Morgunblaðið - 09.07.1978, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978
Evrópskt gjaldeyris-
kerfi fyrir desember
Bremen 7. júlí. Reuter.
Forystumenn Efnahagsbanda-
lagsins samþykktu í dag á fundi
sfnum í Bremen að vinna að því
að koma á laggirnar evrópsku
gjaldeyriskerfi (EMS) með rúm-
letca 50 milljarða dollara vara-
ííjaldeyrisforða fyrir desember
næstkomandi.
Forseti stjórnarnefndar EBE,
Roy Jenkins, sagði að hér væri á
ferðinni víðtækara kerfi en Ai-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMh1)
væri og áætlun sem væri „stærri
í sniðum en nokkurt annað áform
sem við höfum rætt.“
Helmut Schmidt kanzlari Vest-
ur-Þýzkalands sagði að með EMS
væri ætlunin að tryggja jafnvægi
í gjaldeyrismálum allrar VesU
ur-Evrópu. Leiðtogar allra
aðildarlanda bandalagsins voru
sammála um að þetta væri „mjög
æskilegt takmark" að sögn
kanzlarans. En James Callaghan
forsætisráðherra Breta kvað
áætlunina ekki viðunandi í núver-
andi mynd og sjá yrði hver
þróunin yrði fram í desember,
15 ára fangelsi fyr-
irnjósniríUSA
Washington, 8. júlí. Reuter.
TVEIR menn hafa verið dæmdir
til fimmtán ára fangelsis eftir að
hafa verið fundnir sekir um
njósnir fyrir Víetnam. Er þetta
fyrsta mál sinnar tegundar sem
upp kemur eftir sameiningu
Víetnams. Annar maðurinn er
bandarískur, Ilumphrcy að nafni
og hefur starfað í Bandarísku
upplýsingaþjónustunni, en hinn
er víetnamskur og heitir Truong.
Þeir neituðu báðir ákærunni og
Eyrarbakka-
kirkja fær
gjafir
Eyrarbakka, 7. júlí
Eyrbekkingafélagið kom í
heimsókn hingað laugardaginn 1.
júlí og við það tækifæri færði það
Eyrarhakkakirkju 300 þúsund
krónur að gjöf. Einnig gáfu
félagar frá Selfossi 40 þúsund
krónur, og Aron Guðbrandsson
gaf 250 þúsund krónur til minn-
ingar um bróður sinn, Þorvarð
Óskar Guðbrandsson. Ingimar
Jóhannesson, kennari, og börn
hans gáfu kirkjunni 100 þúsund
krónur til minningr um konu
Ingimars. Sólveigu Guðmunds-
dóttur frá Háeyri.
Fyrsta laugardag hvers mánaðar
er samkoma fyrir eldri borgara
Eyrarbakka og hefur svo verið
undanfarin 3 ár, og það var
einmitt á eina slíka samkomu sem
gamlir Eyrbekkingar komu í
heimsókn.
— óskar.
lögmenn þeirra segja að þcir
muni áfrýja dómnum.
Lögmenn Humphreys segja að
hann hafi sent minniháttar upp-
lýsingar til Truong í von um að
það gæti bætt samskiptin milli
ríkjanna tveggja og stuðlað að því
að víetnömsk eiginkona hans fengi
að fara úr landi. Hún kom til
Bandaríkjanna í nóvember.
Truong á að hafa komið upplýsing-
um Humphreys á framfæri við
sendinefnd Víetnams hjá Samein-
uðu þjóðunum sem sendu þær
áfram til sendiráðs landsins í
París.
Mennirnir tveir geta sótt um
náðun eftir fimm ár. Dómarnir eru
taldir vægir, þar sem hægt hefði
verið að dæma þá í lífstíðarfang-
elsi.
Briúge
Sænskur lands-
liðsmaður spil-
aði hjá Ásunum
Sl. mánudag var sumarspila-
mennsku Ásanna framhaldið.
