Morgunblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.11.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978 45 of Ut» mei ■ bréíkorn þar sem vandann.C) Hér fer & ^^X^ratóraðra og ^fMor^nblaðin^Þ^^^örn skýrt frá umræðum b {ram. SÍÖUSídri en íoára f: 6120 rÆ vera * draga ur borearráðsmanna’ «-«»«* s*» framkvæmdirnar á Grund og a vegum Sjómannasamtakanna, en 2SS« «*a l»» ís v"* fitÞar' skuli ekki allir vera a sama bat. Eða lokar Hafnarbúðaævintyrið^ augum sumra manna? Ægir.“ leysisstyrk og fer svo í gott sumarfrí á Freeport. Þetta er kannski leiðin ...“ Blásokka.“ • Margt þarf að gera „Á sunnudaginn var gerði „Ægir“ útdrátt úr ræðu sem ég flutti á síðasta borgarstjórnar- , fundi að umræðuefni. Ég hefði gert grein fyrir drætti á fram- kvæmdum á vegum borgarinnar hvað varðar tvær af byggingum þeim sem reistar eru til þjónustu til aldraða borgara, þ.e.a.s. B-álmu Borgarspítalans og dvalarheimilið við Dalbraut. Var þó aðeins um 3 mánaða gamla áætlun að ræða, því að fjárhagsáætlun borgarinnar var samþykkt endanlega 27. júlí í sumar. í útdrættinum sem birtist í Mbl. 21.11 kemur það e.t.v. ekki fram eð ég lagði áherzlu á þörf þess að flýta byggingu B-álmu sem á eingöngu að taka við sjúkum gamalmennum, sem eru í mestri þörf fyrir þjónustu. Þörfin er víða mikil, en hvergi eins og hjá þeim, sem þurfa langvarandi hjúkrun og sífellda umönnun. Mér er kunnugt um að allir borgarfulltrúar þekkja og meta hið mikla framtak og dugnað sem sýndur hefur verið við byggingu og rekstur Grundar og Hrafnistu og þá ómetanlegu þjónustu sem þar er veitt öldruðum Reykvíkingum. Hana ber að þakka og styrkja á allan hátt. En borgin sjálf má ekki láta sinn hlut eftir liggja, því að verkefnið er stórt og stærsta átak borgaryfirvalda til að leysa vanda sjúkra gamalmenna og aðstand- enda þeirra er bygging B-álmu Borgarspítalans. Reikna þarf með að um 15% þeirra sem eru 70 ára og eldri þurfi dvöl á öldrunarlækn- ingadeildum eða hjúkrunardeild að halda. Það má því reikna með að um 1000 aldraðir Reykvíkingar þurfi slíka þjónustu og mun þessi tala hækka á næstu árum. Við þurfum að gera allt sem unnt er til að leysa þennan vanda bæði með framkvæmdum hins opinbera og stuðningi við hin dugmiklu samtök áhugamanna sem svo mikið hafa lagt af mörkum. Páll Gíslason.“ • Svar Guðrúnar „Velvakandi góður. Viltu aftur ljá mér rúm í dálki þínum, og nú fyrir athugasemd við stíl tveggja skólapilta. Gunnar Guðmundsson og Guð- mundur Franklín Jónsson: Þið eruð svo ungir drengir mínir, að ég ætla aðeins að leiðrétta nokkrar villur í svargrein ykkar. Eg vil nú fyrst minna ykkur á, að ég nefndi NOKKRA nemendur í Vogaskóla. Klappi þeir allir fyrir ykkur, og að auki allur ungdómur- inn í hverfinu, þá klappar hann á röngum forsendum. I öðru lagi hef ég aldrei óskað þess að vistmönnum á Kleppi verði sleppt útí kerfið aftur. I þriðja lagi — Hvað skæruliða- sveitir eða rauðar herdeildir snert- ir. — Ja, vel gæti komif til tals að maður þefaði af snoðlíkum hreyf- ingum, fari svo í framtíðinni, að eini öruggi samastaðurinn í tilver- unni fyrir friðsama borgara verði innan fangelsis, spítala eða geð- veikrahælis! í fjórða lagi. Skyldi ykkur ekki bregða illa við, fengjuð þið ekki kvöld eftir kvöld frið til að sparka bolta, grýta handbolta eða klifra eftir leikfimisköðlum fyrir nokkrum söngvurum? Og þegar einn ykkar legði frá sér bolta og prik og segði við söngvarana: Skammist þið ykkar ekki að láta svona meðan yfirkennarinn ykkar liggur á líkbörunum — við höfum sko líka kennara og fleiri en einn — fengjuð þið bara framan í ykkur hæðnishlátra? Svona byrjaði nú þetta, piltar mínir. Mér þykir leiðinlegt hafi skrif mín orðið til að særa hverfisbúa, sér í lagi vegna þess að ég er búin að syngja með þeim mörgum gegnum árin, tildæmis „gargtón- list,“ eins og BACH. Með þökk fyrir birtinguna. Guðrún Jacobsen.“ Norræn byggingarsýn- ing í Stokkhólmi 1980 „NÝ TÆKNI - betra um- hverfi“ er yfirskrift sam- norrænnar byggingarsýn- ingar er halda á í Stokk- hólmi dagana 6.—11. maí 1980. Nord Bygg 1980 eins og sýningin nefnist er unnin í samvinnu við Norrænan byggingardag sem jafnan er haldinn á nokkurra ára fresti og var hann síðast í Kaupmannahöfn árið 1977. Höfuðmarkmið með sýn- ingunni er að sýna fram á hvernig ný tækni getur búið fólki betra umhverfi og segir í frétt frá undirbúningsnefnd að hér sé um eina stærstu sýningu í Stokkhólmi að ræða síðan Stokkhólmssýn- ingin var haldin fyrir 50 árum. A sýningunni verður reynt að tengja saman þá mörgu aðila, sem koma við sögu byggingar- og skipu- lagsmála, ýmsar sérsýningar verða og leitast undirbún- ingsnefnd hennar í samvinnu við sýnendur við að gefa henni alþjóðlegan blæ. Norræni byggingardagur- inn verður í Stokkhólmi dagana 7.-9. maí undir sömu yfirskrift og fyrrgreind sýn- ing og er markmið hans að kynna sérfræðinga í bygging- ariðnaði svo og hugmyndir leikmanna varðandi bygging- armálefni. Allar ípróttavörur á einum stad. ÆFINGABÚNINGAR MIKIÐ ÚRVAL Vorum að fá æfingabúninga úr 100% polyester. Buxurnar með vasa og beinum skálmum meo isáumúðu broti, jakkinn meo tveimur vösum. Litir rauðir og bláir með hvítum röndum. Merkjum búningana meö nöfnum ef óskað er. Verðio otruiega nagstætt frá kr. 8.450 — 10.450.— Ronnie Hellstrem Látið blómin tala Ath: Breyttur opnunartími. Höffum nú opið ffrá kl. 9—9. dJIOMÍAMXIII Hafnarstræti 3. Símar 12717 — 2331 Tillitssemi kostar ekkert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.