Morgunblaðið - 15.05.1979, Page 45

Morgunblaðið - 15.05.1979, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1979 23 Bandaríska háskólamótið í frjálsíþróttum: Sérfræðingar spá Óskari þriðja sæti • Pat Rice fyrirliði Arsenal fagnar bikarsigri Arsenal á laugardag. Til vinstri á myndinni sést Karl Bretaprins sem afhenti verðlaunin. Á neðri myndinni sést aðdragandinn að sigur- marki Arsenal 40 sekúndum fyrir leikslok. Sunderland lengst til vinstri kemur á fullri ferð og nær að senda boltann í markið framhjá Albiston á miðri mynd. Markvörður Man. Utd Gary Bailey til hægri ætlaði sér að ná fyrirgjöf- inni og er hlaupinn út. Sjá bls. 26. Sunderland skorar sigurmarkið Pétur kominn með 10 mörk Bandaríska frjálsiþrótta- tímaritið Track and Field News. sem er eitt af virtustu frjálsiþróttatímaritum heims- ins. fjallar í nýjasta hefti um meistaramót bandarískra há- skóla. Þar spáir ritið að íslenzki frjálsíþróttamaðurinn Óskar Jakobsson. sem stundar nám við háskóla í Austin í Texas. verði í þriðja sæti í kringlukastinu. Ef sér- fræðingar blaðsins reynast sannspáir geta íslendingar orðið stoltir af, því mótið er afar sterkt og svo til eingöngu íþróttamenn á heimsmæli- kvarða sem þar vinna til verðlauna. „Það er öruggt mál að það verður ofboðsleg keppni um hvert sæti á mótinu," sagði Óskar Jakobsson í spjalli við Mbl. í gær. „Norski kringlukast- arinn Knut Walvik erm með bezta árangurinn, hefur kastað rúma 63 metra, en svo koma margir menn með um 60 metra. Úrslitin á mótinu, sem verður háð í bænum Champaign í Illinois-fylki, fara eftir því hver verður beztur þann eina dag. Mér finnst ég eiga mikið inni í kringlukastinu og nú er bara að RÚMENSKA stúlkan Nadia Comaneci varð Evrópumeistari í fimleikum kvcnna í Bröndby- hallen í Danmörku um helgina. fékk samtals 19,77 stig, þ. á m. 9.95 fyrir stökk á hesti. Comaneci hlaut gullið í tveimur greinum, gólfæfingum og stökki, brons á jafnvægisslánni. Keppnin var henni þó ekki átakalaus, því að á tvfslánni, missti hún takið og féll á gólfið. Ilrapaði hún við það niður í fjórða sætið í þeirri grein, en • Nadía Comaneci er aftur komin á toppinn í fimleikunum. vona að maður hitti á gott form á mótinu," bætti Óskar við. Óskar stóð sig með miklum ágætum á keppni nokkurra háskóla, er fram fór í Austin um helgina. Sigraði Óskar í kúlu- varpi og kringlukasti, en í fyrrnefndu greininni náði hann sínum bezta árangri, kastaði 19,16 metra. „Skólafélagi minn, Robbie Robinson, varð annar með 18,90 í kúluvarpinu og sjötti maður kastaði 18,60 og gefa þessar tölur til kynna hversu hörð keppnin var. Það sama var upp á teningnum í kringlukast- inu, næstu tveir menn voru rétt við 60 metrana. Ég kastaði 60,18 en er óánægður. Leiðinlegur vindur, hálfgerður bakvindur skellti kringlunni alltof fljótt niður. Við unnum hinsvegar skólakeppnina og var það ákaf- lega ánægjulegt," sagði Óskar. Sem sigurvegari í tveimur grein- um átti Óskar drjúgan þátt í þeim sigri. I spjallinu sagði Óskar að Hreinn Halldórsson og Friðrik Þór Óskarsson, sem dveljast nú í Texas, æfðu vel og mikið. Hvor- ugur þeirra gat tekið þátt í mótinu í Texas um helgina. — ágás. hún hefur líklega ekki fengist um það, þar sem hún slapp ómeidd frá öllu saman. Sovésku smástelpurnar Elena Mukhina og Natalía Shaposnik- ova veittu Nadíu harða keppni eins og ráð var fyrir gert, en Nadíu gekk illa á síðasta heims- meistaramóti. Shaposnikova krækti sér í ein gullverðlaun, á jafnvægisslánni, þar sem Comaneci varð þriðja. Elena Mukhina dró sig út úr keppninni á jafnvægisslá af óútskýrðum ástæðum. Mukhina varð síðan aðeins fjórða í stökki, en gekk síðan mun betur á tvíslánni og í gólfæfingunum. Tilþrif hennar á tvíslánni vöktu miída hrifningu áhorfenda og færðu henni sigur í greininni. Mukhina varð síðan önnur í gólfæfingunum. Landi Nadiu Comaneci, Emilia Eberle, sem aðeins er 14 ára gömul, vakti mikla athygli. Hún varð í öðru sæti bæði í tvíslá og jafnvægisslá, en aftar á merinni í stökki og í gólfæfingunum. Ef frá eru taldar þær fjórar sem þegar eru nefndar, vöktu helst athygli þær Maxi Gnauck frá Austur-Þýskalandi og Romi Kessler frá Sviss. Maxi varð