Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 39
Ætla að ganga yf- ir þvert Indland Dacca, 12. ágúst. Reuter. FIMMTÍU og sex hlutu meiðsli þegar lögregla beitti táragasi og kylfum til að kveða niður ólæti meðal múhameðstrúarmanna í landamæfabænum Saidpur í Bangladesh. Fólkið hyggst ganga frá Bangladesh yfir þvert Indland og til Pakistan, sem það lítur á sem föðurland sitt. Meðal þeirra sem særðust voru 21 lögreglumaður og um 100 mú- hameðstrúarmenn voru handtekn- ir. Vegalengdin, sem fólkið hyggst ganga, er 2400 kílómetrar. Fólkið varð innluksa í Bangladesh eftir að ríkið braust undan hæl Pakist- ana eftir styrjöldina 1971. Mikill meirihluti íbúa Bangladesh eru þindúar. „Diskófótur” Detroit — 13. ágúst — AP „DISKÓFÓTUR“ er krankleiki sem verður æ tfðari í Bandaríkj- unurn. að því er sérfræðingar í beinabyggingu fóta hafa skýrt frá, en þeir halda um þessar mundir árlega ráðstefnu sína. Þeir sem þjást af diskófæti kvarta einkum undan kveljandi sársauka í fótum og leggjum auk þess sem þeim er gjarnt á að fá líkþorn og fótsigg. Diskófóturinn getur auðveldlega leitt til tognana, smávægilegra brákana og bólgna, og eitt einkenni hans eru vöðva- styttingar í kálfvöðva. Ekki fylgdi sögunni hversu mikið þarf að stunda diskótek til þess að verða krankleikanum að bráð. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 47 SVIÐIÐ LAND — Skógareldar komu upp á svæði milli ferðabæjanna Lloret de Mar og Blanes í síðustu viku og hlauzt af mikið tjón. Alls týndi 21 maður lífinu í eldsvoðanum sem talinn var vera af mannavöldum. Þessi mynd sýnir hvernig umhorfs er þar sem fyrir rúmri viku var fjölskrúðugt skóg- lendi. Eftir standa visnar trjáleifarnar. Rabin harð- lega víttur „Hátíð geggjaðra,, haldin í Danmörku Yiborg. Danmörku. 13. ágúst — AP NÚVERANDI og fyrrverandi geðsjúklingar í Danmörku hafa ákveðið að efna til fyrstu „hátíð- ar geggjaðra“ til þess að vekja athygli á afskiptaleysi stjórnvalda og annarra á málefn- um þeirra, og benda forsvars- menn hátfðarinnar á, að fimmti hver Dani eigi við geðræn vanda- mál að strfða einhvern tfma á ævinni. Auk núverandi og fyrrverandi geðsjúklinga standa að hátíðinni geðlæknar, hjúkrunarkonur, sál- fræðingar og margir áhugamenn um málefni geðveikra. „Orðið „geggjaður" er auðvitað ekki alveg réttnefni í þessu sam- bandi," sagði Bent Jakobsen, fyrrverandi sjúklingur og einn forvígismanna hátíðarinnar, á fundi með fréttamönnum, „en fólk tekur frekar eftir því en ef við kölluðum þetta hátíð sjúklinga sem eiga við geðræn vandamál að stríða." Jakobsen sagði, að miklar vonir væru bundnar við þessa hátíð og það væri mat þeirra, sem að henni stæðu, að nauðsynlegt væri að auka fjárframlög tir þessara mála um a.m.k. helming á næsta ári til þess að ástandið yrði viðunandi. Mikið námuslys í Sovétríkjunum? Moakvu. 