Morgunblaðið - 19.07.1979, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
163. tbl. 66. árg. FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Formanni
Kongress-
flokksins
falin stjórn-
armyndun
Nýju-Dclhi. 18. jólí. AP.
LEIÐTOGA stjórnarandstöð-
unnar í Indlandi. Yeshwantrao
Chavan. íyrrum utanríkisráð-
herra, var í dag falið að reyna
stjórnarmyndun. Chavan. sem
er 66 ára að aldri, varð formað-
ur Kongressflokksins í síðustu
viku, eftir að liðsmenn Indiru
Gandhi, fyrrverandi forsætis-
ráðherra. yfirgáfu þann arm
hins kiofna Kongressflokks,
sem hún hefur tögl og hagldir í,
og gengu í lið með Chavan.
Skip hvalverndarmanna, Sea Shepherd, liggur enn í höfn í Leixoes í Portúgal, og er beðið ákvörðunar portúgalskra stjórnvalda um hvort
ásiglingarmálið verði tekið fyrir í Portúgal eða Bretlandi, að því er brezki ræðismaðurinn í Oporto skýrði frá í dag. Heimahöfn Sea
Shepherd er í Hull, en bandarísk umhverfisverndarsamtök hafa það á leigu. Hvalveiðiskipið Sierra, sem er frá Kýpur, er svo laskað eftir
ítrekaðer ásiglingar Sea Shepherd úti af Oporto á sunnudaginn var, að það kemst ekki á hvalveiðar á næstunni, og
umhverfisverndarmennirnir segja, að tveir til þrír mánuðir muni líða þar til það verði sjófært. Myndirnar voru teknar í Leixoes, sem er í
nánd við Oporto, í gær. Til vinstri er Sea Shepherd, en neðst til vinstri á myndinni af Sierra má greina skemmdirnar. (AP símamyndir)
Chavan fékk fjóra daga til
stjórnarmyndunartilrauna, en
hann lýsti því yfir í dag, að hann
væri vongóður um að safna
nægilegu liði á þeim tíma. Í
þingflokki Chavans eru aðeins
76 fulltrúar af 539, sem sæti
eiga í neðri deild þingsins, og
þykir ýmsum stjórnmálaskýr-
endum yfirlýsing hans nokkur
kokhreysti. Ákvörðun Reddys
forseta um að fela Chavan
stjórnarmyndun kom á óvart, en
búizt var við því að Jagjivan
Ram, varaforsætisráðherra og
flokksbróðir Desais, fengi þetta
verkefni. Sú afstaða Desais að
neita að láta af formennsku
Janataflokksins, þrátt fyrir fall
stjórnarinnar um helgina, er
staðfesting á því að hinn aldni
stjórnmálaleiðtogi ætli ekki að
láta undan síga, heldur stefnir
að því að mynda nýja ríkis-
stjórn.
Nicaragua:
Þjóðvarðliðar flýja land - valda-
taka sandinista á næsta leiti
Managua, 18. júli. AP. Reuter.
FREGNIR frá Managua herma
að þjóðvarðliðar Somozas hafi
lagt niður vopn og gefizt upp
fyrir sandinistum, sem nú séu í
þann veginn að ná höfuðborginni
á sitt vald. Bandaríkjastjórn
segir að Urquyo bráðabirgðafor-
seti hafi svikið samkomulag um
að hann sæti einungis á forseta
stóli þar til sandinistar gætu
tekið við stjórnartaumunum, án
þess að frekari blóðsúthellingar
Ný OECD-spá:
Versnandi efnahagur, auk-
in verðbólga og atvinnu-
leysi í kjölfar olíuhækkana
Parfe - 18. júlí - AP
í NÝRRI efnahagsspá OECD, sem birt var í París í dag,
kemur fram, að olíuhækkanirnar að undanförnu muni
hafa þau áhrif á næstu 12 mánuðum, að efnahagsástandið
í helztu vestrænum iðnríkjum verði lakara en það hefur
nokkru sinni verið á síðari árum, auk þess sem
atvinnuleysi verði alvarlegra en það hefur áður verið eftir
síðari heimsstyrjöldina. Spáð er 2% samdrætti hagvaxtar
að meðaltali og aukinni verðbólgu, en hagstjóri stofnunar-
innar, sem 24 ríki eiga aðild að, John Fay, telur enga von
til þess að hægt sé að snúa þróuninni við nema
OECD-ríkin verði óháðari innfluttri orku en verið hefur.
í spánni kemur meðal annars
fram að hvorki í Bandaríkjun-
um né Bretlandi verði um hag-
vöxt að ræða á næstu 12 mánuð-
um, en áður en olíuhækkanirn-
ar dundu yfir hafði verið búizt
við að á síðara misseri þessa árs
yrði hann um 2.5 af hundraði.
OECD telur horfur á því að
um miðjan næsta áratug verði
yfir 6% vinnufærra manna í
aðildarríkjunum atvinnulaus,
en hlutfallið á fyrra misseri
yfirstandani árs var 5.2%. Fay
benti á að þessi dökka efna-
hagsspá væri við það miðuð, að
um frekari verðhækkanir á olíu
yrði ekki að ræða fram að
áramótum. Hann lagði áherzlu
á, að iðnríkin yrðu að gera
róttækar ráðstafanir til að
spara orku og verða óháðari
innflutningi á olíu, ella væri ný
verðbólguskriða óhjákvæmileg,
en hún mundi síðan leiða af sér
kreppu.
yeðu í Nicaragua. Liður í sam-
komulaginu hafi verið að veita
Somoza, hinum útskúfaða forseta
landsins, hæli í Bandaríkjunum,
og kæmi nú til greina að vísa
honum úr landi.
