Morgunblaðið - 29.08.1978, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1978
43
mn
Víetnamskir flóttamenn um boró í sökkvandi fiskibáti. Flóttamönnunum. 416 að tölu, var bjargað um
borð í bandarísku freigátuna Whipple og sigldi hún með þá til Hong Kong. Þar fengu þeir landvistarleyfi
um tíma, eða þar tH þeir hafa fengið leyfi til að flytjast til annarra landa.
Bretar í sókn gegn
hryðjuverkamönnum
London. 28. ágúst. AP
í KJÖLFAR hinna miklu
hryðjuverka Araba í London
að undanförnu hefur breska
stjórnin nú farið þess á leit
við sendiráð Arabaríkja að
þau fækki verulega í starfs-
liði sínu.
I sjónvarpsviðtali við Dav-
id Owen utanríkisráðherra
Bretlands þar sem þetta
kom fram. sagði hann einnig
dð
Bretar myndu beita öllum
þeim aðgerðum sem nauð-
synlegar væru til að koma í
Owen varar við borg-
arastríði í Rhódesiu
London, 28. ágúst. AP.
ÞAÐ ER óhjákvæmilegt að
borgarastríð brjótist út í
Rhódesíu ef ekki verða gerð-
ir varanlegir friðarsamning-
ar milli hinna stríðandi
aðila í landinu á þessu ári,
sagði David Owen, utan-
ríkisráðherra Bretlands í
sjónvarpsviðtali í dag.
Ráðherrann sem hefur eytt
mjög miklum tíma á 15
mánaða ferli sínum sem
ráðherra til þess að reyna að
koma á sáttum í landinu,
sagði ennfremur að ástandið
hefði sjaldan eða aldrei verið
jafn ótryggt eins og í dag.
Er ráðherrann var að því
spurður hverjum væri um að
kenna ef til borgarastyrjald-
„Franski elsk-
huginn” framdi
sjálfsmorð
Pho«nix, Arizona. — 28. ágúst. AP.
Reuter.
FRANSKÆTTAÐI leikarinn Charl-
es Boyer, eða „franski elskhuginn"
eins og hann var gjarnan kallaður
af kvenkyns mótleikurum sfnum í
Hollywood á árunum 1930—40 lézt
á laugardag 79 ára gamall eftir að
hafa tekið inn of stóran skammt
svefnlyfja.
Aðeins tveimur dögum áður lézt
eiginkona hans Patricia Patterson,
sem var leikkona á árum áður.
Rannsókn lækna á dánarorsök Boy-
ers hefur leitt í ljós, að hann hafi
tekið inn ríflegan skammt svefn-
lyfja, auk þess hafi fundizt áfengi í
blóði hans og hjarta hans hafi verið
bilað.
Charles Boyer var upp á sitt bezta
á árunum 1930—50 og lék þá í fjölda
vinsælla mynda, sem honum hlotn-
aðist margvíslegur heiður fyrir.
ar kæmi, sagði hann að
mistakanna væri að leita allt
aftur til ársins 1965 þegar
landið lýsti einhliða yfir
sjálfstæði sínu undir stjórn
Ians Smiths forsætisráð-
herra.
veg fyrir að þessir atburðir
endurtækju sig.
Alls hafa átta Arabar látið
lífið í bardögum á götum
London frá því í upphafi árs
1977, þegar fulltrúi PLO,
Said Hammami, var skotinn
niður á götu.
Owen sagði að veiki hlekk-
urinn í kerfinu væri sá að
ekki væri hægt að leita sem
skyldi í farangri sendimanna
erlendra ríkja. Það væri
staðreynd að töluverður hluti
starfsmanna í sendiráðum
Araba væru alls ekki raun-
verulegir diplómatar og það
væri einmitt þeirra vegna
sem Bretar færu nú fram á
að sendiráðin fækkuðu veru-
lega í starfsliði sínu.
Moskvu, 28. ágúst — Reuter
SIGMUND Jahen, fyrsti
geimfari A-Þjóðverja, er nú
kominn heilu og höldnu að
geimrannsóknastöðinni Sal-
yuti 6. ásamt rússneska
geimfaranum Bykovsky og
gekk ferð þeirra að óskum.
Þar hittu þeir fyrir geim-
farana Ivanchenkov og
Kovaleiikov, sem dvalist
hafa í geimnum við rann-
sóknir í tæpa þrjá mánuði
og varð mikill fagnaðar-
fundur með þeim. Jahen
færði þeim ýmsar gjafir við
komuna svo sem armbands-
úr, bók um A-Þýzkaland á
rússnesku og einnig fengu
þeir nýjustu sovézk dagblöð
að lesa.
Næstu viku mun Jahen stunda
margvíslegar rannsóknir i geimn-
Andspyrnumenn
úr seinna stríði á
ráðstefnu í Höfn
Kaupmannahötn. 28. ÚKÚst. Keuter.
í DAG hófst í Kaupmannahöfn
þriggja daga ráðstefna
evrópskra andspyrnumanna úr
seinna stríði í tilefni 35 ára
afmælis dönsku andspyrnu-
hreyfingarinnar. Meðal gesta á
ráðstefnunni er Simon
Wiesenthal, forstöðumaður
skjalasafns gyðinga í Austur-
ríki, sem hefur að geyma
skýrslur og yfirlit um stríðs-
glæpi.
i A-Þjóðverj-
geiminn
um ásamt Rússunum þremur og
verða notuð a-þýzk geimrann-
sóknatæki við þær. Þeir munu m.a.
taka ljósmyndir og gera athuganir
líffræðilegs eðlis.
