Morgunblaðið - 19.07.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ1979
Norsku fulltrúamir
vildu ekki ræða
stjórnun fiskveiða
Osló. 18. júlí. Frá íréttaritara-
ritara Mbl. Jan Erik Lauré
STJÓRNUN á loðnuveiðunum við
Jan Mayen var ekki rædd á
fyrsta fundi norsk-íslenzku fisk-
veiðimálanefndarinnar í Osló í
dag. Fulltrúar fslands vöktu
máls á aðgerðum til að stjórna
fiskveiðunum. en norsku fulltrú-
arnir vísuðu þeim málaleitunum
frá á þeim forsendum að stjórn-
unaraðgerðir væri ekki hægt að
ræða, án þess að inn í þær
umræður verði efnahagslögsaga
tekin og afstaðan gegn þriðju
veiðiþjóð liggi skýrt fyrir.
Mestur hluti fundarins fór því í
að ræða hvernig haga skuli sam-
starfi landanna í nefndinni. Menn
urðu ekki á eitt sáttir og verður
fundinum haldið áfram á morgun.
Á fundinum í dag báru íslend-
ingar fram þá ósk, að Norðmenn
stöðvuðu sumarloðnuveiðar sínar
við Jan Mayen, þegar aflinn er
kominn í 90.000 tonn. Norsku
fulltrúarnir kváðust ekki geta
svarað þessu öðru vísi en svo, að
vilji Norðmanna til að fallast á
slíkan kvóta væri bundinn því að
lögsögu yrði komið á við Jan
Mayen.
Tveir 24 punda
laxar komu á
land um helgina
LAXVEIÐI hefur glæðst upp á
síðkastið og um helgina veidd-
ust stærstu laxarnir sem veiðst
hafa í sumar, tveir 24 punda
laxar. Annan laxinn veiddi
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, en Páll Kristinsson í Raf-
geymahleðslunni veiddi hinn.
Kristján sagði í gær, að hann
hefði verið við veiðar í Þverá í
Borgarfirði í síðustu viku. Á
fimmtudaginn hringdi Kjartan
Jóhannsson sjávarútvegsráð-
herra í hann og óskaði eindregið
eftir því að Kristján kæmi í
bæinn á föstudag til fundahalda
um olíuverðsvandann. Kristján
var tregur til að yfirgefa lax-
veiðarnar en vandinn var mikill
og hann dreif sig í bæinn.
„Á föstudagskvöldið var ég að
velta því fyrir mér hvort ég ætti
að nenna upp eftir aftur fyrir
þann hálfa veiðidag sem ég átti á
laugardeginum. Það varð úr að
ég fór og ég sé ekki eftir því,“
sagði Kristján. Viðureign hans
við laxinn stóð í 20 mínútur því
laxinn fór upp á grynningar.
Kona Kristjáns hjálpaði honum
að landa fiskinum, sem var
hængur, en Kristján setti í hann
í svonefndu Klapparfljóti.
Páll Kristinsson setti aftur á
móti í þann stóra á föstudaginn
þegar hann var að veiðum í
Hvítá við Iðu. „Ég var ekki nema
hálftíma að landa laxinum enda
má segja að hann hafi strandað
á grynningum," sagði Páll. Það
var hrygna sem Páll setti í.
Magnús Einarsson
skipstjóri látinn
MAGNÚS Einarsson skipstjóri á
m.s. Heklu varð bráðkvaddur um
borð í skipi sfnu aðfararnótt s.l.
þriðjudags. er það var á leið frá
Hornafirði til Vestmannaeyja.
Kom skipið með Ifk Magnúsar til
Reykjavíkur í gærmorgun.
Magnús heitinn var 58 ára
gamail og hafði verið stýrimaður
og skipstjóri á skipum Skipaút-
gerðar rfkisins frá 1955.
Magnús fæddist í Reykjavík 7.
júlí 1921, sonur Einars Magnús-
sonar skipstjóra og Ingibjargar
Gísladóttur. Hann stundaði
verzlunarstörf í Reykjavík
1934—’47 en stundaði síðan sjó-
mennsku og frá 20. ágúst 1948
starfaði hann hjá Skipaútgerð-
inni, fyrstu árin sem háseti og
bátsmaður. Hann lauk farmanna-
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1955.
