Morgunblaðið - 05.12.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1978
3
Verd
284
985
TILBOÐ 1.
100.000 - kr. út.
ca. 50 þús. á mán. í 4 mán.
TILBOÐ 2.
Helmingur út og rest á 6 mán.
TILBOÐ 3.
Staögreiðsluafsláttur 4%
bara föstudag og laugardag:
Rækjuveiðarnar vestra og í Axarfirðii
Auk seiðagengdar koma síldar-
göngu í veg fyrir opnun svæða
Nafn litla
drengsins
LITLI drengurinn, sem beið bana
er hann féll út um glugga
fjölbýlishúss í Breiðholti í fyrri
viku hét Samúel Henrik Arn-
laugsson, sonur Arnlaugs Kr.
Samúelssonar og Þuríðar Jönu
Agústsdóttur, Teigaseli 5. Samúel
heitinn hefði orðið tveggja ára 19.
desember n.k. ef hann hefði lifað.
f UPPHAFI rækjuvertíðar er ævinlega ákvcðinn leyfilegur
hámarksafli á hverju svæði. í Arnarfirði var í vetur leyft að veiða 570
tonn og 2400 tonn í ísafjarðardjúpi. Enn hafa veiðar þó ekki hafist á
þessum stöðum einnig vegna mikillar seiðagengdar og að undanförnu
hefur smásfld á þessum stöðum einnig gert það að verkum að opnun
svæðanna er ekki enn möguleg. Önnur helztu rækjusvæði eru í
Ilúnaflóa. þar sem í vetur er leyft að veiða 2500 tonn og 900 tonn í
Axarfirði. I Húnaflóa hófust veiðar um miðjan nóvember og síðan þá
hefur upphaflega svæðið verið stækkað. í Axarfirðinum hafa
rækjumiðin verið opin öðru hvoru, en síðan hefur orðið að grípa til
lokana vegna seiðagengdar á miðunum og nú síðast einnig vegna
sfldar á miðunum.
Rannsóknarskipið Dröfn kom
um helgina úr rækjuleiðangri af
Vestfjörðum, en þar hafa rækju-
miðin verið könnuð með hálfs
mánaðar millibili í haust.
Leiðangursstjóri í síðustu ferð
vestur var Hrafnkell Eiríksson
fiskifræðingur. Hann sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
ljóst væri, að úr þessu væri hæpið
að rækjuveiði hæfist í Arnarfirði
og Isafjarðardjúpi fyrr en eftir
áramót. Seiðagengd væri mikil á
þessum svæðum og hefði hún í
síðasta leiðangri mælzt að meðal-
tali 7900 seiði á rækjutonn í
ísafjarðardjúpi, en 6600 seiði á
tonn í Arnarfirði. Morgunblaðið
spurði Hrafnkel hvernig þessar
viðmiðunarreglur væru hugsaðar.
— Við notum ákveðnar viðmið-
unarreglur, þar sem metið er
verðmæti ýsu og þorsks þegar
seiðin í rækjuaflanum komast í
gagnið, sagði Hrafnkell. —
Samanburður er gerður á verð-
mæti rækjunnar og ef rækjan er
verðmætari í dag heldur en þessi
seiði verða eftir nokkur ár þá
leyfum við veiðarnar. Ef hins
vegar seiðin eru verðmætari, þá er
það yfir viðmiðunarmörkum okk-
ar. Þetta fer nokkuð eftir fjölda
þorsks og ýsuseiða, þorskurinn er
dýrmætari, en viðmiðunartölurnar
eru þær að seiðin megi ekki vera
fleiri en 2300—5000 í tonni af
rækju.
Rækjuvertíðin á helztu veiði-
svæðunum hefur venjulegast haf-
izt byrjun október og staðið fram í
apríl eða þar til hámarksafla er
náð. Auk fyrrnefndra aðalrækju-
svæða er rækja veidd í Tálkna-
firði, og Djúpavogsbátar veiða
rækju í Berufirði. Á djúpslóð fyrir
Norðurlandi og á hafinu milli
íslands og Grænlands, hefur
rækjutogarinn Dalborg verið við
veiðar, en í sumar og fram á haust
voru minni bátar einnig að veiðum
á þessum svæðum.
Hrafnkell sagði að í Djúpinu
væru rannsóknir t.d. komnar það
langt að búið væri að meta það
með nokkru öryggi hve rækjan
þyldi mikla veiði. Þar hefði ekki
verið um miklar breytingar á
aflahámarki að ræða á síðustu
árum, en t.d. í Húnaflóa hefði
verið leyfð nokkru meiri veiði í ár
en síðustu ár.
Baráttan er hörð og átök mikil.
Völd — peningar og ástir mynda
ramma um myndina.
