Morgunblaðið - 10.06.1978, Page 33
I
Vinsældalistar og fréttir ör poppheiminum....
Vinsœldalistar
SMOKIE, sem leit inn á listahátíð um daginn, tók stórt stökk upp brezka
vinsældalistann í vikunni. Lagið, sem hljómsveitin gerir það nú gott með, nefnist „Oh
Carol“, en hljómsveitin flutti það á hljómleikunum hér í vikunni. Ekki getur það talist
einkennandi fyrir Smokie og er byggt á ragtime-tónum. Til að gera langa sögu stutta
þá eru breytingar annars staðar litlar og því birtum við vinsældalistana án frekari
orða.
London .
1. (1) Rivers of Babylon — Boney M.
2. (13) You’re the one that I want — John
Travolta og Olivia Newton-John
3. (2) Boy from New York city — Darts
4. (3) If I can’t have you — Yvonne Elliman
5. (4) Night fever — Bee Gees
6. (8) What a waste — Ian Dury
(7) Love is in the air — John Paul Young
8. (10) Ca plane pour moi — Plastic Bertrand
9. (21) Oh Carol — Smokie
10. (6) Because the night — Patti Smith
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
New York
1. (1) Shadow dancing — Andy Gibb
2. (2) Too much, too little, too late — Johnny
Mathis og Deniece Williams
3. (3) You’re the one that I want — John
Travolta og Olivia Newton-John
4. (9) Baker street — Gerry Rafferty
5. (5) Baby hold on Eddie Money
6. (6) Feels so good — Chuck Mangione
(8) It’s a heartache — Bonnie Tyler
8. (4) With a little luck — Wings
9. (7) The closer I get to you — Roberta Flack
og Donny Hathaway
10. (13) Love is like oxygen — Sweet
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Amsterdam
1. (1) Rivers of Babylon — Boney M.
2. (2) Substitute — Clout
3. (3) Ca plane pour moi — Plastic Bertrand
4. (4) Night fever — Bee Gees
5. (6) Met de vlam in de pjip — Henk
Wijngaard
6. (5) Lady McCorey — Band Zonder Naam
(7) Eagle - ABBA
8. (8) Presence dear — Blondie
9. (—) Acht de Rhododendrons — Tol Hansse
10. (13) If you can’t give me love — Suzi Quatro
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Bonn
1. (2) Rivers of Babylon — Boney M.
2. (1) Take a chance on me —. ABBA
3. (4) Stayin’ alive — Bee Gees
4. (5) For a few dollars more — Smokie
5. (9) Runaround Sue — Leif Garrett
6. (16) Night fever — Bee Gees
(12) If paradise is half as nice — Rosetta
Stone
8. (3) If you can’t give me love — Suzi Quatro
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Hong Kong
1. (5) I was only joking — Rod Stewart
2. (4) You’re the one that I want — John
Travolta og Olivia Newton-John
3. (6) Night fever — Bee Gees
4. (2) Dust in the wind — Kansas
5. (7) With a little luck — Wings
6. (1) Emotion — Samantha Sang
(3) Fantasy — Earth, Wind and Fire
8. (9) Ego — Elton John
9. (8) Falling — Le Blanc og Carr
10. (12) It’s a heartache — Bonnie Tyler
Boney M.
Lestarrœningi
með Sex Pistols
Ný lítil plata með hljómsveit-
inni Sex Pistols er væntanleg á
markaðinn á næstunni en frekar
hljótt hefur verið um hljóm-
sveitina síðan söngvari hennar
Johnny Rotten, hætti í henni
fyrr í vetur. Þá kemur út seinna
á árinu breiðskífa með ræfla-
rokkurunum og eru lögin á
henni úr kvikmynd um hljóm-
sveitina sem frumsýnd verður í
haust.
