Morgunblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1979
V{ , mirnii A 11 pj | « v g:
I' h. i.
Sigurður Gunnarsson hefur verið
meiddur seinni part vetrarins.
Þetta atriði vegur ekki svo lítið
þegar árangur Valsliðsins er met-
inn, það að geta teflt fram góðu og
samæfðu liði þar sem litlar sem
engar breytingar verða ár eftir ár.
Vegna þess hve Morgunblaðið
fór snemma í prentun miðvikudag
fyrir páska var eigi hægt að koma
úrlistum leiksins í blaðið fyrir
páska. Leiknum hafa verið gerð
rækileg skil í fjölmiðlum og er því
ekki ástæða til þess að rekja gang
hans í smáatriðum. Valsmenn
tóku strax forystuna og héldu
henni til loka. Munurinn var 1—3
mörk venjulega og tveggja marka
sigur Vals hefði verið sanngjörn-
ust úrslit í þessum skemmtilega
leik, sem Gunnlaugur Hjálmars-
son og Karl Jóhannsson dæmdu
mjög vel. Ahorfendur voru um
3000 og mikil stemmning í Laugar-
dalshöll.
- SS.
í STUTTU MÁLI:
íslandsmótið, 1. deild, Valur —
Víkingur 21:17 (11:9).
Laugardalshöll 11. apríl.
Mörk Vals: Þorbjörn Guð-
mundsson 5 (2v), Jón Pétur Jóns-
son 5, Þorbjörn Jensson 4, Jón
Karlsson, 2 (1 v), Bjarni Guð-
mundsson 2, Stefán Gunnarsson 2
mörk.
Mörk Víkings: Viggó Sigurðsson
9 (2 v), Steinar Birgisson 3, Páll
Björgvinsson 3 (1 v), Ólafur Jóns-
son 2 mörk.
Varin vítaköst: Ólafur Bene-
diktsson varði víti Páls Björgvins-
sonar í s.h. og Brynjar Kvaran
varði víti Viggós Sigurðssonar í
s.h.
Brottvísanir af leikvelli: Þor-
björn Guðmundsson rekinn af velli
í 2x2 mínútur og Stefán Gunnars-
son rekinn af velli í 2 mínútur.
• Stefán Gunnarsson sækir að marki Víkings. Eins og sjá má var Laugardalshöllin troðfull.
Sigurður Gunnarsson og Einar
Magnússon voru meiddir og því
lítið notaðir. Má í því sambandi
benda á að Valsmenn hafa verið
svo heppnir að hafa getað teflt
fram nær óbreyttu liði ár eftir ár
og er styrkur liðsins ekki því síst
að þakka. Á sama tíma hafa
Víkingar orðið fyrir mikilli blóð-
töku t.d. hafa horfið frá liðinu á
einu ári 5 af fastamönnum þess í
fyrra þar af þrír lykilmenn, Ólafur
Einarsson, Björgvin Björgvinsson
og Þorbergur Aðalsteinsson, og
• Islandsmeistarar Vals. Fremri röö
frá vinstri: Gísli Arnar Gunnarsson,
Bjarni GuAmundsson, Ólafur Bene-
diktsson, Stafán Gunnarsson,
Brynjar Kvaran, Steindór Gunnars-
son og Pétur liðsstjóri.
Aftari röð: Þóröur Sigurðsson,
formaður handknattleiksdeildar,
Björn Björnsson, Jón H. Karlsson,
Jón Pétur Jónsson, Þorbjörn Jens-
son, Þorbjörn Guðmundsson, Karl
Jónsson og loks Þjálfararnir Gunn-
steinn Skúlason og Hilmar Björns-
son.
Lokastaðan
LOKASTAÐAN í 1. deild karla varð þessi:
Valur 14 12 1 1 268:223 25
Víkinxur 14 11 1 2 334:272 23
FH 14 6 1 7 285:288 13
Haukar 14 5 3 6 298:307 13
Fram 14 5 1 8 275:313 11
ÍR 14 4 2 8 264:281 10
HK 14 3 3 8 250:269 9
Fylkir 14 2 4 8 250:271 8
Markhæstu menn:
Geir Hallsteinaaon FH 95
Stefán Halldðrsaon HK 79
Hörður Harðarson Haukum 79
Atli Hilmaraaon Fram 72
Gústaf Björnsson Fram 71
Viggú Sigurðsson Víking 71
Jón Pétur Jónsson Val 67
VALSMENN sigruðu Vfkinga verðskuldað 21:17 í bezta handboltaleik vetrarins og tryggðu sér þar með
íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð. Það var sorglegt að annað hvort liðið varð að tapa leiknum því
enginn mótmælir því að þarna mættust tvö langbeztu lið landsins. Það féll í hlut Víkinganna þriðja árið í
röð að taka við silfurverðlaununum og vonbrigðin leyndu sér ekki hjá þeim í leikslok. Þessi tvö lið mætast
að nýju í bikarkeppni HSÍ innan skamms og þá munu Víkingarnir væntanlega reyna að koma fram
hefndum.
