Morgunblaðið - 24.06.1978, Page 17

Morgunblaðið - 24.06.1978, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1978 17 Leiðangur á Bárðarbungu. Bárðarbunga er stór askja — Grímsvötnin líklega tvær Meirihluti vill höft á áfengi á Grænlandi Godthaab. Grænlandi. 21. júní. Reuter. SAMKVÆMT úrslitum þjóðarat- kvæðagreiðslu, sem fyrir lágu á þriðjudag. vill meirihluti Græn- lendinga reisa skorður við sölu áfengis á Grænlandi en ekki banna hana með öllu. Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru ekki bindandi fyrir stjórn- völd en koma til með að hafa áhrif á stefnumörkun heima- stjórnar á Grænlandi. þegar hún verður að veruleika á næsta ári. Óhneppur drykkjuskapur hefur verið alvarlegt samfélagsvanda- mál á Grænlandi um árabil. Er talið að hver meðal Grænlending- ur drekki tvöfalt meira áfengi en hver Dani árlega. Þegar lungi atkvæðanna hafði vérið talinn lá ljóst fyrir að um 60 af hundraði höfðu greitt atkvæði með strangari reglugerð um sölu áfengis, en aðeins 45 af hundraði vildu skilyrðislaust sölubann. Færri en tveir þriðju hlutar þeirra 26000, sem atkvæðisrétt höfðu, neyttu atkvæðisréttar síns. VR leggur fram drög að nýskip- an launa- flokka „Á fundinum með vinnu- veitendum í gær lögðum við fram drög að nýrri flokka- skipan, sem ég vil kalla kjörbreytingu og nánast bylt* ingu frá því sem nú er“, sagði Magnús L. Sveinsson varafor- maður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur í samtali við Mbl. í gær. Nú eru 10 launa- flokkar í kjarasamningum VR en í framangreindum drögum eru launaflokkarnir 23. „Ég skal ekkert um það segja á þessu stigi, hvað út úr þessu kemur, en atvinnurekendur ljáðu alltént máls á því að ræða þessa hugmynd frekar", sagði Magnús L. Sveinsson. „Þessi nýskipan er fyrst og fremst miðuð við uppbyggingu launaflokka opinberra starfs- manna fyrir samsvarandi störf og við semjum fyrir“, sagði Magnús. „í samningunum notuðu opinberir starfsmenn sem meginröksemd upplýsingar sem þeir höfðu fengið í gegn um Hagstofu Islands um raunverulegar launagreiðslur til fólks sem vinnur sambærileg störf á almennum vinnumarkaði. Nú þegar þetta liggur allt fyrir og samið hefur verið við opinbera starfsmenn teljum við sjálfsagt og skylt að hliðstæðir samningar verði gerðir við okkur og það er reyndar okkar krafa. Ég vil benda á að launataxtar opinberra starfsmanna eru nú 10—60% hærri en okkar launa- taxtar." UNDIR íshellunni á Bárðar- bungu er askja en ekki hryggur eins og stundum hefur verið giskað á. Og norðan úr Gríms- vötnum í miðjum Vatnajökli nær eldstöðin langt norður fyrir vötnin sjálf. Eru þar kannski tvær samvaxnar öskjur undir ísnum að því er Helgi Björnsson jöklafræðingur tjáði Mbl. Þessarar nýju vitneskju um landslag undir jöklinum var aflað í vorleiðangri Raunvísinda- stofnunar og Jöklarannsóknafé- lagsins, þar sem m.a. var notuð til mælinga svonefnd íssjá, tæki sem smíðað hefur verið og sífellt er þróað og endurbætt í Raunvís- indastofnun. Sendir það rafsegul- bylgjur gegn um jökulinn, en þær endurkastast og veita upplýsing- ar um hvað er undir. Sagði Helgi að tækið hefði unnið mjög vel. Á Bárðarbungu var farið til að athuga hvers konar fjall væri undir ísnum á þessari 2000 m háu bungu. Kom í fyrsta sinn í ljós að „bungan" er askja með hringlaga börmum. Að norðan eru barmarn- ir í 1800—1900 m hæð en að sunnan heldur lægri eða í 1700 m hæð. En í miðju er askja í 1600 m hæð. Askjan er full af ís sem nær upp í 2000 m yfir sjávarmál. Er flatarmál