Morgunblaðið - 29.08.1978, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 29.08.1978, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1978 Sigurður Björnsson frá Vík — Minning llMinsfjörður indæll er á sumardegi þykir mér, með grösug engi, gróin tún, grænar hlíðar, fagra brún. Ain hlær, hrein og tær, himinblítt er vatnið frítt, fjöru kringum flöktir már, fjörðurinn er spegilgljár. Þannig hefst óður Jóns Magnús- sonar frá Minnaholti um Héðins- fjörð. Mér þykir vel við eiga að byrja þessi kveðjuorð á þessari átthagalýsingu, því að þessa mynd hafði sá er hér verður minnst fyrir augum meiri hluta ævi sinnar. Sigurður Björnsson frá Vík í Héðinsfirði hefur kvatt þennan heim. Hann gerði það þegar sól var hér hæst á lofti í sumar. Hann sagði mér margt um Héðinsfjörð fyrir þremur árum er ég samdi þátt þann um sveitina er síðar birtist í Súlum. Þá kynntist ég Sigurði nokkuð, ljúflyndi hans og léttri gamansemi. Sigurður Björnsson var fæddur að Vatnsenda í Héðinsfirði 27. mars 1912. Foreldrar hans voru Björn Ásgrímsson, Björnssonar frá Vík og Anna Sigurðardóttir frá Vatnsenda. En móðir Önnu var Halldóra Björnsdóttir frá Vík. Bæði voru þau Björn og Anna valinkunn hjón og góðum gáfum gædd og hann skáldmæltur. Þau bjuggu fyrst á Vatnsenda í nokkur ár en síðar lengst í Vík meðan þau dvöldu í Héðinsfirði. Þau gengu í hjónaband 21. nóv. 1910. Hemilið varð fyrir þeirri reynslu að Björn varð að dvelja á sjúkrahúsi í Reykjavík í 12 ár. Þá voru börn þeirra enn ung. En Anna stóðst þessa raun með börnum sínum og hélt búskapnum áfram. Má segja að þar hafi gerst hetjusaga. Snemma varð Sigurður fyrir búi hjá henni og svo var öll hin síðari ár. En alls voru systkini 9 og var þarna því fjölmennt í heimili. En Birni auðnaðist að koma aftur heim eftir þessi 12 ár og hafðí þá að mestu endurheimt heilsu sína. En hann varð ekki langlífur. Hann lést 22. apríl 1943, aðeins 58 ára gamall. Frá því var Sigurður fyrir búi móður sinnar. Hann þekkti ekki aðeins þá mynd sem hér var brugðið upp af firðinum í sólskini. Hann þekkti einnig vetrarhríðirn- ar þar og samgönguerfiðleika. En Sigurður undi þarna vel því að hann var í eðli sínu bóndi. Hann hafði unun af að hugsa um fé sitt. « Alls voru systkinin í Vík 9. Með fráfalli Sigurðar eru nú fjögur þeirra látin: Ása María, Guðmund- ur, Stefánía og Sigurður. En á lífi eru: Halldóra á Akureyri, Birna í Ólafsfirði, Soffía og Ingibjörg báðar í Reykjavík og Stefán bóndi á Hesjuvöllum í Kræklingahlíð. Þessi fjölskylda byggði eina steinhúsið í Héðinsfirði. Og hún bjó þar til 1951, en þá voru allir aðrir bændur fluttir úr firðinum og því afar erfitt fyrir eitt heimili að verða þar eftir. Anna fluttist því með nokkur af börnum sínum til Eyjafjarðar það ár og bjuggu þau fyrst á Rangárvöllum í eitt ár en eftir það í Kollugerði frá 1952—1977 og var Sigurður þar fyrir heimilinu. Þar lést Anna 3. des. 1964. Sigurður sá eftir að fara úr Héðinsfirði og þar átti hann margar kærar minningar. En hann neyddist til þess af áður- greindum ástæðum. Á síðasta ári fluttist hann frá + Móöir okkar MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR, fri Hjallalandi, Álftamýri 50, Rvík, andaðist aö heimili sínu sunnudaginn 27. ágúst. Börn