Morgunblaðið - 19.07.1979, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ1979
Sigríður E. Magn-
úsdóttir syngur
fy rir N orðf irðinga
EINS og kunnugt er heimsóttu tveir aí vinabæjum Neskaupstaðar
bæinn á 50 ára afmælinu og sem nokkurs konar afmælisgjöf komu
listamenn frá Stavanger og Esbjerg og tóku þátt í hátíðahöldunum.
Vegna skorts á gistirými ákváðu hópar frá tveim vinabæjanna,
Eskilstuna í Svíþjóð og Jyvaskyla í Finnlandi, að koma ekki á sama
ti'ma. í dag fimmtudag er væntanlegur 50 manna hópur frá þessum
bæjum og í þeim hópi eru 10 listamenn frá Eskilstuna.
Það eru Stadspiperne, sem eru
þekktir fyrir að leika á margs
konar hljóðfæri frá fyrri öldum og
koma fram í tilheyrandi búning-
um og bregða á leik. Þeir munu
koma fram í kvöld í Egilsbúð, en
þá munu fleiri góðir gestir koma
fram. Sigríður E. Magnúsdóttir
söngkona sem nú er stödd hér á
landi ætlar að skreppa austur og
syngja fyrir Norðfirðinga og þarf
ekki að efa að margir bíða eftir að
sjá hana og heyra.
Sigríður lærði söng að mestu í
Vínarborg. Hún hefur fengið verð-
laun í alþjóðlegum söngkeppnum,
m.a. í Frakklandi og Bretlandi og
sungið víðs vegar, bæði í Evrópu
og Ameríku. Hér á landi er hún
vafalaust þekktust fyrir hlutverk
sitt í Carmen, þar sem hún kom,
sá og sigraði, svo að lengi verður í
minnum haft.
Undirleikari Sigríðar verður Ól-
afur Vignir Albertsson, píanóleik-
ari, sem er Islendingum að góðu
kunnur fyrir undirleik hjá fjöl-
mörgum íslenzkum söngvurum og
hefur hann m.a. leikið undir hjá
Sigríði í 15 ár.
— Fréttatilkynning írá NeHkaup88tad.
Sovésku flugvélarnar
fóru af landinu í gær
SOVÉSKU flugvélarnar sem
staðið hafa á Reykjavíkurflug-
velli siðan á mánudag héldu af
landi brott f gær eftir hádegið,
samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá flugturn-
inum á Reykjavíkurflugvelli í
gær.
Hafa þær þá stansað hér í tvo
sólarhringa, en héðan fara þær til
Gander á Nýfundnalandi. Þar
stoppa þær í einn sólarhring, en
fara þá áfram til Kúbu.
Þetta er fjórði hópur sovéskra
flugvéla sem hér millilendir á leið
til Kúbu, samkvæmt leyfi utan-
ríksiráðuneytisins. Vélarnar eru
af gerðinni AN-26, og áhafnir
þeirra telja um 30 manns saman-
lagt.
Á fullri ferð í Húsavíkur-rallinu.
Ljósm. Börkur Arnviöarson.
Sögulegt bílrall á Húsavík:
Bíllinn flaug tæpa 15 metra
UM siðustu helgi fór fram á Húsavík hið svonefnda Hótel-rall sem er bifreiðarall. Eknir voru um 200
kílómetrar en stytta varð keppnina talsvert vegna ófærðar í nágrenni Húsavíkur. 16 bílar mættu til keppni
og luku henni 14 þeirra. Tveimur bflum hlekktist á í Aðaldal, annar fór útaf veginum og hinn bflinn fór
fram af hárri vegarbrún og flaug tæpa 15 metra í loftinu og lenti á framhjólunum. Er hann talinn ónýtur
eftir flugferðina. Engin slys urðu á mönnum.
Strax í upphafi keppninnar tóku Tryggvi Aðalsteinsson á Toyota
þeir Hafsteinn Hauksson og Kári
Sigurðsson á Ford Escort foryst-
una og tókst þeim að halda henni
til loka keppninnar.
Röð næstu bíla varð sem hér
segir: Nr. 2: Hafsteinn Aðal-
steinsson og ólafur Guðmundsson
á BMW, 3: Halldór Úlfarsson og
Celica, 4: Birgir Þ. Bragason og
Hafþór B. Guðmundsson á Dats-
un, 5: Sigurður Grétarsson og
Sigurbjörn Björnsson á Ford Esc-
ort, 6: Ómar Þ. Ragnarsson og Jón
Ragnarsson á Renault, 7: Her-
mann Jóhannsson og Steingrímur
Ingason á Saab 96.
Einnig var keppt í tveimur
stærðarflokkum. í flokki bifreiða
1301—1600 cc sigruðu Halldór
Úlfarsson og Tryggvi Aðalsteins-
son en í flokki 1601—2000 cc
sigruðu Hafsteinn Hauksson og
Kári Sigurðsson. I sveitakeppni
sigraði sveit Bílaryðvarnar hf.
María Pétursdóttir kjörin formað-
ur Kvenfélagasambands íslands
Björnsson, félagsmálastjóri á
Akureyri, flutti erindi um for-
eldrafræðslu.
