Morgunblaðið - 09.07.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978
21
Hekla kl. 6 sunnudagsmorguninn 11. júní. ii.josm. Kristján m. íiai.iursson)
Útivist
áHeklu
k: >' . ■ '
Hekla er hlaðin þykkum
skýjakraga, en svartleita bungu
ber þar undir norðan megin. Það
er Litla-Hekla. Hvítur Hátind-
uri inn skýst upp úr kraganum,
en hverfur von bráðar. Við erum
stödd við Gaukshöfða, 30 manna
Útivistarhópur. Af Gaukshöfða
er góð útsýn til Heklu.
Hún Mekki hélt sig hafa týnt
sólgleraugunum þar uppi. Það er
kapphlaup um hver er fyrstur
að finna þau. Þá er kallað
meðan úr bíl. Gleraugun lágu í
sætinu og hún Mekki hafði setið
á þeim.
Sólin er að setjast undir
Rauðukamba er við ökum um
Sámsstaðamúla. Þeir verða enn-
þá rauðari og Þjórsárdalur
hverfur sjónum okkar.
Það er liðið að miðnætti.
Tjaldborg er risin.
„Við förum upp kl. 4 eða 5 í
nótt,“ segir fararstjórinn ein-
beittur á svip. „Enginn þarf
meira en 4 klst. svefn á fjöllum."
„Eigum við ekki að semja um kl.
6?“ segir Paula. Þar með var
málið útrætt.
„Á ég að trúa því stúlkur
mínar að þið látið mig vePa
einan og skjálfandi í tjaldi í
nótt,“ segir ungur maður í
hópnum. „You didn’t offer,“ er
svarað á fullkominni ensku. Það
eru ískyggilegar , veðurblikur á
lofti og drungaleg ský birtæt.
Best að hypja sig í tjaldið strax,
kannski hann hristi þetta af sér
í fyrramálið. Vekjaraklukkan
hringir kl. 4 kl. 5 kl. 6 kl. 7 og
kl. 8 fer ég á fætur. Það gengur
á með skúrum.
Gjáin er undurfögur náttúru-
smíð með fossum, flúðum og
stuðlabergi.
Við fornbæinn Stöng hef ég
nóg að gera við að útskýra
híbýlaskipan fornmanna. tieð er
hádegiskaffi og enn eru skúrir.
Háifoss, við hann er Fossá og
fleiri örnefni kennd. Granni er
annar foss nokkru lægri, í
gljúfri inn af Háafossi. Stór
ísflykki standa undir fossúðan-
um. Hér nær sólin ekki að
bræða snjóinn og kælingin er
líka miki).
Sumir verða gegndrepa er
þeir hætta sér of nærri fossin-
um. Það er spennandi að komast
sem næst honum.
Það er áliðið dags og við
göngum yfir mýrar og móa
'
“ ' . „y
VNHHSI
Hátindur Heklu Og Toppgígur iLjósm: Brittu Lockncrt
niður á tjaldstæði. Nú koma
haglél. Eins gott að stefnan sé
rétt. Rebbi kallinn átti ekki von
á gestum í þessu veðri. Hann
horfir lymskufullum augum
framan í okkur. Það er sannar-
lega frásagnarvert að hafa
horfst í augu við ref.
Söngur hljómar í kvöldkyrrð-
inni. Kannski sé að létta til,-
Luuk, hollenski, byrjar að
syngja. Rídum, Rídum. Hin taka
undir og lagið fær 9 mismun-
andi afbrigði. Jafnmörg og
þjóðernin.
Nóttin leggst á. Það er gengið
snemma til náða. Kl. er 6 á
sunnudagsmorgni. Allir á fætur.
Við förum á Heklu. Allt fer á
fleygiferð. Ef að Hekla hefði
fylgst með aðförum okkar, hefði
hún lagst í sinn þykka skýja-
hjúp á ný.
Nú er komið heiðskírt og bjart
veður. Við ökum að rótum
fjallsins við nýja Skjólkvía-
í Ilringlandahrauni
hraunið. Rauðaskál blasir við á
vinstri hönd, mikill og formfag-
ur gígur. Upp af henni er
Hestalda, söðulbakað fjall.
Skjólkvíagígirnir eru úti i
hrauninu til hægri, með falleg-
um roða við gígbrúnir. Sums
staðar leggur gufur upp úr
hrauninu. Það er gott að hvílast
smá stund og ná hópnum saman
áður en lagt er á brattann.