hinnar látnu. + Móöursystir mín, KRISTÍN GUDMUNDSDÓTTIR frá Þorvaldarbúö, Helliaaandi, andaöist í sjúkrahúsi Stykkishólms 25. ágúst. Fyrir hönd vandamanna, Jón Júlíusson. t JÓNÍNA INGIBJÖRG EGGERTSDÓTTIR, Hvarfisgötu 4, Hafnarfiröi, andaöist 26. ágúst. Sigrtður Guömundsdóttir Sigurjón Guómundsson. + HELGI BERGSSON, hagfrssöingur, veröur jarösettur frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 31. ágúst kl. 15. Línay Jóhannaadóttir, Páll B. Halgaaon, Sigurlaug Karladóttir Jóhannos B. Halgason, Anna Hallgrímsdóttir, Linay Halgadóttir, Guömundur Lúövíksaon og barnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför, SIGURDAR TOMASSONAR, Goöhaimum 8. Sérstakar þakkir færum við forráöamönnum og starfsmönnum Sindra h.f. Harborg Guómundsdóttir, datur, fósturbörn, tangdabörn og barnabörn. Lokað í dag vegna jarðarfarar. Ingibjargar Karlsdóttur. Skíöaskálinn, Hveradölum. Minning: Ingibjörg Karlsdótt- ir í Skíðaskálanum Fædd 15. febrúar 1905 Dáin 18. ágúst 1978 „Ætíð léstu beinann besta boðinn (jesti úr vinar mund, Þegar flesta fékkstu hesta, fannst þér mesta gleðistund. Margir brátt þér veittust vinir. Vinsemd þrátt í kærleik snýst. Þeir, sem máttu minna en hinir, meðtak áttu hjá þér vfst.“ Þorskabftur. Þessar ljóðlínur eiga vel við starf og lífsskoðun Ingibjargar Karlsdóttur, forstöðukonu í Skíða- skálanum. Sterk og mótuð af baráttuþreki aldamótakynslóðar- innar helgaði Ingibjörg krafta sína uppbyggingu veitingahúss- reksturs á Islandi. Til undirbún- ings þessa starfs stundaði hún um tíma nám í matargerð í Svíþjóð, en hóf aö því loknu sjálfstæðan veitingahússrekstur ásamt Stein- grími bróður sínum. Það er öllum kunnugt, sem notið hafa veitinga hjá þeim Ingibjörgu og Steingrími á þeim veitingastöðum sem þau hafa veitt forstöðu, að þar hefur myndarskapur og glæsibragur ráðið ríkjum. I áratuga frábærri samvinnu Ingibjargar og Steingríms hefur markmiðið ávallt verið að veita gestum sem besta þjónustu og hefur ekkert verið til sparað, hvorki tími né erfiði, að gestir færu glaðir á braut. Mannkostir Ingibjargar lýstu sér vel í hjálpsemi hennar og skilningi á kjörum þeirra, sem minna máttu sín og af einhverjum ástæðum áttu við erfiðleika að stríða. Gleði hennar var líka rík, þegar henni auðnaðist að veita aðstoð og stuðla að betri líðan fólks. Ingibjörg var gæfumann- eskja í einkalífi. Hún eignaðist eina dóttur, Erlu, sem er gift Birgi Thomsen, öryggisfulltrúa og eiga þau þrjú efnileg börn. Fyrir fjórum árum missti Ingi- björg heilsuna og dvaldi eftir það á sjúkrahúsi, en Erla dóttir hennar reyndist henni umhyggju- söm og góð í veikindum hennar. Kynni okkar Ingibjargar hófust fyrir u.þ.b. 20 árum síðan, er ég hóf störf hjá þeim systkinunum, og tókst með okkur góð vinátta, sem aldrei síðan brá skugga á. Það var lærdómsríkt að starfa með Ingibjörgu og kynnast dugnaði hennar og hæfileikum. Það var ævinlega góður samstarfsandi ríkjandi, og hin erfiðustu verkefni urðu ánægjurík. Ég minnist þessa samstarfs og margra góðra stunda á heimili Ingibjargar og Steingríms á síðari árum með þakklæti og virðingu. Ég sendi dóttur Ingibjargar, tengdasyni, barnabörnum, svo og Steingrími og öðrum systkinum hennar mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Krístín