Morgunblaðið - 15.05.1979, Page 42
46
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1979
„Örlög þeirra
eru grimm”
— sagði Kurt Waldheim eftir að hafa
heimsótt flóttafólk frá Kampútseu
Öngþveiti vegna
benzrnskorts í USA
Bangkok. 11 maí. AP.
„ÖRLÖG þcirra eru Krimm,**
sa«ði Kurt Waldheim. íram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna cftir að hafa heim-
sótt flóttamannabúðir í aust-
urhluta Thailands þar sem
áætlað er að séu um 100
þúsund flóttamenn frá
Kampútseu. Áætlað er að
annar eins fjöldi sé hinum
mejíin við landamærin ok bíði
færis á að komast yfir landa-
mærin til Thailands. Kurt
Waldheim hvatti til alþjóð-
legs samstarfs til hjálpar
flóttamönnunum frá
Kampútseu. ,.Við vcrðum að
skipuIenKja hjálparstarf.
Thailand eitt sér ræður ekki
við þetta mikla vandamál."
sajíði Waldheim. Waldheim
deildi við thailcnsk yfirvöld.
sem hafa revnt að koma í vej?
Bob Dole
í framboð
Russel. Kansas. 11. maí. Reuter.
BOD Dole öldun>?adeild-
armaður. eindreginn
íhaldsmaður sem var vara-
forsetaframbjóðandi Ger-
alds Fords 1970. lýsti því
yfir í dag að hann keppti
að því að verða tilnefndur
forsetaframbjóðandi repú-
hlikana 1980 og hét því að
forðast persónulegar árás-
ir á andstæðinga sína eða
Carter forseta í baráttu
sinni.
Dole öldunKadeildarmaður er
sjöundi repúblikaninn sem gefur
kost á sér. Meðal hinna eru John
Connally, fyrrverandi ríkisstjóri í
Texas oj; fjármálaráðherra,
Georjje Bush, fyí-rvernadi yfir-
maður CIA oj; sendiherra hjá SÞ.,
og Philip Crane, þin(;maður frá
Ulinois.
Búizt er við því að í þennan hóp
bætist fljótle(;a þeir Ronald
Reagan, fyrrveandi ríkisstjóri í
Kaliforníu, sem stjórnmálasér-
fræðingar telja sigurstrangleg-
astan, og Howard Baker, leiðtogi
repúblikana í Öldungadeildinni.
fyrir straum kampúteskra
flóttamanna til Thailands.
Áður en hann fór frá Thai-
landi í gær álciðis til Moskvu,
hvatti hann thailensk stjórn-
völd til að taka við öllum
flóttamönnum sem vildu yfir-
gefa Kampútseu.
Bernadetta
á ný í pólitík
Bolfast. 14. maí. AP.
BERNADETTE Devlin, sem
setið hefur í neðri málstofu
hrezka þingsins, tilkynnti í
gær að hún yrði í framboði á
Norður-írlandi vegna kosn-
inga í' héraðinu til Evrópu-
þings.
Bernadette hefur haft frem-
ur hljótt um sig frá því að hún
féll í þingkosningum 1974 er
hún reyndi að ná endurkjöri
til neðri málstofunnar 1'
brezka þinginu. Ilún var kjör-
in þingmaður árið 19fi9, þá 21
árs að aldri. og hefur yngri
kona ekki verið kjörinn þing-
maður á Bretlandseyjum.
Er Bernadette tilkynnti
framboð sitt sagðist hún fara
fram sem „andstæðingur und-
Bernadette Devlin
irokunar“. Norður-lrlandi hef-
ur verið úthlutað þremur sæt-
um í Evrópuþinginu sem situr í
Strassborg og telja mun 410
fulltrúa. Talið er að kaþólikkar
á Norður-Irlandi hafi mikinn
möguleika á að fá mann kjör-
inn á þingið þar sem þrír
atkvæðamestu frambjóðend-
urnir í héraðinu hljóta hnossið.
Ncw York. 14. ma( AP
MIKIÐ öngþveiti.sástand
varð víða í Bandaríkjun-
um um helgina þegar
fjöldi benzínstöðva lokaði
vegna benzínskorts. Við
þær stöðvar, sem voru opn-
ar. mynduðust víða langar
biðraðir en ástandið varð
hvað verst í Kaliforníu. í
Washington voru níu af
hverjum tíu benzínstöðv-
um lokaðar.
Ilenry
Jackson, formaður orku-
nefndar öldungadeildar-
innar, lýsti því yfir að
engin ástæða væri til að
ætla að olíufélögin héldu
eftir olíu en háværar radd-
ir voru um það.
Víða greip um sig mikil reiði
þar sem langar biðraðir mynduð-
ust. I Maryland svindlaði ökumað-
ur nokkur sér framfyrir í röðinni
en þá gengu aðrir fram er biðu og
báru bifreið hans í burtu. Margir
gripu til þess ráðs að fara yfir
landamærin til Mexíkó og ætluðu
benzín þar. En benzínstöðvar þar
urðu einnig uppiskroppa og fjöldi
ökumanna endaði benzínlaus í
Mexíkó.
Víða um þjóðvegi í Bandaríkj-
unum mátti sjá benzínlausa bíla.
