Morgunblaðið - 09.07.1978, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978 7
I friösælum dal standa
tvö falleg bændabýli. Þau
blasa viö sól og brosa
jafnt viö heimafólki og
vegfarendum. Saklausir
lækir vefja silfurlindum
hlíöina, en fyrir neðan
bylgjast kornstangamóö-
an og skiptir litum viö engi
og tún. Og vel hafa bænd-
urnir byggt sín hús.
En „ein nótt er ei til
enda trygg“. Flóðgáttir
himins opnast og
sakleysislegu silfruöu læk-
irnir, sem áöur voru, velt-
ast kolmórauöir yfir bakk-
ana. Eins og flakandi sár
veröa fagrar akurreinar,
engin fögru eins og aur-
slóö. í morgunsáriö blasir
viö ömurleg sjón: Annaö
húsiö haföi hrunið, en hitt
stóö óhaggað: Á slíkum
grunni höföu bændurnir
byggt: Annar á bjargi,
hinn á sandi, sem flóðiö
haföi sópaö burt.
Meö þessum orðum
lauk Jesús Fjallræöunni,
sem engri ræöu verður
jafnaö viö, nema aö sumra
‘dómi varnaöarræðu
Sókratesar og ræöu
Búddha viö Benares. En
nú ert þú á þessum
sunnudagsmorgni spurö-
ur: Hvernig er hús þitt
byggt? Hverjar eru undir-
stööur þess? Hverjir eru
efniviöir þíns innra
manns? Er trú þín, er
lífsskoðun þín á því bjargi
byggö, aö hún standist
steypiflóð stórrar lífs-
reynslu?
A
bjargi
— eða
sandi?
Meðan sólin skein og
logn var í Ijúfum dal stóöu
húsin óhögguö bæði, og
svo er um þig og þitt hús.
Meðan allt leikur þér í
lyndi er húsi þínu óhætt.
En silfraöir lækir kunna aö
breytast í beljandi röst, og
þá hrynur allt, sem ekki er
á bjargi byggt.
Missir þú jafnvægið eöa
varöveitir þú sálarró, þeg-
ar örlög þín taka óvænta
rás? Hefur þú reist hús þitt
þar, sem því er óhætt þótt
allra veöra sé von? Þegar
húsiö er hrunið er of seint
aö hugsa um undir-
stööurnar. Storma og
steypiregn umflýr engin
kynslóð til frambúöar,
hvorki einstaklingar né
þjóö. Ég þykist ekki böl-
sýnn. Þeir sem öörum
augum líta en ég á sum
kenningaratriöi kristin-
dómsins, telja þá sann-
færingu mína viösjár-
veröa, aö þrátt fyrir gönu-
hlaup og hiröuleysi um
Guö og helga dóma muni
hver mannssál aö lokum
finna leiöina heim, —
heim til Guös. En varlega
skal fávís maöur dæma
um leiðir Guös og lögmál.
í sérstæöum og merkileg-
um sálmi, sem því miöur
er ekki í sálmabókinni
segir sra Matthías:
„Þótt glögg sé ei leiöin
á Guö þinn nógleg
ráö...
og velji hann ekki mína
og vilji ekki þína,
hann vill og velur sína
og vantar aldrei ráð“.
En þótt stjórnin sé
örugg í hendi hans og allt
komist aö lokum aö mark-
miðum, sem hann hefur
sett, hefur 19 alda reynsla
sannaö þaö sem Kristur
kenndi, aö veikur er sá
maður, sem innri kjölfestu
skortir, og illa farin sú
þjóö, sem ekki byggir á
„bjargi aldanna" sitt hús
en fyrirlítur þaö.
Þaö kom mér oft í hug
er ég átti vikudvöl fyrir
fáum árum í Leningrad,
einni fegurstu borg
Evrópu, enda höfuðborg
Rússlands allar aldir frá
dögum Péturs mikla og
fram til 1918. Fagrar hallir,
dýröleg listasöfn og lítt
viöjafnanleg skipulagning
borgarinnar, sem byggö
er á 100 hólmum á Neva-
fljóti, gera hana unaösiega
feröamönnum. En hitt
þótti mér dapurlegt, aö sjá
hinar mörgu veglegu kirkj-
ur lokaðar guösþjónustu-
haldi og teknar til verald-
legra afnota, svo aö aö-
eins voru leyfðar u.þ.b. 20
kirkjur til guösþjónustu-
halds fyrir 4 milljónir
borgarbúa.