13. ágúst, AP — Reuter. GASSPRENGING varð í kolanámu í Úkranínu á föstudag og Tass-frétta- stofan, sem skýrði frá slysinu á laugardag, sagði, að manntjón hefði orðið. Hefðu bæði námamenn og aðrir starfsmenn í námunni farizt, og þykir frásögnin af slysinu benda til þess, að um meiriháttar slys hafi verið að ræða. Þá var og skýrt frá því, að leiðtogar Sovétríkjanna hefðu sent nánustu ættingjum hinna látnu samúðarkveðjur og að stjórnir Sovétríkjanna og Úkraínu myndu aðstoða aðstandendurna fjárhagslega. í febrúar á síðasta ári varð einnig meiri háttar slys í námu í Kazakhstan og var skýrt frá því með svipuðum hætti og slysinu á föstudag.. í hvorugt skiptið var sagt frá því hve margir hefðu farizt en þar sem jafnaðar- lega er ekki skýrt frá slysum í Sovétríkjunum þykir ljóst, að verulegt manntjón hafi orðið í báðum námuslysunum. Drír fórust í árekstri Þórshöfn, 13. ágúst. Frá fréttaritara Mbl. ÞRÍR menn létust samstundis er bifreið sem þeir vöru í lenti í árekstri við vörubifreið á þjóðveginum milli Sand og Skopun um helgina. Færeyjar: Suður-Afríka: Svertingja dæmdar bætur Jóhannesarborg, 13. ógúst, Reuter. STJÓRMVÖLD í Suður-Afríku hafa fallizt á að greiða svörtu ungmenni jafnvirði 35.500 Bandaríkjadala f skaðabætur vegna örkumla er pilturinn hlaut er lögregluþjónn skaut i fótlegg hans í uppþotum í hverfi svartra í Pretoríu fyrir tveimur árum. Drengurinn, sem er 17 ára, var í fyrra sýknaður af ákæru um að hafa kastað grjóti að lögreglu- pjónum í uppþotum og ráðist á lögregluþjóninn er skaut hann í fótlegginn. Lögregluþjónn sá er þekktur hnefaleikamaður. Upp- haflega fóru foreldrar drengsins fram atskaðabætur að upphæð 118.000 dollarar. Tel Aviv, 13. ágúst. Reuter. FLOKKSSTJÓRN ísra- elska Verkamannaflokks- ins vítti Yitzhak Rabin, fyrrverandi leiðtoga flokksins og forsætisráð- herra, harðlega í kjölfar útkomu nýrrar bókar hans, þar sem hann fer hörðum orðum um arftaka sinn í starfi, Shimon Peres. París, 13. ágúst — AP. FRAKKAR sækja nú mjög í að kaupa gull og ber aukin eftir- spurn eftir gulli vitni um vantrú Frakka á efnahagsástandi í Frakklandi og hinum vestræna heimi. Gullpeningar með mynd Rabin var sérstaklega gagn- rýndur fyrir þær fullyrðingar, að Peres hefði á árunum 1974 og 1977, þegar hann gegndi embætti varnarmálaráðherra „lekið út“ upplýsingum sem vörðuðu öryggi landsins. Þá sagði talsmaðurflokksins, að full eining ríkti meðal forystu- manna flokksins um að styðja Peres sem foringja í komandi kosningum árið 1981. Napóleons seljast nu grimmt í Frakkl'andi. í dag seldust þeir á hæsta verði hingað til, 404 franka, og hefur verð þeirra frá áramótum hækkað um meir en 50%. Napóleons peningarnir eru yfirleitt keyptir af millistéttar- fólki og eru auðveldir í endursölu Frakkar sækja í Napóleonsgull 10 ár síðan brezkir her- / menn komu til N-Irlands Belfast, 13. ágúst — Reuter, AP UNGMENNI grýttu lög- reglu í Belfast og Lon- donderry þegar mótmælt var veru brezkra her- manna á N-íslandi en þeir hafa nú verið þar í 10 ár. „Burt með Breta — lifi IRA,“ hrópuðu ungmennin er þau gengu um stræti Belfast. Þó sögðu brezk hermálayfir- völd, að óeirðirnar á N-ír- landi nú hefðu verið minni en undanfarin ár þegar veru hermannanna