Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979
Steen Juul Mortensen form. danska skáksambandsins:
„Ég er hér á landi íyrst og
fremst ti að kynna skáklífið f
Danmörku og einnig til að
kynnast skákinni hér á ís-
landi,“ sagði Steen Juul
Mortensen, formaður danska
skáksambandsins, en hann
heimsótti ísland fyrir skömmu.
„Skákin ér á Islandi er hluti
af menningu ykkar, en í Dan-
mörku er hún aðeins leikur, en
hefur enga sérstöðu, eins og hér.
Mér virðist sem að íslendingar
hugsi vel um skáklistina, hún er
t.d. mikið kynnt í blöðum ykkar
og öðrum fjölmiðium. Heima í
Danmörku gera menn sig
ánægða með að komast einstöku
sinnum að í einhverju blaði.
Einnig eyðið þið mun meira fé til
styrktar skákinni en Danir.
Tekjustofnar okkar eru aðeins
félagsgjöldn
sem eru í Kaupmannahöfn um
50 danskar krónur á mánuði, en
það fé rennur til þess að standa
undir kostnaði af húsinu sem við
Steen Juul Mortensen. formað-
ur danska skáksambandsins.
hópi. Þessi unglingadeild er
starfrækt víða um land og hlýtur
hún styrki frá viðkomandi sveit-
arfélagi til starfsemi sinnar.
— Hvernig líst þér á þá
aðstöðu sem skákinni er búin
hér á íslandi?
„Mér líst mjög vel á hana. Það
verður erfitt fyrir mig, þegar
heim til Danmerkur kemur, að
skýra mínum mönnum frá því að
þið búið við miklu betri aðstöðu
en við, þó að þið séuð ekki nema
um 225 þúsund. Mér finnst
merkilegt hve mikið þið, ekki
fleiri en þið eruð, hafið getað
gert fyrir skákina og þá góðu
aðstöðu sem þið hafið skapað
hér. Svo dæmi sé tekið höfum við
ekki verið færir um að hýsa
mikla skákviðburði eins og þið,
td. einvígi eins og hér var haldið
árið 1972, eða stórmót í stíl við
Reykjavíkurskákmótið, sem
haldið er annað hvert ár. Þetta
þýðir þó ekki að við höldum
engin mót. Ýmis skákmót eru
haldin í Danmörku, t.d. Clara
Benedict mótið, landskeppnir og
Evrópukeppnir. I október verður
haldið fyrsta heimsmeistaramót
unglinga í Danmörku og er það
ætlað unglingum undir sextán
ára aldri. Atján lönd munu
senda keppendur á þetta mót,
aðallega Evrópulönd, en einnig
munu Chile g Ijsrael senda
fulltrúa sína.“
— Hvernig er húsnæðismái-
um ykkar háttað?
„Við höfum ekkert fast hús-
næði, skrifstofa danska Skák-
sambandsins er meira að segja
heimili mitt. Nokkra starfsmenn
höfum við haft í hálfs dags
starfi, en fjárráðin eru lítil og
setur það okkur þröngar skorð-
ur. Mikil vinna er unnin í sjálf-
boðavinnu, en það hefr sína kosti
því slíka vinnu inna menn af
hendi vegna hugsjónarinnar
einnar sarnan."
„Bent Larsen
er sendiherra
Danmerkur í
skákhehninum“
Formenn danska og íslenska skaksambandsins að tefli, en þar
lagði sá danski hinn íslenska starfsbróður sinn iaglega að velli.
Ljósm. Mbl. RAX.
höfum aðstöðu í. Árgjöldin til
danska Skáksambandsins eru
hins vegar um 80 danskar krón-
ur á ári. Þið fáið styrk frá hinu
opinbera, en við fáum ekki slík-
an styrk. Slíkur er munurinn."
— Er mikil gróska í skáklíf-
inu í Danmörku?