Á litlu-plötunni eru lögin
„God bless the Sex Pistols" og
„My way“ og syngur lestarræn-
inginn Ronnie Briggs fyrr-
nefnda lagið. Briggs er þekktur
fyrir hlut sinn í „lestarráninu
mikia" í ágúst 1963 en þá var
hann í hópi 11 ræningja sem
rændu póstlestina London-Glas-
gow skammt utan við London.
Að undanförnu hefur Briggs
dvalið í Brasilíu og þar kynntust
meðlimir Sex Pistols honum.
Síðarnefnda lagið syngur
bassaleikari Sex Pistols, Sid
Vicious.
Bæði lögin eru af breiðskíf-
unni og er búizt við að fleiri lög
af henni verði gefin út á litlum
plötum áður en skífan sjálf sér
dagsins ljós. Lögin eru flest ný
en þó eru nokkur eldri innan um
og voru þau hljóðrituð á hljóm-
leikum.
Kvikmyndin um Sex Pistols
mun vera nokkurs konar heim-
ildarkvikmynd og er saga
hljómsveitarinnar rakin í tali og
tónum.
Frá því Rotten hætti í hljóm-
sveitinni hefur enginn söngvari
verið í henni og hafa hljómsveit-
armeðlimirnir þrír séð um
sönginn. Nú mun eiga að bæta
úr þ.ví og hefur. hljómsveitin
auglýst eftir söngvara. Hafa
nokkrir þegar verið reyndir en
enginn hefur talizt nógu góður
að mati þremenninganna.
Frá Rotten er það hins vegar
að segja að hann hefur stofnað
nýja hljómsveit og er nú í þann
mund að hefja hljóðritanir á
nýrri hljómplötu.
Bítlatónleikar á
veðhlaupabraut
JAPANSKUR auðkýfingur
skýrði nýlega frá því að hann
hefði mikinn hug á að reyna að
fá Bítlana til áð koma saman og
halda eina tónleika á veðreiða-
braut í Liverpool. Er Japaninn
reiðubúinn að borga Bítlunum
sem svarar allt að 11,8 milljörð-
um króna, ef þeir halda tón-
leika.
Japaninn heitir Rocky Aoki
og er fyrrum olympíumeistari í
fjölbragðaglímu. Kveðst Aoki
þekkja Yoko Ono konu John
Lennons vel, og ætti það að
auðvelda honum allar samn-
ingaviðræður við Lennon.
Aoki þessi reyndi nýlega að
kaupa frægasta veðhlaupahest
Bretlands, Red Rum, og hauð
hann 250 milljónir fyrir hestinn,
en eigandinn vildi ekki selja. Nú
er Japaninn að gera tilboð i
veðreiðabraut í Liverpool og
hefur hann boðið 2,3 'mlljarða
króna i brautina.
Að dómi Aoka gætu tekjur af
hljómleikum Bítlanna og plötu-
útgáfu numið allt að 7' .illjarði
króna.
Margoft áður hefur verið
reynt að fá Bítlana til að halda
tónleika, en þær tilrnunir hafa
hingað til allar farið ut um
þúfur.
Eyðilögðu
te-sjálfsala
Ian Dury
Hljómsveitin Sham 69
hélt nýlega tónleika í skóla
einum í London. Mikil ólæti
urðu á tónleikunum og
áhorfendur skemmdu og
eyðilögðu verðmæti inni í
tónleikasalnum fyrir um
7.500 sterlingspund (3.6
milljónir króna). Það voru
þó ekki nemendur skólans
sem gengu berserksgang
heldur utanaðkomandi lýð-
ur. Tónlistin æsti þá svo
upp að fyrr en varði logaði
allt í slagsmálum og illind-
um. Allt sem til náðist var
eyðilagt, þar á meðal for-
láta te-sjálfsali, sem nem-
endur skólans mátu mikils.
Einn kennara skólans við-
urkenndi eftir tónleikana
að tónlistin hefði haft svo
mikil áhrif á hann að hann
hefði verið að því kominn
að mála slagorð á veggi
skólans, með málningu sem
hann hafði tekið af einum
ólátaseggnum.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1978