Morgunblaðið - 29.08.1978, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.08.1978, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÚJUDAGUR 29. ÁGÚST 1978 ♦ ,Eg er þannig manngerð ekki hugsað mérað ra í hóp róttum' ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ 4 VIÐ höfðum mælt okkur mót í anddyri hótels Loftleiða. Hann skar sig úr f jöldanum, hávaxinn herðabreiður og allur hinn gjörvulegasti. íþróttamaðurinn Mac Wilkins fyrrverandi heimsmethafi í kringiukasti og einn fjölhæfasti kastari heimsins var komin tii íslands í annað sinn á skömmum tíma til að reyna að endurheimta heimsmet sit í kringlukasti. Daginn áður en spjall okkar fór fram, hafði Wilkins náð að kasta 70.02 metra á Laugardalsvellinum hans lengsta kast í ár og næst lengsta kast í heiminum. Er við höfðum komið okkur vel fyrir í veitingasal hótelsins, byrj- uðum við samtalið. — Hvar ertu fæddur og hvar býrðu í Bandaríkjunum? — Ég er fæddur 15. nóvember 1950 í Eugene Oregon á vestur- strönd Bandaríkjanna, og þar hef ég búið allt mitt líf. Að vísu hef ég ferðast mikið, og hef nú samastað í Kaliforníu, en fer væntanlega fljótlega aftur til Oregon. — Hvenær komst þú fyrst í kynni við íþróttir? — Það var löngu áður en ég hóf skólagöngu. Frá því að ég man fyrst eftir mér var ég alltaf í- leikjum og allskyns keppni. En þegar ég hóf skólagöngu, fór ég fyrst að æfa af viti og kynnast hinum ýmsu greinum íþrótta. í skóla stundaði ég körfuknattleik, amerískan fótbolta, golf og frjáls- ar íþróttir. Það var þó fyrst er ég var 16 ára að áhugi á frjálsum íþróttum vaknaði. Ég keppti í grindahlaupi, kastgreinum og boð- hlaupum. Oregon-fylki er frægt fyrir þann mikla áhuga sem þar ríkir á frjálsum íþróttum, það er svipað og í Finnlandi, frjálsar íþróttir eru í öndvegi. Þetta kann að hafa haft áhrif á ég valdi frjálsar. Frjálsar íþróttir reka lestina — Samt er það nú svo í Bandaríkjunum að atvinnuíþróttir draga mest til sín, og þá sérstak- lega í stórborgunum. Úngir nrenn stefna að því að vinna sér inn mikla peninga með því að fara i atvinnumensku í íþróttum. í Bandaríkjunum má segja að tvenns konar atvinnumennska sé við lýði. Fyrst má nefna skóla- styrki, sem háskólar veita þeim sem skara fram úr og eru há- skólarnir einskonar stökkpallur út í hina raunverulegu stóratvinnu- mennsku. Þeir bjóða efnilegum íþróttamönnum úr gagnfræðaskól- um fría skólavist, og greiða þeim um 150 dollara á mánuði, séu þeir liðtækir í kapplið skólans í ein- hverjum greinum. Körfuknatt- leikurinn og ameríska knattspyrn- an eru best launuð, en þar á eftir koma tennis og golf. Frjálsar íþróttir reka lestina. — Nú er mikið rætt um auka- fríðindi og greiðslur undir borðið, er eitthvað um slíkt? — Hugsanlega, um það get ég ekki sagt, en hver veit, þetta er oft svo einstaklingsbundið. — Var þér boðinn skólastyrkur? — Já, ég fékk gott tilboð frá Oregon-háskóla, og því tók ég. Þá var hinn þekkti frjálsíþróttaþjálf- ari Bill Bowermann starfandi við skólann og undir hans handleiðslu hóf ég æfingar af mikilli alvöru og tók örum framförum. Þegar ég byrjaði í háskólanum kastaði ég kringlunni aðeins 47 metra, en strax eftir nokkra mánuði var ég kominn upp í 49 metra. Þá lagði ég mikla áherslu á spjótkast og náði best 78,44 metrum. En litlu