Morgunblaðið - 19.07.1979, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 1979
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón: Sighvatur Blöndahl
vandræóum
VEÐUR haía mjög skipast
í lofti í efnahagsmálum
I)ana á þessu ári. í byrjun
ársins var staða dönsku
krónunnar svo sterk að
horfði til vandræða, var
jafnvel farið að hafa hin
verstu áhrif á útflutning
landsmanna.
Holskefla vandræða
hefst svo með hækkandi
orkuverði á fyrri hluta
ársins. en Danir kaupa inn
75 — 80% af allri orku. —
Laun hafa það sem af er
árinu hækkað um 18% og
framfærslukostnaður hef-
ur hækkað um 25% frá
áramótum.
Stjórnvöld hafa engan hemil á
opinberum fjáraustri, sérstak-
lega hafa útgjöld stórlega hækk-
að til félagslegra mála, eða um
55% frá því að frumvarp til
fjárlaga var samið. — Þá hefur
tekjuhalli ríkissjóðs aukist úr
6,54 milljörðum danskra króna
fyrstu fimm mánuði ársins í 8,17
milljarða danskra króna.
Til að mæta þessum vandræð-
um hefur verið gripið til víðtækra
ráðstafana, sem þó hafa sætt
harðri gagnrýni ýmissa hagfræð-
inga þar í landi, þeir telja stjórn-
völd hafa gengið alltof skammt í
aðgerðum sínum. Hagfræðing-
arnir telja til að mynda að vaxta-
hækkun úr 8% í 9% sé a.m.k.
tveimur prósentustigum of lág,
til að mæta þessum auknu vand-
ræðum.
Danska stjórnin hefur eins og
áður hefur komið fram ákveðið
að skera niður opinberar fram-
kvæmdir um a.m.k. 15% og út-
gjöld til félagslegra mála munu
lækka um 12—15% og í því
sambandi vekur sérstaka athygli
að í stað þess að halda áfram
uppbyggingu dagvistarstofnana
eins og til þessa ætla Danir nú að
greiða ellilífeyrisþegum og jafn-
vel atvinnuleysingjum, sem hefur
farið ört fjölgandi á síðustu
mánuðum, laun fyrir að gæta
barna.
____________ Sýninga- og íþróttahöllin í Laugardal á síðustu aiþjóðlegu vörusýningunni 1975.
„Vörusýningar öruggur
vettvangur til að ná til
þriðja hluta þjóðarinnar”
Danir í
Alþjóðlega vörusýningin 1979
verður haldin í íþrótta- og
sýningarhöllinni í I.augardal
dagana 24. ágúst til 9. septembcr
n.k. og er það Kaupstefnan í
Reykjavík, sem stendur fyrir
henni. Einkunnarorð sýningar-
innar eru: „Vettvangur sem örv-
ar viðskipti — Vettvangur sem
opnar tækifæri“. Morgunhlaðið
ræddi stuttlega við Bjarna Ólafs-
son framkvæmdastjóra Kaup-
stefnunnar og spurði hann fyrst
hvort markaður væri fyrir svona
stórar sýningar annað hvert ár,
Séð yfir sýningarsvæðið innandyra.
Ilver eru þá tækiíæri
þeirra sem sýna?
„Þeim sem sýna vörur eða
kynna starfsemi á vörusýningum,
bjóðast margháttuð tækifæri til
að ná árangri, tækifæri sem ekki
gefast eftir hefðbundnum auglýs-
ingaleiðum. Það sem skapar þau
tækifæri er í stuttu máli: Beint
samband við geysilegan fjölda
fólks, þ.á.m. fólk sem kemur til að
kynnast ákveðnum vörutegundum
eða þjónustu.
eins og verið hefur að undan-
förnu. — „Alveg ótvírætt, reynsl-
an sýnir og sannar að vöru-
sýningar eru ótrúlega fjölsóttar
hér á landi.
Fimm stórsýningar
Kaupstefnunnar í Reykjavík á
þessum áratug hafa dregið til sfn
sífellt fleiri gesti. 1970 komu um
53 þúsund gestir. 1971 komu um
61 þúsund gestir. 1973 komu 65
þúsund gestir, 1975 komu 72
þúsund gestir og á sýninguna
Heimilið ’77 komu alls um 80
þúsund gestir, sem var á þeim
„Að handleika og bragða“
tíma mun meira heldur en við
þorðum að vona.
Vörusýningar Kaupstefnunnar í
Reykjavík eru þannig orðnar
öruggur vettvangur til að ná til
þriðja hlu*a þjóðarinnar eða
meira“, sagði Bjarni.
Timbur flutt
inn með Smyrli
Meö Smyrli kom í síöustu
ferö þessi timburfarmur,
sem er 20 tonn, og var
sóttur til Noregs fyrir
mcnn á Norðfirði.
LjÓHm. Mbl.: Sveinn.
Ólögleg áfeng-
issala í Eyjum
NÚ um helgina komst upp
um ólöglega áfengissölu í
Vestmannaeyjum. Þrjár
manneskjur hafa verið í
yfirheyrslum hjá lögregl-
unni í Eyjum vegna
málsins.
Talið er að þessi ólöglega sala
hafi viðgengist síðan um áramót.
Júlíus Georgsson fulltrúi hjá bæj-
arfógeta sagði að hér væri ekki
um að rafða smyglað áfengi og
óvíst væri um magn þess.
Þær tvær manneskjur sem eru
taldar viðriðnar þetta mál hafa
verið búsettar í Eyjum síðastliðið
ár þó aðeins önnur þeirra hefði
þar lögheimili. Hann sagði að
aðallega hefði verið um að ræða
íslenskt brennivín og flaskan af
því hefði selst á 12—13 þúsund
krónur.
Aðalfundur
vestfirskra náttúru-
verndarsamtaka
Miðhúsum. 16. júlf.
NÆSTKOMANDI laugardag
halda vestfirsk náttúruverndar-
samtök aðalfund sinn að Bjarkar-
lundi og kl. 21 verður kvöldvaka að
Vogalandi. Verður þar margt til
skemmtunar. Á fundinn og kvöld-
vökuna er allt áhugafólk um
náttúruvernd velkomið. Formaður
Náttúruverndarsamtaka Vest-
fjarða er frú Lára G. Oddsdóttir,
ísafirði.
— Svcinn •