Morgunblaðið - 06.08.1978, Side 14

Morgunblaðið - 06.08.1978, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6, ÁGÚST 1978 Hann kemur fyrir hornið úr eldhúsinu og gengur inn í dagstofuna. Göngulagið ber þess engin merki að þar fer áttræður öldungur. Hann hneppir prjónatreyj- unni yfir flaksandi skyrtu og virðir fyrir sér gestinn bláum, vingjarnlegum aug- um. Því næst sezt hann í hægindastólinn og strýkur hárinu löngum fingrum og fínlegum yfir rismikið enni. Spyr svo hvað mér liggi á hjarta. En vand- ræðaleg þögnin hreyfir hug hans til að bera fram uppástungu. Hún hljómar eins og meitluð í höndum listamannsins: „Viðskul- um skoða fyrst og tala síð- an.“ Henry Moore sækir jakka sinn bláan, tekur göngustaf úr körfunni og gengur fram hjá gúmstíg- vélum, þar sem lesa má nafnið „Henry“ letrað inn- an á. Hann tekur tvær fjör- efnatöflur úr öskju, gleyp- ir þær eina af annarri og afsakar sig: „Rómurinn er orðinn sprakur." Erindið er óvenjulegt: „Stórfenglegasti mynd- höggvari frá dögum Mich- elangelos" (Newsweek) — er nú heiðraður um heim allan í tilefni af áttræðisaf- mæli sínu með vegsemd meiri en nokkur annar starfsbróðir hans fyrri. Hann opnaði sjálfur heið- urssýningu í Tate- galleríinu í London og í Kensington-görðum, brezka útvarps- og sjón- varpsstöðin BBC sýndi stundarlanga kvikmynd um hann, og heiðursat- hafnir i Bandaríkjunum, Frakklandi og ítaliu vörn- uðu honum að sinna iðju sinni um stundarsakir. „Ég hef ekkert á samvizkunni,“ útskýrði Henry Moore, „en mér er óhægt þegar ég get ekki unnið.“ Jafnvel virðulegur gestur frá Vestur-Þýzkalandi, Heimut Schmidt kanslari, fékk ekki um- flúið hið útbreidda „Moore- múgæði“ (Time). Þegar hann Henry Moore fyr- ir framan brons- mynd sina „Kind- ur“ frá 1971/ 72. Myndirnin er fjórir metrar á hæð og stendur á hól við garð lista- mannsins. varna okkur veginn að skissum úr gipsi. En yfir allan salinn stafar þó mannslíkaminn ljósi sínu; við- fangsefnið, sem Moore sækir fyr- irmyhdir sínar f. ,,Ef værum við hestar," segir hann alvörugefinn, „þá liti list okkar öðru vísi út.“ Eirðarlaus stikar hann áfram og gegnum hliðið í átt til hæðar- innar. Við hliðina stendur gamla hlaðan, sem hann deilir með Walter bónda. Það er hann sem á þær 180 ær, sem eru á beit á hæðinni. Þar er einnig að finna risahöggmynd Moores „Kindur". Þetta fjögurra metra háa minnis- merki vitnar jafnt um gott nágrannaþel sem samhljómun listar og náttúru í verkum Henry Moores. Brezka blaðið „Sunday Times“ orðar það þannig: „Hann gaf náttúrunni listina aftur prýdda ást sinni.“ „Herra Moore — Ærnar koma ekki fyrir eins og ær við fyrstu sýn.“ „Er það nauðsynlegt?" svarar Moore að bragði. „Hvers væntið þér af áhorfand- anum?“ „Að hann hafi sínar eigin hug- myndir." „Og ef svo vill til að hann lítur hlutina öðrum augum en lista- maðurinn?“ „Það er strax enn betra en að sjá ekki neitt —eins og ferðamað- ur með ljósmyndavél." „Þér gefið þá leikmanninum óskorað túlkunarfrelsi." „Ég skal segjayður svolítið,“ Brezki myndhöggvarinn Henry Moore áttræður kom síðast til Bretlands hafnaði hann málsverðarboði starfsbróð- ur sins, Callaghans, af áhuga á að hitta Henry Moore á landareign sinni norður af London og semja við hann um kaup á höggmynd fyrir kanslarahöllina. Moore segir Schmidt einkar áhugaverðan mann. „Þú spyrð hvað við rædd- um um þessa tvo tíma?“ segir hann. „Lítið um stjórnmál, þvi meir um list.“ Við göngum áfram til að skoða, fram hjá gróðurhúsinu, sem rúss- nesk eiginkona hans, Irina, hefur útbúið. Þau hafa verið gift i 49 ár. Hún sneiðir hjá sviðsljósinu og snýr feimin við okkur baki þar sem hún stendur á trékassa og snurfusar limgerðið. „Halló ást- in,“ heilsar Moore á leiðinni hjá og í þann mund sem hún lítur við notar ljósmyndarinn tækifærið, sem engum gafst áður. „Þér skul- uð senda myndirnar til mín,“ seg- ir Moore. „Ég ætla að koma henni á óvart.“ Hendur Moores og teikn- ing hans. Hann fetar sig markvisst áfram þrátt fyrir að hann stingi ögn við í hægri fót. Hann stuggar bút af trjáberki burt af nýslegnu grasinu með staf sínum, tekur stein í lófann, sem við hinir hefð- um ekki gefið gaum og stingur honum í vasann. Hann staðnæm- ist við bronsstyttuna „Konungur og drottning", sem gerð var árið 1935, danglar stafnum i hana svo bylur í. „Svona nokkuð varir i 3000 ár,“ segir hann. En hann á við efnið, ekki hugmyndina. Vinnustofan er i hundrað metra fjarlægð. Hún er sextíu metrar að flatarmáli og þakin gleri um- hverfis í átta metra hæð. „Hér inni er alltaf dagsljós," segir Moore. Það er allt, sem hann þarf . til að gera höggmyndir sínar. I augnablikinu lítur vinnustofan út eins og geysistór ruslakompa nema hvað ögn bjartara er yfir henni. Hrúgöld af leir hvíla á gömlum dýnum, trédrumbar Hér í skúrnum gamla mótar Moore verk sín, sem síðan eru stækkuð f Berlfn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.