Magnús lætur
konu, Svanhildi
uppkominn son.
eftir sig eigin-
Jónsdóttur, og
ELDUR kom upp í kaffibrennslu Magnúsar Th. Blöndahls hf. í
Vonarstræti 4 f gærkvöldi. íbúi f nærliggjandi húsi sá reykinn og
gerði slökkviliðinu viðvarð klukkan 21,50. Þegar það kom á
vettvang var mikili hiti og reykur en lítill eldur. Reykkafarar
voru sendir inn í húsið og fundu þeir upptök eldsins og var hann
fljótt slökktur. Hitinn var orðinn svo mikill að hætta var á þvf að
rúður spryngju þá og þegar og hefði þá reynzt mun erfiðara að
ráða við eldinn. Kaffibrennslan er til húsa í steinhúsi en þrjú
timburhús eru áföst því. Myndir er frá brunastað.
Ljósm.: Mbl. Kristján.
14% hækkun
á steypu
án sements
VERÐLAGSNEFND samþykkti í
gær að heimila steypustöðvunum að
hækka steypu án sements um 14%.
Fer málið nú fyrir ríkisstjórnina.
Tillaga um 14% hækkun var sam-
þykkt með þremur samhljóða at-
kvæðum en fjórir fulltrúar í verð-
lagsnefnd sátu hjá við afgreiðsluna,
þar á meðal formaður hennar, full-
trúi viðskiptaráðherra í nefndinni.
Forráðamenn steypustöðvanna
sögðu í gær að þeir myndu hefja
starfsemi yrði þessi samþykkt verð-
lagsnefndar staðfest af ríkisstjórn
en óvíst væri reyndar um steypu-
framleiðslu á næstunni vegna skorts
á sandi í steypuna.
Dómur kjaradóms:
Skólastjórinn
féllá
sveinsstykkinu
f VOR setti menntamálaráð-
hcrra ungan mann sem skóla-
stjóra iðnskóla í kaupstað úti
á landsbyggðinni, en maður-
inn stundaði í vetur nám við
efsta bekk skólans.
í prófunum í vor gerðist það
hins vegar að hinn nýi skóla-
stjóri féll á sveinsstykkinu. en
hann stundaði trésmíðanám.
Hann hefur sagt starfinu
lausu.
Álag vegna framhaldsnáms
mjólkurfræðinga verði 15%
KJARADÓMUR í máli mjólkur-
fræðinga og vinnuveitenda var
kveðinn upp á þriðjudag og sam-
kvæmt honum skal álag vegna
framhaldsnáms mjólkurfræðinga
erlendis hækka úr 10 í 15% frá og
með 1. júlí 1979. Að dómsorðinu
stóðu þrír fulltrúar, sem skipaðir
voru af yfirborgardómara.
Bjarni K. Bjarnason, borgardóm-
ari sem var formaður dómsins,
Sigríður Vilhjálmsdóttir og
Grfmur Valdimarsson.
Fulltrúar málsaðila létu gera
sérstakar bókanir, en greiddu ekki
atkvæði gegn tillögu hinna þriggja
dómara.
„Þetta álag var 10% og var
skert. Nú er það hækkað í 15% og
skert, sem þýðir í raun um það bil
10%, þannig að út úr þessu kemur
3—4% kauphækkun", sagði Þor-
steinn Pálsson framkvæmdastjóri
VSÍ, er Mbl. ræddi við hann eftir
að kjaradómur var kveðinn upp.
„Það er ljóst að þessi kaup-
hækkun verður bara tekin af
öðrum launþegum", sagði Þor-
steinn. „Það leiðir af eðli málsins,
að þetta kemur bara fram í hærra
verði mjólkurvara til neytenda."
„Við erum ekkert ánægðir með
þessa niðurstöðu, eins og fram
kemur í bókun okkar dómsfull-
trúa“, sagði Sigurður Runólfsson
formaður Mjólkurfræðingafélags
íslands, er Mbl. ræddi við hann
eftir að kjaradómur var kveðinn
upp.
„Ég álit að við höfum haft það
góð rök í málinu að þau hafi átt að
leiða til ríflegri útkomu en þetta",
sagði Sigurður. „Við munum halda
fund á þriðjudaginn og ræða þar
okkar kjaramál. Við erum, hvað
sem segja má, búnir að prófa
kjaradómsleiðina og erum þeirri
reynslunni ríkari."
