Morgunblaðið - 29.08.1978, Side 33

Morgunblaðið - 29.08.1978, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1978 Gengið frá fallhlífinni .. Komið að Hveravöllum til Auðar og Páls .. I bað þrátt fyrir nepjuna ... fíugbjörcjunarsveitin í heimsókn á Hveravoiium eftir óveniuiegri leið Fallhlífarstökk var fyrst — stokkið hér á landi af íslend- ingum fyrir nokkrum árum og voru þar aö verki nokkrir félagar í Flugbjörgunarsveit- inni í Reykjavík. Þeir höfðu þá um alllangt skeið verið við æfingar í þessu skyni. — Enn í dag eru félagar Flugbjörgun- arsveitarinnar að æfa sig og þá fyrst og fremst til að vera í sem beztri þjálfun þegar útkalliö kemur. Tvær flugvélar forú 23. febrúar s.l. með félaga Flugbjörgunarsveitar- innar og farangur þeirra upp á Kjöl, þar sem þeir stukku út yfir hvítri fannbreiðunni og lentu rétt viö hús Veðurstof- unnar á Hveravöllum. Þeir sem þarna voru að verki voru þeir Rúnar Nordkvist, Guð- laugur Þórðarson, Jóhannes Ellert Guölaugsson og Þor- steinn Guöbjörnsson. „Steina datt þetta í hug. Hann hafði gengið meö þetta í maganum lengi,“ sagöi sá þeirra félaga sem síðastur kom inn í þetta. Sá hafði heyrt á tali félaga sinna hvað stóð til og vakti það þegar áhuga hans á að taka þátt í ævintýrinu. Sá hafði reyndar aldrei stokkiö fyrr úr fallhlíf, en þjálfun hans var að öðru leyti ágæt. Þorsteinn var fallhlífar- stökkskennari og nú hafði hann tekið aö sér nýliðann og lofaö aö kenna honum listina. — Kennslubókin var lesin á mettíma og fyrri áætlanir um aö stökkva með vorinu fuku út í veður og vind og fyrsta stökkiö skyldi reynt sem fyrst. Dagur stökksins var svo 2. febrúar. Sæmileg skilyrði voru í Reykjavík þennan dag. Nýliðinn stökk út yfir Reykja- víkurflugvelli og sveif þarna neðan í nylon fallhlífinni. — Stökkiö var vel heppnaö og nýliðinn hafði fengiö vígslu. Undirbúningurinn hélt áfram. Ekki voru margir dag- ar til stefnu. Skíöin voru tekin fram, en á þeim var ætlunin að ganga til byggða. Bakpok- ar, svefnpokar, tjöld og kuldaklæönaöur, þar á meðal hnausþykkt fööurlandiö, allt tekið fram og við bættist svo allur maturinn til feröarinnar. Ætlunin var svo aö færa íbúunum á Hveravöllum ein- hverja mungát. Allt dótið var sett í einn stóran kassa sem fékk sína eigin fallhlíf, nema hvað skíöin voru tekin sér. Þá var komið aö því aö fljúga upp að Hveravöllum Stóri kassinn komin í vélina. — Hvað nú? meö flugvél frá Flugstöðinni, sem bæði gat flutt fjórmenn- ingana og allan farangur. — Þaö var í fögru veðri hinn 11. febrúar sem nýliðinn fékk sitt annað stökk yfir ísilögðu Sandskeiði. Þriöja stökkiö var svo yfir Reykjavíkurflugvelli, veður var þar gott og 6 hnúta vindur. Þar sem allur undirbúning- ur gekk vonum framar var ákveöiö aö flýta feröinni um einn dag og fara 23. febrúar, en þá kom babb í bátinn, flugvélin frá Flugstööinni var upptekin. Landhelgisvélin var heldur ekki á feröinni þennan dag. — Útlitið var því ekki sem bezt. Jónas Pálsson á Veöurstofunni hringdi til okk- ar aö morgni hins 23. febrúar þar sem hann vissi um fyrirætlanir hópsins og til- kynnti aö veöurútlit væri ágætt þennan dag, en iíkur bentu til þess aö ekki væri hægt aö stökkva næstu daga. — Þaö var því ákveðiö aö fá sex sæta flugvél frá Sverri Þóroddssyni og ákveðið aö taka af henni hurðina svo að stóri kassinn kæmist með. Þá kom í Ijós enn eitt Ijóniö á veginum, ekki komust nema tveir menn að viðbættum stóra kassanum í vélina og voru því góð ráð dýr. Þetta bjargaöist þó með þeim hætti að formaður Flugbjörgunar- sveitarinnar bauöst til aö fljúga meö þá sem eftir voru og skíðapokann á eigin vél. — Þaö vakti nokkurn ugg að séð var fyrir aO vélarnar yrðu aö vera huröarlausar alla leið upp á hálendiö í nístings- kulda. Allt umstangið haföi tekiö sinn tíma og því var komið fram yfir hádegi þegar vélarn- ar lyftu sér af brautinni í Reykjavík. Reykjavík var