Morgunblaðið - 09.07.1978, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978
Frá 800—1200 eftir Krist varð
loftslag á norðurhveli aftur hlýrra
en það er nú. Þessu „Litla
hlýviðrisskeiði" fyldu betri
ræktunarskilyrði í Norður-Evrópu
og hefur það ef til vill valdið að
hluta hinni miklu útþenslu
Skandinava, sem fram kom í
Víkingaferðum og landvinningum
allt frá írlandi til Rússlands og
landnámi íslands og Grænlands.
Afturhvarf til kaldara veðurfars
frá 1550 til 1850, höfðu næstum
haft sömu afleiðingar á íslandi,
þar sem korn hætti að geta vaxið
ailt fram til 1920. I kjölfar
þessarar „litiu ísaldar“ fylgdi
mildara loftslag á nær allri
jörðinni og náði hámarki um 1950,
en síðan hefur hitastigið fallið
nokkuð.
Ótal skýringar eru til á þessum
tiltölulega stuttu breytinga-
skeiðum á loftslagi með samsvar-
andi erfiðleikum fyrir landbúnað-
inn. Flestar eru líklegar, en
undantekningarlaust eru þær
ósannaðar. Gallinn er sá, að
nákvæmar skýrslur um veðurfar
ná, þegar best lætur, ekki lengra
aftur en nokkrar aldir, svo að
samsvörun veðurfars og annarra
breytinga getur verið hrein
tilviljun, þó samsvörun sé nógu
nákvæm.
Sólblettir
og eldgos
Ein þeirra kenninga, sem lofar
góðu, tengir skammtíma breyting-
ar á veðurfari orkumagni frá sólu.
Oft er þetta magn kallað
„stöðugt", en er í raun ekki
stöðugra en svo að munar 1—2%
og ekki vitað nema það geti jarnvel
verið enn breytilegra. Stöðugleiki
þessarar orku virðist fara eftir
sólblettamagni. Til dæmis var litla
ísöldin án efa á sama tíma þegar
sólblettir voru óeðlilega litlir, þar
sem aukning á sólblettum síðan
1850 kemur heim við hlýrra
tímabil. Svipaða en nákvæmari
líkingu milli sólbletta og loftslags
má rekja næstum aftur til Krists
burðar.
Önnur eða öllu heldur viðbótar-
kenning um veðurfarsbreytingar
tengir þær við eldgos. Við eldgos
geta milljónir tonna af fínu ryki
safnast í lofthjúpinn og haldist
þar í mörg ár. Slíkt ryk gæti
sjálfsagt dregið úr hita með því að
skyggja á sólina og draga úr
geislum hennar á leið til jarðar.
Og enn kemur fram, að mikil
eldvirkni virðist vera á sama tíma
sem veðurfar er kaldara. Öruggar
heimildir um eldgos ná þó ekki
lengra aftur en tvær aldir.
Við þessi náttúrufyrirbrigði sem
hafa eða hafa ekki áhrif á
lofstlagið, verðum við að bæta
mannlegum þáttum. Einn slíkur er
losun á útblástursefnum frá olíu-
brennslu í andrúmsloftið. Þessi
efni eru stór þáttur í svokölluðum
gróðurhúsaáhrifum í andrúmsloft-
inu, sem verður til þess að mikið
af langbylgjum eða hitaútstreymi
frá jörðinni lokast inni vegna agna
í andrúmsloftinu, og þar með
hækkar hitinn. Enginn efi virðist
á því, að aukinn kolsýringur í
andrúmslofti, sem fylgdi iðnaðar-
byltingunni á síðustu öld, hefði þá
átt að hækka hitastig á jörðinni,
og það var einmitt þetta sem
gerðist milli 1880 og 1950. En þá
lækkaði hitastigið samt sem áður,
þótt iðnaður, bílar og húsahitun
héldu áfram að senda frá sér
kolsýring í vaxandi mæli.
Sumir veðurfræðingar, svo sem
Reid Bryson frá Viseonsinháskóla,
telja að önnur framleiðsla mann-
fólksins hafi dregið úr hitanum, en
það er rykið. Vélvæðing land-
búnaðar og byggingarstarfsemi
hafi aukið rykið í lofthjúpnum,
sem hafi þá orsakað meiri svala,
alveg eins og eldgosaagnirnar.
Allar þessar kenningar eru
trúlega miðað við hitastig á
norðurhveli. Samkvæmt nýlegum
skýrslum virðist loftslagsmynstrið
hafa verið andstætt þessu í stórum
landshlutum á suðurhveli, þar sem
hitastig fór lækkandi milli 1880 og
1940 og reis eftir það hærra en
nokkru sinni fyrr.
Enn önnur tegund breytinga af
manna völdum hefur ef til vill
orsakast af ofbeit á úthögum. Hún
minnkar gróið land og um leið
„nothæft" regn, þ.e. rakamagnið
sem jörðin getur haldið. En þetta
getur líka, vegna flókinna veður-
fræðilegra lögmála, dregið úr
raunverulegri rigningu, sem aftur
minnkar gróður o.s.frv. Bryson
hefur látið sér detta í hug, að þetta
hafi, ásamt þurrara loftslagi frá
náttúrunnar hendi, orðið þáttur í
því að eyða menningunni við
Indusfljót. Aðrir telja að þetta
kunni að hafa hjálpað til þess að
koma af stað þurrkunum í Sahel
nú nýverið, þar sem án efa hefur
verið almenn ofbeit á landi
undanfarna áratugi.
Líklegt er að athafnir mannsins
hafi áhrif á loftslag, en áætlanir
um þátt þeirra áhrifa stranda á
fáfræði okkar um orsakir lofts-
lagsbreytinga af náttúrunnar
hendi — — sem urðu hvað eftir
annað fyrir tilkomu iðnaðar,
vélvædds landbúnaðar og
þessháttar þátta. Þar sem við
vitum semsagt ekki hvernig lofts-
lagið hefði orðið, ef mannlegir
þættir hefðu ekki komið þar við
sögu, þá getum við ekki sagt í hve
ríkum mæli aðgerðir mannanna
hafa raunverulega breytt ein-
hverju.
Spá um
loftslagsbreytingar
Þegar litið er á alla þessa
óvissuþætti getur það varla verið
miklu meira en ágiskun hvaö
veðurfar gerir í framtíðinni.
Ófyrirséðar eru langtima breyt-
ingar á sólblettum og raunar líka
eldgos. Og þótt bæði kolsýringur
og ryk af mannavöldum muni
áreiðanlega fara vaxandi í and-
Kramhald á bls. 94
Hyndlistaihom
Pennans
er listaukandi
Allt frá því að vlð opnuðum myndlistar- og teiknivöruhornið í Hallarmúla 2 fyrir 2 árum
höfum við kappkostað að hafa á boðstólum góðar vörur á hagkvæmu verði.
Við höfum þreifað fyrir okkur á heimsmarkaðinum, látið reyna á efnin og áhöldin hér heima
og valið síðan það besta miðað við verð.
i dag erum við reynslunni ríkari og getum fullyrt að allar vörur, sem við höfum fyrir mynd-
listarmenn, teiknara, arkitekta, verkfræðinga o.fl. auka bæði afköst og ánægju í starfi.
Komdu við í Pennanum Hallarmúla 2 og
skoðaðu úrvalið í myndlistar- og teiknivörum.
Hallarmúla 2 simi 83211.