Þátttaka var ekki nógu góð. og
er skorað á fólk að mæta vel
næsta mánudag.
Úrslit urðu þessi:
1. Sverrir Ármannsson
— Bo Jonsson 201 stig
2. Einar Þorfinnsson — Sig-
tryggur Sigurðsson 187 stig
3. -4. Jón Pálsson —
Kristín Þórðardóttir 185 stig
3.-4. Valur Sigurðsson —
Sigmundur Stefánsson 185 stig
5. Erla Sigurjónsdóttir —
Sigurðuur Sigurjónss. 168 stig.
Meðalskor var 156 stig.
Bo Jonsson er margreyndur
sænskur landsliðsmaður, og
spilaði hann sem gestur félags-
ins sl. mánudag. Hann spilaði
m.a. fyrir hönd Svíþjóðar á Ól.
1974 á Kanari.
Ásarnir spila í Félagsheimili
Kópavogs á mánudögum. Allir
eru að sjálfsögðu velkomnir.
Keppnisstjóri er hinn kunni
spilari Sverrir Ármannsson.
ÓL.
— Gengisspá...
Framhald af bls. 2
ætti ekki að koma neinum á
óvart, sem hefði fylgzt með
þessum málum, gengisfellingar-
þróun hefði allan tímann legið í
loftinu.
Hér á eftir birtist spáin um
gengisbreytingar byggð á reikn-
ingum frystingar í maí 1977 með
hliðsjón af sáttatilboði sátta-
nefndar, en endanlegir samn-
ingar voru byggðir á því:
Gengi breytist sem hér segin
í dag ............................................... 192.50
1.7 ................................................ 199.20
1.8 ................................................. 206.80
1.9 ................................................. 214.90
1.10 ............................................ 223.50
1.11 ................................................ 230.20
1.12 ................................................ 236.85
1978
1.1 ................................................. 243.50
1.2 ................................................. 249.80
1.3:................................................. 259.60
1.4 ............................................... 269.40
1.5 ................................................. 279.40
1.6 ................................................. 290.30
1.7 ............................................... 301.30
1.8 ................................................. 312.50
1.9 ................................................. 324.60
1.10 ................................................ 336.90
1.11 ................................................ 349.50
Samtals .............................................. 82.0%
frá upphafi samningstimabilsins til loka okt. 1978.
þegar næsti leiðtogafundur EBE
yrði haldinn.
Giulio Andreotti forsætisráð-
herra ltalíu sagði að koma yrði í
ljós hvort pólitískur vilji ítala til
að taka þátt í slíkri áætlun
samrýmdist raunverulegri getu
þeirra til að taka þátt í henni.
Fyrirhuguð stofnun EMS er
byggð á tillögum Frakka og
Vestur-Þjóðverja og varaforði
fyrirhugaðs bandalags mun afls
jafngilda einum fimmta dollara-
og gullvaraforða EBE-landanna og
nema rúmum 15 milljörðum doll-
ara auk sömu upphæðar frá
aðildarlöndunum í gjaldmiðlum
þeirra.
Callaghan sagði að tilgangur
EMS væri ekki aðeins sá að koma
á gjaldeyrisjafnvægi heldur einnig
sá að auka velsæld bandalagsins í
heild. Hann kvað fundinn í Brem-
en hafa bætt vonir manna um
árangur af fundi æðstu manna sjö
landa í Bonn eftir níu daga þar
sem bandalagið hefði skuldbundið
sig til að stefna að töluvert meiri
hagvexti en gert hefði verið ráð
fyrir.
Fundinn í Bonn sækja Carter
forseti og æðstu menn Japans,
Kanada, Frakklands, Ítalíu og
Bretlands.