Þótt allt virðist fremur stillt á
yfirborðinu, dylst ekki undiraldan,
ástríðurnar, tilfinningahitinn,
metnaðurinn og athafnaviljinn, sem
ekkert fær bugað.
Síldarævintýrið skiptir sköpum
eins og oft hefur gerzt á Islandi.
Síldarbraskarar, aflakóngar og
síldarstelpur leika sitt hlutverk og
ótal fleiri minnisstæðar persónur
koma við sögu ...“
5hverkaupandi
_ sem staðgreiðir
" fær tölvuúr
Tæknilegar upplýsingar
BUÐIN
Skipholti 19, sími 29800.
MAGNARI:
6—IC, 33, translstorar. 23 díóöur, 70 músikwött. {2x23 RMS)
ÚTVARP: FM. LW. MW. SW.
SEGULBAND:
Hraöi 4,75 cm/sek. Tíðnisvörun von)ul. kasettu er 40—8.000 Hz. Tíönisvörun Cr02 kasettu er
40—12.000 Hz. Tónflökt og blakt er betra en 0.3% RMS. Upptökukerfi AC bias 4 spora 2 rása
sterío. Afþurrkunarkerfi AC afþurrkun.
HÁTALARAR:
20 cm bassahátalari af kóniskri gerð. Mið og hátíönihátalari 7,7 cm af kónískri gerö.
Tíðnisvörun 40—20.000 Hz.
PLÖTUSP1LARI:
Full stœrð. allir hraðar, sjálfvirkur og handstýrður. Mótskautun og magnetiskur tónhaus.
AUKAHLUTIR:
Tveir hljóðnemar. FM-loftnet. SW-loftnet. Ein Cr02 kasetta.
Olíuleit und- #
anNorðurlandi
nýlega lokið
NÝLEGA hé!t af íslandsmiðum
rannsóknarskipið Karen
Bravu, sem undanfarnar þrjár
vikur hefir verið við setlaga-
rannsóknir útaf Norðurlandi
en tilgangurinn er m.a. sá að fá
úr því skorið hvort þarna
leynist olía neðansjávar eða
ekki.
Skipið kom hingað til lands á
vegum fyrirtækisins Western
Geophysical Company of Am-
erica, sem er eins og nafnið
bendir til amerískt en með
aðalstöðvar í London. Hafði
fyrirtækið fengið leyfi til rann-
sóknanna hjá íslenzkum yfir-
völdum en án allra skuldbind-
inga um vinnsluréttindi ef olía
fyndist.
Að sögn Gísla Einarssonar í
iðnaðarráðuneytinu munu líða
margir mánuðir þar til niður-
stöður rannsóknarinnar liggja
fyrir. Mun fulltrúi frá Orku-
stofnun fylgjast með úrvinnslu
fyrirtækisins á gögnum þeim,
sem aflað var í ferðinni hingað.
Klausturhólari
Uppboð í dag
KLAUSTURHÓLAR, listamanna
uppboð Guðmundar Axelssonar,
efna til málverkauppboðs í dag
klukkan 17 á Hótel Sögu, Súlna-
sal. Þar verða seld milli 60 og 70
verk cftir íslenzka myndlistar
mcnn.
Meðal þessara myndverka er
gömul stúlkumynd eftir Nínu
Tryggvadóttur, en auk þess eru
þarna verk eftir Kjarval, Þórarin
B. Þorláksson, Brynjólf Þórðarson,
Svein Þórarinsson, Ásgeir Bjarn-
þórsson, Eggert Guðmundsson,
Gunnlaug Blöndal og Snorra
Arinbjarnar, svo og verk eftir
Guðmund frá Miðdal, Emil Thor-
oddsen, Jón Jónsson og Eyjólf
Eyfells, en af yngri myndlistar-
mönnum myndir eftir Aldreð
Flóka, Jóhannes Geir, Erró, Valtý
Pétursson, Svein Björnsson og
Gunnar Örn svo að einhverjir séu
nefndir. Meðfylgjandi mynd er af
verki Nínu Tryggvadóttur.
,J röstiiini“
Ný skáldsaga eftir öskar Aðalstein
Morgunblaðinu hefur borizt ný
skáldsaga. eftir óskar Aðalstein,
sem ncfnist í röstinni. Það er
Ægisútgáfan. sem gefur bókina út.
ðskar Aðalsteinn er einn af
kunnari skáldsagnahöfundum
sinnar kynslóðar hérlendis og hefur
skrifað fjölda bóka, en þó einkum
skáldsögur. Um þessa nýju bók
hans segir svo á bókarkápui „Sagan
gerist í sjávarplássi. sem má muna
„fífil sinn fegri“. Ljóst er hvaða
stað höfundur gerir að sögusviði. en
þrátt fyrir undangengna erfiðleika
eru þar enn rismiklar persónur með
hiursiónaeld f aðum.