fög- ur yfir að líta þennan kalda vetrardag. Stefnan var tekin austur yfir Þingvöll og fylgd- Stokkið Við Ferðafclagsskálann í Hvftárnesi ... ust vélarnar aö allt aö Haga- vatni við Langjökul. Þá losn- aöi poki sem settur haföi veriö utan á aöra vélina og voru því góð ráð dýr við að festa pokann. Það tókst þó aö haida honum sæmilega kyrrum og var fluginu haldið áfram inn meö Langjökli í átt til Hveravalla. Ailt var landið hvítt svo langt sem augað eygði. Yfir Hveravöllum voru allar aöstæður kannaðar og flugiö síðan lækkaö og skíðapokan- um kastaö út rétt hjá húsun- um. Aftur var flugið hækkað og stóra kassanum sparkaö út. Fallhlíf hans þandist út og hann sveif tígulega til jarðar. Þá fórum við að kanna vindstefnuna betur með tilliti til þess aö stökkva sjálfir út en við vorum þessa stundina í um 3000 feta hæð. Allar aðstæður reyndust vera í lagi og fyrsti maðurinn steig út á lendingarhjóliö og hélt meö báöum höndum um vængstifífuna. — Smá hnykk- ur — og maðurinn sveif til jarðar meö útbreiddan faöm- inn og góöa baksveigju. Fallhlífin opnaðist og hann leið til jaröar með stórkost- legt útsýni yfir Kjöl fyrir framan sig, Kerlingarfjöll og fleiri svæöi. Jörðin nálgaöist og hann bjó sig til lendingar. Snjórinn var ekki djúpur svo að lendingin var „stórfín." Næsti maður út var Þor- steinn Guðbjörnsson sem þar stökk sitt hundraðasta stökk aö þessu sinni. Þeir voru báðir í fyrri vélinni. Þá var talstööin tekin í notkun og síðari vélinni leið- beint. Fyrst kom vörufallhlífin í Ijós, en neðan í henni voru matvæli til veðurstofufólks- ins, þeirra Auðar og Páls. Tvær fallhlífar til viðbótar gáfu himninum lit og þar komu þeir Rúnar og Jóhann- es. Auður og Páll komu þegar til okkar og buöu okkur í bæinn þar sem kaffi og meölæti beið okkar. Eftir þaö var farið til þess aö ganga endanlega frá fallhlífunum og öðrum farangri og er við höföum lokiö því beið okkar dýrindis soðning, saltkjöt og baunir. Um morguninn þegar vakn- að var var kaldi eða stinn- ingskaldi en bjart veður. — „Gott baðveður,“ sagði Steini og brá sér í baö í útilauginni. Þá var loks skundað af stað og var farið nokkuö hratt yfir því í bígerð var að ná í skálann í Hvítárnesi fyrir myrkur. — Af Kjalveginum var síöan undan fæti niöur að Fúlukvísl, sem kom aö þessu sinni undan snjóskafli. Herti nú veður að mun en eina bótin var að skafrenn- ingurinn var allur í bakiö. Runnum við undan veörinu sem stööugt versnaöi og var orðið svo slæmt að frekar þurfti aö halda við en að renna sér. Það kom sér vel að þessu sinni aö vera kunnugur öllum aöstæöum þarna, því aö ella heföi verið erfitt aö finna skálana í rökkrinu og skafrenningnum. Er stöövaö var viö skálann var vart stætt þar til að moka sig inn í hann og þaö var þvi hugsað hlýtt til Feröafélags íslands er inn var komið, en þeir eiga þarna þetta ágæta sæluhús. Úti gnauöaöi vind- urinn en þreyttir félagarnir sváfu vært. Þegar menn litu út klukkan átta um morguninn var enn vitlaust veöur og sneru menn sér því á hina hliðina og sváfu til tíu. Þá haföi veðrið heldur gengið niður svo ákveðið var aö halda af stað. Þaö gekk ágætlega því aö næöingurinn var í bakið eins og fyrri daginn. Mjög vel gekk niður aö Hvítá og þegar aö henni kom reyndist brúin algerlega óþörf því stæröarinnar skafl var yfir hana. Við Beinakerlinguna á Blá- fellshálsi haföi veðrið gengiö svo niður að mögulegt var að matast, en það var átta tíma labb framundan niður aö Geysi í Haukadal, næsta næturstaðar. — Yfir Sandá var farið án þess aö taka eftir henni. Er komiö var fram á brúnir Haukadals heyröist til flugvél- ar. Þarna reyndist vera á ferðinni vél frá Flugfélagi íslands. í gegnum talstöö hópsins tóku flugmennirnir skilaboðin ti Reykjavíkur um aö sækja mætti þrjá mjög ánægöa feröalanga til Siguröar Greipssonar næsta morgun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.