„Það eru um 8300 skráðir
félagar í skákklúbbum víðsvegar
um landið. Þar er skipulag gott
og ma. er gefið út skáktímarit
sem ailir meðlimir fá sent
ókeypis. í einum þætti skáklist-
arinnar tel ég þó Dani betri en
íslendinga, en það er í bréf-
skaák. Töluverðar líkur eru á að
við eignumst heimsmeistara í
þessari grein skákarinnar innan
tíðar. Okkar maður á aðeins
eftir að tefla eina skák við
rússneskan skákmeistara og
verður titillinn vonandi í höfn að
þeirri skák lokinni. Einnig vinn-
um við um þessar mundir að
Evrópukeppni landsliða í skák.
Þó að við eigum nokkra fram-
bærilega skákmenn í Danmörku,
þá tel ég að íslendingar hafi
fleiri og betri skákmönnum á að
skipa, breiddin hjá ykkur er
meiri."
— Hvað er að frétta af Bent
Larsen, stórmeistaranum ykk-
ar?
„Larsen er fluttur frá Dan-
mörku og býr nú á Kanaríeyjum.
Hann flúði hina háu skatta í
Danmörku, enda eru hans einu
tekjur, í tengslum við skákina,
verðlaun fyrir góðan árangur í
skákmótum og ritlaun fyrir
bækur hans. Hann er ekki laun-
aður af ríkinu að neinu leyti. Um
þessar mundir býr Larsen sig
undir millisvæðamótið sem verð-
ur haldið í Riga í Sovétríkjunum
í september. Hann æfir sig af
kappi, enda er honum það mikils
virði að standa sig vel, ekki síst
vegna verðlaunanna. Larsen er
eini danski skákmaðurinn sem
býr yfir þeim styrkleika að hann
getur lifað af skákinni. Hann
hefur haft geysi nikla þýðingu
fyrir skáklífið í Danmörku, því
með góðri frammistöðu vekur
hann áhuga margra, sérstaklega
yngri kynslóðarinnar, og með-
limum í skákklúbbunum fjölgar.
Það má segja að hann sé sendi-
herra Danmerkur í skákheimin-
um.“
— Eru engir ungir meistarar
að koma fram á sjónarsviðið í
Danmörku um þessar mundir?
„Við eigum fjóra alþjóðlega
meistara og tvo sem eru á
leiðinni ef svo má segja, en þeir
hljóta titilinn líklega á þessu ári.
Einnig eigum við nokkra FIDE
meistara og einn stórmeistara í
bréfskák. Þess má einnig geta að
það er deildaskipting í skákinni
hjá okkur. Unglingadeildin er
sérlega gróskumikil g eru um
10000 unglingar sem stunda
skákina eitthvað. Þetta ungl-
ingastarf er aðskilið frá störfum
danska Skáksambandsins, en
unglingarnir flytjast upp með
aldrinum. Við búumst fastlega
við að margir góðir skákmenn
eigi eftir að skila sér úr þessum
— Eru uppi hugmyndir í
Danmörku um landskeppni við
ísland?
„Það er vissulega áhugavert að
heyja slíka keppni, en fjárhagur-
inn leyfir ekki slíkt sem stendur,
því að keppni sem þessi yrði dýr.
Kannski verður slík keppni háð í
framtíðinni. Við höfum von um
að fjármálin hjá okkur batni
eitthvað á næstunni, þvi að við
höfum sótt um styrk til Norður-
landaráðs, og er honum ætlað að
efla norrænt skáksamstarf. Þess
má geta að Skáksamband Norð-
urlanda var fyrsti vísirinn að
samstarfi Norðurlandanna á
menningarsviðinu og mér finnst
tími til kominn að stutt sé
eitthvað við bakið á skáklistinni.
Þá vona ég að mikið og gott
samstarf takist á milli skáksam-
bandanna á Norðurlöndum og
einnig hitt, að ég geti orðið
viðstaddur þegar eitthvert stór-
mótanna ver ur haft á íslandi."
