Morgunblaðið - 29.08.1978, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1978
19
Óvíst hvort
Arnór f er út
— MÁLIÐ er orðið flókið og leiðinlegt, en þó finnst mér gæta meiri
skilnings hjá forystumönnum Víkings en áður, sagði Eiður
Guðjohnsen í stuttu viðtaii við Morgunblaðið í gær um framvindu máls
sonar hans, Arnórs Guðjohnsen, sem skrifaði undir samning við
belgíska félagið Lokeren fyrr í sumar.
— Ég sat fund með stjórn Víkings á þriðjudaginn og reyndi þá að
skýra málið frá grunni og ég er ekki frá því að það hafi verið
nauðsynlegt vegna misskilnings, hélt Eiður áfram. — Það er þó mín
skoðun að félögin geti ekki verið að hringla með framtið einstaklinga
innan sinna vébanda til þess eins að finna út hver staða þeirra sjálfra
er gagnvart ásælni erlendra félaga.
— Eg er reyndar ansi smeykur um, að stífni Víkinga hafi eyðilagt
þennan möguleika fyrir Arnóri. Hann átti að vera mættur til Lokeren
á miðvikudaginn og okkur gengur illa að ná í talsmenn félagsins.
Málið er því í óþægilegri biðstöðu eins og er, en það sem skortir er
samþykki Víkinga, sagði Eiður að lokum.
— KK-
nniviARiMM
GUGNAÐI
SÁ ÓVÆNTI atburður gerðist á laugardaginn, er knattspyrnulið
Þróttar ásamt dómaraliðinu var búið að koma sér fyrir í flugvélinni
til Vestmannaeyja, að dómaranum varð litið út um ijórann. Sá hann
þá það dimmviðri sem úti var og þar sem hann þurfti að sinna
einkaerindum þá um kvöldið, ákvað hann að hætta við förina, ef vera
skyldi að ófært yrði orðið aftur upp á meginlandið er leikurinn væri
úti. Dómaralausir höíðu Þróttarar ekkert að gera til Eyja og var því
öllu frestað. Leikur ÍBV og Þróttar hefur verið settur á á
fimmtudaginn og hefst hann klukkan 19.00.
í dag fer fram í Eyjum leikur ÍBV og ÍA í meistarakeppni KSÍ.
sannkölluð eftirlegukind, en eins og kunnugt er, fer keppni sú jafnan
fram á vorin og það snemma. Þessum leik varð að fresta á sínum tíma.
Mikið er í húfi, ÍA nægir jafntefli til þess að tryggja sér sigur í
keppninni, en sigri ÍBV, verða öil liðin jöfn. Hvað þá?
- gg.
9 DOMARAR
DÆ M A YTR A
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Eysteinn Guðmundsson dæmi leik Belmania
og Beveren í N-írlandi 27. næsta mánaðar. Línuverðir með honum verða
Rafn Hjaltalín og Sævar Sigurðsson. 24. október dæmir Guðmundur
Haraldsson landsleik 21 árs og yngri milli Skota og Norðmanna í
Glasgow. Línuverðir verða þeir Arnþór Oskarsson og Valur
Benediktsson. Daginn eftir dæmir Magnús V. Pétursson svo landsleik
Wales og Möltu, þar vérða línuverðir þeir Hreiðar Jonsson og Oli Olsen.
Einn er sá milliríkjadómari, sem ekki fær verkefni í haust, Þorvarður
Björnsson. Er Þorvarður þó númer 4 á lista íslenzkra milliríkjadómara.
Þorvarður fer hins vegar í vikunni ásamt Guðmundi Haraldssyni til
Vínarborgar, en þar sitja þeir UEFA-ráðstefnu fyrir dómara.
— áij.
Jón og Vilmundur
í eldlínunni strax
fyrsta mótsdaginn
• Vilmundur Vilhjálmsson keppir í 100 m hlaupi á EM í Prag í kvöld
og á nokkra möguleika á að komast í milliriðil.
