönnum leikið með erlendum félagsliðum og enn bætist í þann hóp. bil. Alls munu þá sjö íslenskir leikmenn spila í V-Þýskalandi, þrír leika í Svíþjóð og einn í Danmörku. Ekki þarf að því að spyrja, að þetta er mikil blóðtaka fyrir íslenskan handknattleik. Hinn snjalli handknattleiks- maður Björgvin Björgvinsson og hinn ungi og efnilegi Þorbergur Aðalsteinsson munu báðir leika í V-Þýskalandi næsta keppnistíma- HMá skjánum Á SUNNUDAGINN kl. 16.30 verður sýndur í Sjónvarpinu leikur Ítalíu og Frakklands úr HM í Argentfnu. Leiknum lauk með góðum sigri ítala, en mark Frakka var skorað eftir aðeins 30 sekúndur og er það fljótgerðasta mark sem skorað hefur verið í sögu HM. Klukkan 18.10 sama dag verður síðan sýndur leikur Austurríkis og Svíþjóðar. Á sunnudaginn klukkan 16.30 verður sýndur leikur Itala og Ungverja og var þar um mjög góðan leik að ræða. Á mánudagskvöldið verður síð- an sýnd syrpa úr fjölda leikja í Argentínu og getur þar að líta rúmlega 30 mörk. Á þriðjudagskvöldið er HM enn á dagskrá og verður þá sýndur leikur Itala og Argentínumanna, úrslitaleikurinn í 1. riðli. Hefst leikurinn klukkan 18.15. Leikir í HM um helgina LAUGARDAGUR: (ath. ísl. tími) Ítalía - Argentína kl. 22.1$ í Buenos Aires Frakkland — Ungverjaland kl. 16.45 í Mar Del Plata Mexico — Pólland kl. 19.45 í Rosario Túnis — V-Þýzkaland kl. 19.45 í Cordoba SUNNUDAGUR: (ath. ísl. tfmi) Svípjóð — Spónn kl. 16.45 í Veles Sarsfield Brasilía — Austurríki kl. 16.45 í Mar Del Plata Perú — íran kl. 19.45 í Cordoba Skotland — Holland kl. 19.45 í Mendosa. Þá hafa óstaðfestar fréttir flogið fyrir um að fleiri leikmenn séu á förum. Það er ekki undarlegt að tilboð hinna erlendu félaga freisti leikmanna, þau bjóða ýmis hlunnindi og leikmenn hafa nægan tíma til æfinga. Lítum á þá sem leika erlendis. V-Þýskalandi: Axel Axelsson, Olafur Jónsson, Ágúst Svavarsson, Gunnar Einarsson, Björgvin Rjörgvinsson, Þorbergur Aðal- steinsson, Einar Magnússon. Svíþjóð: Jón Hjaltalín Magnús- son, Jens Jensson, Guðmundur Sveinsson, Garðar Kjartansson. Danmörk: Gunnar Einarsson. Noregur: Magnús Guðmundsson. Á þessari upptalningu má sjá að það eru alls 14 leikmenn, sem leika með erlendum félagsliðum næsta tímabil. LIDIN I 1. RIÐLI SÓKNDJÖRFUST ALLS hafa nú verið skoruð 39 mörk í fyrstu leikjum HM-keppn- innar í knattspyrnu og vantar 13 upp á að skoruð hafa verið 1000 mörk í lokakeppni HM frá upp- hafi. Þar sem lítið var skorað af mörkum í síðustu leikjum er meðalskor nú 2,44 og ekkert mark skorað í þremur leikjum. Liðin í fyrsta riðli virðast vera sókndjörf- ust en þar hafa verið skoruð 13 mörk, fimm þeirra skoruðu ítalir og Argentínumenn fjögur. V-Þjóð- verjar, Hollendingar og Pólverjar eru þeir einu sem ekki hafa fengið mark á sig til þessa. ítalir, Austurríkjamenn og Argentínu- menn hafa ekki tapað stigi. Á meðfylgjandi mynd má sjá hinn lánlausa markvörð Mexíkó, Petro Soto Moneni horfa á eftir knettinum í netið eftir þrumuskot Heinz Flohe. Mexikó tapaði 6:0. HM í K N A T T S P Y R N U Magnús Guðm. til Noregs HANDKNATTLEIKSLID Víkings hefur orftið fyrir enn einu áfall- inu. Magnús Guðmundsson, sem verið hefur einn styrkasti varnarmaður liðsins mun innan skamms flytja til Noregs. Mun Magnús starfa í Osló og jafn- framt leika handknattleik með einu Oslóarliðanna. Magnús er priðji leikmaöurinn sem yfirgefur Víking á pessu sumri og flytzt til útlanda. Hinir eru eins og fram hefur komið í Mbl. óður Björgvin Björgvinsson og Þorbergur Aðalsteinsson, sem munu leika í Þýzkalandi næsta vetur. Magnús Guðmundsson hefur leikið með Víkingi mörg undan- farin ór og hann hefur leikið 4 sinnum í landsliði. _ss. Smáfréttir úr útlandinu ■■ Oklabrotinn markakóngur í PERÚ urðu áhorfendur vitni að ótrúlegum atburöi í leik Union Zona Agraria og Sport Boys. Union átti í hinum mestu vandræöum með aö stilla upp liði vegna meiðsla leik- manna og þegar í leikinn var komið, gátu Union aöeins teflt fram 10 leikmönnum. Einn af sjúkralista Union var brákaður á ökla, en er hann sá fyrir sér lið sitt vera að tapa vegna manneklu, braut hann af sér gifsið og hóf að leika. Og ekki nóg með það, heldur skoraöi hann fimm mörk í leiknum og tryggði liði sínu sigur, 6—1. „Ég er ekki dauðuK' í UPPHAFI leiks nokkurs í Sullana í Perú var gerð einnar mínútu þögn í minningu dómarans Senor Sosa, sem tilkynnt hafði verið að hefði látist í bílslysi á leið sinni á völlinn. En meðan þögnin stóð sem hæst, glumdi við í hátalakerfi vallarins: „Ég er djúpt snortinn, en ég er alls ekki dauður," og var þar Senor Sosa mættur í fullu fjöri. Var því að sjá aö hér hefði verið um gabb að ræða. Fótspyrna Á SÍÐASTLIÐNU keppnistímabili dæmdi vestur-þýzka knattspyrnu- sambandið þjálfara nokkurn í leik- bann vegna þess að hann hvatti menn sína til þess aö sparka í fætur á mótherjunum. Hvað heitir lið hans? Auövitaö „Kickers“ frá Offenbach.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.