Morgunblaðið - 10.06.1978, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1978
Minning:
SigurðurJón
Ingimundarson
Fæddur 3. febrúar 1944
Dáinn 11. maí 1978
Það var kl. 7—8 að morgni,
fimmtudafíinn 11. maí s.l., að
Júlíus Árnason á m/b Bryndísi
kom Ofí tilkynnti formanni Slysa-
varnardeildarinnar á Höfnum að
hann hefði á leið í róður fundið
belf? ofí hluta af stýrishúsi m/b
Hákons, triliubáts héðan frá
Höfnum. Það var brufiðið hart við
Ofí flestir karlmenn í þorpinu voru
komnir til leitar innan fárra
mínútna á þau svæði sem mestar
ií'Kur voru á að reka væri að finna.
Það leið ekki á löngu þar til
leitarmenn fundu hluta bátsins.
Hér var því ekki um neitt að
viliast. Leit var haldið áfram af
landi, af sjó og úr lofti án þess
árangurs sem allir vonuðust eftir
í lengstu lög að eiganda bátsins,
sem einn hafði verið um borð,
kynni að hafa tekist að bjarga sér
í gegnum brimgarðinn. Sú von
varð að láta í minni pokann
frammi fyrir valdi haföldunnar
sem brotnaði á flúðum og útnesj-
um. Sigurður Jón Ingimundarson
34 ára að aldri var með öllu talinn
af og fannst lík hans rekið
sunnudaginn 4. júní s.l., sjómanna-
daginn.
Það var á árinu 1973 að kynni
okkar Sigga Jóns, en svo var hann
ávallt nefndur á meðal þeirra sem
þekktu hann vel, hófust hér í
Höfnum. Siggi Jón. vann hjá mér
við ýmisskonar störf, þó aðallega
við fiskvinnslu og byggingarstörf.
Það er dálítið*.stórt orð snillingur
en þó held ég að Siggi Jón hafi
borið það með sóma hvað varðaði
flökun á fiski. Mönnum er ávallt
margt misvel gefið, svo var það
einnig um Sigga Jón, en ég minnist
þess ekki að Siggi Jón hafi orðið
að gefast upp við þau verkefni sem
hann á annað borð tók að sér og
hægt var að vinna með höndum og
iágmarksverkfærum. Um Sigga
Jón má segja með sanni að allt
hafi leikið í höndum hans. Verk-
lagni hans er bara einn af mörgum
eiginleikum sem koma upp í huga
minn nú er ég fer nokkrum orðum
um látinn samferðamann. Þar
koma fram ýmsar minningar og
atvik sem gáfu mér tækifæri til
þess að kynnast manninum, hans
raunverulega innri manni. Þrátt
fvrir hrjúft yfirborð á stundum þá
gafst mér oft tækifæri til að sjá
hve t.d. börn áttu auðvelt með að
nálgast hann, mér gáfust oft
tækifæri til þess að kynnast
viðhorfum hans til þeirra sem
minna máttu sín, já, mér gáfust
oft tækifæri til þess, á þessum
stutta spotta sem við áttum
samleið, að sjá og finna að þar fór
maður sem ekki bara var með
fimar hendur, heldur einnig gott
hjarta. í góðra vina hópi var Siggi
Jón með afbrigðum skemmtilegur
og oft á tíðum orðheppinn svo af
bar. í fáum orðum sagt var Siggi
Jón Ijúfmenni og góður drengur,
aðeins ef hann hefði verið eins
góður við sjálfan sig eins og hann
var við aðra.
Siggi var um margt afar sér-
stæður maður. Atvikin höguðu því
þannig að hann fór sinn síðasta
róður á lokadaginn 11. maí og
jarðneskar leifar hans fundust á
Sjómannadaginn. Ekki veit ég
frekar en aðrir hvað gerðist, en
það vita allir sem hann þekktu að
þar hefur ekki verið um að kenna
vettlingatökum eða vankunnáttu á
sjó.
Hann var alltaf velkominn inn á
mitt heimili, hvernig sem á stóð,
og ávallt fór hann svo héðan að
hafa skotið styrkari stoðum undir
þá skoðun mína og fjölskyldu
minnar að þar fór ljúfur og góður
drengur.
Sigurður Jón Ingimundarson
var fæddur í Junkaragerði í
Hafnahreppi 3. febrúar 1944. Á
unglingsárum fluttist hann með
móður sinni Helgu Maríu
Sigurðardóttur hingað í þorpið og
bjuggu þau lengst af í Garðbæ.
