Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 40
Miöstöð fasteigna viðskiptanna FIGNAVER l^rY^Suðurlandsbraut 20, inm símar 82455-82330, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 Sími áafgreiöslu: 83033 3W»r0unbInl>ili Lögregluvörður við brezka sendiráðið — vegna hótana írskra hryðjuverkasamtaka ÖFLUGUR lögregluvörð- ur er um brezka sendiráö- ið við Laufásveg í Reykja- vík og bústað brezka sendiherrans við sömu götu. Hafa lögreglumenn á tveimur bifreiðum gætt beggja húsanna síðan fyr- ir helgi. Ástæðan er sú, að kvisast hafði út að írsk hryðjuverkasamtök hyggðust sprengja upp sendiráð Breta einhvers staðar á Norður- löndunum í tilefni af því að um helgina voru 10 ár liðin síðan brezkt herlið var sent til Norð- ur-írlands. Var boðum komið til lögregl- unnar í Reykjavík í gegnum utan- ríkisþjónustuna í síðustu viku og voru þá gerðar ráðstafanir til þess að setja sérstaka gæzlu við Lauf- ásveginn. Rainbow Warrior á ný á miðum hvalbátanna RAINBOW Warrior hélt frá Leirvík á Hjaltlandi síðastliðinn föstuda^, áleiðis til íslands og hefur verið innan íslenzku landhelginnar síðan á iaugardag. í gær sást til ferða skipsins í Víkurál og var talið að skipverjar væru að svipast um eftir hvalveiðiskipunum. Sem kunnugt er var kveðinn upp úrskurður fyrir fógetarétti í Reykjavík í upphafi hvalvertíðar þar sem lögbann var sett við tilteknum aðgerðum Grænfriðunga til að trufla veiðar hvalbátanna. Að glápa eins og naut á nývirki er stundum sagt og víst er að tilburðir ljósmyndarans vöktu nokkra furðu þessara vetrunga vestur í Arnarfirði. Ljósm. Snorri Snorrason. Kristján Loftsson, fram- kvæmdastjóri Hvals hf. sagði í gær, að hann gengi út frá því sem vísu, að hvalbátarnir fengju vernd frá Landhelgisgæzlunni ef skip- verjar á Rainbow Warrior byrjuðu aftur á ólöglegum aðgerðum á miðum hvalbátanna. Lögbannið gegn aðgerðum Greenpeacemanna var kveðið upp 26. júní og þá var tveimur af forystumönnum Green- peace gert að mæta fyrir rétti í Reykjavík 6. september. Kristján Loftsson sagði í gær, að hvalveiðarnar hefðu gengið vel í sumar, tíðin hefði verið góð og nóg af hval á miðunum. Veiðarnar hófust 10. júní í ár, en hins vegar 28. maí í fyrra. Nú hafa veiðst 287 hvalir, 240 langreyðar, 35 búrhval- ir og 12 sandreyðar. í fyrra á sama tíma höfðu veiðst 206 langreyðar, 85 búrhvalir og 1 sandreyður. I fyrra lauk hvalvertíðinni 22. sept- ember og hefur veiðunum yfirleitt lokið um það leyti, en það fer þó nokkuð eftir tíðarfari. Ólafur tók undir tíllögur Benedikts ÁGREININGUR kom upp á fundi ríkisstjórnarinnar í gær, er ólafur Jóhannesson forsætis- ráðherra lagði fram tillögur að samningsgrundveili fyrir (slendinga vegna viðræðna við Norðmenn um Jan Mayen málið. Tillögur ólafs eru mjög áþekkar tillögum þeim er Benedikt Gröndal hefur áður komið fram með og gátu ráðherrar Alþýðu- bandalagsins ekki fallist á þær. Óskuðu þeir eftir því að málinu yrði frestað þar til f dag og hefur ríkisstjórnarfundur verið boðaður nú fyrir hádegið. Þá hefur einnig verið boðaður fundur í landhelgisnefnd, þar sem Jan Mayenmálið verður til umræðu. Ragnar Arnalds sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að ekkert launungarmál væri, að um málið væri einkum uppi tvenns konar sjónarmið. Annars vegar væru þar sjónarmið Sjálfstæðis- flokks og Alþýðubandalags, og hins vegar Álþýðuflokks og Framsóknarflokks. Nauðsynlegt Minnkandi loðnuaíli síðustu tvo dagana Erfiðleikar hjá HaUdóri skipstjóra á norska loðnuskipinu Lance Tromso 13. áKÚst frá Jóhannesi Tómassyni biaóamanni Morgunblaótiins. LOÐNUVEIÐARNAR við Jan Mayen hafa gengið fremur illa síðustu tvo daga, slæmt veður er á miðunum og fáir bátar hafa tiikynnt um afla. Samkvæmt upplýsingum frá „Loðnunefndinni“ í Harstad var aflinn orðinn tæplega 70 þúsund tonn, en um borð í skipunum, sem