Morgunblaðið - 24.06.1978, Síða 13

Morgunblaðið - 24.06.1978, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1978 13 Páll V. Daníelsson: Blekking aldarinnar Öllum, sem ekki stinga höfðinu í sandinn, er nú ljóst, að Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag hafa beitt kjósendur hinum hrikaleg- ustu blekkingum í sambandi við sveitarstjórnakosningarnar. Þeir ráku sinn áróður undir kjörorðinu „samningana í gildi" og náðu að telja fólki trú um að hér væri um annað og meira en áróðursbrellu að ræða. Á grundvelli þess fengu þeir kjósendur til að gleyma öðrum málum og þeir unnu veru- legan sigur í kosningunum. Þar með náðu þeir völdum í Reykjavík. En þegar kemur að því að standa við kosningaloforðin, þá er það ekki gert. Þeir að vísu tala um að gera það í áföngum eftir eigin geðþótta. Og flokksböndin halda. Öll hjörðin hljóðnar og kjörorðið „samningana í gildi" er sem sprungin blaðra. Yfirlýsing er gefin um það, að fé sé ekki fyrir hendi til greiðslu launanna. Þar með er staðfest það sem efnahagslögin segja að nauð- synlegt hafi verið að draga úr launagreiðslum vegna þess að fé var ekki fyrir hendi hjá þjóðinni öðru vísi en að stórauka verð- bólguhraðann eða skapa atvinnu- leysi. Og þetta vissu rauðliðarnir. En vinstri flokkarnir reiknuðu ekki með því að ná völdum í Reykjavík og því þyrftu þeir ekki að mæta þeim vanda að standa við kosningaloforðin. Og sigurvímunni fylgdi sá skuggi, að þeir höfðu misst glæpinn sem átti einnig að endast í alþingiskosningunum, þ.e. kjörorðið sitt „samningana í gildi“. Góð ráð voru dýr. Þeir sem aldrei ætluðu að greiða vísitölu- bæturnar urðu að setja á svið nýjan leikþátt. En hann mátti ekki kosta of mikið. Gera eitthvað fyrir kosningar og kippa því svo til baka eftir kosningar. Og hinir sauð- tryggu eins og formaður Verka- mannasambandsins og fleiri framámenn vinstri flokkanna í launþegasamtökum eru látnir ganga undir jarðarmenið og vitna um dásemd og skilning borgar- stjórnarmeirihlutans. „Kaup- skerðingarlögunum formlega hnekkt í Reykjavík" eins og Þjóðviljinn orðar það. Einn borgarfulltrúi Alþýðu- Afreksmaður áttræður Vinur minn, Jón Bene- diktsson, varð áttræður hinn 15. júní sl. Enn hefur ellin ekki beygt hann, hvorki andlega né líkam- lega. Enn er þessi eldhugi og íþróttafrömuður beinn í baki og tiginn í fasi. Enn er hann ungur í anda og frjór í hugsun. Enn leikur honum íslenskt mál á tungu, bundið sem óbund- ið. Enn ber viðmót hans vott um göfgi og mann- kærleika. Þakkir flyt ég Jóni prentara fyrir trölla- tryggð hans og bjarnyl í garð minn og minna fyrr og síðar. Heill og blessun fylgi honum hvar sem leiðir liggja. Gísli Jónsson. Páll Lúthersson: Ólafur Ragnar Gríms- son og flugfélögin Raunalegt er að sjá unga menn hasla sér völl með slíkum ósann- indum, sem raun ber vitni í grein Ólafs Ragnars um ísl. flugfélög í Þjóðviljanum 17. júní. Léleg mannkynning á sjálfan þjóð- hátíardaginn. Tek fram að ég er á engan hátt tengdur Flugleiðum h.f., hvorki með eignaraðild eða atvinnu, aðeins einn af þeim mörgu, sem notfærði mér þeirra góðu og ódýru þjónustu, en ég ferðast mikið bæði utanlands og innan á hverju ári, og er því alls ekki sama hvernig gengur hjá þessu fyrirtæki, sem okkur íslend- ingum er svo nauðsynlegt vegna legu lands okkar. Þar sem ég sit í stjórn norskrar stofnunar, sem hefur á annað þúsund starfsmenn víða um heim, sem sífellt eru á hreyfingu, hefi ég haft aðstöðu til að fylgjast með fargjöldum hinna ýmsu flugfélaga. Ekki fæ ég séð annað en íslenzku flugfélögin standist fyllilega samanburð við verð og gæði á alm. flugleiðum, en að það sé gert á kostnað innanlandsflugsins verður vandséð, þar sem utanlandsflugið bar uppi um 80 millj. króna halla á innanlandsfluginu í fyrra. En tökum örlítinn samanburð á okkar innanlandsflugi og SAS, ríkisreknu flugfélagi frænda okkar á Norðurlöndum. Ég fer frá Reykjavík til Akureyrar, 166 mílur og greiði fyrir það kr. 7.990.