Móðir hans lést 7. júní 1972. Eftir
það bjó Sigurður Jón einn í
Garðbæ til dauðadags. Faðir hans,
Ingimundur Loftsson, býr á
Drangsnesi. Oft er skammt stórra
högga á milli, sonur hans hálf-
bróöir Sigga Jóns, Loftur, fórst á
Húnaflóa ásamt öðrum manni
þann 17. des. 1977.
Jarðarför Sigga Jóns fer fram í
dag frá Hafnakirkju.
Eg sem þessi orð skrifa svo og
fjölskylda mín sendum öllum
ættingjum hans okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Höfnum 10. júní 1978.
Þórarinn St. Sigurðsson.
Haraldur
Ólafsson
skipstjóri
— Kveðja
• 1895-1978
Haraldur Olafsson fyrrverandi
skipstjóri, sem starfaði hjá Eim-
skipafélagi íslands í rúm 40 ár, er
látinn. Hann átti eina dóttur og
son, sem er látinn, auk þess
ættleiddi hann son, sem nam
járnsmíði, en missti heilsuna á
besta aldri. Eftirlifandi kona hans,
Ásta Ólafsson, er fædd í Ósló 1899
og er nú vistkona í Hrafhistu í
+
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
GUÐRÚN HELGA SVEINSDÓTTIR,
Vallargötu 10,
Keflavík,
lézt 3. júní. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 10. júní kl. 14.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR,
Suöurgötu 51, Siglufiröi,
lézt 9. júní í Sjúkrahúsi Sigiufjarðar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Hjartkær sonur okkar og bróöir,
ÓLAFUR PÁLL HJALTASON,
Heiöargeröi 10,
andaöist aðfararnótt 8. júní á Hammersmith Hospital, London.
Halldóra Sveinbjörnsdóttir,
Hjalli Óli Jónsson
og börn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
MAGNÚSAR MAGNÚSSONAR,
húsasmíðameistara,
frá Vesturhúsum.
Sérstakar þakkir færum viö læknum og hjúkrunarfólki á Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja fyrir góöa umönnun.
Kristín Margrét Ásmundsdóttir,
Helgi J. Magnússon, Unnur Tómasdóttir,
Asa E. Magnúsdóttir, Guömundur Loftsson,
Petra Magnúsdóttir, Þorkell Þorkelsson
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför,
KATRÍNAR GUÐMUNDU EINARSDÓTTUR
fri Flatey á Breióafirói.
Sérstaklega þökkum viö starfsfólki á hjúkrunardeild G, Hrafnistu fyrir
ómetanlega hjálp og umönnun undanfarin ár.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Viö sendum innilegar þakkir til allra sem vottuöu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og útför,
ODDNÝJAR S. EIRÍKSOÓTTUR,
Álftamýri 14.
Guö blessi ykkur öll.
Steinar Viggósson,
Eiríkur Steinarsson,
Eiríkur Þorgrímsson,
Guðlaug Kristjánsdóttir.
Jöfn keppni á
Vetrarmóti Mjölnis
VETRARMÓTI Skákíélagsins Mjölnis, hinu þriðja í röðinni, lauk
fyrir nokkru eítir jafna og spennandi keppni. Hið eiginlega
vetrarmót fór reyndar fram fyrir jól, en þá urðu f jórir þátttakenda
jafnir og efstir og varð því að halda annað mót til þess að fá fram
úrslit. bá voru samt enn tveir þátttakenda efstir og jaínir, þeir
Bragi Halldórsson og Kristján Guðmundsson. Þar sem Kristján er
ckki íélagi í Mjölni var Bragi úrskurðaður Skákmeistari féiagsins
1978. Bragi hefur áður verið mjög nálægt því að hljóta titilinn.
í fyrra tapaði hann t.d. naumlega einvígi við Jónas Þorvaldsson
og þar áður var hann skæðasti keppinautur Björgvins
Víglundssonar sem sigraði þá. Úrslit í mótunum tveimur urðu á
þessa leið>
Aðalmótiði 1—4. Bragi Halldórsson, Kristján Guðmundsson,
Jónas Þorvaldsson og Magnús Gíslason 5‘/2 v. af 8 mögulegum;
5. Þórir Ólafsson 4'/z v., 6. Jóhann Hjartarson 3'/2 v.,7.—8. Haraldur
Haraldsson og Sævar Bjarnason 3 v„ 9. Gísli Jónsson 0 v. Björgvin
Víglundsson hætti keppni eftir þrjár umferðir og hafði hann þá
hlotið einn vinning.