eru á miðunum, er nokkur afli. Síðasta sóiarhringinn var tilkynnt um tæplega 5 þúsund iestir og sagði talsmaður Löndunarskrifstofunnar, að skrifstofan hefði ekki fengið neinar tilkynningar frá yfirvöldum um hvort veiðarnar yrðu stöðvaðar við 90 þúsund tonn. Haft hefur verið eftir Kjartani Jóhannssyni, að samningaviðræður milli þjóðanna geti ekki farið fram nema veiðarnar verði stöðvaðar á meðan. Ölvun við akstur; Fleiri tekn- ir á morgn- ana en áður TUTTUGU og fimm ökumenn voru teknir ölvaðir við akstur í Reykjavík um helgina og hafa þá 679 ökumenn verið teknir ölvaðir við akstur í Reykjavfk síðan um áramót, að sögn Óskars ólasonar yfirlögreglu- þjóns umferðarmáia í Reykjavík. Óskar sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki hefði verið um neina herferð af hálfu lögreglunnar að ræða, en hún hefði verið seinna á ferð en venjulega eða eftir að skemmti- stöðum var lokað. Hann sagði að það væri eins og menn væru djarfari við það að setjast undir stýri ölvaðir, eftir að opnunar- tíma skemmtistaðanna var breytt og héldu jafnvel að lög- reglan væri ekki eins vel á verði á þeim tíma. „Það er hins vegar alger misskilningur ef menn halda að svo sé,“ sagði Óskar Ólason. væri hins vegar að reyna að ná samstöðu um málið áður en lagt yrði til samninga við Norðmenn, ekki kynni góðri lukku að stýra áð ieggja út í viðræður áður en samkomulag hefði tekist. Ragnar Arnalds kvaðst telja sennilegt að ganga mætti frá málinu i dag með samkomulagi allra aðila, en Benedikt Gröndal kvaðst engu vilja spá um það, þótt hann vonaði það besta. Sjá nánar: „Ríkisstjórnar- fundi frestað vegna ágrein- ings“ á bls. 29. Djúprækju- veiðar hafa gengið ailvel DJÚPRÆKJUVEIÐAR á Sporða- grunni, Strandagrunni og í Norð- urkantinum hafa gengið allvel í sumar. Rúmlega 30 bátar hafa leyfi til veiðanna og munu flestir þeirra vera við þær. Bátarnir hafa komið með allt að 8 tonn að landi eftir 3ja daga úthald, en rækjan er ísuð í kassa um borð. Fáir eru á hverjum báti og afkoman því allgóð. Sömuleiðis hef- ur rækjuveiði við Eldey gengið vel í sumar. Rækjumiðin vestra fundust sumarið 1976 er sérstakir leiðangrar voru gerðir á þessar slóðir. I fyrra öfluðust um eitt þúsund tonn af rækju á þessum miðum. íslendingurinn Halldór Lárusson er skipstjóri á norska loðnubátnum Lance og í áhöfninni eru einnig nokkrir aðrir íslendingar. Báturinn hélt á veiðar síðastliðinn laugardag eftir breytingar í Harstad. í dag v->rð báturinn fyrir því óhappi að fá r.ótina í skrúfuna og kom norskt hjálparskip Lance til aðstoðar. Bát- urinn var dreginn í var við Jan Mayen og þar átti froskmaður að kanna aðstæður og freista þess að ná nótinni úr skrúfunni. Blaðamaður ræddi í dag við tvo norska loðnuskipstjóra. Sagðist ann- ar þeirra vonast til að geta haldið áfram loðnuveiðum við Jan Mayen fram í september. Reiknaði hann með að úr þessu færi loðnan að dreifa sér og aflinn að minnka smám saman. Hinn skipstjórinn sagði að mikill kostnaður værí samfara veið- unum við Jan Mayen og væru þær varla arðbærar nema fyrir stærri bátana. Á miðvikudag mega Norð- menn byrja loðnuveiðar í Barents- hafi og er reiknað með að margir bátanna, og þá einkum þeir minni, hefji strax veiðar það. Sjá bls. 20 og 29: Viðtöl við norska skipstjóra og verk- smiðjustjóra í Tromsö. Flugvél f auk út af flugbrautinni LÍTIL eins hreyíils flugvél fór út af fiugbrautinni á Bakkafirði í gær og skemmdist nokkuð. Einn maður var í vélinni en mun ekki hafa sakað. Að sögn Járnbráar Einarsdótt- ur símstöðvarstjóra á Bakkafirði var vélin nýlent og á ferð nálægt kantinum sjávarmegin á flug- brautinni. Vindur stóð þvert á brautina og í einni hviðunni mun vélin hafa fokið út af brautinni, stungist á endann og hvolft. Vélin mun vera í eigu flugklúbbsins á Egilsstöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.