Morgunblaðið - 09.07.1978, Síða 16

Morgunblaðið - 09.07.1978, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JULI 1978 Frá reidskólanum í Saltvík á Kjalarnesi: Síðari grein Hér á eftir fer síðari hluti grein- arinnar um reið- skólann í Saltvk, en fyrri hluti hennar birtist í blaðinu sl. mið- vikudag. í þess- um hluta er hald- ið áfram þar sem frá var horfið og reynt að bregða birtu á þá starf- semi, sem fram fer í Saltvík. Beizlum útbýtt og til að ailt gangi hraðar mynda krakkarnir einfaida röð. Ljósmyndiri Kristján. „Ég veit ekki hver — þetta voru bara átti þá hestar Marjjarete Ermert fannst mikili Frá prófinu í hestafræðum. sem allir nemendur reiðskólans verða að munur á veðráttunni á ísiandi ok taka. í Kaliforniu. Guðrún Jónsdóttir við húsið sitt. Guðrúnu Dröfn Emilsdóttur lang- ar ekkert í sveit. jafnvel þótt hún Kæti skroppið á hestbak þar. Það er komið fram að hádegi og þar sem lítið er að gerast í Saltvík, þangað til næsti hópur fer í útreiðatúr, grípum við tækifærið og spjöllum við Hjalta Jón Sveins- son, forstöðumann reiðskólans í Saltvík. Við tyllum okkur niður í anddyri gömlu hlöðunnar, en þar hefur verið byggt skyggni í burstabæjarstíl. „Reksturinn hér hófst fyrir svona 10 til 15 árum,“ segir Hjaltj, „og fyrst í stað var reiðskólinn eingöngu rekinn á vegum hesta- mannafélagsins Fáks. En árið 1972 verður þar breyting á og Fákur og Æskulýðsráð Reykjavíkur taka að reka reiðskólann í sameiningu. Rekstrinum er þannig háttað að Fákur leggur til hesta og reiðtygi, en fær í staðinn hluta af nám- skeiðsgjaldiny, en það er nú 20.000 krónur fyrir hvern þátttakanda. Hér eru um 20 hestar, það er þeir 20 hestar, sem notaðir eru í hverjum útreiðatúr, en auk þess eru nokkrir hestar til vara. Venjulega eru hér tveir reiðkenn- arar, Kolbrún Kristjánsdóttir og Aðalheiður Einarsdóttir, auk hestasveins. Þá starfa hér átta manns á vegum Æskulýðsráðs og ein ráðskona er hér einnig." Mikið lagt upp úr öryggi í Saltvík er reynt að gæta fyllsta öryggis og verða t.d. allir sem fara á hestbak að nota öryggishjálma. Við spyrjum Hjalta, hvað sé til í því að allt of mikið sé um reglur og bönn í Saltvík, en einn viðmæl- andi okkar hafði orð á því að svo væri. „Auðvitað eru hér nokkrar umgengnisreglur og þeim verður að hlýta, að öðrum kosti er viðkomandi settur í straff og fær þá ekki að fara á hestbak í einn dag,“ segir Hjalti, en bætir við að sem betur fer, komi ekki oft fyrir að reglurnar séu brotnar. „Það er til dæmis bannað að fara niður í fjöru í leyfisleysi og er ástæðan sú að þar eru brattir hamrar og því hættulegt fyrir krakka að fara þangað. Þá er búið að girða af sviðið, sem notað var á popp-hátíð- inni 1971. Sviðið var orðið nokkuð fúið og var hættulegt að príla mikið á því. Ennfremur er bannað fara upp á fjósþakið og bannað er að fara inn í súrheysturninn, enda er hann ekkert notaður. Ég held þó ekki að krakkarnir súti það, þótt margt sem leyft var í fyrra sé bannað nú. Hér er hægt að gera margt sér til dundurs og starfsfólkið reynir einnig að hafa ofan af fyrir krökkunum. Göngu- ferðir eru oft farnar, enda er hér ymislegt að skoða, fuglalíf er nokkurt og stundum er farið niður í fjöru og þar kveiktur varðeldur og steiktar pylsur og annað kjötmeti. Hafa þessar varðelda- ferðir mælzt vel fyrir, en þær eru mjög háðar veðri og vindum og eru því ekki farnar mjög oft. Síðustu tvo daga nvers nám- skeiðs fara krakkarnir í eins dags ferðalag og fara 40 börn hvorn dag, en hin fara í helmingi lengri útreiðartúra en vant er og eru þá allt upp í þrjá klukkutíma á hestbaki. Þessar dagsferðir eru farnar um næsta nágrenni og er vinsælt að fara upp í Hvalfjörð og skoða það markverðasta þar,“ segir Hjalti að lokum. Litli Blesi var í slæmu skapi Klukkan er farin að nálgast eitt og senn líður að því að næsti hópur bregði sér í útreiðartúr. Krakkarn- ir, sem nú eiga að fara, eru komnir út að réttinni og Aðalheiður biður þá að mynda einfalda röð. Því næst er ákveðið hvaða hest hver fær og er ekki laust við að sumir séu óánægðir með hestinn, sem þeir eiga að fá; en aðrir ljóma af ánægju. En óánægjan víkur fljótt fyrir tilhlökkuninni til útreiðar- túrsins og það barn er vandfundið, sem er súrt á svipinn þegar haldið er frá réttinni. Beizlum og hnökk- um er útbýtt og allir keppast við að leggja á hesta sína. „Ó, má ég fá þetta beizli?" segir lítil stúlka og glöð í bragði hleypur hún að réttinni með beizlið í hendi. Litli B.lesi er eitthvað úrillur og strákurinn, sem á að leggja á hann, er ekki alltof viss um hvort hann eigi að standa inni í réttinni eða utan hennar. Að lokum hleypir hann í sig kjarki bindur klárinn við einn réttarstaruanna og hyggst síðan leggja á Litla Blesa. Við það fælist jórinn og eys og gripið er til þess ráðs að kalla á Aðalheiði, sem klappar Blesa og strýkur og smám saman róast hann. Loks er talið óhætt að leggja á hestinn og Aðalheiður aðstoðar, stráksa til mikils léttis. Við réttina stendur ung stúlka með beizli í hendi og bíður þess að hún komist að hesti sínum, svo hún geti beizlað hann og lagt á hann. Guðrún Dröfn Emilsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.