Morgunblaðið - 22.12.1978, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1978
47
Sænski skíðagarpurinn Ingemar Stenmark i miðjunni. ásamt Neureuther Vestur-Þýskalandi og Fromellt
frá Liechtenstein til hægri.
Enn sigrar
Stenmark
SÆNSKA skíðastórstirnið Inge-
mar Steinmark vann enn einn
sijíur er hann sigraði í svig-
keppni i' heimsbikarnum sem
fram fór í Júgóslavíu í gær.
Stenmark var einum tíunda úr
sekúdu á undan Paul Frommeit
frá Lichtenstein. Brautin var 480
metra löng með 66 hliðum.
Samanlagður tími Stenmarks í
báður ferðum var 1,46,57 min,
Frommelt sem náði bestum tíma í
síðari umferð fékk samanlagðan
tíma 1,46,77 mín. Þriðji varð svo
ný ítölsk stjarna Leonardo David á
1.48,00 mín. Skíðamaður frá
Júgóslavíu Bojan Krizaj varð svo
fjórði., hlaut tímann 1.48.00 mín.
Ingemar Steinmark er nú annar
í samanlagðri stigakeppni um
heimsbikarinn hefur hlotið 50 stig.
Peter Luescher frá Sviss er í
fyrsta sæti með 65 stig. Luescher
féll í fyrri umferð í svigkeppninni í
Júgóslavíu og hætti keppni.
3 íslendingar leika
í 1. deild í Noregi
TVEIR íslenskir piltar hafa æft
með og annar leikið með norska
1. deildar liðinu Grorud í vctur.
Það eru þeir Baldur Svavarsson
úr Stjörnunni og Óskar Gíslason
úr Víkingi.
Félagaskiptum þeirra félaga
lauk síðla í nóvember, en þá var
Oskar að byrja í prófum, en báðir
eru Islendingarnir námsmenn.
Baldur lék hins vegar með liðinu
þá þegar og hafði fyrir skömmu
leikið 2 leiki í 1. deild og einn
bikarleik. Grorud mun ekki vera
meðal sterkustu félaga Noregs og
er í fallbaráttu ásamt Stabæk og
Bækkelaget. Baldri hefur gengið
bærilega með liðinu, skoraði meðal
annars jöfnunarmark liðsins gegn
Stabæk úr aukakasti eftir að
Haukur Þjálf-
ar Stjörnuna
MEISTARAFLOKKUR
Stjörnunnar í Garðabæ, sem
leikur í 3. deild, hefur ráðið sér
þjálfara fyrir komandi keppnis-
tímahil. Það er Haukur Haf-
stcinsson sem sjá mun um
þjálfunina og vænta Stjörnumenn
góðs af honum.
leiktíma lauk. Magnús Guðmunds- leikur í norsku 1. deildinni, en
son, landsliðsmaður úr Víkingi, er hann leikur með Bækkelaget.
því ekki eini íslendingurinn sem — gg
Óli Dan í Val!
KNATTSPYRNUKAPPINN
snjalli úr FH ólafur Danivals-
son hefur nú endanlega tekið
ákvörðun um félagaskipti, og
mun hann ganga í Val. ólafur
hefur sést á æfingum hjá
hinum og þessum félögum að
undanförnu og voru ýmsar
getgátur á lofti um hvaða félag
yrði fyrir valinu. Lið FH sem
féll niður í 2. deild á síðastliðnu
sumri verður fyrir miklum
missi því að Ólafur var þeirra
beittasti sóknarmaður. Enn
mun vera óvíst hvort Janus
hefur fullan hug á að komast í
atvinnumennsku f knattspyrnu
og hefur vérið að leita íyrir sér
í þeim efnum. dvaldi meðal
annars í tvær vikur hjá Stand-
ard í Belgíu eins og kunnugt
er.
Ekki tókust samt samningar
með honum og félaginu og því
óljóst hvað hann mun gera.
- ÞR
• Ólafur Danivalsson hinn leikni
framlinuleikmaður FH, hann
mun leika í Valstreyju næsta
kcppnistíma bil.
ALLTAF eru allir að velta því
fyrir sér, hverjir af „útlendingun-
um“ verði notaðir í landsleiki
vetrarins í handbolta og hverjir
ekki.
