Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 11 Asíubúarnir í mikilli framf ör Skien. Noregi 8.8. 79 Frá Guðmundi Sigurjónssyni. stórmeistara. Keppnin um efsta sætiö á heimsmeistaramóti unglinga í skák er mjög hörð og margir keppenda eiga möguleika á því að hreppa heimsmeistaratitil unglinga. Það hefur vakið at- hygli hér hve fulltrúar Asíu hafa staðið sig vel fram að þessu. Þeir hafa venjulega makkað sig sam- an neðst á töflunni í alþjóðlegri keppni. Hér hefur orðið mikil breyting á. Kumar frá Indlandi, Jhnu Wala frá Hong Kong og Handoko, Indónesíu, Cusi frá Filippseyjum og Hong-Ding frá Kína hafa allir komist í nám- unda við efsta sætið. Rússinn Alexander Jusupov, fyrrum heimsmeistari unglinga í skák, hefur ekki sótt gull í greipar þessara ungu Asíubúa. Hann tapaði fyrir Cusi frá Filippseyj- um og Deitar frá Sýrlandi. eftir GUÐMUND SIGURJÓNSSON Jusupov hefur gengið betur að berjast við frændur sína frá Evrópu. Við skulum líta á hvern- ig Sýrlendingurinn Deitar fór með Jusupov. Hvítt: Deitar, Svart: Jusupov. Sikileyjarvörn. 1. e4 - c5, 2. Rf3 - e6, 3. d4 - cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — Rc6,6. Rd — b5 — d6,7. BÍ4 - e5 8. Bg5 - a6,9. Ra3 - b5,10. Bxf6 — gxf6, 11. Rd5 (Jusupov hefur verið iðinn við að tefla þetta atriði, sem hefur verið kennt við Lashke og Pelikan. Hann ætti því að þekkja það út og inn) — f5,12. Bd3 — Be6,13. 0 — 0 — f4? (Alvarleg mistök, betra var 13. Bg7) 14. c4 — b4, 15. Da4 (góður leikur!) — bd7, 16. Rb5! (laglegur leikur, þetta hefur sést áður) — Hc8 (slæmt var 16. axb5, vegna 17. Dxa8, 18. Rc7+ og hvítur vinnur skipta- mun) 17. Dxa6 (hvítur hefur unnið peð og hefur auk þess gott tafl) - Be7, 18. Db6 - hg8.19. Dxd8 - Kxd8, 20. f3 - be6. 21. Hf — dl, Rd4? (Annar alverleg- ur afleikur Rússans) 22. Rxd4 — exd4 (engu betra var 22. Bxd5 vegna 23. Rc2, bxc4 og 24. Rxb4), 23. Rxb4 — Bxc4, 24. Bxc4 — Hxc4., 25. Hxd4! (Jusupov sá ekki þennan leik fyrir þegar hann lék 21. Rd4) — Hxd4, 26. Rc6+ — Kd7, 27. rxd4 (hvítur hefur nú tvö peð yfir og unnið tafl en Jusupov vonast eftir kraftaverki og að hann nái jafntefli) — Bf6, 28. Hdl — ha8, 29. a3 - Be5, 30. h3 - f6, 31. Hd2 - Ha4. 32. Rf5 - Hc4. 33. Kh2 - Ke6, 34. h4 - h5,35. Kh3 - Hc7, 36. Rd4+ - kd7, 37. Rf5 (sýrlendingurinn fer rólega í sakirnar, enda liggur honum ekkert á því svartur getur lítið gert) — Hcl, 38. Rg7+ - kf7,40. Rf5 - Ke6,41. b4 - Hc3, 42. a4 - Hc4, 43. a5 - Hxb4, 44. Ha2 (a peðið er geysi öflugt) — Hb7, 45. a6 — Ha7, 46. Rg7+ (loksins hitti hvítur h-peðið) — Kf7, 1,7. Rxh5 — Kg6, Jf8. gl, — fxg3 með framhjáhlaupi. 49. Rxg3 — f5, 50. exf5+ - kf6, 51. Kh3 - d5, 52. ha5 — d4, 53. Rh5+ (Jusupov gafst upp því hann tapar manni eftir 53. leik Kxf5 og 54. f4). Vinningur á Evrópumót ísl. hesta DREGIÐ hefur verið í stuðningsmannahapp- drætti til ágóða fyrir keppnisferð islenzka landsliðsins á Evrópumót íslenzkra hesta 24.