Fyrir leikinn var um það rætt
hvort reyndist vega meira þegar á
hólminn væri komið sterkur sókn-
arleikur Víkinganna eða sterkur
varnarleikur og góð markvarzla
Valsmanna. Það síðarnefnda vó
þyngra þegar á reyndi og þar
munaði mestu um markvörnina
hjá Ólafi Benediktssyni. Mark-
verðir Vals vörðu í leiknum 15
skot, þar af tvö vítaköst, Ólafur
varði 14 skot og Brynjar eitt en
markverðir Víkings vörðu til sam-
ans 9 skot, þar af Eggert 5 skot en
Kristján 4 skot. Þegar haft er í
huga að mörgum skotanna sem
Ólafur varði voru í mjög opnum
færum er óhætt að fullyrða að
markvarzla Ólafs Benediktssonar
hafi vegið hér þyngst þótt Valslið-
ið í heild hafi átt afbragðs leik.
Víkingsliðið lék einnig mjög vel
lengst af en leikmenn misnotuðu
nokkur opin færi og gerðu fleiri
mistök en andstæðingarnir.
Fyrr er getið frammistöðu Ólafs
Benediktssonar en ásamt honum
var Þorbjörn Jensson bezti maður
liðsins, gífurlega sterkur í vörn-
inni og mikilvægur í sókninni líka.
Þorbjörn hefur átt misjafna leiki í
vetur en nú þegar mest á reynir á
hann algjöran stjörnuleik. Það
hefur gerzt áður að Þorbjörn hafi
slegið í gegn í mikilvægum leikjum
og er þess skemmst að minnast, að
í fyrra skoraði hann sigurmark
Vals gegn Víkingi í úrslitaleik
íslandsmótsins en það mark færði
Val íslandsmeistaratitilinn. Auk
þeirra tveggja er ástæða til að
geta frammistöðu Jóns Péturs,
Þorbjarnar Guðmundssonar, Stef-
áns og Bjarna en þessir fjórir
leikmenn léku stór hlutverk í
Valsliðinu bæði í vörn og sókn og
stóðu sig mjög vel. Þorbjörn Guð-
mundsson hefur eins og nafni hans
Jensson átt misjafna leiki í vetur
en þarna átti hann toppleik eins og
aðrir félagar hans.
Víkingsliðið lék eins og áður
hraðan og lipran sóknarleik en
varnarleikur liðsins var ekki eins
góður og hjá Valsmönnum og
sömuleiðis stóðu markverðirnir
báðir langt að baki Ólafi í Vals-
markinu. Að þessu sinni var Viggó
Sigurðsson langbeztur í Víkings-
liðinu og sá eini, sem virkilega
fann leiðina framhjá Ólafi mark-
verði. Var Viggó í sérstakri gæzlu í
seinni hálfleiknum en skoraði
samt 4 mörk í þeim hálfleik. Mikið
mæddi á Páli Björgvinssyni í
þessum leik en honum brást boga-
listin æði oft og það í dauðafærum.
Valur meistari
______t_________
Elnkunnagjölin
Valur: Ólafur Banadiktaaon 4, Bjarni Guðmundaaon 3, Glali Arnar
Gunnaraaon 2, Steindór Gunnaraaon 2, Stetén Gunnaraaon 3, Þorbjðrn
Guðmundaaon 3, Jón H. Karlaaon 2, Jón Pétur Jónaaon 3, Þorbjðrn
Jenaaon 4, Brynjar Kvaran 2.
Vfkingur: Eggert Guðmundaaon 2, Steinar Birglaaon 3, Ólalur
Jónaaon 3, Skarphéðinn Óakaraaon 1, Péll Bjðrgvinaaon 2, Ertendur
Hermannaaon 3, Árni Indriðaaon 3, Sigurður Gunnaraaon 1, Viggó
Sigurðaaon 4, Kriatjén Sigmundeaon 2.