hennar 50 ferkm. Kvaðst Helgi ætla að reyna að fara aftur á jökulinn í haust og skoða þá vesturhluta háns betur og þétta mælingar. • Hlaup innan tveggja ára Leiðangurinn, sem í voru 15 manns í 3 snjóbílum, fór fyrst að Grímsvötnum til mælinga á vatns- hæð og vetrarákomu að venju. Kaffisala í Neskirkju á sunnudag Kvenfélag Neskirkju efnir n.k. sunnudag til kaffisölu í kjallara kirkjunnar. Verða þar kaffi og kökur á boðstólum frá kl. 15 og fram eftir degi og vonast ráða- menn kvenfélagsins til að fólk gefi sér tíma til að staldra við á kosningadaginn og fá sér hress- ingu. Ágóði kaffisölunnar rennur til safnaðarstarfsins, en nú stend- ur m.a. fyrir dyrum að fá nýja fótsnyrtingarvél en sú þjónusta hefur verið mikið notuð að undan- förnu. Reyndist vetrarákoman 4,90 m, sem er snjófall í meðallagi. Vatnshæðin í Grímsvötnum var 1410 m hæð, hefur risið um 60 m á 20 mánuðum frá hlaupinu 1976. Undanfarna áratugi hefur orðið Skeiðárhlaup undan jöklinum þeg- ar vatnshæðin í Grímsvötnum er komin í 1425—1435 m hæð. Má því búast við hlaupi áður en tvö ár eru liðin ef að líkum lætur. Kvaðst Helgi ekki eiga von á stærra hlaupi en undanfarna tvo áratugi, en brýrnar á hringveginum eru gerðar til að þola þau hlaup. Með íssjánni var mælt í Gríms- vötnum og austan við þau, og hafa mælingarnar staðfest þær hug- myndir, sem menn höfðu áður gert sér í grófum dráttum, en gefa gleggri mynd. Er nú hægt að teikna nákvæmt kort af botni vatnanna og útrásinni austur úr þeim. Stórhlaup úr nyrðri öskjunni? Við þessar mælingar kom það nýtt fram, að sögn Helga, að eldstöðin í Grímsvötnum virðist ná langt norður fyrir vötnin sjálf. Sagði hann að e.t.v. væru þetta tvær samvaxnar öskjur. Á árinu 1938 gerðist það að landspilda norður úr Grímsvötn- um seig um 200—300 metra á 7 km. löngu og 2 km. breiðu svæði og rann vatn í Grímsvatnakvosina og fyllti vötnin svo úr varð hlaup aðeins 4 árum eftir stórt hlaup í Skeiðará. Þessi hlaup voru stór- hlaup, miklu stærri en síðan hafa orðið og sem brýrnar eru miðaðar við. Sagði Helgi, að næsta hlaup yrði væntanlega af minni tæinu, nema eitthvað gerðist þarna í nyrðri öskjunni. Vitað var að 1938 gerðist eitthvað þó menn vissu ekki hvað það var. En, eins og Helgi sagði getur ýmislegt gerst í svona öskjum, um leið og hann minnti á Öskju og Kröflu. Að ' vorleiðangrinum stóðu Jöklafélagsmenn, til að mæla í Grímsvötnum og sex menn frá Raunvísindastofnun og maður frá Norrænu eldfjallastöðinni, til mælinga með íssjánni. Vegagerð og Landsvirkjun veittu fyrir- greiðslu, enda jöklamælingar mikilvægar fyrir orkubúskapinn og brýr á Skeiðarársandi. Vísinda- sjóður hefur í 3 ár í röð styrkt smíði og mælingar með þessu nýja tæki, íssjánni. Sagði Helgi að ferðin hefði gengið ágætlega. Mbl. náði tali af honum á Kirkjubæjarklaustri þar sem nú stendur yfir norrænt mót jökla- fræðinga. Stendur það í viku og eru þar 50 manns sem flytja 40—50 fyrirlestra um fræði sín milli þess sem farið er að nær- liggjandi jöklum í skoðunarferðir. A KJORDAG D-listann vantar fjölda bifreiöa til aksturs frá hinum ýmsu bifreiöastöövum D-listans á kjördag. Frambjóöendur heita á stuöningsmenn listans aö bregöast vel viö og leggja listanum liö m.a. meö því aö skrá sig til aksturs á kjördag 25. júní næstkomandi. Vinsamlegast hringið í síma: 82900. Skráning bifreiða og sjálfboöaliöa fer einnig fram á skrifstofum hverfafélaganna. Listínn GAGNRÝNIÐ EINNIG ÞÁ SEM GAGNRÝNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.