seinna meiddist ég í olnboga og varð ég þá að taka þá ákvörðun að hætta að kasta spjóti og einbeita mér að kúlu og kringlukasti. — Nú var þér boðinn skóla- styrkur vegna getu í íþróttum. Stefndi hugur þinn ekki að at- vinnumennsku í einhverri af hin- um betur greiddu íþróttum eins og golfi, tennis eða amerískri knatt- spyrnu? Gæti ekki hugsað mér að vera í hópíþróttum — Því er fljótsvarað. Hæfileik- ar mínir í golfi og tennis voru ekki nægilega miklir til að ná langt, og svo er ég sú manngerð að ég gæti ekki hugsað mér að vera í hópíþróttum þannig að ég endaði í frjálsum íþróttum og þegar ég lít til baka er ég ánægður yfir því. • Örn Eiðsson. formaður Frjálsíþróttasambands íslands, leysir Mac keppni Wilkins hér á landi í síðara skiptið í sumar. Wilkins út með gjöfum að lokinni Þórarinn Ragnarsson ræðir við Mac Wilkins fyrrverandi heimsmeistara í kringlukasti — Þiggurðu peninga sem greiðslu fyrir keppni? — Ég er með umboðsmann sem velur úr þeim mótum sem mér er boðinn þátttaka í og hann sér einnig um að ferðakostnaður sé greiddur og svo dagpeningar. Það er útilokað að standa í þessu og ná árangri nema að hafa aðstöðu til að æfa árið um kring og keppa óhemju mikið á sem flestum mótum. Hvernig ætti maður að eiga möguleika á að standa sig nema að fá hjálp? Lítum á íþróttamennina í austurblokkinni, þeir eru allir dulbúnir atvinnu- menn. — Er þú kepptir á Kaupmanna- hafnarleikunum fyrir skömmu varstu með hárband og á því var auglýsing frá Tuborg-bjórverk- smiðjunum. Þetta gerir tennis- leikarinn frægi Bjöi-n Borg á flest öllum mótum sírtum, fékkst þú greitt sérstaklega fyrir að vera með þetta hárband? — Einhver verður að standa undir kostnaði við frjálsíþrótta- mót, í þessu tilviki sáu Tuborg bjórverksmiðjurnar um kringlu- kastkeppnina á leikunum, og létu fé af hendi rakna til mótsstjórnar- innar. Ég fékk ekki grænan túskilding. En eins og þú máske veist þá fær Borg 10.000 þúsund dollara fyrir hverja keppni þegar hann leikur með hárband frá Tuborg. Leikarnir í Kaupmanna- höfn voru vel skipulagðir og í fyrsta skipti í langan tíma grædd- ist danska frjálsíþróttasamband- inu fé á því að halda mót. Pilluát er skaðlegt öllum íþróttamönnum — Nú er því oft fleygt fólks á meðal að kastarar geri mikið af því að éta pillur og hormónalyf.. Hvað vilt þú segja um þetta atriði? — Það er ekki eins mikið um þetta og fólk heldur. Fólk er að leita eftir sögum, og hendir þetta þá gjarnan á lofti. Ef fólk vissi örlitlu meira um íþróttir þá kæmi í ljós, að pilluát er skaðlegt öllum íþróttamönnum og það gera þeir sér ljóst í flestum tilvikum. — Nú hefur vakið athygli að þú ferðast ekki mikið með bandaríska landsliðinu í frjálsum íþróttum. Er einhver sérstök ástæða fyrir því? — Já, rétt er það. Ástæðan er sú, að mér hreinlega leiðist að ferðast um í svo stórum hóp. Þetta eru oft um 150 manns og allar reglur, sem settar eru, eru út í hött. Þá fæ ég ekki eins mikið út úr því að keppa með landsliðinu eins og ég fæ með því að keppa einn hér og þar. Þá á ég við hvað góðan árangur snertir. Ég hef aðeins farið í eina ferð með landsliðinu og það geri ég ekki aftur. Ég hef síðan þá alltaf ferðast upp á eigin spýtur. — En nú varstu með liðinu á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.