Morgunblaðið - 09.07.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978
13
Ilér er gullborinn, sem notaður var við námugröftinn í Vatnsmýri
1905.
stykki. 7. apríl borað í gegnum
málm og leir og járn á milli. Dýpið
120 fet“.
Þessar heimildir einar geymir
dagbók Hansens um gullfundinn í
Vatnsmýrinni. Ég ætla, að gulllit-
urinn á bornum hafi stafað frá
látúnshylkjum, sem notuð voru
þarna við sprengingar. Grunur
manna var það, að H. Hansson
kaupmaður, sem þá var nýkominn
heim til íslands úr Klon-
dyke-ævintýri í Ameríku, hefði
látið gull eða annan málm niður í
borholuna, en hvort hann hafði við
nokkuð að styðjast, get ég ekki
borið um.
Boranir Hansens báru ekki
árangur, hvað vatnsveituna snerti.
Þær sönnuðu hins vegar, að
skoðun Helga Péturss á jarðlögun-
um í Reykjavík var rétt og þær
lyftu skýlu frá augum mínum í
sambandi við jarðhitann í nánd
við bæinn og notkun hans. Saga
gullleitarfélagsins „Málms" varð
ekki löng, en þó miklu lengri en
svo, að hún verði hér rakin. Gullið
fannst aldrei, en áhald það, sem
félagið flutti til landsins, átti sinn
þátt í því að gera að veruleika
hugmynd mína um notkun jarð-
hita fyrir bæjarbúa".
Þannig lýkur tilvitnun í skrif
Knuds Zimsens.
• Nýir gull-
grafarar með
betri bortækni
Tilraununum til gullleitar lauk í
það sinn með gjaldþroti félagsins
árið 1909. En enda þótt málmleitin
í Vatnsmýrinni hefði engan árang-
ur borið, voru til menn sem enn
báru þá von í brjósti að gull væri
þar að finna.
Hinn 30. maí 1922 var stofnað
hlutafélagið „Málmleit", og var
Kristófer Sigurðsson, þáverandi
slökkviliðsstjóri, aðalhvatamaður
að stofnun þess. Pantaðar voru
borvélar frá Alfr. Wirth & Co. í
Erkelenz í Þýzkalandi og komu
tækin til landsins vorið 1922. Er
það borinn, sem nú hefur verið
gerður upp í Árbæjarsafni. Boran-
ir hófust strax og hafði Helgi
Hermann Eiríksson verkfræðing-
ur umsjón með verkinu. Borinn
var haglabor og mjög kraftmikill.
Borsveifarnar voru handknúnar og
unnu tveir menn, þeir Einar Leó
Jónsson trésmiður og Pétur Þor-
steinsson, verkstjóri við verkið. En
þrátt fyrir góð borunartæki bólaði
ekkert á gullinu í Vatnsmýrinni,
og síðla árs 1924 var ákveðið að
hætta borunum.
• Heitavatns-
boranir fyrir
50 árum
Um svipað leyti var farið að
ræða um nýtingu heita vatnsins í
Þvottalaugunum. Yfirborðsvatn
var ekki nægilega heitt og þurfti
því að bora eftir heitara vatni. Var
því samþykkt að Rafmagnsveita
Reykjavíkur keypti borinn af
Málmleit til jarðborana. En hug-
myndin var að bora og fá upp gufu
og reisa þarna rafstöð.
Þessar boranir stóðu frá 26. júní
1928 til 30. maí 1930. Umsjón með
Framhald á bls. 46.
111 lestir af humri
á land á Höfn:
Humarinn
smækkar
ár frá ári
HUMARVEIÐAR hafa gengið
þokkalega frá Höfn í Hornafirði
að undanförnu og í gær voru
komnar 111 lestir af humri á land
og er það svipað og á sama tíma
í fyrra. Hins vegar hefur humar-
inn reynzt mikið smærri í ár en
í fyrra og sagði Jens Mikaelsson
fréttaritari Mbl. á Ilöfn í gær að
humarinn færi smækkandi ár frá
ári, hver sem ástæðan væri.
Jens Mikaelsson sagði, að í
sumar hefðu 35—38% af humrin-
um flokkazt í stórt, en í fyrra hefði
hlutfallið verið 50—60%. Æskan
er nú aflahæsti humarbáturinn
frá Höfn með 10.1 lest af slitnum
humri, en alls eru gerðir út 13
humarbátar þaðan.
Samhliða humarlöndununum
hafa verið lagðar upp hjá frysti-
húsinu á Höfn 700 lestir af
bolfiski, en 5 handfærabátar róa
þaðan, auk þess 5 bátar með
fiskitroll og 1 línubátur. Mjög
mikil atvinna hefur verið í frysti-
húsinu og er tilfinnanlegur skort-
ur á vönum stúlkum til vinnu við
pökkun á fiski.