— Þjálfunar-
námskeið
Framhald af bls. 2
Með samþykki ríkisstjórnarinnar
munu fyrstu styrkþegarnir koma
hingað næsta vor og dveljast hér
í sex mánuði. Fyrstu fjórar
vikurnar fara í almenna fyrir-
lestra, á Orkustofnun eða í Há-
skóla Islands. Síðan mun styrkþegi
velja sér námsbraut og vinna á því
þrönga sviði sem hann velur sér
með sérfræðingi frá fyrrnefndum
stofnunum. Megin áherzla hér
verður lögð á starfsreynslu. svo
styrkþegi geti síðan farið til síns
heima og unnið þar alveg sjálf-
stætt að rannsóknum.
— Líbanon
Framhald af bls. 1
andi forsætisráðherra að hann
vænti þess, sem flestir Líbanir, að
Sarkis segði ekki af sér, því að það
kynni að skipta sköpum hvort
hann sæti áfram eða ekki.
Hægrisinnaðir kristnir menn
sögðu að afsagnarhótunin hefði
verið sett fram vegna kröfu
Sýrlendinga, því að Sýrlendingar
hefðu nú í reynd öll völd í Líbanon
og ráð forsetans sem annarra í
hendi sér. Vestrænar heimildir
herma að Sýrlendingar hafi hug á
að fjölga í herliði sínu í Líbanon,
ekki hvað sízt nú eftir að ísraelar
hafa byrjað liðssafnað við landa-
mæri Suður Líbanon.
Áreiðanlegar heimildir í Mið-
austurlöndum höfðu fyrir satt í
dag að Sovétríkin hefðu fullvissað
Assad Sýrlandsforseta um dyggan
stuðning sinn ef til þess kæmi að
Israelar myndu ráðast á sýrlenzk-
ar hersveitir. ísraelar hafa nú,
sem fyrr segir, mikinn viðbúnað
við landamærin og vaxandi spennu
gætir á þeim stöðum. Israelsk
blaðakona, Beate Aamizrachi,
fréttaritari Morgunblaðsins, sagði
í símtali að af öllu mætti ljóst vera
að Israelar gætu ekki setið aðgerð-
arlausir hjá ef Sýrlendingar héldu
áfram uppteknum hætti. Það væri
allra dómur — og ekki sízt Líbana
sjálfra — að þeir væru ekki í hópi
fullvalda þjóða, meðan staða
Sýrlendinga væri slík. Þætti
Israelum eðlilegt að veita Líbönum
þá aðstoð sem nauðsynleg væri.
Ástandið hræðilegt
í hverfum kristinna
í Bcirut
I fréttum frá austur Beirut í
morgun, laugardag, sagði að
ástandið í hverfum kristinna
manna væri langtum ömurlegra
nú eftir bardagana síðustu fjóra
daga en eftir allt borgarastríðið
1975—76. Væri örvænting fólks
ólýsanleg og margir reyndu að
komast frá Beirut, þar af væru
margir að reyna að komast til
útlanda.
Hins vegar var kyrrt í borgar-
hlutanum í morgun og réði því að
nokkru hótun Sarkis, sem mikil
áhrif hefur haft. í vesturhluta
Beiri. ., þar sem meirihluti íbúa er
Múhameðstrúar, var allt með
eðlilegum hætti, umferð svo sem
venjulega og verzlanir opnar og
fólk á ferli. I austurhlutanum, sem
er draugaborg líkust, skutust
skefldar verur á milli húsa og við
þær fáu verzlanir sem voru opnar,
myndaðist þröng manna að kaupa
sér brýnustu matvæli.
— Einróma
stuðningur...
Framhald af bls. 48
avneska stórmeistarann Gligoric,
og sagði Einar það vera allmikið
rit með texta á 7 tungumálum.
Voru menn á einu máli um það að
til að vinna að kjöri Friðriks væri
nauðsynlegt að stofna til útgáfu á
myndarlegu kynningarriti um
framboð hans og gefa honum
möguleika á að ferðast um og
kynna sjálfan sig og framboð sitt.
Friðrik Ólafsson heldur til
Kanada í ágústlok í boði V-íslend-
inga og síðan mun hann sitja í
mótsnefnd Interpolis-skákmótsins
sem nú verður haldið öðru sinni og
mun Friðrik setja mótið með ræðu
og slíta því einnig.