Svar við þessu fékkst á blaða-
mannafundi HSI fyrir skömmu, en
þá lýsti Jóhann Ingi Gunnarsson
landsliðsþjálfari því yfir, að nema
eitthvað óvænt gerðist, myndi
hann aðeins nota þá þrjá „útlend-
inga“ sem leika gagn Dönum um
helgina í undirbúningnum fyrir
B-keppnina á Spáni. Jóhann sagði,
að það væri sín skoðun, að aðrir
leikmenn erlendis en Axel, Ólafur
og Gunnar markvörður Einarsson,
væru jafngóðir og leikmenn í sömu
stöðum hérlendis. En hann efaðist
mjög um að þeir væru nokkuð
betri. Það er því næstum víst, að
leikmenn eins og Björgvin Björg-
vinsson, Þorbergur Aðalsteinsson
og Gunnar Göppingen Einarsson
eru úr leik með landsliðinu. í bili
a.m.k. — gg-
MaraÞonknattspyrna
hjá USVS
UNGMENNASAMBAND Vest-
ur-SkaftafelIssýslu gengst fyrir
maraþonknattspyrnukeppni með
nýju sniði dagana 27. og 28. des.
Leikið verður á tveimur stöðum
samtímis, í félagsheimilinu Leik-
skálum í Vík og í samkomuhúsinu
á Kirkjubæjarklaustri og hefst
keppnin kl. 22.00 þann 27. des.
Fyrirkomulag keppninnar er
þannig, í Leikskálum keppa félag-
ar úr umf. Drangi og umf.
Dyrhólaey en á Kirkjubæjar-
klaustri keppa félagar úr umf.
Skafta og umf. Ármanni. Hvert lið
verður skipað 3 mönnum og verður
keppni haldið áfram þar til fyrsti
maður gefst upp á hvorum stað, en
eina hvíldin sem menn fá er 5
mínútur á hverjum klukkutíma og
engar skiptingar verða leyfðar.
Tilgangur keppni þessarar er í
fyrsta lagi fjáröflun fyrir USVS,
safnað verður áheitum á liðin,
þannig að fyrir hverja klukku-
stund sem leikin er safnast 100
krónur.
Annar tilgangur keppni þessar-
ar er keppni milli ungmennafélag-
anna og einnig er íslandsmetið
alltaf í hættu.
(Fréttatilkynning frá USVS)
Pasarella og Fillol
ekki til United
3nútlendingar<|
með í vetur I
!
!
!
AÐ undanförnu hafa verið nokkr-
ar umræður um Manchester Utd.
hafi mikinn hug á að kaupa
argentínsku félagana Ubaldo
Fillol og Daniel Passarella.
Var áætlað, að MU ætlaði að
snara út einni milljón sterlings-
punda fyrir þá félaga, sem báðir
leika með River Plate. Samkvæmt
fréttaskeyti frá AP á sunnu-
daginn, er hins vegar frá því
greint að áform félagsins væru
komin undir stól. Þar var haft
eftir Dave Sexton, framkvæmda-
stjóra United, að viðræður við
heimsmeistarana væru komnar í
strand og líklega yrði ekkert úr
kaupunum.
Sims fór til
Watford
Watford félagið hans Elton
John, sem trónir á toppi 3.
deildar í Englandi. keypti fyrir
skömmu hinn 21 árs gamla
miðvörð Leicester Steve Sims.
Kaupverðið var um 200.000
sterlingspund og er það jafnframt
hæsta upphæð sem lið í 3. deild
hefur nokkru sinni greitt fyrir
leikmann.
Sims, sem leikið hefur með
enska landsliðinu skipuðu leik-
mönnum 21 árs og yngri, var
kominn á fremsta hlunn að fara til
Derby Count sem leikur í fyrstu
deild eins og kunnugt er. Sims
hefur hins vegar átt við meiðsl að
stríða að undanförnu og hann féll
á læknisskoðun hjá Derby. Fram-
kvæmflastjóri Watford, Graham
Taylor hefur hins vegar lýst því
yfir að hann sé sannfærður um að
Sims hafi náð sér að fullu.
Knattspyrnumenn
Ert þú duglegur knattspyrnumaöur, þá ertu velkomin í
toppliö í 4. deild í Svíþjóö. Góður félagsandi. Getum
útvegaö vinnu í timburverksmiðju. Skrifiö til okkar:
Hvetlanda GIF:s, kansli, Box 32, 57401 Vetlanda
Sverige.
Þjálfari
UMF Súlan óskar eftir þjálfara næsta sumar.
Upplýsingar í síma 97-5823, Óttar Ármannsson.