Geimfari A-Þjóðverjans var
skotið á loft frá Rússlandi á
laugardag og tók ferðin um
sólarhring. Aðfaranótt mánudags
hvíldust geimfararnir eftir að
hafa tengt geimfar sitt við Salyut
6., og var áætlað að þeir hæfu störf
í dag. Sovézka fréttastofan Tass
fagnaði þessum áfanga og sagði
hann merkilegan þátt í samvinnu
þessara tveggja vinaþjóða.
Veður
viða um heim
ERLENT
Amsterdam 16 sólskín
Apena 32 heiörikt
Berlín 16 skýjað
BrUssel 18 heióríkt
Chicago 28 rigning
Frankfurt 18 skýjað
Genf 17 sólskin
Helsinki 14 skýjað
Jerúsalem 27 heiðríkt
Jóh.borg 21 rigning
Kaupm.höfn 14 skýjað
Lissabon 25 skýjað
London 21 skýjað
Los Angeles 29 heiðríkt
Madríd 34 sólskin
Miami 31 heiðríkt
Moskva 16 aólskin
New York 28 rigning
Osló 16 sólskin
París 19 sólskin
Rio De Janeíro 26 sólskin
Rómaborg 21 skýjað
Stokkhólmur 13 rigning
Tel Aviv 28 heiðríkt
Tókýó 32 skýjað
Vancouver 21 skýjað
Vínarborg 23 skýjað
r Tíðindalaust 1 pólitík-
inni hér næstu daga”
Símtal vid Kirsten Th. Sa Machado fyrrv.
utanríkisrádherrafrú í Lissabon í gærdag
„ÉG SÉ ekki fram á að neitt
sérstakt gerist hér í pólitíkinni
alveg næstu daga og hér er
engin sérstök spenna í fólki í
bili," sagði Kirsten Thorberg,
fyrrverandi utanríkisráðherra-
frú í Portúgal 1 simtali við Mbl.
í gær. „Nýi forsætisráðherr-
ann. Nobre da Costa, gekk á
fund Eanesar forseta núna
áðan. en síðan hefur hann tíu
daga frest til að semja málefna-
skrá stjórnar sinnar. Eins og
stendur er líka allt á huldu um
hvort stjórnin hlýtur traust í
þinginu. Sósíalistaflokkur
Soaresar hefiír neitað henni um
stuðning og Miðdemókratar
hafa lítið viíjað segja, en þeir
hafa bætt því við að þeir vilji
fá að sjá hvernig stjórnin
hyggst vinna áður en þeir segja
af eða á.“
Kirsten sagði að Nobre da
Costa hefði sagt í sjónvarpsvið-
tali á dögunum að hann myndi
í ýmsu fylgja fram stefnu
fráfarandi stjórnar. Þar hefði
hann og greint frá því að enda
þótt hann hefði alla tíð verið
óflokksbundinn — og sama máli
gegndi um alla hina ráðherrana
sem verða í stjórn hans —
hallaðist hann þó einna helzt að
PS — Sósíalistaflokki Mario
Soaresar. Áður hafði verið litið
á hann sem öllu meiri „miðju“-
mann að flestra dómi.
Kirsten sagði að Nobre da
Costa væri alkunnur fyrir dugn-
að í stjórnun fyrirtækja þeirra
sem hann hefði haft á hendi.
Hann þætti greindur maður og
merkur á marga lund, en sem
stjórnmálamaður væri hann
vitanlega gersamlega óskrifað
blað og hefði hann enda komið
inn á það í viðtölum.
„Það verður sjálfsagt ekki
mjög langlíf stjórn ef hún kemst
í gegn, en allt er þetta svo óljóst
núna að menn hika við að hafa
uppi neina spádóma og hafa
ákveðið að bíða unz stjórnin
hefur að minnsta kosti lagt
fram stefnumið sín. Nobre da
Costa bað Victor Constanciao
Kirsten Th. Sa Machado.
fjármálaráðherra í fráfarandi
stjórn að sitja áfram og er það
eini ráðherrann sem ég veit um
sem hann sneri sér til. Soares
hafði þá lagt bann við að nokkur
af sínum mönnum sæti í stjórn-
inni svo að úr því varð ekki.“
„Sama máli gegnir um aðra í
nýju stjórninni og Nobre da
Costa, þetta er ókunnir menn
með öllu sem hafa fengizt við
stjórnun fyrirtækja og fleira
slíkt. Flestir þeirra virðast
nokkuð vinstrisinnaðir, þó að
alrangt væri að nefna þá komm-
únista. Nýi utanríkisráðherrann
hefur verið sagður kommúnista-
áhangandi í erlendum blöðum,
að því er ég hef séð, og held ég
að of mikið sé gert úr því, enda
þótt hann hneigist nokkuð til
vinstri.“
„Sumir eru að vona að stjórn-
in fái traust," sagði Kirsten,
„því að ella þyrfti Eanes að
reyna að finna einhvern annan
og það gæti orðið erfitt, ellegar
að efna yrði strax til kosninga.
Ekki væri það góður kostur, þar
sem ástand mála er slíkt að hér
er margt að gera fyrir starfhæfa
stjórn.“