-. Ég fer svipaða leið, aðeins 23 mílum lengri, frá Ólsó til Stafangurs í Noregi, 189 mílur, en greiði fyrir það n.kr. 321- eða 15.450.- ísl. Og svo spyr ég fáfróður. Hvers vegna getur ekki þessi risasamsteypa þeirra Norðmanna, Svía og Dana veitt þegnum sinna þjóða sam- bærileg kjör og ísl. flugfélögin veita okkur? Er það e.t.v. gróða- sjónarmið hjá ríkisfyrirtækinu? Má ég heldur biðja um íslenzku flugfélögin eins og þau eru nú, og sleppa við draumóra óábyrgra stjórnmálaforingja um ríkisrekst- ur. Páll Lúthersson Páll V. Daníelsson bandalagsins er að basla við að greiða atkvæði bæði með og móti og þegar hann lendir í algerri blindgötu almenningsálitsins reynir hann að klóra í bakkann og gefa í skyn, að borgarfulltrúi Framsóknarflokksins hafi ráðið ferðinni. Þannig á að reyna að halda áfram að kenna stjórnar- flokkunum um. Þótt skrökvað sé skiptir ekki máli sé hægt að blekkja kjósendur því tilgangurinn helgar meðalið. Og fjármálaábyrgðin er ekki meiri en svo að ekki skipti máli milljarður hér og milljarður þar í stóra kassanum, þ.e. í vösum borgarbúa, að það geti ekki farið einhvern veginn. Lofsöngurinn um allt þetta „formlega" hjá borgarstjórnar- meirihlutanum er hávær mjög, en bæði hjáróma og falskur og formlegheitin eru mörgum harla létt í vasa. En nýja kjörorð borgarstjórnarmeirihlutans í sam- bandi við stjórn borgarmálefna „það fer einhvern veginn" hæfir vel allri ráðsmennsku vinstri flokkanna. Páll V. Daníelsson. Helgi Tryggvason: Eru menn bún- ir að gleyma? Eru menn farnir að missa sjónar á því nú í sundrungar-gern- ingaveðri kosninganna, að á þessu útlíðandi kjöttímabili stóðu flokk- ar ríkisstjórnarinnar saman í fremstu víglínu harðvítugrar bar- áttu fyrir lífshagsmunum þjóðar- innar í bráð og lengd, fiskimiðun- um kringum þetta ægi girta land, þegar stórveldisflota var stefnt gegn okkar skipum og mönnum, sem var af æðri máttarvöldum veitt sú gifta að verjast og sækja af öllum mætti án þess að mannslífi væri grandað. Er nokkur furða, þó að þetta mál, landhelgismálið, þorskastríð- ið, — mál málanna — yrði að eiga allan hug ríkisstjórnarinnar lang- tímum saman frá morgni til kvölds plús langar andvökunætur. Allir aðilar börðust eins og hetjur einar berjast, samhent stjórnar- völd, stilltir menn, rökfastir og einbeittir, — sægarparnir sem hopuðu aldrei fyrir ofureflinu, — rannsóknarmenn leyndardóma hafsins, svo að nokkuð sé nefnt. Og baráttunni lauk með sæmd og sáttum beggja stríðandi aðila. íslenska þjóðin hefur vaxið mjög í áliti umheimsins á þessu kjörtímabili. Ekki skil ég, hvernig þeir menn, sem íslendingar vilja heita, geta Eru menn búnir að gleyma? verið þekktir fyrir að leggja kapp á að kveðja þessa ríkisstjórn með formælingum. Hún hlýtur að verða í íslandssögunni ofarlega á blaði fyrir happasæl baráttustörf þessari kynslóð og komandi kyn- slóðum til heilla. (Eftir kosningar hljóta allir óvinir verðbólgunnar að vera fúsir til að sameinast gegn henni, ef marka má skrif og skraf allra flokka nú síðustu dagana.) Helgi Tryggvason EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Sjálfstæöi gegn sósíalisma Gagnrýniö, líka Þá sem gagnrýna Full atvinna Jafnvægi í utanríkisvidskiptum Samdráttur í ríkisbúskapnum Minnkun erlendra skulda Viönám gegn veröbólgu Kaupmáttur aldrei meiri \ [ i N/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.