Úrslitin.
1.—2. Bragi Ilalldórsson og Kristján Guðmundsson 3‘/2 v. af 6
mögulegum. 3. Magnús Gíslason 3 v., 4. Jónas Þorvaldsson 2 v.
Mótið fór fram í Fellahelli í
Breiðholtshverfi. í sumar gengst
Mjölnir þar fyrir vikulegum
æfingum á mánudagskvöldum
og hefjast þær kl. 20.
Við skulum nú líta á eina
skemmtilega skák frá vetrar-
mótinu á milli sigurvegaranna,
þeirra Braga og Kristjáns.
Kristján hefur haft lítinn tíma
til þess að taka þátt í skák-
mótum að undanförnu vegna
náms og í þessari skák háir
æfingarleysi honum greinilega:
Hvítt. Bragi Halldórsson
Svart. Kristján Guðmundsson
Ben-Oni byrjun
1. d4 - Rf6, 2. c4 - c5,
(Óvenjulegt er að sjá Kristján
beita öðru en Kóngsindverskri
vörn gegn 1. d4, því að Kristján
hafði Fischer lengi sér til
fyrirmyndar í byrjanavali)
3. d5 — e5,
(„Tékkneska leikaðferöin",
sem hefur reyndar aldrei notið
sérstakra vinsælda)
Skák
eftir MARGEÍR
PÉTURSSON
4. Rc3 - d6, 5. Dc2!?,
(Venjulega er hér leikið 5. e4.
Með hinum gerða leik tekst
Braga hins vegar að rugla
Kristján töluvert í ríminu)
Be7 6. e3 - 0-0, 7. Bd3 - Rbd7,
(Svartur býst greinilega við
að hvítur hróki stutt og hyggst
flytja lið sitt yfir a-skóngsvæng.
Með hliðsjón af uppbyggingu
hvits virðist 7. ... Ra6! vera
bezti leikurinn í stöðunni. Hvít-
ur verður að leika 8. a3, sem
svartur myndi svara með 8. ...
Rc7 og síðar a6 og b5)
8. Rge2 - g6, 9. Bd2 - Rh5,
10. g4 - Rg7,11. Rg3 - Bh4,
12.0-0-0! — Rf6,13. h3 — Kh8?!
(Áætlun svarts er of hægfara.
Svartur varð að þreifa fyrir sér
á drottningarvæng með 13. ...
a6 )
14. Ildgl - Rg8, 15. f4!
Hafnarfirði. Sendum við henni
samúðarkveðju.
4. júní 1978
Kristján Röðuls.
(Hvítur lætur að sjálfsögðu
hendur standa fram úr ermum
á meðan svartur undirbýr
hatramma vörn)
exf4 16. exf4 — f5
(Annars leikur hvítur sjálfur
f5)
17. g5 - Bxg3,
(Hvítur hótaði 18. Rge2 og
biskupinn er illa innlyksa á h4)
18. Hxg3 - Re7,19. h4 - Bd7?
(Svartur hefði getað gert
hvítum mun erfiðara fyrir með
því að leika hér 19. ... Rh5!
Hvítur grípur nú tækifærið og
opnar h-línuna:)
20. h5o—Rxh5, 21. Hgh3-Be8,
22. Be2—a6, 23. Bxh5—gxh5,
24. Re2-b5, 25. Rg3-b4 , 26.
Rxh5—Bxh5, 27. Hxh5-Hf7,
28. Kbl
(Hvítur hefur gjörsamlega
yfirspilað svartan og úrvinnslan
er nú aðeins tæknilegt atriði)
Rg6, 29. - b3!
(Flutningur biskupsins yfir á
al—h8 skáklínuna gerir út um
olf
Haa7, 30. Hh6-Kg8, 31. Bcl-
De8, 32. Bd2—Hf8, 33. Dh2-
Df7, 34. Bal—He7, 35. Bf6!
(Peð svarts á f5 er nú dæmt
til þess að falla og þar með er
hann búinn að vera)
Ha7, 36. Dh3—Deo, 37. Dxf5-
He7
38. Dxg6+!—Dxg6, 39. Hxg6-
hxg6, 40. IIh8+—Kf7, 41.
Hh7+— og svartur gafnt upp.