Morgunblaðið - 05.12.1978, Page 1
48 SIÐUR
279. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Mál Mentens
látið
niður falla
Haag, 4. desember — AP
HOLLENZKI milljónamæring-
urinn og Iistaverkasafnarinn
Pieter Menten, sem fyrir tæpu
ári var dæmdur í 15 ára
fangelsi fyrir stríðsglæpi er nú
frjáls maður, en hann var í dag
látinn laus úr haldi.
Dómstóllinn sem dæmdi Men-
ten fyrir ári síðan úrskurðaði í
dag, að mál hans sem tekið var
upp að kröfu hæstaréttar,
skyldi látið niður falla og að
hann væri frjáls ferða sinna.
Menten var gefið að sök að
hafa tekið þátt í aftöku 20—30
pólskra Gyðinga í þorpinu
Podhoroce árið 1941, en þá var
hann sagður þjóna í SS-sveitum
nasista. Árið 1949 sat Menten í
átta mánuði í fangelsi í Hollandi
fyrir að starfa fyrir nasista í
Póllándi, en var sýknaður af
ákærum um að hafa þjónað í liði
þeirra.
Menten hélt því fram við
réttarhöld í fyrra að J.A Donker
fyrrum dómsmálaráðherra Hol-
lands hefði heitið sér lausn fyrir
þagmælsku vegna Velsen-mál-
anna. Hæstiréttur úrskurðaði
svo í maí að fullyrðingu Ment-
ens um heit Donkers hefði ekki
verið gefinn nægur gaumur við
réttarhöldin í fyrra, og krafðist
upptöku máisins.
Menten sem er 79 ára, var
ekki viðstaddur í dómshúsinu
þegar úrskurðurinn var kveðinn
upp, en lögfræðingur hans sagði
að hann mundi á morgun halda
til írlands sér til hressingar.
Áframhaldandi
róstur í íran
Teheran. 4. des. Rcuter — AP
SKOTBARDAGAR brutuzt út í höfuðborg írans í dag í kjölfar þeirrar yfirlýsingar stjórnarinnar að
erlendar blaðafregnir um að ríkisráð yrði myndað til að taka við völdum keisarans væru rangar.
Lögreglumaður lét lífið í óeirðunum. en engar fregnir fóru af mannfalli í röðum uppreisnarmannanna.
Uppreisnarmennirnir skutu með
sjálfvirkum rifflum á lögreglu-
stöðvar og hentu heimagerðum
sprengjum að þeim. Lögreglu-
maðurinn er sagður hafa orðið
fyrir einni slíkri. Þessar aðgerðir
andstæðinga keisarans í dag eru
sagðar fyrstu árásir borgarskæru-
liða í Iran frá því að herstjórnin
tók við völdum í landinu fyrir
mánuði síðan.
Sögusagnir voru á kreiki um
helgina í Iran um að stjórnin væri
að velta fyrir sér þeim möguleika
að koma á ríkisráði sem tæki við
völdum keisarans þar til að
andófið gegn honum fjaraði út. En
samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um í dag þótti ekkert benda til
Begin varð ekki
við kröfum Sadats
Jerúsalem, 4. desembet.
Reuter. AP.
EKKERT var í dag látið uppi
um efni bréfs Menachem Begins
forsætisráðherra ísraels til
Anwar Sadats forseta Egypta-
lands, en talið er likiegt að í því
hafi Begin ítrekað að ísraels-
menn væru ófáanlegir til þess að
gera breytingar á uppkasti að
friðarsáttmála landanna
tveggja.
Talið er að í bréfinu hafi Begin
vísað á bug kröfum Egypta um
ákveðna dagsetningu sjálfstjórn-
ar á vesturbakka Jórdan og á
Gaza, um aðsetur Egypta á Gaza,
! og kröfum um endurskoðun á
orðalagi í uppkastinu er snertir
skuldbindingar Egypta gagnvart
Arabaríkjum.
Háttsettur embættismaður
jagði í dag að bréf Begins væri
„kurteist, en ákveðið svar við
ógeðfelldu bréfi Sadats, sem
staðfesti enn einu sinni stífni
Egypta". Embættismaðurinn
sagði litla von til að samninga-
Kínverjar fá
kjarnorkuver
Tókýó, París, 4. desember. AP.
Tilkynnt var í Peking í dag að
Kínverjar og Frakkar hefðu
gert með sér sjö ára samning um
samstarf á sviði efnahagslegrar
uppbyggingar, og við það tæki-
færi sagði Teng Hsiao-ping
varaforsætisráðherra að Kín-
verjar myndu kaupa tvö kjarn-
orkuver af Frökkum á næstu
árum. en samningar um bygg-
ingu orkuveranna eru nú á
lokastigi.
