Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 46
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 Jón tryggöi Magna sigur MARK Jóns Ingólfssonar úr víta- spyrnu um miðjan síðari hálfleik færði Magna bæði stigin í viður- eign þeirra við Þrótt Neskaupstað á Grenivík á laugardaginn, í leik þar sem jafntefli hefði sennilega verið sanngjörnustu úrslitin. Að- Magni j.A Þróttur I ■ w dragandi marksins var þannig að Magnamenn sóttu upp hægri kantinn, knötturinn var gefinn fyrir markið og hrökk þar í hönd eins varnarmanns Þróttar. Var umsvifalaust dæmd vítaspyrna sem Jón skoraði úr eins og áður segir. I fyrri hálfleik, sem var frekar daufur, gerðist lítið mark- vert. Liðin skiptust á að sækja, en sköpuðu sér fá umtalsverð tæki- færi. Einu sinni skall þó hurð nærri hælum við mark Þróttar. Þá átti Hringur Hreinsson gott skot frá vítateig, markvörðurinn slc knöttinn í stöngina og náði honum síðan aftur. Síðari hálfleikur var mun líflegri en sá fyrri og kom sigurmarkið um hann miðjan eins og áður sagði. Eftir markið voru Þróttarar meira með boltann en fengu lítið af færum. Undir lokin sóttu þeir stíft að marki Magna en allt kom fyrir ekki. Síðan munaði minnstu að Hring Hreinssyni tækist að auka forystu Magna í restina. Hann fékk stungusendingu inn fyrir vörn Þróttar. Markvörðurinn kom á móti honum út fyrir vítateiginn. Hringur skaut framhjá markverð- inum, en knötturinn smaug rétt framhjá markinu. Besta færi Þróttara átti Erlend- ur Davíðsson er hann skaut yfir markið á markteig. Eins og áður sagði voru Þróttarar meira með boltann í leiknum, en það var ekki nóg. STAÐAN í 2. deild Staðan í 2. deild íilandsmótain* í knatt- spymu ar nú pessi. UBK 14 10 2 2 33-9 22 FH 14 10 2 2 38-16 22 Fylkir 14 7 2 5 25-18 16 Seffoss 14 6 3 5 20-15 15 Þór 14 6 1 7 15-19 13 Þróttur 13 5 2 6 9-13 12 ÍBÍ 13 3 5 5 10-24 11 Austri 14 3 4 7 12-23 10 Reynir 14 3 4 7 11-25 10 Magni 14 3 1 10 14-35 7 Markhæstu leikmenn eru: Sígurður Grétarss. UBK 12 Hilmar Sighvatsson Fylki 9 Andrés Kristjánss. ÍBI 9 Pálmi Jónss. FH 9 • Jöfnunarmark Hauka. Ólafur Torfason (eigandi fingravettlingsins viö stöngina t.h. á myndinni) hefur skoraó af stuttu faari og er að sjá að Guömundur markvöröur Baldursson eigi litla möguleika á Því að verja. Fram náði jöfnu gegn Haukum i Firðinum VIÐUREIGN Hauka og Fram á Hvaleyrarvellinum á laugardag var ekki síður glíma leikmanna við veðurguðina heldur en bar- átta þeirra innbyrðis. Veðurguð- irnir blésu mikinn og annað slagið rigndi. en leikmennirnir höfðu þó betur í þessari rimmu, þar sem furðu góðir kaflar voru í leiknum og hann fjörugur þrátt fyrir allt. Úrslitin urðu 1:1 og voru bæði mörkin skoruð í fyrri hálfleiknum. Eftir atvikum voru úrslitin sanngjörn, leikurinn var í jafnvægi lengi vel, en að vísu sóttu Framarar mun meira undir lokin og hefðu þá átt að geta tryggt sér bæði stigin. Strax á þriðju mínútu leiksins skoraði Pétur Ormslev fyrir Fram og var sérlega vel að því marki staðið hjá Pétri, en hins vegar voru Gunnar Andrésson og Örn Bjarnason klaufar að koma ekki í veg fyrir að sendingin næði alla leið til Péturs inni í miðjum vítateigi Haukanna. Ólafur Torfason jafnaði metin á 32. mínútu leiksins. Björn Svav- arsson gaf fyrir mark Fram frá vinstri, boltinn fór í varnarmann og þaðan fyrir fætur Ólafs, sem Haukar 1Bj| Fram ■■ I sendi knöttinn með hnitmiðuðu þrumuskoti í markið úti við stöng. Vel unnið að báðum mörkunum af hálfu þeirra, sem skoruðu þau, en varnarmenn liðanna hins vegar syfjaðir þegar þau komu. Nokkur hiti hljóp í