Fjöldi merkra mála og tillagna
var ræddur á þinginu. Fulltrúar
og gestir voru liðlega 70 manns, en
í Kvenfélagasambandi íslands er
nú 21 samband og eitt félag og er
félagatalan nú um 25.000 manns.
Á þessu fulltrúaþingi urðu
formannsskipti. Sigríður Thorla-
cíus lét af formennsku en í hennar
stað var kjörin María Pétursdótt-
ir. Frú Sigríður á að baki langt og
merkilegt starf fyrir Kvenfélaga-
samband íslands og voru henni
þökkuð vel unnin störf.
Aðrar í stjórn eru Sigurveig
Sigurðardóttir, Selfossi, og
Margrét Einarsdóttir, Reykjavík,
en í varastjórn eiga nú sæti
Sigríður Thorlacius, Reykjavík,
Sigurhanna Gunnarsdóttir, Ár-
nessýslu, og Þórunn Eiríksdóttir,
Borgarfirði.
Kvenfélagasamband íslands var
stofnað árið 1930 og verður því
fimmtíu ára á næsta ári. Nú er í
undirbúningi að skrifa sögu sam-
bandsins.
Á vegum Kvenfélagasambands
íslands er rekin Leiðbeiningarstöð
húsmæðra og einnig sér sam-
bandið um útgáfu Húsfreyjunnar.
Á vegum Kvenfélagasambandsins
hafa ennfremur verið gefin út 19
fræðslurit í 78 þúsund eintökum,
en mörg þeirra eru nú nær upp-
seld.
157 atvínnulaus-
ir í Reykjavík
KVENFÉLAGASAMBAND ís-
lands hélt 23. landsþing sitt að
Varmalandi dagana 22. — 24.
júní 1979 og var þingið haldið í
boði Sambands borgfirskra
kvenna.
Auk venjulegra aðalfundastarfa
voru flutt 3 erindi um neytenda-
þjónustu í dreifbýli. Flytjendur
voru Þorbjörg Bjarnadóttir frá
Sambandi vestfirskra kvenna, Að-
alheiður Geirsdóttir frá Sambandi
austur-skaftfellskra kvenna og
Sigríður Th. Sæmundsdóttir frá
Sambandi sunnlenskra kvenna.
Sigríður Haraldsdóttir, sem veitir
forstöðu Leiðbeiningarstöð hús-
mæðra, flutti erindi um erfiðleika
verslunarþjónustu í dreifbýli á
hinum Norðurlöndunum og Jón'
UM miðjan þennan mánuð voru
157 skráðir atvinnulausir í
Reykjavík, 113 karlmenn og 44
konur. Atvinnuleysi er áberandi
mest meðal verkamanna og bif-
reiðastjóra.
2ír í?r á eftir yfirlit yfir
atvinnuleysi í Reykjavík CÍHr
starfsstéttum:
Karlmenn:
Verkamenn 37
Öryrkjar 16
Sjómenn 4
Verslunarmenn 4
Vélstjórar 3
Matreiðslumenn 1
Trésmiðir 1
Skólapiltar 2
Bifreiðastjórar 34
Járnsmiðir 1
Pípulagningamenn 1
Iðnverkamenn 9
Alls: 113 karlmenn
Konur: Verkakonur 1
Öryrkjar 14
Verslunarkonur 7
Skóiastúlkur 3
Starfsst. í sjúkrah. 9
Iðnverkakonur 10
Alls: 44 konur
Samtals á skrá konur: 157. karlmenn og
„Við sem fljúgum“
Nýtt rit í Flugleiðavélum
— ÖLL EYÐSLA er nú skorin
niður svo sem frekast er unnt og
einn liður í sparnaðinum er að
minnka dagblaðakaup, sagði
Sveinn Sæmundsson blaðafull-
trúi Flugleiða. — Flugleiðir hafa
keypt dagblöð á hverju ári fyrir
milljónir og til að minnka þau
útgjöld hefur verið ákveðið að
gefa út nýtt blað sem dreift
verður í Fokker flugvélunum,
sem fljúga innanlands.
Sveinn sagði að gefa ætti út
blaðið til reynslu fyrst um sinn
fjórum sinnum á ári og yrði
síðufjöldinn um 100. Kvað hann
fyrsta tölublaðið senn fara í
prentun, en ritstjóri þess er Mark-
ús Örn Antonsson og útgefandi
Frjálst framtak. Sagði hann að
blað þetta væri svipað riti því sem
dreift er á ensku í millilandavél-
unum, en ritstjóri þess er Harald-
ur J. Hamar. Hið nýja rit nefnist
Við sem fljúgum. — Við erum þó
ekki að draga úr þjónustunni
heldur kemur hér nýtt blað í stað
þeirra, sem fara, en hins vegar
verður eitthvað um dagblöð áfram
og þá kannski meira millilanda-
vélunum, sagði Sveinn að lokum.
Hin nýkjörna stjórn Kvenfélagasambands fslands ásamt fráfarandi formanni. F.v. Sigríður Thorlacíus,
Margrét Einarsdóttir, Marfa Pétursdóttir og Sigurveig Siðurðardóttir Ljósm.: Krlstlnn.
.vsvt;
•íisiar/cö ,0(}£i /iteif ww mw. ‘nrö
'l'l'i'