Morgunblaðið - 14.08.1979, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 14.08.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 3 Eftir slæma byrjun rættist vel úr grá- sleppuveiðinni ÆTLA MÁ að á nýafstaðinni grásleppuvertíð hafi hrogn verið söltuð í 12—13 þúsund tunnur. Er það nokkru minna en á síðasta ári. en eigi að síður rættist furðuvel úr veiðunum miðað við hve hafís og vond veður ollu miklum frátöfum fyrir Norðurlandi. Árið 1976 voru fluttar út 21.429 tunnur af grásleppuhrognum, 1977 var tunnufjöldinn 15.616, 1978 var hann 13.149 og i ár má ætla að um 12 þúsund tunnur verði fluttar út. Að auki er nokkuð af hrognunum unnið hjá innlendum lagmetisiðj- um. Mjög vel veiddist við Faxaflóa og allt vestur í Djúp. Eins og áður sagði settu hafís og erfið veður strik í reikninginn hjá grásleppu- körlum nyrðra, en þegar hægt var að koma netum í sjó aflaðist vel. Þá var vertíðin fyrir Norðurlandi framlengd um hálfan mánuð og bjargaði það miklu. Hver hrognatunna leggur sig á um tæpar 100 þúsund krónur brúttó, en sjómenn eru margir hverjir mjög óánægðir með verðið og segja það engan veginn hafa haldist í hendur við mikla auk- ningu á öllum kostnaðarliðum. Norðmenn hafa sótt mjög á aðal- markaði Islendinga, sem eru Danmörk, og er áætlað að þeir hafi fengið 4—500 tunnur af hrognum í vor. 1 o fCVl lf * Stór fjölskylda var hætt komin í eldsvoða SJÖ manna fjölskylda í Ólafsvík var hætt komin, er eldur kviknaði í íbúð hennar að ólafsbraut 8 aðfar- arnótt sunnudags. Að sögn lögregl- unnar í Ólafsvík þykir fullsannað, að kviknað hafi í út frá sígarettu. Atburðurinn átti sér stað um klukkan sex aðfararnótt sunnudags. Vaknaði þá 16 ára unglingur á heimilinu við það að eldur var laus í rúmfötum hans, en hann sagðist minnast þess, við yfirheyrslur síðar, að hafa vaknað litlu fyrr um nóttina og kveikt sér í sígarettu. Tókst honum að komast út úr herberginu og að útihurð og kallaði þar á hjálp. Við hrópin í honum vaknaði 15 ára systir hans og gat hún vakið aðra fjölskyldumeðlimi. sem komust út, þrátt fyrir að húsið var þá fullt af reyk. Slökkviliðið á staðnum kom fljót- lega á vettvang og gekk vel að slökkva eldinn. Miklar skemmdir urðu á innbúi af völdum reyksins en aðeins í einu herbergi af völdum elds. Þykir mikil mildi að ekki urðu slys á fólki. Vestur-þýska rithöfundasambandið: Býður nokkrum íslenskum rithöfundum til Berlínar VESTUR-þýska rithöfunda- sambandið hefur boðið nokkr- um íslenskum rithöfundum, sem fengist hafa við þýðingar á þýskum bókmenntum yfir á íslensku. til Berlínar í haust. Að sögn Rannveigar Ágústs- dóttur hjá Rithöfundasambandi íslands er hér um að ræða framhald af ráðstefnu sem hald- in var í fyrra og þeir Þorvarður Helgason og Thor Vilhjálmsson sóttu. Tilgangurinn er að auka þýðingar á verkum milli land- anna. Ráðstefnan í haust verður haldin um mánaðarmótin októ- ber — nóvember og hefur 2—3 íslenskum rithöfundum verið boðin þátttaka. Rannveig sagði að hún hefði gefið V-Þýska rithöfundasambandinu upp nöfn þeirra rithöfunda sem fást við þýðingar úr þýsku, en sagðist ekki vita um nöfn þeirra sem verður boðið. Hún sagðist þó vita til þess að Þorgeiri Þor- geirssyni rithöfundi hefði verið boðin þátttaka. Grundarfjörður: Sundlaugarþjóf- urinn fundinn — sprúttsalar teknir LÖGREGLAN í Grundarfirði tók fastan 18 ára gamlan pilt s.l. laugardag grunaðan um innbrotið í sundlaugarbygginguna í