Morgunblaðið - 06.08.1978, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. ÁGUST 1978
LOUISE BROWN
fyrsta bamið, sem getiðer
utan líkama mdður sinnar
Litfríö og Ijóshærö var hún Þegar hún fæddist, tæpar tólf merkur og svo hðvær aö gráturinn „heyröist" um alla heimsbyggöina. Hennar hafði veriö
beðiö meö meiri eftirvæntingu en títt er um langpráö og síöbúin börn, og léttirinn varö mikill pegar Patrick Steptoe gat lýst pessu yfir: „Kvíöinn er á
bak og burt. Barniö er vel skapað, heilbrigt og fullkomlega eölilegt." Fyrir fæöinguna, sem fram fór meö keisaraskuröi, var talaö um
„tilraunaglasbarniö", en nú er nóg aó nefna Louise Brown. Nafniö sjálft getur ekki talizt sjaldgæft eöa sérstætt, en samt vita allir viö hverja er átt, —
fyrsta barnið, sem getið var utan líkama móóurinnar.
Með fæöingu Louise Brown er lokið 12 ára protlausum tilraunum Patricks Steptoe og Roberts Edwards til að finna aðferð, sem gæti komiö aö
gagni peim fjölmörgu konum, sem ekki veröa vanfærar meö venjulegum hætti. í Bretlandi er taliö aó ófrjósemi eigi í 40% tilvika rót sína aó rekja til
pess aö eggjaleiöarar kvenna séu stíflaðir, sem gerir paó aó verkum aó eggið kemst ekki sína leið pegar pað losnar út eggjastokknum. Patrick
Steptoe hefur nú lýst pví yfir að ekki sé nóg meö aö Lesley Brown hafi átt vió slík vandkvæöi aö búa, heldur sjáist paó á kvikmynd, sem sýnd verói
bráðlega, aö eggjaleiðarar hennar hafi veriö fjarlægðir. Árið 1970 hafi hún gengizt undir aógerö sem miöaö hafi aö Því aö hreínsa eggjaleióarana, en
pað hafi mistekizt. Steptoe fékk konuna til meðferöar fyrir tveimur árum og pá leiddi speglunaraögerö í Ijós aó ekki voru eftir aö eggjaleiðurunum
annaö en lífilfjörlegar leifar. Þar sem eggjaleiöararnir komu í veg fyrir að unnt væri aó komast aö eggjastokkunum meö góöu móti ákvaó Steptoe aó
fjarlægja Þá, enda gegndu Þeir engu hlutverki lengur. Sú staóreynd að eggjaleiöarar konunnar eru á bak og burt taka af öll tvímæli um aó frjóvgunin
hefur átt sér staó utan líkama Lesley Brown.
Árangurinn segir
til sín á ýmsum
sviðum læknavísinda
Hvaða skoðun, sem menn hafa á
hinum nýju viðhorfum, sem fæðing
fyrsta „tilraunaglasbarnsins" hefur
óhjákvæmilega í för með sér, fer
ekki á milli mála að hér hafa orðið
þáttaskil. Siðferðilegar spurningar
hafa orðið mjög áleitnar og deilt er
um þá hlið málsins víðs vegar. En
engum blandast hugur um að
vísindin hafa hér komið fóstur-
rannsóknum á nýtt og áður óþekkt
svið, og að þetta afrek þeirra
Steptoes og Edwards á eftir að hafa
ómæld áhrif á ýmsum sviðum
læknavísinda. Áhrifin munu segja
til sín í sambandi við getnaðar-
varnir, rannsóknir á orsökum
vanskapnaðar og verða auk þess
hvati að frekari framförum til að
ráða bót á ófrjósemi, svo eitthvað
sé nefnt. Það kann að virðast
mótsagnakennt, en fjár til rann-
sóknastarfsemi sinnar hefur
Steptoe aðallega aflað með því að
framkvæma fóstureyðingar.
Getnaður í tilraunaglösum á sér
langa sögu. Það var fyrir 42 árum,
sem fyrst er til þess vitað að slíkur
getnaður hafi átt sér stað. Þá var
að vísu ekki um að ræða tilraunir á
mönnum, heldur kanínum. Það var
Gregory Pincus við Harvard-
háskóia, sem náði fullþroskuðu eggi
úr kanínu, setti það til tilraunaglas
og blandaði svo sæði saman við með
þeim árangri að frumuskipting
hófst. Átta árum síðar, eða árið
1944, lýsti John Rock, einnig við
Harvard, því yfir að sér hefði tekizt
að frjóvga egg úr konu í tilrauna-
glasi með þeim árangri að eggfrum-
an hefði náð að skipta sér þrisvar.
