Morgunblaðið - 05.12.1978, Qupperneq 44
studio-line
Í.auáiNCiji <S 5
Ck)ð oj(")l cr oulls íglldi
Verzlið
sérverzlun með
iitasjónvörp og hijómtæki.
Skipholti 19,
BUDIN sími
— y 29800
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1978
Eftirvæntinjr þessarar litlu stúlku leynir sér ekki, enda styttist
nú óðum til jóla or það er margt sem jfleður barnsaugað í
undirhúningi hátíðar ljóssins og fæðingar frelsarans.
Ljósmynd Mbl. RAX.
Atvinnuástand í Rangárvallasýslu:
Um 200 atvinnu-
lausir í héraðinu
„Fólk hefur orðið að flykkjast á atvinnuleysisskrá“.
„Atvinnuástand hefur verið mjög slæmt í Rangárvalla-
sýslu allt frá því að megin framkvæmdum við Sigöldu
lauk,“ sagði Sigurður Óskarsson á Hellu í samtali við
Mbl. í gær, „og þótt nokkrir tugir verkafólks hafi unnið
við Hrauneyjafossvirkjun s.l. sumar, þá munu um 130
félagar í Verkalýðsfélaginu Rangæinga hafa orðið að
vinna utan héraðs meginhluta ársins, og nú eru tugir
manna komnir á atvinnuleysisskrá.“
„Flest af því fólki sem hefur
orðið að vinna utan héraðs," sagði
Sigurður, „er í eins konar biðstöðu
þar til framkvæmdir hefjast aftur
á hálendinu í sambandi við
Hrauneyjafoss, næsta vor skyldi
maður ætla, en það má geta þess
Atvinnumálin á Suðurnesjum*
Verða200 atviimulaus
ir um næstu helgi?
ATVINNULAUSIR á Suðurnesj-
um um næstu helgi munu verða
um 200 talsins — að því er Emil
Páll Jónsson. hjá Verkalýðs- og
sjómannafélagi Keflavíkur tjáði
Morgunblaðinu í gær. A morgun
lokar Hraðfrystihús Keflavíkur
og um helgina loka Heimir h.f. í
Keflavík og tvö hús í Garðinum,
ísstöðin og Ásgeir h.f. Samtals
vinna við þessi hús nálega 180
manns. Síðan hefur skuttogaran-
um Aðalvík frá Keflavík verið
lagt og hefur þar 15 manns verið
sagt upp. Samtals munu því um
200 manns verða orðnir atvinnu-
lausir um næstu helgi.
Emil Páll Jónsson kvað þessa tölu
ekki segia alla söguna, þar sem
menn létu ekki skrá sig á atvinnu-
leysisskrá, nema þeir ættu rétt á
bótum. Þurfa menn t.d. að hafa
unnið á síðasta 12 mánaða tímabili
Brennuvargar
lausir í borginni
Kveikt í á sjö stöðum á s.l. vikum
BRENNUVARGAR ganga
lausir í borginni og leggur
Rannsóknarlögregla ríkis-
ins allt kapp á að hafa
hendur í hári þeirra, að
sögn Arnars Guðmunds-
sonar deildarstjóra hjá
stofnuninni.
Á síðustu vikum hefur verið
kveikt í sjö húsum í borginni og
nágrenni, síðast um helgina, þegar
kveikt var í vinnustofu sjúklinga
Kleppsspítalans, en þar urðu
miklar skemmdir, eins og fram
hefur komið í Mbl.
Aðrir staðir, sem kveikt hefur
verið í, að því er talið er, eru
fæðingadeild Landspítalans,
vinnustofa við Miklatorg, skúr við
Skólavörðustíg, geymsla fjölbýlis-
húss í Breiðholti, sumarhús við
Rauðavatn og loks var gerð
íkveikjutilraun í húsi við Njáls-
götu í Reykjavík en sá sem þar var
að verki náðist, áður en tjón hlauzt
af.
Sem fyrr segir leggja lögreglu-
yfirvöld allt kapp á það að upplýsa
þessi mál en þau þykja sérstaklega
alvarleg fyrir þá sök, að i tveimur
tilfellum hefur verið kveikt í
heilbrigðisstofnunum, þar sem
fjöldi sjúklinga liggur.
1144 dagvinnustundir til þess að
öðlast rétt til bóta vegna atvinnu-
leysis. Síðastliðinn föstudag voru 50
manns á atvinnuleysisskrá á Suður-
nesjum, í Keflavík, Njarðvíkum,
Höfnum og Vogum. Aðeins einn var
þá á skrá í Höfnum, þótt væru um 10
manns án atvinnu, að því er Emil
Páll sagði.
Emil Pál) Jónsson kvað greinilegt,
að nú væri að skella yfir samdráttar-
kippur í atvinnumálum á Suðurnesj-
um.