í kvöld staðfesti Bandaríkja-
stjórn fregnir um að þjóðvarðliðar
hefðu náð að minnsta kosti fimm
flugvélum á sitt vald og flogið
þeim til Costa Rica og Bandaríkj-
anna, en fregnir af þessum flótta
eru mjög óljósar. Bandaríkja-
stjórn segir, að samningaviðræður
hefjist senn í Managua um frið-
samlega valdatöku sandinista, en
forráðamenn hreyfingarinnar,
sem þegar ræður lögum og lofum í
Leon, næststærstu borg Nicar-
agua, segja að þeir séu búnir að
mynda stjórn þar og ætli að lýsa
Leon höfuðborg landsins til bráða-
birgða.
Bandaríkin kölluðu í dag heim
sendiherra sinn og flesta sendi-
ráðsstarfsmenn í Managua í mót-
mælaskyni við þá yfirlýsingu Ur-
quyos að hann ætlaði að sitja í
forsetaembætti þar til yfirstand-
andi kjörtímabili lyki árið 1981. í
Washington fékkst ekki s^aðfest
sú fregn, að þjóðvarðliðar hefðu
gefizt upp fyrir sandinistum,- en
margir óttast að skyndileg upp-
gjöf og flótti liðsins muni valda
öngþveiti í landinu, þar sem her-
skáir skæruliðar muni þá engri
andstöðu mæta, heldur vaða uppi
stjórnlaust.
Samkomulag um
sjálfstjórn Baska
Madrid, 18. jólí. Reuter.
SAMKOMULAG hefur tekizt milli
stjórnar Spánar og leiðtoga Baska
um heimastjórn f Baskalandi og eru
líkur á að löggjöf þar um verði
samþykkt á næstunni og taki gildi
fyrir áramót. Samkomulagið er
árangur tvcggja vikna sleitulausra
samningaviðræðna Suarezar, for-
sætisráðherra Spánar. og Carlos
Garaicoechea, sem er eindreginn
aðskilnaðarsinni og nýtur almcnns
trausts meðal Baska, en hann þykir
sanngjarn og hófsamur í skoðun-
um.
Drög að stjórnarskrárlöggjöf voru
í dag samþykkt í þingnefnd í Madrid
í dag og er talið fullvíst að þingið
muni staðfesta þá niðurstöðu lítið
breytta eða ekki. Samkvæmt drög-
unum fá Baskar verulegt sjálfstæði í
efnahags-, félags- og menningarmál-
um, en öryggismál og löggæzla munu
áfram verða í höndum alríkisstjórn-
arinnar í Madrid.
Samkomulaginu hefur verið vel
tekið, ekki sízt í Baskalandi, og eru
miklar vonir bundnar við að það
bindi enda á hryðjuverkastarfsemi
öfgasinnaðra Baska, sem að undan-
förnu hefur kostað 40 manns lífið og
haft alvarleg áhrif á flestum sviðum
þjóðlífsins.
Carter skipar Jordan starfs-
mannastjóra í Hvíta húsinu
Washinirton. 18. jóll. AP.
CARTER forseti hefur skipað Hamilton Jordan formlega í embætti starfsmannastjóra Hvíta hússins, og
þannig falið honum sýnu meiri völd og ábyrgð en hann hefur haft með höndum hingað til. Eftirieiðis ber
Jordan einn ábyrgð á skipulagningu þeirrar starfsemi, sem fram fer á forsetasetrinu, en valddreifing þar
innanstokks var Carter hugleikin f kosningabaráttunni á sínum tíma.
Engar fregnir eru um frekari
fyrirætlanir forsetans um breyt-
ingar í æðstu embættum innan
stjórnarinnar, en flestir telja að
meðal þeirra, sem hverfi úr stjórn-
inni, séu James Schlesinger orku-
málaráðherra, Michael Blumenthal
fjármálaráðherra og Joseph Cali-
fano heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra. Mikil óvissa ríkir í
Washington vegna ástandsins inn-
an stjórnar Carters, en forsetinn
hefur setið á látlausum fundum
með fjölmörgum ráðgjöfum sínum.
Búizt er við því að hann skýri frá
breytingum á stjórninni á föstu-
daginn.
Á blaðamannafundi í Washing-
ton í dag skýrði Jody Powell
blaðafulltrúi frá því að forsetinn
hefði gefið starfsliði Hvíta hússins
fyrirmæli um að hlíta í einu og öllu
ákvörðunum Jordans. Sagði Powell
að með skipun starfsmannastjór-
ans stefndi forsetinn að meiri
samræmingu á störfum ráðuneyta
og starfsliðs Hvíta hússins. Þegar
Carter tók við forsetaembættinu
setti hann níu menn jafnt yfir
starfsemina í Hvíta húsinu, og var
Hamilton Jordan einn þeirra. Með
því var talið að Carter vildi undir-
strika að í stjórnartíð hans mund.,
of mikil völd ekki safnast á hendur
fárra manna, eins og í tíð Nixons.