Þeir Pincus og Rock hafa þó getið
sér meiri frægð fyrir framlag sitt
til getnaðarvarna en frjóvgunar-
starfsemi, því að báðir voru þeir í
fremstu röð vísindamanna, sem
fundu upp „pilluna". Það var svo
árið 1961, að ítalskur læknir,
Petrucci, við Bologna-háskóla, lýsti
því yfir að sér hefði tekizt að
frjóvga hvorki meira né minna en
tuttugu egg úr konum í tilrauna-
glösum. Jafnvel heyrðist því fleygt
að Petrucci hefði komið einhverjum
af þessum eggjum fyrir í legi
viðkomandi kvenna. Svo annarleg-
ar þóttu þessar fréttir að þær ollu
gífurlegu fjaðrafoki, bæði meðal
vísindamanna og almennings, og
þær voru ýmist fordæmdar eða
bókstaflega frystar.
Leynd yfir
rannsóknum
Þegar samvinna Steptoes og
Edwards hófst voru vísindamenn
almennt mjög á verði gagnvart
tilraunum af þessu tagi, og í fyrstu
fóru þeir mjög leynt með það hvers
eðiis tilraunastarfsemi þeirra væri.
Heimurinn var einfaldlega ekki
reiðubúinn. Þeir skiptu þannig með
sér verkum að Edwards sá um að
bæta aðferðir við frjóvgunina
sjálfa, svo og rannsóknir á efna-
upplausnum til að halda frjóvg-
uðum eggjum lifandi, þannig að
eðlileg þróun þeirra utan líkamans
héldi áfram. Steptoe einbeitti sér
hins vegar að því að ná eggjunum
úr eggjastokkunum og að koma
þeim síðan frjóvguðum fyrir í
leginu. Helzta afrek Steptoes til
þessa er ef til vill það að hafa
innleitt speglunartæki, sem virkar
þannig að því er stungið inn um
gat, sem skorið er á kvið konunnar.
Tækið leitar síðan uppi fullproskað
egg, sem numið er úr eggjastokkn-
um með sognál. Þetta tæki gegndi
úrslitahlutverki í sambandi við
rannsóknirnar.
Það var ekki fyrr en á árinu 1975,
sem þeim Steptoe og Edwards tókst
að gera konu barnshafandi, en sá
ljóður var á að eggið — eða fóstrið
— settist ekki að í leginu, heldur í
óvirkum eggjaleiðara. Afleiðingin
var fósturlát eftir tíu vikna með-
göngu. Vísindamennirnir voru eftir
sem áður sannfærðir um að þeir
væru á réttri leið og gerðu smátt og
smátt breytingar í samræmi við
fyrri niðurstöður.
Lesley Brown
— Rita Ferguson
Steptoe segir að Lesley Brown
hafi að ýmsu leyti verið mjög
ákjósanlegur einstaklingur til þess-
ara tilrauna. Hún hafi verið á
heppilegum aldri og hafi framleitt
egg með fullkomlega eðlilegri tíðni.
Það var svo hinn 10. nóvember í
fyrra að stundin var komin. Lesley
Brown hafði fengið sérstaka
hormónagjöf til að hvetja egg-
myndun, og margendurteknar
rannsóknir höfðu gert læknunum
nokkurn veginn fært að segja fyrir
um það upp á hár hvenær egglosið
mundi eiga sér stað og á hvaða
stundu ætti að gera aðgerðina. Allt
gekk samkvæmt áætlun og næstu
50 klukkustundir fylgdust vísinda-
mennirnir grannt með breytingum
þessarar litlu örðu í tilraunaglas-
inu. Um leið og sæðisfruma Johns
Brown hafði runnið saman við
eggið var það sett í sérstakan
næringarvökva í öðru glasi og brátt
hafði eggið skipt sér í tvær, þá
fjórar og loks átta frumur.
Nú var komið að þeim þætti, sem
úrslitum réði í þessari óvenjulegu
sköpunarsögu. Fram að þessu höfðu
vísindamennirnir einskorðað sig
við að líkja eftir hinni eðlilegu
þróun þar sem eggið frjóvgast í
eggjaleiðaranum, og hefur skipt sér
í 64 eða jafnvel fleiri frumur þegar
það kemst upp í legið og sezt þar að.
Nú höfðu nýjar rannsóknir leitt í
ljós að apafóstur, sem aðeins hefur
skipt sér í tvær frumur, væri
lífvænlegt í legi, og með hliðsjón af
þessu ákváðu vísindamennirnir að
setja hið frjóvgaða egg í legið áður
en það skipti sér í fieiri frumur en
átta. Þetta virðist hafa gert
útslagið. Fóstrið tók sér bólfestu í
leginu og frumuskiptin héldu
áfram.
Fylgzt var með móðurinni á
sama hátt og venjulega er gert þar
til sjö vikum fyrir áætlaða fæðingu.