-26. ág- úst. Vinningurinn, 11 daga ferð á mótið, kom á miða nr. 288. Vinningshafi hafk samband við Samvinnu- ferðir, en ferðin hefst 17. ágúst. Þröstur Jóhannesson mælinga- maður. Þetta er þægilegra með labb- rabbtækjum Á LEIÐINNI niður að Vaðli gengum við fram á mann sem var að hjakka með mælistiku og labbrabbtæki. Þarna var reynd- ar maður sem jafnvanur er að hjakka með aðra stafi því þetta var hinn þekkti skíðamaður þeirra ísfirðinga Þröstur Jó- hannesson. „Ég hef verið að vinna að mælingum hérna bæði í fyrra- sumar og í sumar“, tjáði Þröstur okkur þegar við gengum fram hjá. „Það er ekki langt síðan við fórum að nota labbrabbtækin í mælingunum svona tvö ár eða svo. Jú, þetta er miklu þægilegra við þurfum ekki að æpa á milli og minni hætta er á skekkjum fyrir misheyrn“. Alþjóðlegt fomsagna- þing haldið í Miinchen Dagana 30. júlí til 4. ágúst komu fræðimenn víða úr heimi saman í Miinchen til ráðstefnu um íslenskar fornsögur. Fyrir ráðstefnunni stóð Institut fiir nordische Philologie der Universitat Munchen. Fundinn sóttu um 150 fræðimenn frá ýmsum löndum Evrópu og Bandarikjunum og Kanada. Þetta var fyrsta fornsagna þing- ið í Þýskalandi. Hið fyrsta var haldið í Edinborg 1971, annað í Reykjavík 1973, og hið þriðja í Osíó 1976. í lok þessa þings var ákveðið að næsta þing skyldi vera í Kaupmannahöfn. Að þessu sinni hafði verið ákveðið að höfuðumræðuefnið skyldi vera fornaldarsögur, en ekki var fast við það bundið, og komu bæði Islendingasögur og konungasögur til umræðu, og auk þess riddarasögur. Alls voru fluttir 30 fyrirlestrar um margvísleg vandamál ís- lenskra fornbókmennta, t.d. um „sannleika" í fornsögum, um efni týndra fornsagna samkvæmt öðr- um heimildum, um kveðskap í fornaldarsögum, um hugsanlegan boðskap vissra fornsagna, og þá var að þessu sinni eins og á fyrri þingum margrætt um tengsl ís- lenskra fornsagna og evrópskra samtímabókmennta og um leið um menningartengsl Skandinavíu og íslands annars vegar og megin- lands Evrópu hinsvegar. Á síðari helmingi nítjandu aldar og á öndverðri hinni tuttugustu áttu Þjóðverjar marga ágæta vísinda- menn á þessu sviði. Meðal þeirra var Konrad Maurer, sem kunnur er á Islandi fyrir samvinnu sína við Jón Árnason og ómetanlegan stuðning við þjóðsagnaútgáfu hans. Á dögum Þriðja ríkisins voru norræn fræði misnotuð í áróðursskyni. En eftir að heims- styrjöldinni lauk hafa á ný hafist vísíndalegar ránnsóknir í Þýska- landi á norrænum fornbókmennt- um og eiga Þjóðverjar hina merk- ustu fræðimenn í þessum efnum. Institut fur Nordische Philologie í háskólanum í Múnch- en stóð fyrir fornsagnaþinginu. Forstöðumaður þeirrar stofnunar er próf. Kúrt Schier, sem hefur haldið fyrirlestra hér heima og mörgum íslendingum er að góðu kunnur, og annaðist hann ásamt öðru starfsfólki stofnunarinnar allan undirbúning ráðstefnunnar. Dr. Hubert Seelow innti, ásamt konu sinni Kolbrúnu Haraldsdótt- ur mikið starf af höndum til að ráðstefnan gæti tekist sem best, og veittu þau hjónin íslensku ráðstefnugestunum frábærar við- tökur. (Úr fréttatilkynningu frá Stofn un Árna Magnússonar). 20 smash hits from EML Ný safnplata frá EMI með 20 vinsælum lögum einsog: Hit me with your rythm stick lan Dury I (Who have nothing) — Sylvester Don’t cry for me Argentina — Shadows Get It (While you can) — Darts Everything is Great — Inner Circle Nw that we’ve found love — Third World Eins og sjá má er á þessari plötu gott sýnishorn af öllu því sem er aö ske í rokki, nýbylgju, reaggea og diskótónlist í dag. HNUASAMLOKAN ER SJÁLFSÖGÐ í HVERT PLÖTUSAFN Suöurlandsbraut 8 Laugavegi 24 Vesturveri Sími 84670 Sími 18670 Sími 1211<

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.