Morgunblaðið - 18.04.1979, Side 48

Morgunblaðið - 18.04.1979, Side 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979 V{ , mirnii A 11 pj | « v g: I' h. i. Sigurður Gunnarsson hefur verið meiddur seinni part vetrarins. Þetta atriði vegur ekki svo lítið þegar árangur Valsliðsins er met- inn, það að geta teflt fram góðu og samæfðu liði þar sem litlar sem engar breytingar verða ár eftir ár. Vegna þess hve Morgunblaðið fór snemma í prentun miðvikudag fyrir páska var eigi hægt að koma úrlistum leiksins í blaðið fyrir páska. Leiknum hafa verið gerð rækileg skil í fjölmiðlum og er því ekki ástæða til þess að rekja gang hans í smáatriðum. Valsmenn tóku strax forystuna og héldu henni til loka. Munurinn var 1—3 mörk venjulega og tveggja marka sigur Vals hefði verið sanngjörn- ust úrslit í þessum skemmtilega leik, sem Gunnlaugur Hjálmars- son og Karl Jóhannsson dæmdu mjög vel. Ahorfendur voru um 3000 og mikil stemmning í Laugar- dalshöll. - SS. í STUTTU MÁLI: íslandsmótið, 1. deild, Valur — Víkingur 21:17 (11:9). Laugardalshöll 11. apríl. Mörk Vals: Þorbjörn Guð- mundsson 5 (2v), Jón Pétur Jóns- son 5, Þorbjörn Jensson 4, Jón Karlsson, 2 (1 v), Bjarni Guð- mundsson 2, Stefán Gunnarsson 2 mörk. Mörk Víkings: Viggó Sigurðsson 9 (2 v), Steinar Birgisson 3, Páll Björgvinsson 3 (1 v), Ólafur Jóns- son 2 mörk. Varin vítaköst: Ólafur Bene- diktsson varði víti Páls Björgvins- sonar í s.h. og Brynjar Kvaran varði víti Viggós Sigurðssonar í s.h. Brottvísanir af leikvelli: Þor- björn Guðmundsson rekinn af velli í 2x2 mínútur og Stefán Gunnars- son rekinn af velli í 2 mínútur. • Stefán Gunnarsson sækir að marki Víkings. Eins og sjá má var Laugardalshöllin troðfull. Sigurður Gunnarsson og Einar Magnússon voru meiddir og því lítið notaðir. Má í því sambandi benda á að Valsmenn hafa verið svo heppnir að hafa getað teflt fram nær óbreyttu liði ár eftir ár og er styrkur liðsins ekki því síst að þakka. Á sama tíma hafa Víkingar orðið fyrir mikilli blóð- töku t.d. hafa horfið frá liðinu á einu ári 5 af fastamönnum þess í fyrra þar af þrír lykilmenn, Ólafur Einarsson, Björgvin Björgvinsson og Þorbergur Aðalsteinsson, og • Islandsmeistarar Vals. Fremri röö frá vinstri: Gísli Arnar Gunnarsson, Bjarni GuAmundsson, Ólafur Bene- diktsson, Stafán Gunnarsson, Brynjar Kvaran, Steindór Gunnars- son og Pétur liðsstjóri. Aftari röð: Þóröur Sigurðsson, formaður handknattleiksdeildar, Björn Björnsson, Jón H. Karlsson, Jón Pétur Jónsson, Þorbjörn Jens- son, Þorbjörn Guðmundsson, Karl Jónsson og loks Þjálfararnir Gunn- steinn Skúlason og Hilmar Björns- son. Lokastaðan LOKASTAÐAN í 1. deild karla varð þessi: Valur 14 12 1 1 268:223 25 Víkinxur 14 11 1 2 334:272 23 FH 14 6 1 7 285:288 13 Haukar 14 5 3 6 298:307 13 Fram 14 5 1 8 275:313 11 ÍR 14 4 2 8 264:281 10 HK 14 3 3 8 250:269 9 Fylkir 14 2 4 8 250:271 8 Markhæstu menn: Geir Hallsteinaaon FH 95 Stefán Halldðrsaon HK 79 Hörður Harðarson Haukum 79 Atli Hilmaraaon Fram 72 Gústaf Björnsson Fram 71 Viggú Sigurðsson Víking 71 Jón Pétur Jónsson Val 67 VALSMENN sigruðu Vfkinga verðskuldað 21:17 í bezta handboltaleik vetrarins og tryggðu sér þar með íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð. Það var sorglegt að annað hvort liðið varð að tapa leiknum því enginn mótmælir því að þarna mættust tvö langbeztu lið landsins. Það féll í hlut Víkinganna þriðja árið í röð að taka við silfurverðlaununum og vonbrigðin leyndu sér ekki hjá þeim í leikslok. Þessi tvö lið mætast að nýju í bikarkeppni HSÍ innan skamms og þá munu Víkingarnir væntanlega reyna að koma fram hefndum. Fyrir leikinn var um það rætt hvort reyndist vega meira þegar á hólminn væri komið sterkur sókn- arleikur Víkinganna eða sterkur varnarleikur og góð markvarzla Valsmanna. Það síðarnefnda vó þyngra þegar á reyndi og þar munaði mestu um markvörnina hjá Ólafi Benediktssyni. Mark- verðir Vals vörðu í leiknum 15 skot, þar af tvö vítaköst, Ólafur varði 14 skot og Brynjar eitt en markverðir Víkings vörðu til sam- ans 9 skot, þar af Eggert 5 skot en Kristján 4 skot. Þegar haft er í huga að mörgum skotanna sem Ólafur varði voru í mjög opnum færum er óhætt að fullyrða að markvarzla Ólafs Benediktssonar hafi vegið hér þyngst þótt Valslið- ið í heild hafi átt afbragðs leik. Víkingsliðið lék einnig mjög vel lengst af en leikmenn misnotuðu nokkur opin færi og gerðu fleiri mistök en andstæðingarnir. Fyrr er getið frammistöðu Ólafs Benediktssonar en ásamt honum var Þorbjörn Jensson bezti maður liðsins, gífurlega sterkur í vörn- inni og mikilvægur í sókninni líka. Þorbjörn hefur átt misjafna leiki í vetur en nú þegar mest á reynir á hann algjöran stjörnuleik. Það hefur gerzt áður að Þorbjörn hafi slegið í gegn í mikilvægum leikjum og er þess skemmst að minnast, að í fyrra skoraði hann sigurmark Vals gegn Víkingi í úrslitaleik íslandsmótsins en það mark færði Val íslandsmeistaratitilinn. Auk þeirra tveggja er ástæða til að geta frammistöðu Jóns Péturs, Þorbjarnar Guðmundssonar, Stef- áns og Bjarna en þessir fjórir leikmenn léku stór hlutverk í Valsliðinu bæði í vörn og sókn og stóðu sig mjög vel. Þorbjörn Guð- mundsson hefur eins og nafni hans Jensson átt misjafna leiki í vetur en þarna átti hann toppleik eins og aðrir félagar hans. Víkingsliðið lék eins og áður hraðan og lipran sóknarleik en varnarleikur liðsins var ekki eins góður og hjá Valsmönnum og sömuleiðis stóðu markverðirnir báðir langt að baki Ólafi í Vals- markinu. Að þessu sinni var Viggó Sigurðsson langbeztur í Víkings- liðinu og sá eini, sem virkilega fann leiðina framhjá Ólafi mark- verði. Var Viggó í sérstakri gæzlu í seinni hálfleiknum en skoraði samt 4 mörk í þeim hálfleik. Mikið mæddi á Páli Björgvinssyni í þessum leik en honum brást boga- listin æði oft og það í dauðafærum. Valur meistari ______t_________ Elnkunnagjölin Valur: Ólafur Banadiktaaon 4, Bjarni Guðmundaaon 3, Glali Arnar Gunnaraaon 2, Steindór Gunnaraaon 2, Stetén Gunnaraaon 3, Þorbjðrn Guðmundaaon 3, Jón H. Karlaaon 2, Jón Pétur Jónaaon 3, Þorbjðrn Jenaaon 4, Brynjar Kvaran 2. Vfkingur: Eggert Guðmundaaon 2, Steinar Birglaaon 3, Ólalur Jónaaon 3, Skarphéðinn Óakaraaon 1, Péll Bjðrgvinaaon 2, Ertendur Hermannaaon 3, Árni Indriðaaon 3, Sigurður Gunnaraaon 1, Viggó Sigurðaaon 4, Kriatjén Sigmundeaon 2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.