Þá lagðist Lesley Brown inn á
Oldham-sjúkrahúsið og var innrit-
uð undir nafninu Rita Ferguson.
Þessar síðustu vikur meðgöngunn-
ar var hún í gjörgæzlu allan
sólarhringinn. Að sögn kvenna,
sem lágu á sömu deild, var hún
mjög hæglát, horfði mikið á
sjónvarp, prjónaði or réði krossgát-
ur, um leið og hún tuggði tyggi-
gúmmí og hafði óseðjandi lyst á
piparmyntum. Steptoe hafði bann-
að henni að reykja, en hún stóðst
ekki löngunina og stalst til að fá sér
reyk við og við, en blés reyknum út
um opinn glugga til að Steptoe
kæmist síður að óhlýðninni.
Upphaflega hafði ekki verið gert
ráð fyrir því að „tilraunaglasbarn-
ið“ kæmi í heiminn fyrr en í fyrstu
viku ágúst, en þegar blóðþrýstingur
Lesley Brown hækkaði nokkuð,
brugðust læknarnir við og ákváðu
að gera á konunni keisaraskurð að
kvöldi hins 25. júlí. Keisara-
skurðurinn gerði það að verkum að
stúlkubarnið langþráða var fegurra
ásýndum en títt er um nýfædd
börn, sem flest eru rauð og grett
eftir átökin, sem fylgja eðlilegri
fæðingu. Og svo ljómandi var þetta
makalausa barn af hreysti að ekki
þótti ástæða til að hafa það lengur í
súrefniskassa en fáeinar klukku-
stundir, en það þykir sjálfsögð
varúðarráðstöfun að setja þau börn
í súrefniskassa, sem tekin eru með
keisaraskurði. Hún byrjaði strax að
ambra eftir næringu og hún var
komin í vöggu við hlið móður
sinnar og pela fékk hún til að totta
á unz mjólk var komin í brjóst
móðurinnar.
Kokkabækur
og kynbætur
Það hefur verið haft eftir
Malcolm Potts, yfirmanni Alþjóða-
frjósemisrannsóknastofnunarinnar
í Norður-Karólínu í Bandaríkjun-
um að hér sé ekki um að ræða svo
mikilsverða vísindauppgötvun, að
ástæða sé til að ætla að vísinda-
mennirnir hljóti Nóbelsverðlaun.
„Þetta er hálfgert kokkabókarmál,
þótt auðvitað sé þetta gagnleg
uppgötvun," segir Potts. „Frjóvgun
utan líkamans er svo sem ekki
annað en það sem froskar stunda í
drullupollum." Brezkir vísinda-
menn, sem hafa stundað sams
konar rannsóknir og þeir Steptoe
og Edwards, hafa látið í ljós
efasemdir og segjast ekki vita
hvort hér sé um að ræða raunveru-
legan vísindaárangur eða hvort
tilviljun og heppni hafi ráðið
úrslitum.
Siðferðilegar spurningar verða
þó eflaust meira brennandi á
næstunni en það hvað Steptoe og
Edwards séu mikilhæfir vísinda-
menn. Hér koma ekki sízt til
grreina trúarleg sjónarmið.
Kaþólska kirkjan hefur lýst yfir
vanþóknun sinni á málinu, og telur
óviðurkvæmilegt að á þennan hátt
sé tekið fram fyrir hendurnar á
náttúrunni, eins og það er orðað.
Hins vegar hafa trúarleiðtogar
bæði mótmælenda og Gyðinga látið
hafa eftir sér að frjóvgun utan
líkamans brjóti ekki í bága við
trúarkenningar þeirra, svo framar-
lega sem sæðið komi frá eigin-
manni móðurinnar.
Eitt af því sem valdið getur
miklum deilum í framtíðinni er sá
möguleiki, sem nú er á fóstur-
flutningum. Hægt er með hormóna-
gjöfum að frjóvga kynbótakýr
þannig að þær geti í einu „fram-
leitt" 16 fóstur. Síðan eru þau tekin
úr kúnni og sett í leg fósturkúa,
sem í fyllingu tímans bera fullsköp-
uðum kálfum. Þessi aðferð, sem
teljast verður mjög hagkvæm á
meðan um er að ræða nytjadýr,
verður hins vegar eki jafnaðlaðandi
þegar menn hugsa sér að beita
henni við mannlegar verur. Hún
flýtir mjög fyrir kynbótum, og
kemur sér vel fyrir bændur sem
vilja fá sem mest af góðum
landbúnaðarafurðum, en tilhugsun-
in um mannlega hliðstæðu veldur
trúlega martröð.
(Heimildir. Time — Newsweek —
Daily Express)
Ljósmyndir hafa enn ekki verið birtar af fyrsta tiiraunaglasbarn-
inu, en Bob Williams, teiknari Daily Express, hefur teiknað þessa
mynd af mæðgunum.