Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 ÍA:VAIur 1:2 „VIÐ sáum meistarana leíka hér í dag, Valur er með bezta liðið,“ sagði Hilpert pjálfari Akurnes- inga eftir leik ÍA og Vals á Akranesi á sunnudag- inn. Valur vann leikinn 2:1 og eru Valsmenn nú komnir á beinu brautina og íslandsmeistaratitill inn blasir við peim. „Viö eigum eftir erfiöa leiki, sérstaklega í Vest- mannaeyjum á laugar- daginn. En ef við vinnum Þann leik verðum viö meistarar,“ sagði Nem- es Þjálfari Vals eftir leik- inn og hann brosti sínu blíðasta brosi. • Hart barist í vítataig ÍA, Atli Eövaldsson og Sigurdur Halldórsson heyja skallaeinvígi, en adrir fylgjast með af áhuga. ,4 dagsáum viðmeistar Sigur Valsmanna í leiknum á sunnudaginn var fyllilega verð- skuldaður. Þeir voru mun ákveðn- ari og léku miklu betri knatt- spyrnu en heimaliðið, sem hefur átt erfitt uppdráttar í undanförn- um leikjum. Það misheppnaðist flest af því sem Skagamenn reyndu í þessum leik, Valur náði tökum á miðjunni þegar í fyrri hálfleik og sleppti ekki þeim tökum. Hinir sterku varnarmenn Vals gáfu framlínumönnum Akra- ness ekkert svigrúm en hinum megin á vellinum átti vörn Akra- ness í basli með sókndjarfa fram- línumenn Vals. Það hallaðist því á heimaliðið á öllum sviðum og tap varð ekki umflúið. Valur skorar tvívegis Leikurinn var jafn til að byrja með, Akurnesingarnir kannski ívið sterkari en smám saman fóru Valsmenn að sækja í sig veðrið og þeir tóku forystuna á 39. minútu. Eftir darraðardans fyrir framan mark Akraness barst boltinn út í teiginn til Hálfdáns Örlygssonar, sem skaut lausu skoti að markinu. Boltinn fór í Albert Guðmundsson og breytti við það stefnu og fór í bláhorn marksins og í netið. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks skoraði Valur sitt annað mark og var mjög skemmtilega að því unnið. Hörður Hilmarsson og Ól- afur Danivalsson léku saman í gegnum vörn Akurnesina og sam- leikur þeirra endaði með því að Ólafur gaf boltann laglega á Hörð í dauðafæri og hann skoraði ör- ugglega af stuttu færi. Harka færist í leikinn Valsmenn gengu til seinni hálf- leiks með tveggja marka forystu — sagói Klaus Hilpert er IA tapaði fyrir Val og það var greinilegt að þeir voru staðráðnir í því að halda því forskoti. Þeir léku mjög ákveðið og gáfu ekki þumlung eftir. Bæði liðin tóku spretti og sköpuðu sér marktækifæri, sem ekki gáfu þó mörk. Voru Valsmenn öllu ákveðnari en andstæðingarnir al- veg eins og í fyrri hálfleiknum. En þessi hálfleikur mun ekki lifa í minningunni vegna knattspyrn- unnar sem liðin sýndu heldur miklu frekar vegna þeirrar hörku, sem hljóp í leikinn. Varð Guð- mundur dómari sex sinnum að lyfta litaspjöldunum, fimm sinnum því gula en einu sinni því rauða. Lætin hófust á 12. mínútu seinni hálfleiks þegar þeim lenti saman Herði Hilmarssyni og Jóni Alfreðssyni. Guðmundur dómari vildi að þeir sættust en þeir sinntu því í engu heldur héldu áfram að munnhöggvast og voru þá báðir bókaðir. Mínútu seinna lenti þeim saman Guðjóni Þórðarsyni og Ólafi Danivalssyni og voru þeir einnig bókaðir. Rétt á eftir var aftur brotið gróflega en þá geymdi Guðmundur spjaldið í vasanum en kallaði þess í stað á fyrirliða liðanna og sagði þeim að hafa hemil á sínum mönnum og næsta grófa brot kostaði brottrekstur. Urðu menn nú miklu rólegri en fimm mínútum fyrir leikslok brá Matthías Hallgrímsson Guðmundi Þorbjörnssyni með miklum til- þrifum og var honum þá sýnt rauða spjaldið en Guðmundur fékk að sjá það gula, þar sem hann reif upp gras og mold og henti í Matthías. „Þetta var nú ekki það gróft brot að það hafi verið ástæða til þess að vísa mér útaf," sagði Matthías eftir leikinn og var ekkert of ánægður með brottrekst- urinn. „Ég hef aldrei áður verið rekinn af velli hér heima svo þetta er nýlunda fyrir mig,“ bætti hann við. Félagar Matta minntu hann þá á það að hann hefði verið rekinn af velli í Indónesíu í vor en hann vildi nú ekki gera mikið úr því. Skömmu áður en Matthías var rekinn af velli eða á 37. mínútu s.h. hafði Árni Sveinsson minnkað muninn með skallamarki en brottrekstur Matthíasar gerði að engu síðustu vonir Skagamanna um að jafna metin. Árni skoraði mark sitt eftir að Sævari hafði mistekizt að hreinsa frá markinu, boltinn barst til Árna sem skallaði hann aftur fyrir sig og í markið. „Þetta er ekki búið ennþá“ „Þetta er ekki búið ennþá, við eigum eftir erfiða leiki, sérstak- lega leikinn í Eyjum," sagði Hörð- ur Hilmarsson fyrirliði Vals og bezti maður liðsins eftir leikinn. Trausti Har. Sæbjörn Guðm. „Það er of snemmt að afskrifa Skagamennina, þeir eiga eftir léttari leiki en við og þeir eru mjög sterkir, þótt þeir hafi ekki leikið vel í dag,“ sagði Hörður. Hörður kvaðst vera mjög ánægður með leik Vals og sigur í leiknum væri á við 4 stig. „Það var geysimikilvægt að vinna, Valur og Akranes eru án vafa beztu liðin nú eins og undanfarin ár.“ Hörður sagði að lokum að góður stuðning- ur áhangenda Vals hefði hjálpað mikið til. Það ríkti mikil kátína í herbúð- um Vals eins og vænta mátti en Skagamennirnir virtust taka tap- inu með miklu jafnaðargeði. „Tap- ið þýðir sem betur fer ekki heim- sendi, hvorki fyrir mig né liðið," sagði Hilpert þjálfari. „Nú höfum við tapað tveimur leikjum gegn Val í röð 2:1 og eigum ekki lengur möguleika á sigri í deild og bikar. Við setjum því stefnuna á 2. sætið en það verður erfitt að ná því sæti. í sambandi við leiki Vals og Akraness þarf að hafa það í huga Sævar Jónss. Örn óskarss. Jón Alfreðss. Hörður Hilmarss. Elmar Geirss. Tómas Pálss.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.