Eggertsdóttir. Ingibjörg Karlsdóttir, í Skíða- skálanum í Hveradölum er látin eftir langa og erfiða legu. Hún varð 73 ára. Allan starfs- aldur sinn vann hún með Stein- + Faöir okkar, tengdafaðír og afi, JÓHANN GUDMUNDSSON, frá Dalbæ, sem andaöist 19. ágúst á Borgarspítalanum, Dómkirkjunni miövikudaginn 30. ágúst kl. 1:30. veröur jarösunglnn frá Kristrún Jóhannsdóttir, Halldór V. Sigurósson, Gyöa Jóhannadóttir, Guómundur H. Jóhannsson, Kristján Magnússon, Anna Sigurðardóttir, Erlingur Kristjánsson og barnabörn. + Elskuleg móöir okkar, tendamóðir, amma og langamma, HELGA ÞORBERGSDÓTTIR, frá Þingeyri, Rauöalæk 32, veröur jarösungin Irá Fríkirkjunni miövikudaginn 30. ágúst kl. 3. Blóm og kransar vinsamlega albeöin, en þeim sem vildu minnast hennar, er þent á Hjartavernd. Þorbjörg Jónadóttir, Gunnar Jónaaon, Þórarinn Jónaaon, barnabörn og barnabarnabarn. Kollugerði að Hvannavöllum 6 á Akureyri ásamt Halldóru sytur sinni og Sigmundi syni hennar sem hafði alist upp í Kollugerði. En dvöl hans þar varð ekki löng. Hann hafði verið heilsulítill hin síðari ár og lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri þann 16. júlí síðastliðinn. Ég kynntist Sigurði nokkuð er ég ræddi við hann um Héðinsfjörð fyrir þremur árum. Við endur- nýjuðum þessi kynni er hann flutti í nágrenni við mig á síðastliðnu ári. Sigurður var fróðleiksfús og las talsvert einkum um sögulegan fróðleik. Hann var léttlyndur og hafði gaman af þvi sem broslegt var. Hann var vinfastur og trygg- lyndur. Þá var hann ávallt mjög hjálpfús ef hann gat eitthvað greitt úr fyrir öðrum. Allt eru þetta eiginleikar góðs manns. Hann gerði sér ljóst að starfs- dagur hans var liðinn og tók því með þolinmæði sem biði hans. Hann var trúmaður og fagnaði því að hitta ástvini sína aftur. Við trúum því að þessi hægláti, grandvari maður hafi átt góða heimkomu. Guð blessi minningu hans. Eirikur Sigurðsson. grími veitingamanni, bróður sín- um, í Skíðaskálanum, Breiðfirð- ingabúð og víðar. Hún giftist ekki, en lætur eftir sig eina dóttur. Ingibjörg var ríkulega gædd þeirri náðargáfu, sem einkennir framúrskarandi matreiðslumenn: hvort heldur hún eldaði einfalda rétti eða hafði veg og vanda af stórveislum höfðingja, vann hún af sömu alúð og smekkvísi. Þau systkin höfðu oft fjölda hjúa og engan vissi ég fara saknaðarlaust úr þeirri vist. Ég átti því Iáni að fagna að vinna með þeim um árabil og nú, þegar Ingibjörg hefur verið kvöldd, er mér efst í huga þakklæti fyrir reynslu og þroska af samstarfi við slíka konu. Einnig og ekki síður fyrir elskusama þolinmæði, er hún sýndi drengjunum mínum, ungum og umsvifamiklum, þegar þeir dvöldu hjá mér í Skálanum og Búðinni oft langtimum saman. Orð vega létt á leið hennar nú, en henni fylgja hlýir og þakklátir hugir ættingja, vina og vanda- lausra og engin sál er betur nestuð. Ástvinum hennar sendi ég sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning Ingibjargar Karlsdóttur. Sigga Odds. Miðtúni 12. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmæiis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein. sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu li'nubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.