„Líklega tefli ég nú lítið vegna
framboðsanna fyrr en á Olympíu-
mótinu sem hefst í októberlok, en
forsetakjörið fer fram 7. nóvem-
ber“, sagði Friðrik Ólafsson í
samtalinu við Mbl. í gær.
Auk þeirra Friðriks og Gligoric
hefur Rabel Mendes frá Puerto
Rico tilkynnt framboð sitt til
forsetaembættis FIDE, en fram-
boðsfrestur rennur út eftir mánuð.
— Italía
Framhald af bls. 1
inn er með kjöri hans tryggt
að samsteypustjórn Kristilegra
demókrata og fjögurra flokka,
þar á meðal kommúnista, mun
áfram vera við völd á Ítalíu.
Pertini mun sverja embættiseið á
morgun, sunnudag.
— Gullflís...
Framhald af bls. 13
verkinu hafði Þorkell Þorkelsson,
þáverandi veðurstofustjóri, en við
borinn vann Einar Leó Jónsson, sá
sem unnið hafði við hann í
Vatnsmýrinni. Lokið var við
Laugaveituna sumarið 1930.
Fyrsta húsið sem hitað var með
heitu vatni frá þvottalaugunum
var Austurbæjarskólinn, en 70 hús
fengu þá heitt vatn, þar af um 60
íbúðarhús.
Tveir fullorðnir starfsmenn
Hitaveitu Reykjavíkur hafa síðan
í vetur unnið við það að gera upp
Gullborinn í Árbæ og ganga frá
húsinu kring um hann. Þeir þekkja
hann vel, Jón Hansson vann á
bornum frá því byrjað var að bora
fyrir Rafmagnsveituna 1928 og þá
með Leó heitnum Jónssyni, sem
hafði verið með hann frá byrjun,
en Gunnar Sigurjónsson, sem
hefur haft yfirumsjón með við-
gerðinni og flutningnum á born-
um, byrjaði nokkru seinna.
Þeir sögðu að borinn hefði
gengið fyrir rafmagni og verið með
mótor í fyrstu við boranir við
Þvottalaugarnar. Þar voru borað-
ar nokkrar holur, 80—100 m
djúpar, en þá kom vatn en ekki
gufa eins og'menn höfðu vænzt.
Sagði Jón að mikill áhugi hefði
verið á borununum. Einkum hefðu
þeir Steingrímur Jónsson og Þor-
kell Þorkelsson alltaf verið að
koma til að athuga hvernig gengi.
En upp úr þessu var leitt vatn til
upphitunar í fyrstu húsin, sem
fyrr er sagt.
Þegar hafnar voru boranir eftir
heitu vatni fyrir Reykjavík á
Suður-Reykjum í Mosfellssveit
hinn 16. október 1933 var „Gull-
borinn“ enn notaður en með
honum var borað 1000 metra
niður. Tveimur árum síðar var
stærri bor, sem nefndur var „stóri
borinn", keyptur frá Þýzkalandi og
leysti þann gamla af hólmi. Ekki
þó alveg, því Gullborinn var aftur
tekinn í notkun ári síðar og var
fyrst á Reykjum, en síðan uppi í
Mosfellsdal. Á þessum árum hafði
hitasvæðið við Reyki verið rann-
sakað og framkvæmdar boranir,
en hitaveituframkvæmdir hófust
1939. Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika
vegna heimsstyrjaldarinnar voru
framkvæmdir það langt á veg
komnar árið 1943, að hægt var að
hleypa heitu vatni á fyrsta húsið
1. des., Hnitbjörg, listasafn Einars
Jónssonar, og um áramótin næstu
á eftir var heitt vatn komið í 1300
hús.
Árið 1955 var „Gullborinn“
fluttur til Reykjavíkur og byrjað
að bora með honum við gömlu
Sundlaugarnar. Var hann notaður
til ársins 1965, en síðasta holan,
sem boruð var með honum, var í
Gufunesi. Þar var hann svo í mörg
ár. Hitaveitan hafði boðið Árbæj-
arsafni að taka hann, en ekki orðið
af vegna fjárskorts safnsins.