hefði verið mótmælt. Mestar urðu óeirðirnar í And- erstontown í Belfast, hverfi ka- þóiikka. írski lýðveldisherinn, IRA, náði á sitt vald strætis- vagni og kveikti í honum. Um 200 ungmenni söfnuðust í kring- um vagninn og eftir klukkustund tókst lögreglu að dreifa mann- fjöldanum. Enginn meiddist al- varlega en IRA gaf út tilkynn- ingu fyrir helgina þar sem sagði, að liðsmenn IRA mundu ekki ráðast á hermenn í skjóli óeirða- seggja. Þetta þykir benda til, að IRA hafi breytt um baráttuað- ferðir. Nú fari liðsmenn IRA um í fámennum hópum og geri skyndiárasir, yfirleitt á her- menn og lögreglu. Á þeim tíu árum sem nú eru liðin síðan brezki herinn kom til N-írlands til að reyna að koma á friði í landinu hafa tæplega tvö þúsund Nokkrir dagar líða áð- ur en línur skýrast Þórshöfn, 13. ágúst. Frá fréttaritara Mbl. FÓLKAFLOKKURINN, sósíaldemókratar og repúblikanar áttu um helgina viðræður um fyrirhugaða stjórnar- myndun og boðaður var fundur í dag, mánudag, en kunnugir telja að nokkrir dagar muni líða áður en í ljós kemur hvort hægt verður að endurvekja fyrra samstarf flokkanna án þess að efna til nýrra þingkosninga. Á fundi flokkanna á laugardag voru reifuð helztu stefnumál þeirra, og á sunnudag var til umræðu smíði nýrrar ferju á Suðureyjarleiðinni. Auk þess sem flokkarnir eru að berja saman stefnu og tillögur til aðgerða í ýmsum meiriháttar málum vinnur landsstjórnin nú að tillögum um aðgerðir til lausnar þeim vanda sem sjávarútvegurinn á við að gllma. 1976: Hörð átök í Beirut milli kristinna og Múhameðstrúar- manna. 1975: Forseti Bangladesh er drepinn í byltingu hersins. 1972: Austur-þýsk flugvél ferst í uthverfi Austur Berlínar og 156 láta lífið. 1970: Páfagarður og Júgóslavía taka upp fullt stjórnmálasam- band eftir 18 ára hlé. 1968: Fréttir frá Bombay herma áð á annað þúsund manns hafi farizt í flóðum. 1945: Japanir gefast upp. Heimsstyrjöldinni síðari er það með lokið. 1917: Kína lýsir yfir stríði á hendur Þýzkalandi og Austur- ríki. 1811: Paraguay lýsir yfir sjálf- stæði sínu. Bretar hernema Jövu. 1784: Fyrsta rússneska nýlend- an í Alaska stofnuð á Kodiak eyju. 1585: EHsabet 1 Englands- Úrottning tekur Niðurlönd undir verndarvæng sinn. Afmæli: John Galsworthy, berzkur rithöfundur 1867—1947, Richard von Krafft Ebing, þýzk- ur eðlisfræðingur. Andlát: David Farragut, sjóliðs- foringi, 1870 = William Randolph Hearst, blaðaútgefandi, 1951 = Bertold Brecht, leikritahöfund- ur, 1956. Innlent: Biskupssetrið Skálholti hrynur i jarðskálfta 1784 = d. Magnús Gizurarson biskup 1237 = Þórður Þorláksson biskup 1637 = f. Steingrímur Jónsson biskup 1769 = Franska eftirlitsskipið „La Lilloise" týnist við ísland 1833 » Kjördæmabreytingin end- anlega samþykkt 1959 = f. Ólafur Ólafsson kristniboði 1895 = Ein- ar Olgeirsson 1902 = Sigurður Þingeyingur Norðurlandameist- ari í 200 m bringusundi 1949. Orð dagsins: Hermenn vinna órrusturnar og hershöfðingjarn- ir fá svo heiðurinn — Napoleon Bonaparte.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.