Háværar raddir eru nú uppi um,
að stjórnin í Washington og eins
London. 14. maí. AP.
TVEIR vinir Jeremy
Thorpes, fyrrverandi
leiðtoga Frjálslynda
flokksins í Bretlandi. settu
á svið samsæri um morð að
því er aðalvitni sækjanda.
Peter Besscll fyrrverandi
fylkin grípi til ráðstafana til að
binda enda á hið slæma ástand,
sem skapast þegar hinn mikli
fjöldi benzínstöðva lokar um helg-
ar vegna benzínskorts. Þannig bað
Edmond Brown, fylkisstjóri
Kaliforníu, orkunefnd fylkisins að
gera ráðstafanir til þess að
minnsta kosti helmingur benzín-
stöðva í fylkinu yrði opinn um
helgar.
þingmaður, hélt fram í
réttarhöldum í dag.
Thorpe er ákærður fyrir sam-
færi um að myrða tízkusýningar-
manninn Norman Scott sem hélt
því fram að hann hefði haft
kynvillusamband við Thorpe. Þrír
aðstoðarmenn Thorpes eru einnig
ákærðir fyrir samsæri um að
myrða Scott. Thorpe er einn
ákværður fyrir að hvetja einn
þeirra, David Holmes, fyrrverandi
gjaldkera Frjálslynda flokksins,
til að fremja morð.
Bessell hefur áður sagt frá því,
að Thorpe hafi beitt Bessell og
Holmes þrýstingi til að skjóta
Scott á Suðvestur-Englandi og
koma líkinu fyrir í tinnámu, en
ekkert varð úr því. í dag sagði
Bessell að Thorpe hefði beiði
Bessell og Holmes að koma því til
leiðar að Scott yrði myrtur í
Florida.
Bessell sagði, að hann og
Holmes hafðu ákveðið að setja
morð á svið í þeim tilgangi að sýna
Thorpe fram á að ómögulegt væri
að hrinda morðáætluninni í fram-
kvæmd. Han sagði að þeir hefðu
talið að þegar þeir segðu Thorpe
frá því að áformið hefði mis-
heppnazt mundi Thorpe leggja
hugmyndina til hliðar þar sem
hann gat ekki rætt hana við
nokkra aðra en þá.
Bessell sagði, að hann og
Holmes hefði ekki neitað að verða
við beiðni Thorpes þar sem þeir
hefðu átt erfitt með að taka áform
hans hátíðlega.
Franskir kommúnistar
endurk jósa Marchais
París. 14. maí. Reuter. AP.
ÞINGI franska kommúnista-
flokksins lauk um helgina og
það varð til þess að auka klofn-
ing þeirra og jafnaðarmanna,
sem voru í handalagi með þeim
þar til eftir þingkosningarnar í
fyrra. og horfurnar á því að nýr
samningur um samvinnu flokk-
anna verði gerður fyrir forseta-
kosningarnar 1981 hafa dvínað.
Leiðtogi kommúnista. Geroge
Marchais. sakaði jafnaðar-
mannaleiðtogann Francois
Mitterand um það á þinginu að
fylgja raunverulegri hægri-
stefnu og fela hana með orða-
lagi vinstrisinna.
Ásökun Marchais varð til þess
að jafnaðarmannaleiðtoginn
Pierre Beregovoy lét þau orð
falla í útvarpsviðtali, að óhugs-
andi væri að nýr samstarfs-
samningur yrði gerður í bráð.
Marchais var endurkosinn
aðalritari, en andstæðingur
hans, harðlínumaðurinn Roland
Leroy, náði ekki endurkosningu í
sjö manna framkvæmdastjórn
flokksins.
Þetta er sigur fyrir Marchais.
Leroy, sem er forstjóri flokks-
málgagnsins L’humanité, var
eindregið mótfallinn tilraunum
Marchais til að stofna til banda-
lags með jafnaðarmönnum. Hins
vegar er Marchais almennt tal-
inn hafa borið ábyrgð á því aö
sex ára samstarf flokkanna fór
út um þúfur í fyrra.
Sumir fréttaskýrendur velta
því fyrir sér hvort Merchais hafi
fengið því framgengt að Leroy
var felldur gegn því að lofa
harðlínumönnum því að leita
ekki lengur eftir samstarfi við
jafnaðarmenn.
Ósigur Leroys er ekki undan-
fari breytinga í frjálsræðisátt í
franska kommúnistaflokknum
sem var talinn mesti stalínista-
flokkur álfunnar þangað til
Evrópukommúnisminn kom til
skjalanna.
Það sást á því að Jacques
Chambaz og Guy Besse, tveir
hugmyndafræðingar sem kennt
er um að hafa mistekizt að kveða
niður óánægju með Marchais í
röðum menntamanna, voru lika
felldir í kosningunni til fram-
kvæmdastjórnar flokksins.
Hins vegar var samþykkt á
þinginu margra ára gömul til-
laga um að leggja til hliðar
Georges Marchais
gamlar kreddur eins og „Alræði
öreiganna" og taka upp
„miðstjórnarlýðræði" í staðinn
og leggja niður „marx-
isma-lenínisma“ og taka upp
„vísindalegan sósíalisma" í
staðinn.
Vinir Thorpes
sviðsettu morð