Engan veginn svo, aö
ekkert sé þar trúarlíf
annað en trúin á kommún-
ismann. En áróöurinn
gegn kristindómi er sterk-
ur og eru höfuðstöðvar
hans í einni fegurstu og
veglegustu kirkju borgar-
innar. í viðtali viö æösta
mann grísk-kaþólskra
manna í Bretlandi, sem ég
las, fullyröir erkibiskupinn,
sem árlega fer til Rúss-
lands, aö í kristnum
söfnuöum þar eystra séu
um 30 milljónir yfirlýstra
meölima, sem sæki kirkj-
ur, og aö athyglisvert sé,
aö unga fólkið, sem aliö er
upp viö trú kommúnism-
ans leiti í vaxandi mæli til
kirkjunnar, sumir til aö
fræöast um trúarlíf og
aörir til þess aö gerast
virkir meölimir safnað-
anna. Auövitaö býr fólk
þar eystra, þrátt fyrir
andtrúaráróöur, sem
magnaðastur var á dögum
Stalins, aö trúararfi fyrri
kynslóöa. Gamalt tré get-
ur lifaö furöulengi eftir aö
moldin veitir því ekki
næringu. En þótt leita
þurfi í hinni fögru borg
Péturs mikla aö sýnilegum
vitnisburðum kristnilífs
eru þess sólarmerki mörg,
aö í vaxandi mæli leitar
fólk aö bjargi aldanna til
aö byggja hús sitt á.
Annað mál er hitt, — og
þó ekki annað mál, aö
rússneska kirkjan var svo
bundin afturhaldsöflum
keisarastjórnarinnar aö
hún hlaut aö falla meö
henni og var viönámsveik
gegn guðlausum öflum
byltingar. Og þegar ferða-
maöur kemur til Leningrad
í dag og sér þá óskaplegu
auðlegð, sem variö var til
kirknanna, eins og þaö, aö
höfuökirkjan áöur fyrr en
nú safn, helguð heil. ísaki,
er skreytt 100 kílóum af
gulli aö utan og öörum
100 kílóum gulls aö innan
meðan hungur þjáöi tugi
milljóna öreiga í landinu,
er auðsætt, aö flóðalda
byltingarinnar hlaut aö
falla meö ofurþunga á
rússnesku kirkjunni, enda
er hún nú aðeins daufur
svipur af fyrri sjón.
í sinni görnlu mynd rís
hún áreiðanlega ekki aft-
ur, en „bjargiö aldanna"
brotnar ekki þótt á því
skelli bárur, brim og brot-
sjóir.
Guöspjallið um húsin
tvö leiddi hug minn aö
þessum minningum frá
Leningrad undir ráöstjórn,
en hvaö er um Vesturlönd,
stendur þeirra hús á
kletti? Ég verö aö fá aö
geyma mér til næsta
sunnudags að fara orðum
um þaö viö þá, sem
þessar greinar lesa. Rúm
er þrotið aö sinni.
Til viðskiptavina
Litmynda s.f.
Viö viljum tilkynna viöskiptavinum okkar, aö viö
undirritaöir höfum slitiö sameignarfélagi okkar
Litmyndir s.f., Reykjavíkurvegi 80, Hafnarfiröi.
Báöir munum viö, hvor í sínu lagi, reka áfram
prentsmiöju meö sema hætti og áöur undir
eftirgreindum nöfnum:
Prentsmiðja,
Friðriks Jóelssonar,
Reykjavíkurvegi 80,
Hafnarfirði.
Sími 54460.
Litmyndir,
Sverrir Valdimarsson,
Reykjavíkurvegi 80,
Hafnarfirði.
Símar 54500 - 51235.
Sambyggðu
hljómtækin
vinsælu
Kristalstær
hljómur
hljómflutningstækjannt
svíkur engan. Geríö verö- og gæöasamanburð.
SHC 3150
25
wött
Verö 159.980
Útb. 50 Þús.
SHC 3220
70 wött
Verö: 234.320 Utb: 70 þús.
SHC 5300
80
wött
Verö: 298.675 Útb: 100 þús.
Viö bjóöum mjög hagkvæm kjör og góöan staðgreiösluafslátt
3%.
Tækjunum fylgja 2 hátalarar.
Þessi tæki eiga sér enga
keppinauta, enda seljast
hljómflutningstækin í þúsundum.
Skipholti 19
Sími 29800
27 ár I fararbroddi