leikmenn undir lok leiksins og fékk Guð- mundur Steinsson þá að líta gula spjaldið. Leikmaðurinn sá ætti að reyna að temja skap sitt inni á vellinum, en hins vegar skilur maður stundum þennan lágvaxna en mjög svo lipra leikmann, sem í hverjum einasta leik þarf sýknt og heilagt að þola það, að varnar- menn andstæðingsins liggi í hon- um og pikki jafnvel allt stafrófið aftan í lappir hans. Ásgeir Elíasson átti sannkallað þrumuskot í þverslá er 14 mínútur lifðu af leiktímanum og máttu Haukarnir þakka fyrir að skot Ásgeirs lenti langt úti á velli eftir að boltinn hafði kysst þverslána, en ekki í netmöskvunum. Bæði liðin áttu færi á að skora fleiri mörk í leiknum, en jafnteflið var þó trúlega bezt við hæfi. Beztir í liði Hauka voru Guð- mundur Sigmarsson, Ólafur Jó- hannesson og Úlfar Brynjarsson. Örn Bjarnason stóð sig betur í markinu en markverðir Hauka hafa áður gert í sumar. Það vakti athygli þegar Sigurði Aðalsteins- syni var skipt út af um miðjan seinni hálfleikinn, fávísir áhorf- endur skildu ekki tilganginn með þeirri skiptingu. Pétur Ormslev var beztur leikmanna Fram, Ás- geir Elíasson stóð fyrir sínu, Guðmundur markvörður brást hvergi að þessu sinni og Gunnar Orrason er lipur leikmaður, sem hefði mátt fá meira tækifæri í þessum leik. Góður dómari var Eysteinn Guðmundsson. í STIITTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild, Hvaleyrarholt 11. ágiíst HAUKAR - FRAM 1:1 (1:1) MARK HAUKA: Ólalur Torfaaon á 32. mfnútu. MARK FRAM: Pátur Ormslev á 3. mfnútu. GULT SPJALD: Guðmundur Steinsaon Fram. ÁHORFENDUR: 159. ,.. Sjálfsmark Austra gaf ísfirðingum stig JAFNTEFLI 1:1 varð í leik Austra og ísfirðinga í 2. deild- inni í' knattspyrnu á Eskifirði á laugardaginn. Leikurinn var heldur slakur, en heimamenn þó skárri aðilinn og nær sigri. Austri lék undan golunni í fyrri hálfleiknum og sótti meira, en það voru þó ísfirðingar, sem fengu fyrsta tækifæri leiksins. Ekki tókst að nýta það frekar en önnur færi, sem liðin fengu í fyrri hálfleiknum. Staðan í leikhléi 0:0. Austri náði góðum tökum á leiknum á móti golunni í seinni hálfleiknum óg átti góð færi í byrjun hálfleiksins. Fljótlega tókst Hjálmari Ingvarssyni að Austri ÍBÍ skora fallegt mark eftir laglega spilaða sóknarlotu Eskfirðinga. Eftir markið jafnaðist leikurinn nokkuð, en síðasta stundarfjórðunginn náðu heimamenn aftur tökum á leiknum. Það voru þó ísfirð- ingarnir, sem skoruðu, nokkuð gegn gangi leiksins. Þegar 8 mínútur voru eftir fengu Isfirð- ingar hornspyrnu og eftir hana tókst ekki betur til en svo hjá öðrum bakverði Austra, að er hann ætlaði að hreinsa frá marki sínu, fór boltinn beinustu leið í Austramarkið. Staðan jöfn 1:1 og þau urðu úrslit þessa leiks. Vörnin var betri hluti liðs IBI að þessu sinni, en leikmenn liðsins eru óþarflega grófir úti á vellinum. Austramenn börðust alls ekki nægjanlega í þessum leik og verða að gera enn betur ef þeir ætla að halda sæti sínu í 2. deild, það eiga þeir að geta, en þurfa þá að hafa aðeins meira fyrir hlutunum. Beztu menn Austra að þessu sinni voru Steinar Tómas- son og Hjálmar Ingvarsson, sá ódrepandi báráttujaxl. -Ævar/ - áij Þetta er ekki búið strákar — ÞETTA er ekki búiö etrák- ar, viö eigum enn von og veröum að halda áfram af fullúm krafti, sagði Eggert Jóhannesaon pjálfari Hauka aö loknum leiknum við Fram á Hvaleyrinni á laugardaginn. Meö góöri baráttu tókst Hauk- unum aö ná Ööru atiginu og áttu baö fyllilega skiliö. — Þaö er staöreynd aö þegar viö erum meö allan okkar mannskap, þá stöndum viö þessum liöum fyllilega