Morgunblaðið - 10.06.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.06.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR' 10. JÚNÍ 1978 Starfsfólk B.Ú.IL Kcnsur aí fundi eftir að vísað var frá sáttatillögu bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Ljósm. Rax. Sáttatillögu bæjarstjórnar Hafnarfjarðar vísað frá SÁTTATILLAGA sú sem bæjar stjórn Hafnafjarðar samþykkti á fundi sínum á miðvikudags- kvöld var felld á fundi sem verka- lýðsfélögin í Hafnarfirði héldu með starfsfólki Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar f gærdag, þar sem samþykkt var frávísunartillana þar sem scgir að fundurinn tclji það rétt að ráða nú þegar verkstjóra í 1—2 mánuði meðan fundin sé lausn á þessum mál- efnum. Á fjölmennum fundi starfsfólks B.Ú.H. sem Verkakvennafélagið Framtíðin og Verkamannafélagið Hlíf héldu voru í upphafi lesnar kveðjur og stuðningsyfirlýsingar við starfsfólk frá Verkamanna- sambandi íslands, Verkakvenna- félaginu Snót í Vestmannaeyjum, Verkalýðsfélaginu í Vestmanna- eyjum, trúnaðarmannaráði starfs- manna ísal, Verkakvennafélaginu Framsókn og Starfsmannafélag- inu Sókn og fleiri kveðjur höfðu áður borist. Hallgrímur Pétursson formaður Hlífar lagði fram tillögu bæjar- stjórnarinnar ásamt tillögu minnihluta, en þá kom fram. eftirfarandi frávísunartillaga: „Fundur verkafólks í Fiskiðju- veri Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar haldinn 9.6. 1978 samþykkir eftir- farandi: Tillaga sú sem meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar sam- þykkti á fundi sínum 7.6. og hér hefur verið rædd á fundi okkar er efnislega sú sama og sú er felld var með greinilegum atkvæðamun. Við teljum okkur misboðið með tillögu þessari og vísum henni frá. Framhald á bls. 26. Alþýðubandalag: Grunur um að forystumenn ætliað„svíkja” í „herstöðva- málinu” - Sýnum „valtmkollum” styrk okkar, segir Árni Björnsson Bersýnilet er, að innan Al- þýðubandalagsins hafa vaknað grunsemdir um, að forystusveit þ'ess hyggist „svíkja" í „herstöðvamálinu". Þessar grunsemdir koma afar skýrt fram í grein er Árni Björnsson þjóðháttafræðingur ritar í Þjóð- viljann í gær, þar sem hann hvetur flokksbræður sína til þátttöku í Keflavíkurgöngu að því er virðist fyrst og fremst til þess að gera „eina þingflokki herstöðvarandstæðinga" ljóst hver styrkur þeirra er. Segir Árni Björnsson aö gangi flokks- bræður hans ekki „getum við sjálfum okkur um kennt, ef Alþýðubandalagið „svíkur" í herstöðvamáiinu." í grein sinni kvartar Árni Björnsson undan því, að „aúð- valdið“ gerir sér vonir um að með því að draga varnarmálin inn í kosningabaráttuna „megi takast að hræða forystu Al- þýðubandalagsins frá því að gefa nokkrar stórorðar yfirlýs- ingar um brottför hersins og Natoúrsögn sem skilyrði fyrir stjórnaraðild." Jafnframt er greinarhöfundur fullur grunsemda yfir því, að Þjóðviljinn hafi lítið fjallað um varnarmálin og segir: „Sumum finnst reyndar einmitt, að Alþýðubandalagið og Þjóðvilj- inn hafi ennþá ekki svarað hvað þá tekið þessari áskorun Framhald á bls. 26. Breytt ástand á miðunum Sjö sóttu um stöðu skattstjóra 1 Rvík Sjö manns sóttu um embætti skattstjóra í Reykjavík, en um- sóknarfrestur rann út fyrir skömmu. úm stöðuna sóttu eftir- taldiri Atli Gíslason, lögfræðingur, full- trúi við embætti ríkisskattstjóra, Gestur Steinþórsson lögfræðingur, varaskattstjóri við embætti skatt- stjórans I Reykjavík, Haraldur Árnason deildarstjóri við embætti skattstjórans í Reykjavík, Úlfar Sigvaldason, fulltrúi við embætti skattstjórans í Reykjavík, Ólafur Stefánsson lögfræðingur, fulltrúi í fjármálaráðuneytinu, Ragnar Olafsson, deildarstjóri við embætti skattstjórans í Reykjavík og Sig- valdi Friðgeirsson lögfræðingur, skrifstofustjóri við tollstjóraem- bættið í Reykjavík. RÍKISSTJÓRNIN einsctti sér um það leyti sem hún tók við völdum, að framfylgja því stefnumarki Sjálfstæðisflokksins að færa fisk- veiðilögsöguna út í 200 mflur. Þetta tókst n\eð Óslóarsamningn- um, scm gerðir voru við Breta, og með samningunum við V-Þjóð- vcrja. Hinn 28. ágúst, 1974, þegar rík- isstjórnin tók við völdum, var ástandið á miðunum þannig að við veiðar voru 58 brezkir togarar, sem skiptust í þrjá hópa. Einn hópurinn var að veiðum norðvest- ur af Grímsey og hinn þriðji var við Hvalbak. Þennan sama dag voru 9 vest- ur-þýzkir togarar að veiðum vest- ur af Látrabjargi og höfðu þá aðrir 9 rétt áður verið farnir út fyrir 200 mílna mörkin, því að deginum áður voru þar 18 vestur-þýzkir verksmiðjutogarar. Þá voru einnig þrír belgískir togarar að veiðum innan við 200 mílna mörkin eða samtals 80 togarar að veiðum innan eða við 200 mílna mörkin. Ástandið á miðunum í dag er allt annað, að því er varðar veiðar erlends togaraflota. Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæzlunn- ar voru hér í fyrradag 3 belgískir togarar og 4 færeyskir. Þá voru hér einnig 3 færeyskir línuveiðar- ar, 5 færeyskir handfærabátar og 5 norskir línuveiðarar. Mikið kal vída í S-Þingeyjarsýslu LJÓST er nú að töluvert er um kal í Suður-Þingeyjasýslu, og mun sömu sögu að segja úr Norður-Þingeyjasýslu, og eins úr Húnavatnssýslum að því er Morgunblaðinu var tjáð í gær. Sumsstaðar er ástandið þannig, að bændur munu aðeins geta hálfnýtt túnin. Stefán Skaftason ráðunautur í Straumnesi tjáði Morgunblaðinu í gær, að kal hefði orðið meira að þessu sinni í S-Þingeyjasýslu en menn hefðu átt von á. Kvað hann ástandið sérstaklega slæmt f Ljósavatnshreppi. „Þar ná bænd- ur ekki nema hálfum heyjum í sumar," sagði hann. Þá sagði Stefán, að á Reykjum II í Fnjóskadal væru tún illa farin og gizkuðu menn á að 70% af þeim væru ónýt. Sömu sögu væri að segja frá nokkrum stöðum í Aðaldal, og einnig vissi hann að tún væru mjög kalin á nokkrum bæjum í Kinninni eins og Lækja- móti og Hriflu. Um ástæðuna sagði Stefán að tún hefðu verið mjög svelluð um Ráðherrar Alþýðubandalagsins vorið 1974: Tóku 7,5 vísitölustig aflaun- þegum—verðtryggðu lán Húsnæðismálastjómar Þverbrot á glldandi kjarasamningum, sagði forseti ASÍ þá VORIÐ 1974 stóðu ráðherrar Alþýðubandalagsins í þáverandi ríkisstjórn og þingflokkur þess að tveimur veigamiklum aðgerðum í efnahagsmálum • 7,5 vísitölustig voru tekin af launþegum með bráðabirgðalögum • í fyrsta sinn var tekin upp verðtrygging á lánum Húsnæðismálastjórnar. Hinn 1. júní átti kaupgjaldsvísitala að hækka um 15,5 vísitölustig sem greiða átti á öll laun. Ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar, sem Alþýðubandalagið átti aðild að, ákvað að greiða niður 8 af þessum vísitölustigum. Ekkert fé var til í ríkissjóði til þess að standa undir því. Síðan gaf ríkisstjórnin og þ.á m. þeir Lúðvík Jósepsson, púverandi formaður Alþýðubandalagsins, og Magnús Kjartansson út bráðabirgðalög þar sem 7,5 vísitölustig voru tekin af launþegum. Með þeirri ákvörðun einni var tekin af launþegum fjárhæð, sem í dag mundi jafngilda 3—4 milljörðum króna bara um þau mánaðamót. Jafnframt ákvað vinstri stjórnin og þar með Alþýðu- bandalagið að taka skyldi upp verðtryggingu á lánum Húsnæðismálastjórnar. Var það í fyrsta sinn sem slíkt var heimilað. Um afnám 7,5 vísitölistiga með bráðabirgðalögum sagði Björn Jónssin forseti ASÍ í viðtali við Morgunblaðið um þær mundir: „... ég tel þetta þverbrot á gildandi kjarasamningum...“ Var þá ákvörðun vinstri stjórnarinnar og þar með Alþýðubandalagsins að verðtryggja lán Húsnæðismála- stjórnar sagði Eðvarð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar í viðtali við Morgunblaðið um þær mundir: „Ég teldi það ákaflega slæmt, ef sá hluti íbúðarlána, sem ætlað er að verða þeim fátækustu að liði, yrði vísitölubundinn." áramót, síðan hefðu komið miklar þýður í byrjun apríl, og svo snöggfrosið á blauta jörðina, við þannig ástæður væri ávallt mikil hætta á kali. Þá sagði hann að lítið sem ekkert hefði borið á kali í túnum á þessum slóðum síðan 1970. 25 m. kr. til að leysa atvinnu- vanda unglinga EINS og Brigir ísleifur Gunnarsson fyrrverandi borgarstjóri skýrði frá í Morgunblaðinu í gær hafði fyrrver- andi meirihluti borgarstjórnar til- búnar áætlanir til að leysa atvinnu- vanda unglinga í Reykjavík. Þetta mál var á dagskrá á fundi borgar- ráðs Reykjavíkur í gær, og var þá samþykkt 25 millj. kr. aukafjárveit- ing til að auka atvinnu unglinga 16 ára og eldri. 33 milljón króna sala hjá Engey Skuttogarinn Engey RE seldi 165,2 lestir af fiski í Hull í gærmorgun fyrir 32.9 millj. kr. Meðalverð á kfló var kr. 199.32.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.