Smám saman fjarlægjumst við
nýja hraunið. Leiðin liggur upp
snjófönn, yfir lágan ás og inn á
hraun er nefnist Hringlanda-
hraun. Það er runnið í lengsta
gosi Heklu frá sögulegum tíma
1766—68. Það er best að þræða
hraunrindana því snjórinn er
gljúpur og þungur til göngu.
Rauðkembingar er nafn á
gígaröð litlu fyrir austan okkur.
Við vorum að ganga ínn í veröld
sem erfitt er að lýsa. Hana
verður að upplifa, til að hún
skiljist. Landið lyftist meir og
meir. Jöklar, fjöll og öræfi.
Stillilogn var á, og svo heiðskírt
að allt sást, sem landfræðilega
er hægt að sjá. Það er tilvalið
að hafa kaffistans í miðri
Heklugjá. Svo nefnist sprungan
og rifnar eftir endilöngu fjallinu
í gosum. Við sátum í leyfum af
henni.
Nú liggur leiðin á snjó og við
fáum ofbirtu í augun, því það er
mikil sól. Klettar eru ísbrynjað-
ir og má á þeim sjá margvísleg
listaverk.
Draumur okkar er að rætast.
Hátindur Heklu er aðeins nokk-
ur hundruð metra framundan.
Nú er allt í lagi að sleppa fram
af sér beislinu, um að gera að
komast sem fyrst á toppinn.
Undir Hátindi er Toppgígur sem
var mjög virkur í gosinu 1947.
En nokkru neðar í SV öxlinni er
Axlargígur. Við stóðum öll á
Hátindi Heklu, 25 manna hópur.
Hún Vallery og öll hin hafa
frá þó nokkru að segja þegar
þau koma hvert til síns heima-
lands. Endurminningin um
þessa gönguferð mun lengi lifa
með okkur. Við gengum ánægð
í kringum Toppgíg, sem var að
mestu þakinn snjó. Á einum
stað, þar sem hitinn er mestur,
höfðu stór ísflykki hrunið úr
börmunum í gígbotninn og voru
fögur á að líta. Á leiðinni niður
gátum við áfram virt fyrir
okkur landið svo langt sem
augað eygði.
Sambandið og
Olíufélagið
kaupa nýtt
olíuskip
MORGUNBLAÐIÐ hefur fregnað
að Oliufélagið h.f. og Skipadeild
Sambandsins séu nú að semja um
kaup á nýju 2000 lesta olíuskipi,
sem kemur til landsins síðar á
þessu ári ef af kaupunum verður.
Áætlað kaupvcrð skipsins er um
1 milljarður króna.
Hið nýja olíuskip er helmingi
stærra en olíuskip þessara fyrir-
tækja, Litlafell og Stapafell. Er
ráð fyrir gert að þegar nýja skipið
kemur, verði annað skipanna selt
strax og hitt á næsta ári, en nýja
skipið á að leysa Litlafell og
Stapafell af hólmi.
3 buxur í pakka kr. 5000 Margar tegundir af buxum kr. 1000, 2000 og 3000 kr. barnaúlpur fyrir 7—12 ára kr. 3000 flauels og nankinsjakkar kr. 3000 skyndisala á morgun mánudag og þriðjudag aðeins. Fatasalan Tryggvagötu 10 Útgerðarmenn — Skipstjórar Að gefnu tilefni sjá netaverkstæöin sér ekki fært aö afhenda loönunætur fyrir næstu loönuvertíð nema full skil séu gerð á greiöslum. Landssamband íslenskra netaverkstæðiseigenda.
Furugrund — Fossvogur 'Vm
Glæsileg 4ra til 5 herb. íbúð við Furugrund til sölu
ásamt stóru herb. í kjallara.
Eskihlíð J/WV/M V Ameríska bókasafnið Nes- ’íí'lte)-' haga 16 verður lokað frá 10. 4 wh' júlí til 31. júlí vegna breytinga.
Stór 3ja herb. íbúð ásamt herb. í risi.
Haraldur Guðmundsson, löggiltur fasteígnasali, (I '
Hafnarstræti 15, íTlenningor/tofnun
símar 15415 og 15414 heima. Bondorikjonno