önnur í stökki og þriðja í tví- slánni, en Romi Kessler varð í fimmta sæti á jafnvægisslánni, sem er athyglisverður árangur hjá Vesturlandabúa á dögum austrænnar einokunar. — Við lékum betur allan tímann og verðskulduðum sig- ur. Ég skoraði fyrra mark Feyenoord í leiknum úr víta- spyrnu. Ég tek orðið allar víta- spyrnur sem liðið fær. sagði Pétur Pétursson í viðtali við Mbl. í' gær, en hann bætti einu marki í sarpinn um helgina og er nú kominn með 10 mörk í 15 leikjum liðsins. — Síðara mark okkar var skorað úr aukaspyrnu af um 20 metra færi, glæsilegt mark. Við eigum nú 5 leiki eftir í deildinni og enn er hún opin hvað snertir Ajax og okkur, bæði liðin geta orðið meistarar. — Nú, ég bíð spenntur eftir að leika landsleik- inn við Sviss, ég hef verið valinn og fengið grænt ljós hjá forráða- mönnum Feyenoord. Ég sá þá leika í sjónvarpinu um daginn og get ekki annað séð en að við eigum að hafa góða möguleika á móti þeim, sagði Pétur. Úrslit leikja í hollensku deild- inni urðu sem hér segir: Ajax—Sparta 1:0 Den Haag—Nec Nijmegen 3:2 Haarlem—Utrecht 0:0 Alkmaar—Maastricht 0:0 Deventer—Pec Zwolle 2:2 PSV Eindhoven—Nac Breda2:0 VVV Venlo—FC Tvente 1:4 Vitesse Arnhem—Volendam 0:0 Feyenoord—Roda JC 2:1 Forysta Ajax er enn 3 stig fram yfir Feyenoord, en fram- undan eru erfiðari leikir hjá Ajax, svo sem útileikir við Roda og AZ ’67. Ajax hefur 45 stig, en Feyenoord 42 stig. Ekki ber að afskrifa PSV Eindhoven frekar en fyrri daginn, þar sem liðið hefur 41 stig og AZ '67 hefur 40 stig. - þr. Kristinn meiddur Ilinn snjalli miðherji skaga- manna Kristinn Björnsson kemur ekki til með að leika með ÍA-liðinu í fyrstu leikjum íslandsmótsins. Kristinn meidd- ist illa í Indónesíuferð ÍA og útlit er fyrir að hann sé með slitinn liðbönd. Er það mikið áfall fyrir ÍA að missa Kristinn úr liðinu þar sem hann var kominn í mjög góða æfingu, og að sögn aldrei verið betri en einmitt nú. þr. Vilmundur sprækur „Æfingar hafa gengið ágætlega. en verðráttan var þó leiðinleg í vetur. Það stendur þó til bóta og hitinn að verða óbærilegur. Ég hef lítið keppt. Hef notað keppnir sem æfingar, get ekki sinnt þessum málum of mikið þar sem ég er í lokapróf- um. En ég er þó í ágætri æfingu, stefni á heimsíeika stúdenta í haust og gefst því góður tími til undirbúnings að því móti að náminu loknu.“ Þannig mælti frjálsíþróttamað- urinn Vilmundur Vilhjálmsson í spjalli við Mbl. í gær, en Vilmundur stundar nám í bæn- um Loughborough á Englandi. Vilmundur sagðist hafa keppt fyrir skóla sinn á frjálsíþrótta- móti á Crystal Palace í Lundún- um 25. apríl sl. Keppti hann þar í mörgum greinum og náði m.a. 48,4 sekúndum í 400 m hlaupi. Skömmu eftir það hlaup hljóp Vilmundur í 4x400 m boðbhlaupi og fékk þá 47,9 sekúndur í millitíma. „Ég tók þetta mót sem æfingamót og keppti í mörgum hlaupum. Er ennþá „hægfara" og vonast ekki eftir að ná topp-árangri fyrr en seinna. Nokkrum dögum eftir mótið á Crystal Palace, eða 28. apríl, tók Vilmundur þátt í æfingamóti í skólabæ sínum, en þar eru malarbrautir. Hljóp hann fyrst 200 m á 22,0 sekúndum og 15 mínutum seinna brá Vilmundur sér í 800 m hlaup og hlaut tímann 1:56,1 mínútur. „Þetta sýnir bezt hvers konar æfingu ég er í um þessar mundir, kraftur- inn, þrekið og úthaldið er sæmi- legt, en hraðinn verður að koma seinna," sagði Vilmundur. Það kom fram í spjallinu við Vilmund að hann hefur komist í gegnum vetraræfingarnar án þess að verða fyrir nokkrum skakkaföllum. Sagðist hann von- ast til þess að bæta Islandsmetin í spretthlaupunum í sumar. Hefur Vilmundur náð árangri með rafmagnstímatöku sem svarar til 10,2 sekúndna. Vilmundur á svo metið í 200 m, 21,1 sekúndur og í 400 m hlaupi á hann næst bezta árangur íslendings frá upphafi, 47,1 sekúndu. Vilmundur hefur undanfarin ár lagt stund á iþróttafræði í Englandi og lýkur hann lokaprófi við skóla sinn í næsta mánuði. — ágás. • Pétur Valur—KR í kvöld EINN leikur fer fram í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í kvöld. A Melavellinum eigast þá við Valur og KR og hefst leikurinn klukkan 20.00. Comaneci á toppinn á ný

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.