Morgunblaðið - 06.08.1978, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. ÁGÚST 1978
við Suðurhóla verði ekki tilbúið
fyrr en 20. marz á næsta ári,
dagheimili við Hagamel í febrúar
og skóladagheimili við Völvufell
hinn 15. marz 1979.
Fulltrúar meirihlutans nýja í
félagsmálaráði reyndu af lítilli
reisn að skella skuldinni á borgar-
verkfræðing í bókun, sem þeir
gerðu af þessu tilefni á fundinum á
fimmtudag. Við fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í ráðinu létum þá
bóka afstöðu okkar á eftirfarandi
hátt:
„Það er algjörlega út í hött að
I kenna borgarverkfræðingi um
frestun framkvæmda við dagvist-
arstofnanir í borginni. Það liggur
fyrir, að meirihluti borgarráðs
hefur gefið embættismönnum
borgarinnar fyrirmæli um að
draga úr framkvæmdum svo sem
við verður komið vegna fjárhags-
Markús Örn Antonsson, borgarfulltrúi:
Meirihlutinn
frestar fram-
kvæmdum við
ný bamaheimili
Opnun þrigg ja nýrra heimila
látin bíða þar til á næsta ári
Þau reynast haldlítil, þegar á
reynir, öll fyrirheit hins nýja
meirihluta í borgarstjórn Reykja-
víkur um aðgerðir í dagvistarmál-
um barna. Öllum kjósendum er í
fersku minni sú höfuðáherzla, sem
vinstri flokkarnir lögðu á þennan
málaflokk i kosningabaráttunni í
vor. Þar eð hinir nýju stjórnendur
tóku við á miðju sumri, var tæpast
von til að framkvæmdagleði þeirra
sæi stað þegar á þessu ári.
En varla hafa kjósendur vinstri
flokkanna í borgarstjórn átt von á
að borgarfulltrúar þeirra kæmu í
veg fyrir, að nokkur ný dagvistar-
stofnun barna yrði tekin í notkun
á þessu ári. Þrjár slíkar stofnanir
eru í byggingu og reyndar langt
komnar. Þegar sjálfstæðismenn
voru enn í meirihluta í borgar-
stjórn var unnið að framkvæmd-
um við þær samkvæmt áætlun,
sem gerði ráð fyrir að nýtt
dagheimili við Suðurhóla yrði
tekið í notkun hinn 1. október í
haust, dagheimili við Hagamel 1.
nóvember og skóladagheimili við
Völvufell um áramót. Á fundi í
félagsmálaráði sl. fimmtudag var
kynnt bréf frá byggingardeild
borgarverkfræðings, þar sem fram
kemur að samið hefur verið við
verktaka um að draga úr fram-
kvæmdahraðanum við allar þessar
stófnanir, þannig að dagheimilið
stöðu borgarsjóðs. Því er ljóst, að
borgarverkfræðingur er að fram-
kvæma ákvarðanir hins nýja
meirihluta í borgarráði.
Hitt hörmum við, að með
þessari ákvörðun er útséð um að
nokkur ný dagvistarstofnun verði
tekin í notkun á þessu ári þrátt
fyrir öll fyrirheit meirihlutans um
forgang framkvæmda í þessum
málaflokki."
Meirihlutinn i félagsmálaráði
samþykkti svo að skora á félaga
sína í meirihlutanum í borgarráði
að endurskoða framkvæmda-
áætlunina þannig að upphafleg
áætlun, sem gerð var í tíð
fyrrverandi meirihluta um að
opna þessar stofnanir í haust og
fyrripart vetrar, verði látin standa
óbreytt.
Nú reynir á, hvort þessi áskorun
fær einhvern hljómgrunn hjá
forystumönnum vinstri flokkanna
í borgarráði.
Ef viðbrögð þeirra láta eitthvað
á sér standa er víst tímabært fyrir
einstæðar mæður og aðra í for-
gangsflokkum, sem von áttu á
vistun fyrir börn sín á þessum
stofnunum strax í haust, að gera
aðrar ráðstafanir. Það eru nefni-
lega liðnir rúmir tveir mánuðir frá
borgarstjórnarkosningum og lof-
orðarunan hjá nýja meirihlutan-
um reynist vera eintóm blekking.
269 hvalir hafa veiðst
TVÖ hundruð sextíu og níu hvalir
höfðu veiðst i gærmorgun, en
veiðar hvalbátanna fjögurra hafa
gengið með ágætum að undan-
förnu.
Af veiddum dýrum eru 202
langreyðar og 67 búrhvalir.
Áhafnir hvalbátanna hafa ekki
enn orðið varar við sandreyði á
miðunum, en mjög er misjafnt hve
snemma þessi hvalur gengur á
miðin við ísland og stundum
kemur fyrir að hann lætur hreint
plflfi cirr
við Stefaníu
Það ríkir óneitanlega svolítið
einkennilegt ástand á vígvelli
stjórnmálanna þessa stundina.
Þjóðstjórnarhugmyndin er fræði-
lega enn við lýði, þegar þetta er
ritað, en allir virðast samt búnir
að gefa hana upp á bátinn.
Reyndar hafa allir flokkarnir
nema Sjálfstæöisflokkurinn veriö
með hugann allt annarsstaöar en
við stjórnarmyndun frá því að
Geir Hallgrímsson varpaöi fram
hugmyndinni um þjóðstjórn.