Slys í Biskupstungum:
Rafmagnsklippumar
tóku í sundur slagæð
ÞAÐ SLYS vildi til á bæ í Laug-
ardal í Biskupstungum á áttunda
timanum í gærkvöldi, er unnið
var þar að rúningu fjár, að
rafmagnsklippur hlupu í nára 66
ára gamals bónda og tóku í
sundur slagæð.
Sjúkrabifreið var þegar kölluð
til frá Selfossi og einnig læknir
frá Laugarási. Var reynt eftir
mætti að stöðva blóðrásina og
maðurinn fluttur í skyndingu til
Reykjavíkur. Hann missti mikið
blóð og var því lögreglubifreið
send á móti sjúkrabifreiðinni með
blóð.
Sjúkrabifreiðin kom til Reykja-
víkur á tíunda tímanum og var
þegar hafin aðgerð á manninum á
LÍU um hækkun olíuverðsins:
11
Magnús Einarsson.
Nafn konunn-
ar sem lézt
KONAN, sem beið bana í
umferðaslysi í Oddsskarði s.l.
þriðjudagsmorgun, hét Laufey
Helga María Sveinsdóttir, 66 ára
gömul, til heimilis að Aðalbraut
48, Raufarhöfn.
Treystum því ad skuld-
bindingum ríkisstjórn-
ar megi treysta”
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi frá LÍÚ:
í tilefni umræðu um þann
vanda fyrir sjávarútveginn, sem
fylgir hækkuðu olíuverði, vill
Landssamband ísl. útvegsmanna
taka fram eftirfarandi:
Við ákvörðun fiskverðs fyrir
tímabilið 1. júní til 30. september
gaf ríkisstjórnin skuldbindingu
um, að olíuverð til fiskiskipa skuli
haldast óbreytt, eða að gerðar
verði ráðstafanir til þess að frek-
ari hækkun olíuverðs mæddi ekki
á sjávarútveginum.
Éfndir á þessu loforði geta ekki
falist í því að ógilda nú fiskverð,
hækka olíuverð og fella gengi
krónunnar, því með því stórhækk-
ar allur útgerðarkostnaður, sem
bundinn er að verulegu leyti er-
lendu verðlagi og fiskverð ákveðið
til 30. september.
Það er aðeins rúmur mánuður
frá því fyrrgreind yfirlýsing var
gefin og olíuverð á Rotterdam-
markaði hefur ekki hækkað á
þeim tíma.
Landssamband ísl. útvegs-
manna treystir því, að skuldbind-
ingum ríkisstjórnar megi treysta.
slysadeild Borgarspítalans. Þegar
Mbl. hafði samband við slysa-
deildina um miðnætti s.l. nótt var
líðan mannsins eftir atvikum.
Guðmund-
ur vann
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
sigraði bandaríska stórmeistar-
ann Reshevsky í biðskák þeirra í
11. umferð Vesterhaveskákmóts-
ins í Esbjerg.
í 12. umferð tefldi Guðmundur
við Danann Christiansen og fór
skák þeirra í bið. Skákin var
æsispennandi og lentu báðir skák-
mennirnir í miklu tímahraki.
Guðmundur fór á peðaveiðar í
tímahrakinu og í biðstöðunni, sem
er mjög flókin, hefur Guðmundur
fjögur peð á móti hrók.
Biðstaðan er þessi: Hvítt, Guð-
mundur: Kg2, Hg6, Rg5, d4, e5, f2
og g3. Svart, Christiansen: Kd7,
Hd8, Hb4 og Ba5. Svartur á leik.
í gær vann Bretinn Mestel
landa sinn Harston og er efstur
með 8Vz vinning.
Mjaðmargrind-
arbrotnaði
MJÖG harður árekstur varð milli
tveggja bifreiða á mótum Bæjar-
háls og Hálsabrautar á níundu
tímanum í gærkvöldi. Þrennt var
flutt á slysadeild og reyndist
stúlka, sem var í öðrum bílnum
hafa mjaðmargrindarbrotnað.
Nota þurfti sög til þess að ná
fólkinu úr bifreiðinni.