Kjarnorkuverin tvö verða
hvort um sig 900 megawött að
stærð. Með sölunni á þeim hafa
Frakkar orðið fyrstir vestrænna
þjóða til að selja Kínverjum
tækni til að leysa kjarnorku úr
læðingi.
viðræður landanna hæfust innan
skamms, ef marka mætti afstöðu
Egypta af bréfi Sadats. „Hann
hefur ekki slakað neitt til,“ sagði
embættismaðurinn.
Embættismaðurinn neitaði að
nokkuð væri hæft í fregnum þess
efnis að Israelsmenn hefðu í
hyggju að kalla heim þá af
samningamönnum sínum sem
enn væru í Washington.
í síðustu fregnum segir að
Bandaríkjamenn vinni nú að því
hörðum höndum á bak við tjöldin
að sætta ólík sjónarmið Israels-
manna og Egypta.
Pioneer
á braut
um Venus
Los AnKeles, Mountain View, Kali*
íorníu.
4. desember. AP. Reuter.
ÓMANNAÐA bandaríska
geimfarið Pioneer fyrsti fór á
braut umhverfis reikistjörn-
una Venus klukkan 15,56 að
íslenzkum tíma, eða eins og
gert hafði verið ráð fyrir í
upphafi ferðar, en geimfarinu
var skotið á loft fyrir sjö
mánuðum.
Pioneer fyrsta er ætlað að
senda upplýsingar til jarðar um
gufuhvolf Venusar og veðurfar
á plánetunni. Einnig verður
hægt að teikna nákvæmt kort
af hluta yfirborðs Venusar eftir
upplýsingum sem eiga eftir að
berast frá geimfarinu.
í lok vikunnar koma fleiri
mælitæki að Venusi. Þau voru
send upp með sérstöku geimfari
skömmu eftir að Pioneer fyrsta
var skotið á loft, en hafa hvert
fyrir sig verið á sveimi um
himinhvolfið síðustu daga.
Þessum tækjum er m.a. ætlað
að lenda á yfirborði Venusar.
Eftir 2—3 vikur er von á
tveimur ómönnuðum sovéskum
geimförum að Venusi.
þess að stjórnin hefði slík áform í
huga.
Starfsmenn við olíuhreinsunar-
stöðvar í íran lögðu niður vinnu í
dag, en leiðtogi andstæðinga
keisarans, Ayatollah Ruhollah
Khomeiny, hvatti í gær til slíkra
aðgerða.
Vangaveltur eru nú um það
meðal manna að stjórn óbreyttra
borgara verði brátt mynduð í Iran
til að taka við af stjórn herforingj-
anna, sem setið hefur einn mánuð
að völdum.
Dollar
styrkist
Tókýó. London. 4. des. AP
BANDARÍKJADALUR var
verðmeiri á gjaldeyrismarkaðin-
um í Tókýó í dag en hann hefur
verið frá miðjum júlí. En undir
lok viðskipta seig hann örlítið
þar sem japanskir bankar seldu á
milli 30 og 50 milljónir dollara
seinni part dagsins í þeim til-
gangi að halda aftur af hinu öra
risi dalsins.
Þegar markaðurinn í Tókýó
opnaði í dag fengust 202 jen fyrir
dalinn, og um tíma fengust 203,40
jen fyrir hann. En þegar
markaðurinn lokaði var dalurinn
kominn niður í 199,65 jen, sem
engu að síður er bezta staða
dalsins í lok viðskiptadags frá
miðjum júlí.
Sjö felldir
í Tyrklandi
lstanhul, 4. desembcr, AP
SJÖ manns féllu í skotárásum í Istanbul og tveimur bæjum í
austurhluta Tyrklands í dag, en í allan dag voru óeirðir í nokkrum
bæjum landsins. Hermenn tóku sér stöðu í þeim bæjum þar sem lætin
voru verst, og í kvöld virtist allt vera með kyrrum kjörum í landinu.
Mest urðu lætin í borginni
Elazig. Þar voru fimm menn
felldir í skotárásum. Varð það til
þess að þúsundir námsmanna í
bænum fóru í mótmælagöngu um
götur borgarin'nar. Til átaka kom
milli göngumanna og öryggis-
varða, en kyrrð komst á í borginni
eftir að hermenn höfðu tekið sér
stöðu á ýmsum stöðum í borginni.
Þá var vinstrisinnaður gagn-
fræðaskólakennari myrtur og
félagi hans særður í bænum
Malatya.
Loks féll einn í Istanbul í
skothríð byssumanna á kaffihús
eitt í borginni.
Yfir 800 manns hafa fallið í
óeirðum á Tyrklandi það sem af er
árinu. Flestir voru þeir háskóla-
nemar.
Veggspjaldaherferðin — Borgarar í Peking virða fyrir sér ljósmyndir af Mao Tse tung og veggspjöld
sem hafa verið hengd upp. Á þessum veggspjöldum var hvatt til þess að hætt yrði að fordæma Mao.
Síðan þetta gerðist hcfur veggspjöldum fækkað í Peking. Á þeim sem enn birtast er farið fögrum orðum
um núverandi valdhafa. Sjá nánar frétt á bls. 46.