Morgunblaðið - 09.07.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.07.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978 3 SinfóníufólMð vill „stereo” Þann 19. júní var haldinn aöalfundur starfsmannafélags S.I. Af fundarsamþykktum má nefna, að skorað var á útvarpsráð, að gera ráðstafanir, þannig að út- sendingar útvarpsins i „stereo" geti hafist hið fyrsta. Fundurinn bendir á að Ríkisútvarpið er um það bil 20 ár á eftir tímanum í tækniþróun útvarpsmála, og kem- ur það ekki síst niður á flutningi frá tónleikum og upptökum S.Í., og er þetta því brýnt hagsmunamál hennar, svo ekki sé talað um þann fjölda hlustenda er fjárfest hefur í dýrum hljómtækjum, en fær ekki notið þeirra hljómgæða sem skyldi sökum framkvæmdaleysis. Enn- fremur var samþykkt að hljóm- sveitin gefi út á ný hljómplötuna „Pétur og úlfurinn" en hljómsveit- in gaf hana út fyrir um það bil 20 árum, og er ætlunin að hún komi út fyrir næstu jól. Einnig lýsti fundurinn furðu sinni á sinnuleysi stjórnvalda á málefnum S.Í., svo sem fram kpm í gerð frumvarps til laga um S.í. í stjórn starfsmannafélagsins voru kosnir Helga Hauksdóttir, Sæbjörn Jónsson, Pétur Þorvalds- son, Hafsteinn Guðmundsson og Herdís Gröndal. Fréttatiik. frá starfsm.fél. Sinfóniuhijóm- svcitarinnar. Listasafn Islands opnað á ný Listasafn íslands var opnað á ný í gær. Til sýnis verða í safninu málverk og höggmyndir úr eigu safnsins sjálfs og aðaláherslan lögð á verk íslenskra listamanna. Safnið verður opið daglega frá kl. 13.30-16.00. Stuðningi lýst við leikrita- höfunda FJÓRTÁNDA þing Norræna leik- listarsambandsins var haldið í Vasa í Finnlandi í maí s.l. Hátt á annað hundrað manns sóttu þingið leikhússtjórar, leikritahöf- undar, leikarar, leikstjórar og fl. í lok þingsins voru samþykktar ýmsar ályktanir, þar sem lýst var stuðningi við leikritahöfunda og ítrekuð sú skoðun þingsins að leikritahöfundum yrðu veittir möguleikar á auknum tengslum við leikhúsin, ýmist með fastráðn- ingu eða á annan hátt, segir í frétt frá Þjóðleikhúsinu. Þá segir ennfremur að allur vilji þingsins hafi beinst að því að bæta afstöðu leikritahöfunda og veita þeim starfsaðstöðu og kjör til jafns við aðra fasta leikhússtarfs- menn. Stjórn Norræna leiklistarsam- bandsins var endurkjörin á þing- inu. Formaður er Björn Lense Möller frá Danmörku en varafor- maður er Sveinn Einarsson, þjóð- leikhússtjóri. í tengslum við þing- ið var fundur Norræna leikstjóra- sambandsins og var* Ritva Siikala frá Finnlandi endurkjörin formað- AlKil.VsiNíiASÍMINN EK: 22480 JHorgunblabib Oll lágu sérfargjöldin fást hjá að viðbættri landsþekktri ÚTSÝNARÞJÓNUSTU Fjölskyldufargjöld til Norðurlanda Lágmarksdvöl 8 dagar, hámarks- dvöl 21 dagur. T.d. Kaupmannahöfn. Hjón meö 2 unglinga á aldrinum 12 til 26 ára aöeins kr. 187.800 fyrir 4. Maki og unglingar fá 50% afslátt. Sérfargjöldin til 80 höfuðborga í Evrópu og Afríku ffyrir einstaklinga. Lágmarksdvöl 8 dagar, hámarksdvöl 21 dagur. Gildir allt áriö. Amsterdam Kr. 77.100- Dublin Kr. 62.600- Dusseldorf Kr. 78.700.- Færeyjar Kr. 38.300- Frankfurt Kr. 86.000.- Glasgow Kr. 51.300.- Helsinki Kr. 95.900- Kaupmannahöfn Kr. 75.100- Lissabon Kr. 102.000- Luxemburg Kr. 78.900- Oslo Kr. 68.600.- París Kr. 82.400- Zurich Kr. 93.200- Athygli skal vakin á pví að frá 17. júní er hssgt að fljúga beint til Parísar og Dusseldorf á laugardögum, einnig til Frankfurt á sunnudögum. Til Luxemburg er daglegt flug. Sérfargjöld til Bandaríkjanna fyrir einstaklinga. Lágmarksdvöl 22 dagar, hámarks- dvöl 45 dagar. T.d. Chicago Kr. 87.300 - Beint flug New York Kr. 80.200 - Beint flug Miami Kr. 110.900- San Francisco Kr. 133.400- Nú er hver að verða síöastur Næstum allt á „Loftbrúnni“ Spánn — Costa del Sol Brottför á sunnudögum. Laus sæti í sept.—okt. Verö frá kr. 90.300- Ítalía — Lignano Guflna ströndin Brottför á fimmtudögum. örfá sæti laus í ágúst og 7. sept. Verö frá kr. 89.800.- Grikkland — Vouliagmeni Örfá sæti laus 27. júlí, 10. ágúst og 14. sept. Verö frá 129.500.- Austurstræti 17, II. hæð símar 26611 og 20100. Ferðaskrifstofan ÚTSÝN * hefureinsog áöur ódýrar vikuferðir til London árið um kring. Brottför alla laugardaga og annan hvern þriðjudag. Verö frá kr. 93.000.- Innifalið er flug, flugvallarskattur, gisting og enskur morgunverður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.