Opið frá
2—5 ídag
BergÞórugata
2ja herb. 65 ferm. risíbúð.
Laugavegur
2ja—3ja herb. risíbúð. Verð 6.5
millj., útb. 4.5 millj.
Kárastígur
3ja herb. um 100 ferm. íbúö á
2. hæð. íbúðin og húsið
nýstandsett.
Laugarnesvegur
3ja—4ra herb. íbúð á 2. hæð.
Stór stofa, suðursvalir.
Gaukshólar
5 herb. íbúö í lyftuhúsi. Mikið
útsýni, bílskúr.
Kleppsvegur
4ra herb. góö íbúö á 5. hæö.
Lyfta, suðursvalir.
Æsufell
4ra herb. vönduð íbúð á 2.
hæð.
Hraunbær
4ra herb. 110 ferm. íbúð á 2.
hæð. Fæst aðeins í skiptum
fyrir 3ja herb.
Raöhús
viö Hrauntungu í Kópavogi með
innbyggðum bílskúr.
Seltjarnarnes
Einbýlishús sem er 85 ferm. að
grunnfleti, kjallari, hæð og ris.
Bílskúr.
Lóö á góöum staö í
Arnarnesi
Raöhúsalóð
í Hveragerði
Grunnur tilbúinn, teikningar
fylgja.
Tilbúið undir tréverk
Höfum 3ja og 4ra herb. íbúðir
sem afhendast tilbúnar undir
tréverk og málningu. Öll sam-
eign fullfrágengin, bílskýli.
Sumarbústaöir
Höfum til sölu innflutta sumar-
bústaöi meö öllu.n húsgögnum
og fl.
íbúð óskast til leigu
Höfum verið beðnir að útvega
4ra herb. góða íbúð í gamla
bænum.
LAUGAVEGI 87, S: 13837 16688
Heimir Larusson s. 10399
Ingileifur Einarsson s. 31361
Ingólfur Hiartarson hdl. AsgeirThoroddssen hdl.
Jóhannes Zoega afhenti Árbæjarsafni Gullborinn til varðveizlu á
föstudag og um leið setti Gunnar Sigurjónsson (til hægri) borinn í
gang. Hann og Jón Hansson (til vinstri) unnu í áratugi við hann, Jón
allt frá 1928. þegar byrjað var að bora eftir heitu vatni við
Þvottalaugarnar.
29555
Höfum til sölu
ágæta 3ja herb. íbúö viö Æsufell, íbúöinni fylgir
geysilega góö sameign þ.á. m. frystigeymsla í
kjallara. Mjög gott sameiginlegt þvottahús meö
öllum tækjum, búr er innaf eldhúsi í íbúöinni, hvítt
rýjateppi er á gólfum. íbúöin lítur öll mjög vel út
og er skemmtileg og snotur. Verö 11 — 12 millj.
Útb.: 7.5—8.5 millj. Leitiö upplýsinga nú þegar.
EIGNANAUST
Laugavegi 96 (við Stjörnubíó) Sími 2 95 55
SÖLUM.: Lárus Helgasoii,
LÖUM.: Svanur Þór Vilhjálmsson hdl.
wmmmmmmmmmmmammmmmmammaamm
Garðabær
í smíðum 5—6 herb.
raðhús
Vorum aö fá í sölu 4 glæsileg raöhús viö Ásbúö,
Garöabæ. Húsin eru á einni hæö meö tvöföldum
bílskúr. Ca 135 fm + 36 fm bílskúr. Húsin
afhendast tilbúin aö utan meö gleri, útihuröum og
bílskúrshuröum og afhendast í september til
október ’78. Beöiö eftir húsnæöismálaláni 3,4
millj. Teikningar og nánari upplýsingar á
skrifstofu vorri. _
Húsafell u*.~
FASTEK3NASALA Langholtsvegi 115 AöalSteUVI PtíUTSSOn
< Bæjarie&ahúsinu) sim/ ðf066 BergurGuönason hdl
26200
Lóð
Höfum verið beðnir um að útvega mjög
fjársterkum kaupanda einbýlishúsalóð,
helst sjávarlóö, en þó ekki skilyröi.
FASTElGNASALAItl MOR(il\BLABSHliSI\li
Óskar Kristjánsson
M Á LFLUTHI SCSSKRl FSTOF A
(iuöniundur Pétursson hrl., Axel Einarsson hrl.
Morgunblaóió óskar
eftir blaðburðarf ólki
Austurbær úthverfi:
Skipholt II, Efstasund,
Freyjugata II, Hjallahverfi.
Vesturbær
Nýlendugata
Uppfýsingar í síma 35408