á sporöi, sagði Eggert. — Núna gerum viö t.d. jafntefli viö Fram, en þó er ekki nema um 70% af mannskapnum laus viö meiösli og í leikhæfu ástandi. Viö höfum í rauninni ekki tapað nema tveimur leikjum hér á Hvaleyrarvellinum, fyrir Val og Víking, en tapið á móti KR viöurkennum viö ekki. í þeim leik voru tvö mörk ranglega dæmd af okkur og KR því gefinn 1:0 sigur, sagöi Eggert og þaö var greinilegt á Haukun- um aö þeir ætla aö selja sig dýrt í þeim leikjum, sem eftir eru. Reynir að ná sér á strik REYNIR í Sandgeröi á nú nokkra von á því aö rífa sig upp úr fallbaráttu 2. deildarinnar í knatt- spyrnu. Þeim tókst nefnilega nokk- uö gegn Fylki á laugardaginn, sem Reynir 0.0 Fylkir O-U ekki hefur legió fyrir peim í mótinu til pessa, en paö er aó nýta örfá prósent af færum peim sem leik- menn liðsins skapa sér til pess að skora. Reynir lagöi Fylki aö velli í Sandgeröí og gerói par meó lítió úr peim litlu möguleikum sem Fylkír haföi á pví aó blanda sér í toppbar- áttuna. Viröist nú fátt geta stöðvað UBK og FH í pví aö endurheimta sæti sín í 1. deild. Reynir vann 3—0, staóan í hálfleik var 1—0. Munurinn á lióunum var einkum í pví fólginn, að heimalióiö nýtti sín færi mun betur heldur en Fylkisliö- íð annars vegar og peir sjálfir hins vegar í fyrri leikjum sumarsins. Reynir hefur ekki fyrr í sumar skoraö prjú mörk. Hjörtur Jóhanns- son skoraói fyrsta mark Reynis í fyrri hálfleik, en heimaliöió gerói ekki endanlega út um leikinn fyrr en í síðari hálfleik, pegar pað skoraöi tvívegis. Fyrst skoraði Jón B.G. Jónsson og síóan rak Ómar Björnsson endahnútinn á góöan dag hjá Reyni meó pví aó skora priðja markiö. ÍJ/flfl- Hvað er eiginlega að hjá Frömmurum? HVAÐ er eiginlega að hjá Frömurum er spurning, sem knattspyrnuáhugamenn hafa spurt hver annan síóustu vikurnar. Meö hverjum leik liös- ins hafa stuðningsmenn Fram orðiö örvæntingarfyllri og nú er svo komið, aö liöiö, sem framan af var taliö jafnbezta liö mótsins og líklegur meístarakandidat, er í bullandi fallhættu. Lítum aöeins á próunina: • Fram hlaut 10 stig út úr 8 fyrstu leikjum sínum í 1. deildinni og var þá eitt toppliöanna. • í kjölfar þessa fylgdu 4 tapleikir og loks jafntefli gegn Haukum á laugardag. • Stigin eru aöeins 11, Þróttur er meö 10 stig og KA 9, þannig aö fallbaráttan er ekki lengur fjarlægt hugtak í herbúöum Fram. • Ljós í myrkrinu. Fram á alla möguleika á aö komast í úrslit bikarkeppninnar, en liöiö þarf þó að sigra Þróttara til aö svo veröi og veröur þaö annar leikur iiöanna í undanúrslitunum. Viö spuröum Hólmbert Friöjónsson aö þvi á laugardag- inn, hvaö væri eiginlega að. — í fyrri umferðinni lék Fram- liöiö oft skínandi vel, en heppnin fylgdi okkur aldrei, segir Hólm- bert. — Eölilega hefur þetta sálræn áhrif á leikmenn og í staö þess að viö sýnum framfarir eins og önnur liö, t.d. Valur og Víkingur í byrjun seinni umferöarinnar, fer okkur aftur. Ég tel ástæöuna vera þá, aö þaö rúllaði aldrei neitt meö okkur og hálfgerö uppgjöf kemur í leik- menn við mótlætiö. Einnig vorum viö of fljótir eöa á undan hinum liöunum í toppform og héldum okkur ekki þar þegar fór aö blása á móti. Þá má nefna aö við erum aö yngja iiö dkkar upp og þaö tekur eölilega sinn tíma. Allt hefur lagst á eitt hjá okkur aö undanförnu, en ég vona og hef trú á aö þetta eigi eftir að koma aftur hjá okkur. — Eru Framarar í alvarlegri fallhættu? — Þaö er Ijóst að viö erum komnir í fallbaráttuna, en ég vona að viö lifum hana af, sagöi Hólmbert aö lokum. -áij

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.