Grundarfirði. Piltur þessi játaði á sunnudaginn að hafa verið valdur að þjófnaðinum og í framhaldi af játningu hans komst upp um ýmist annað ólögmætt athæfi á staðnum á síðustu mánuðum. m.a. voru fjórir aðilar teknir vegna ólögmætrar sölu á áfengi. Innbrotið í sundlaugina átti sér stað aðfararnótt s.l. laugardags. Farið var inn í bygginguna um hviklæstar dyr. og skúffa. sem peningarnir voru gevmdir í brotin upp. Pilturinn, sem handtekinn var. vildi fyrst í stað ekki viðurkenna að hafa átt nokkurn þátt í innbrotinu. en viðurkenndi að hafa stolið sjö þúsund krónum úr peningakassa á opnunartíma sundlaugarinn s.l. fimmtudagskvöld. Við leit í bifreið piltsins fannst hluti af þýfinu, eða um þrjátíu þúsund krónur og viðurkenndi hann þá að hafa stolið peningunum. Heildarupphæð þýfisins var um 80 þús. kr., en ekki 200 þús., eins og áður var haldið, en starfsfólk sund- laugarinnar taldi að þarna hefði verið um hærri upphæð að ræða. Það má taka fram, að kvöldið áður en þjófnaðurinn var framinn var áður- nefndur piltur ásamt kunningja sínum í sundlauginni og skildi eftir- litsmaður laugarinnar þá eina eftir og bað þá loka húsinu, er þeir færu heim. Lögreglan grennslaðist fyrir um, hvernig pilturinn hefði eytt þeim hluta þýfisins, sem ekki fannst. Kom þá í ljós, að hluta þess hafði hann notað til kaupa á sprútti. Var 24 ára gamall karlmaður tekinn til yfir- heyrslu og játaði hann að hafa selt u.þ.b. 120 flöskur af áfengi í vor og sumar. Hafði hann notið aðstoðar þriggja 17 — 19 ára unglinga við þessa sölu. Maður þessi hefur áður komist undir hendur lögreglunnar og þá fyrir smygl á hassi. Nánari rannsókn og yfirheyrslur standa nú yfir í Grundarfirði vegna máls þessa. Slökkviliðið að störfum í Þingholtsstræti og eins og sjá má fylgdist fjöldi fólks með slökkvistarfinu. Húsbruni í Þingholtunum: Hugsanlega um íkveikiu að ræða MIKLAR skemmdir urðu á hús- inu við Þingholtsstræti 23 í Reykjavík þegar eldur kom upp í því á sunnudagskvöld. Slökkvilið Reykjavíkur var kvatt á vettvang kl. 23.25 og voru íjórir slökkvi- liðsbflar komnir á staðinn þrem- ur minútum sfðar. eða kl. 23.28. Þá stóðu eldtungur út um glugga báðum megin á þriðju hæð húss- ins og einnig var mikill eldur í stigagangi bak við húsið. Allt slökkvilið borgarinnar var kallað út og tókst að ráða niðurlögum eldsins á rúmum klukkutíma. Að sögn Gunnars Sigurðssonar varaslökkviliðsstjóra bendir margt til þess að eldurinn hafi komið upp í stigahúsinu og einnig í dóti sem nýverið hafði verið hreinsað út, þar sem verið var að standsetja íbúð í húsinu. Hann sagði að hugsanlega hefði verið um íkveikju að ræða og væri það mál í rannsókn. Gunnar sagði að eldurinn hefði greinilega verið búinn að hreiðra um sig nokkurn tíma því þykkur viður í stiga hefði verið orðinn að viðarkolum eftir brunann. Hús Guðspekifélagsins er þarna næsta hús, en það er járnvarið timburhús, og hitnaði járnið á því mjög mikið og malning flagnaði af vegna eldsins. Ekki er vitað hvort skemmdir urðu í einangrun þess og kemur ekki í ljós nema hluti klæðningarinnnar verði tekinn frá. Húsið að Þingholtsstræti 23 er þriggja hæða múrhúðað timburhús með risi og kjallara. Engin var heima þegar eldurinn kom upp. Ibúðir eru á tveimur hæðum þess, og einnig er i húsinu nuddstofa. Húsið við Þingholtsstræti 23 er eins og sjá má illa farið af völdum eldsins. Ljósm. Mbl. ól. K.M.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.