Rekstrarerfiðleikar væru hjá
frystihúsunum, en samdrátturinn
væri þó víðtækari, því að nýlega var
28 mánaðarkaupsmönnum sagt upp
hjá Islenzkum aðalverktökum, sem
verða atvinnulausir frá og með
áramótunum. „Það er því ljóst,“
sagði Emil Páll, „að það er ekki
aðeins í frystiiðnaði, sem samdrátt-
ur á sér stað í, heldur er þetta mjög
almennt, m.a. í verzlun. Það, er því
ljóst að koma þarf til almenn
atvinnuuppbygging hér á Suðurnesj-
að 286 Rangæingar unnu við
Sigöldu árið 1976. Eftir að slátur-
tíð lauk, en þá skapast vinna fyrir
um 200 manns í 5 vikur, hefur fólk
flykkst á atvinnuleysisskrá tugum
saman þótt verkafólk hér sé mjög
tregt til að fara á atvinnuleysis-
skrá og þó er fólk héðan við alls
konar vinnu í nánast hverri
verstöð frá Fáskrúðsfirði suður
um allt til Bolungarvíkur og sums
staðar er það í hópum. Við hjá
Verkalýðsfélaginu teljum að það
séu yfir 200 félagsmenn ýmist
atvinnulausir eða í vinnu utan
héraðs og ástandið í atvinnumál-
um hjá okkur er því algjörlega
óviðunandi. Fyrrverandi félags-
málaráðherra, Gunnar
Thoroddsen, skipaði sérstaka at-
vinnumálanefnd Rangárvallasýslu
Fjármálaráðherra:
og hefur hún nýlega skilað tillög-
um að iðnþróunaráætlun fyrir
sýsluna, sem hefur verið samþykkt
og gefin út. Staðfestir skýrslan
ástandið hér og miklar vonir eru
bundnar við það hjá okkur að áður
en Hrauneyjafossvirkjun lýkur
verði hrundið af stað aðgerðum til
lausnar þessum vanda. En víða
þarf að taka á og á meðan við
kaupum raforku, sem framleidd er
við bæjardyrnar hjá okkur, allt að
175% dýrari en aðrir landsmenn,
þá er ekki stórra hluta að vænta í
uppbyggingu atvinnutækifæra.“
Tekjuöfhmar-
frumvarplagt
fram fyrir jól
„Ég vona að fjárlögin verði
afgreidd á Alþingi fyrir jól,“
sagði Tómas Árnason fjármála-
ráðherra í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi, „það var um
það talað og fullur vilji hjá
ríkisstjórninni til þess.
Fyrir jól verður einnig lagt fram
tekjuöflunarfrumvarp, en ekki er
víst að það verði afgreitt fyrir jól.
Það er reyndar í tvennu lagi,
annars vegar varðandi innlendar
og erlendar lántökur og hins vegar
tekjuöflunarfrumvarp sem er ver-
ið að ljúka vinnu við.“
19 milljarðar króna í niðurgreiðslur næsta árt
Kóka kóla og sukku-
laði greitt niður næst?
Fjárlagafrumvarpið sem nú
liggur fyrir til afgreiðslu á
Alþingi gerir ráð fyrir 19
milljörðum króna í niður-
greiðslur á landbúnaðar-
afurðum miðað við eitt ár og er
það um 11 milljarða hækkun
frá þcssu ári. Svo er nú kornið
samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. hefur aflað sér að ef
áfram á að greiða niður vörur
til þess að ná niður visitölunni,
þá er komið að ýmsum vörum
utan landbúnaðarafurða, sem
skynsamlegt kann að vera að
greiða niður og má þar nefna
kóka kóla, suðusúkkulaði. kaffi
og smjörlíki.
Viðskiptaráðuneytið hefur nú
tilkynnt Kauplagsnefnd að
ríkisstjórnin hafi ákveðið að
auka niðurgreiðslu vöruverðs
með gildistöku frá þeim tíma er
ný verðskráning búvöru kemur
til framkvæmda, væntanlega nú
í vikunni, en niðurgreiðslurnar
eru samkvæmt lögum frá nóv.
s.l. um tímabundnar ráðstafanir
til viðnáms gegn verðbólgu.
Samkvæmt þessu hækkar niður-
greiðsla á hverju kg af dilka-
kjöti úr 581 kr. í 774, nauta-
gripakjöt úr 400 kr. á hvert kg í
518 kr. Niðurgreiðsla á lítra af
nýmjólk hækkar úr 86 kr. í 111
kr., undanrennu úr 20 kr. í 43 kr.
og rjóma úr 300 kr. í 400 kr.
Niðurgreiðsla á smjöri hækkar
ú 1550 kr. á hvert kg í 1887 kr,
skyri úr 173 kr. í 208 kr., 45%
osti úr 110 kr í 272 kr. og hverju
kg af kartöflum úr 100 kr. í 135
kr.