Nú í vetur lét Hitaveitan flytja
Gullborinn í Árbæjarsafn. Húsið
utan um hann var þá illa farið,
búið að brjóta alla glugga í því o.fl.
og borinn farinn á láta á sjá. Var
húsið flutt, borinn tekinn í sundur
og gerður upp og á föstudag setti
Gunnar Sigurjónsson borinn í
gang og mun nú í sumar halda
honum gangandi á opnunartíma
safnsins, til gamans og fróðleiks
fyrir Reykvíkinga sem þangað
koma. Hlutverki gullborsins er
engan veginn lokið, þó aldrei læsti
hann tönn sinni 1 hinn eðla
gullmálm og sé hættur að dýfa
henni í „gulls ígildi", heita vatnið.
Héðan í frá flytur hann okkur og
komandi kynslóðum væntanlega
gullkorn í formi fræðslu um fyrri
daga og forna tækni.
- E.Pá.
— Reykjavíkurbréf
Framhald af bls. 25
Sjálfstæðisflokkurinn eigi ekki að
taka þátt í ríkisstjórn, hvað sem á
gengur. Það er afstaða út af fyrir
sig en hún er í engu samræmi við
sögu og feril Sjálfstæðisflokksins,
sem jafnan hefur verið sú kjöl-
festa í íslenzkum stjórnmálum,
sem þyngst hefur verið, þegar
erfiðleikar steðja að.
Meðan stjórnmálaflokkarnir eru
í einhvers konar sandkassaleik
versnar ástandið í atvinnumálum
þjóðarinnar dag frá degi og ekki
má mikið út af bera á næstu vikum
til þess að atvinnuleysi hefji
innreið sína. Þeir flokkar, sem
voru í stjórnarandstöðu á síðasta
kjörtímabili, segja, að slíkur sé
viðskilnaður núverandi ríkis-
stjórnar. Þannig komst Lúðvík
Jósepsson m.a. að orði í viðtali við
Þjóðviljann í gær. Það eru mikil
öfugmæli. Yfirvofandi stöðvun
frystihúsanna og þar með atvinnu-
leysi er verk þeirra Lúðvíks
Jósepssonar, Guðmundar J. Guð-
mundssonar og félaga þeirra í
Alþýðubandalaginu og verkalýðs-
hreyfingunni. Þessir kappar hafa
hamazt við að telja fólki trú um,
að atvinnuvegirnir geti auðveld-
lega borgað fullar vísitölubætur á
laun. Þeir hafa beitt verkalýðs-
hreyfingunni til þess að knýja það
fram með einum eða öðrum hætti.
Þeir hafa beitt verkalýðshreyfing-
unni til þess að valda útflutnings-
atvinnuvegunum þungum búsifj-
um með útflutningsbanni, sem
haft hefur hin alvarlegustu áhrif
á fjárhagsstöðu fiskvinnslunnar.
Nú eru þeir Lúðvík Jósepsson og
Guðmundur J. Guðmundsson að
uppskera árangur erfiðis síns.
Stöðvun frystihúsanna á næstu
vikum er sérstakt afrek, sem þeir
hafa unnið í sameiningu, Lúðvík,
Guðmundur J. og félagar þeirra.
Fólkið, sem getur orðið atvinnu-
laust af þeim sökum ætti að senda
þeim félögum sérstakar þakkir.
I tvær vikur hafa stjórnmála-
flokkar og stjórnmálamenn snúizt
hver í kringum annan með það eitt
markmið í huga að koma höggi
hver á annan. Það er mál að
þessari vitleysu linni og að þeir
menn, sem kjósendur réðu í vinnu
í þingkosningunum til þess að
stjórna málefnum lands og þjóðar,
taki til við það verkefni, sem þeir
voru ráðnir til.