ÍSLENZKU kepp-
endurnir á Evrópumeist-
aramótinu í frjálsum
íþróttum komu til Prag á
föstudagskvöldið. Eftir
langa og stranga vega-
bréfsskoðun, þar sem
ekki færri en fimm aðil-
ar, þurftu að fjalla um
hvert vegabréf og
stimpla, fékk hópurinn
að halda áfram af flug-
vellinum inn í borgina.
Evrópumeistaramótið
verður sett klukkan
15.30 í dag að íslenzkum
tíma. Þátttökuþjóðirnar
ganga inn á leikvanginn
undir þjóðfánum og verð-
ur Óskar Jakobsson fána-
beri íslenzka hópsins.
í dag keppa þeir Vilmundur
Vilhjálmsson og Jón Diðriksson.
Vilmundur keppir í undanrásum
100 metra hlaupsins, en Jón í
undanrásum í 800 m. Mótið fer
fram á nýjum leikvangi í Prag
og var þessi stórglæsilegi völlur
sérstaklega byggður fyrir
keppnina. Leikvangurinn stend-
ur á Strahov-hæðinni, sem
gnæfir yfir Prag. Leikvangurinn
tekur 50 þúsund manns í sæti.
Alls munu 1200 keppendur frá
32 Evrópulöndum taka þátt í
keppninni, þar á meðal margir
heimsmethafar og Olympíu-
meistarar. Þá eru 1100 frétta-
menn komnir á staðinn til að
fylgjast með.
ísland hefur átt þrjá Evrópu-
meistara í frjálsum íþróttum
utanhúss. Gunnar Huseby varð
Evrópumeistari í kúlúluvarpi í
Ósló 1946 og í Brússel 1950.
Torfi Bryngeirsson varð
Evrópumeistari í stangarstökki
1950. Örn Clausen vann silfur-
verðlaun í tugþraut á EM 1950
og Vilhjálmur Einarsson varð
þriðji í þrístökki 1958 í Stokk-
hólmi.
Á sunnudagskvöldið var hald-
ið mikið frjálsíþróttamót á
aðalleikvanginum og voru þeir
Óskar og Vilmundur meðal
keppenda. Óskar stóð sig mjög
Fréttamaður Morgunblaðsins
á Evrópumcistaramótinu í
Prag er Þórarinn Ragnarsson.
Hann hélt utan í lok síðustu
viku með íslenzku keppendun-
um og fylgist með þeim til
loka keppninnar.
vel í kringlukastinu og varð í
öðru sæti með 60,98 metra,
sigurvegari varð Irmisch Bugar
með 63,58 m. Níu keppendur
mættu til keppninnar í kringlu-
kasti, en margir hættu við
þátttöku vegna leiðinlegs veð-
urs. Mótstíminn var þó valinn
eftir að veðurfar í Prag í 300 ár
hafði veriö kannað og fræðingar
komist að raun um að þessi tími
væri sá heppilegasti. Næstur á
eftir Óskari í kringlukastinu
varð Ludvig Danek.
Vilmundur Vilhjálmsson fékk
tímann 10,81 í 100 metrunum og
varð fiórði í sínum riðli. Sigur-
vegarinn í keppninni hljóp á
10,63 sekúndum. Af 18 keppend-
um hafnaði Vilmundur í 6. sæti.
Vilmundur hleypur í dag í 4.
riðli í 100 metra hlaupinu og sá
sem er beztur í hans riðli er
Sovétmaðurinn Kolesnikov, sem
á 10,32. Vilmundur á bezt 10,46
miðað við rafmagsntímatöku.
Hlaupi Vilmundur vel er alls
ekki ólíklegt að hann verði
meðai fjögurra fyrstu í sínum
riðli. Hinir riðlarnir virðast
sterkari.
Jón Diðriksson keppir í 800
metra hlaupi í 4. riðli og á hann
lélegasta tímann í riðlinum,
1:44,3.