Alþýöuflokksmenn og Alþýðu-
bandalagsmenn heyja hatrammt
áróðursstríð og bera hvorir aðra
þungum sökum vegna slita vinstri
viöræönanna en framsóknar-
menn eru hins vegar í óða önn að
gera úttekt á innanflokksmálum
sínum eftir ófarirnar í kosningun-
um, svo sem maraþonfundur
þeirra í miöstjórninni er til vitnis
um. Þar höföu þeir ekki fyrir því
aö fjalla um þjóöstjórnarhug-
ÞingflokkiSjálfstæöisflokksins var
eðlilega nokkur vandi á höndum
um þaö hvernig staöiö skyldi aö
stjórnarmyndunartilraununum af
hans hálfu. Forystumenn flokks-
ins voru ragir viö að fara þá leið
aö láta kjósa viöræöunefndina,
því að Ijóst var að margir voru
kallaöir en fáir útvaldir, og
ógjörningur að segja til um það
hvernig þeirri kosningu heföi
lyktað. Hugmynd var uppi um að
núverandi ráðherrar flokksins
skipuöu viöræöunefndina, en
niðurstaðan var síðan sú að
formaður og varaformaöur
flokksins voru valdir til að leiöa
þessar tilraunir til stjórnarmynd-
unar. Þegar síðan reifuð var sú
hugmynd aö hefja tilraunina með
því að freista þess að ná saman
þessu víðtæka samstarfi stjórn-
málaflokkanna fjögurra, hlaut
hún strax góöan hljómgrunn á
fundinum og aðeins í máli tveggja
sig. „Eftir þessar viðræöur við
fulltrúa hinna flokkanna tel ég
engan grundvöll fyrir fjögurra
flokka stjórn,“ sagði einn af
forystumönnum flokksins. „Þaö
vantar áhugann fyrir því hjá
ýmsum og ekki hægt að segja að
það sé að kenna frekar einum en
öörum, t.d. hefur Alþýðubanda-
lagiö alls ekki viljaö aftaka neitt í
þessum efnum.“ Sagt er að
áhugaleysið fyrir fjögurra flokka
stjórn sé ekki síöur meöal
forystumanna Framsóknarflokks,
svo sem komiö hefur fram í
ummælum Ólafs Jóhannessonar,
og meðal þingliðs Alþýöuflokks-
ins almennt.
Einblínt á
„nýjar leiöir“
Alþýöubandalagsmenn leggja
Tveir andstæðír pólar i islenzkri pólítik og
báöir umdeildir — Ólafur Ragnar og Albert
ræöa viöhorfin á götuhorni.
myndina heldur samþykktu strax
að fara út í viðræður um Stfaníu,
samstjórn Sjálfstæðisflokks, Al-
þýöuflokks og Framsóknar. ■
Farsæl lausn
Sjálfstæöismenn hafa fariö sér
hægt meöan beðið var eftir
viðbrögðum Framsóknarflokks-
ins á miðstjórnarfundinum í
fyrrakvöld. Umbrotin í flokknum
kringum Heimdallarfundinn virö-
ast hafa hreinsaö andrúmsloftið
— um sinn að minnsta kosti, og
menn í flokksforustunni eru mjög
ánægöir með þaö hvernig mál
réðust á fundi miöstjórnar og
þingflokksins, þar sem lagt var á
ráöin um þaö hvernig Geir
Hallgrímsson skyldi svara mála-
leitan forseta um forystu í annarri
lotu tilraunanna til stjórnarmynd-
unar.
þingmanna, Ragnhildar Helga-
dóttur og Sverris Hermannsson-
ar, kom fram einhver andstaða
viö þá hugmynd aö einnig yröi
farið á fjörurnar við Alþýðu-
bandalagsmenn.
27Það er mjög almenn skoöun,
aö sjálfstæöismenn hafi valið
þjóöstjórnarmöguleikann í fyrstu
umferð til að sýna fram á að
Alþýöubandalagsmenn væru ekki
tilbúnir til stjórnarþátttöku af
neinu tagi. „Ég veit ekki hvaö
menn eru að dunda við þetta,"
sagði einn úr röðum yngri mann-
anna í Alþýðubandalaginu í
samtali á föstudaginn, „ég held
að þetta sé bara „trikk“ til að
einangra Alþýöubandalagiö."
í forystuliöi Sjálfstæöisflokksins
hafa menn þó ekki viljað viöur-
kenna aö stefnt hafi verið aö því
beinlínis meö þessum hætti aö
Alþýöubandalagiö útilokaöi sjálft
einnig áherzlu á aö þeir séu ekki
búnir að afneita algerlega einum
eöa neinum möguleika á stjórn-
arþátttöku. „Menn hafa miklar
tilhneigingar til þess að einblína á
þessa ríkisstjórnina eöa hina
ríkisstjórnina, raða þessu upp í
formúlur," sagöi einn af þing-
mönnum bandalagsins. „Alþýðu-
bandalagiö lítur hins vegar öðru
vísi á þetta mál og það er ekki
bara eitthvert áróöursbragö af
okkar hálfu, heldur raunveruleg
afstaða." Viöhorfin innan Alþýöu-
bandalagsins eru að sögn þing-
mannsins fyrst og fremst þau, að
málefnin skulu ráöa hvort sem
um er aö ræöa þjóðstjórn,
nýsköpunarstjórn eöa einhverja
aðra stjórn, en megin málefna-
barátta þeirra er sú að reynd
verði ný leið í efnahagsmálum í
staö þeirrar, sem einkennzt hafi
af gengisfellingum og nokkuð
Fréttaskýring
Stigið í væng