-oj.
BERGIR: Þetta er með þróttmeiri vörubílum.
Með þróttmeiri
vörubílum norð-
an Alpaf jalla
MAÐURINN sem þarna er undir
stýri heitir í kirkjubókum Guð-
bergur Guönason og er frá Flat-
eyri, í venjulegu tali bara Bfla-
bergur og er ekkert til að fara í
grafgötur með. Varð það algeng
sjón í vetur að sjá Berg þeysa á
60 km hraða upp og niður Breið-
dalsheiði, sumir segja á 80 og
með snjóplóg framan á. Við rétt
náðum ( Berg niðrá „tipp“ þar
sem hann var að sturta.
„Þetta er mikið tæki, þetta er
Mercedes Benz, tíu strokka og tíu
hjóla með drifi á öllum og splittað
á öllum, sem þýðir að bíllinn getur
spólað á öllum tíu.“
Hvað er í vélarsalnum?
„Tíu strokka dísilvél sem gefur
320 hestöfl dín. Þetta er líka
gjörnýtt því bíllinn er með 22 gíra
áfram."
Við töldum ekki hæfu að stöðva
bíl slíkrar náttúru öllu lengur og
þökkuðum því fyrir upplýsingarn-
ar.
Hestamót á Kaldármelum:
Meiri þátttaka
en nokkru sinni
Stykkishólmi 9.8.1979.
Hestamannafélagið Snæfelling-
ur héit sitt árlega hestamót á
Kaldármelum laugardaginn 28.
júlí 8.1. Var veður hið ákjósanleg-
asta og mikill fjöldi fólks sem
sótti mótið eða meiri þátttaka en
nokkru sinni fyrr bæði hvað við
kemur fólki og hestum.
Úrslit urðu þau að efstur í A
flokki gæðinga var Neisti 7 v.
rauður eigandi Sturla Böðvarsson
Stykkishólmi, annar Spóla, eig-
andi Jóhann Hansen Stykkishólmi
og þriðji Sörli 7 v. eigandi
Kristján Narfason Hoftúnum. í B.
flokki gæðinga: sigraði Þytur 9 v.
jarpur, eigandi Stefán Elinbergss.,
Ólafsvík, annar varð Blakkur,
eigandi Ingveldur Kristjánsdóttir
Stykkishólmi, þriðji Máni, eigandi
Finnbogi Guðmundsson.
í unglingastökki 13 til 15 ára
varð sigurvegari Sigrún Ólafsdótt-
ir Hlíð í Kolbeinsstaðahreppi,
annar varð Lárus Hannesson
Stykkishólmi og þriðji Páll
Andrésson, Hellissandi.
Unglingaflokkur 10—12 ára:
Fyrstur varð Sigurður Ág. Bengts-
son Stykkishólmi, annar Guð-
mundur Bæringsson Stykkishólmi
og 3. og 4. voru jafnir Ásgeir
Guðmundsson og Gunnar Sturlu-
son Stykkishólmi. 250 m skeið: Nr.
1 Blesi, eigandi Sigursteinn Sigur-
steinsson 26.1 sek., Nr. 2 Draumur
eig. Erling Kristinsson og 3. Sjón,
eig. Ásgeir Guðmundsson. 150 m
nýliðaskeið: Nr. 1 Trausti,
Ámunda Sigurðssonar, 18.6 sek. 2.
Skella Sig. Ásmundssonar, 18.9
sek. Fífill 3. Fífill eig. Bjarni
Alexandersson.
250 m unghrossahlaup: 1. Gauti
6 v. eig. Ragnar Tómasson 18.9,
Sáttur varð annar eig. Margrét
Jónsdóttir 18.9 og þriðji Lokkur
eig. Jón Hallsson, 19.5 sek. allir 6
vetra.
350 metra stökk: Fyrstur, Kóng-
ur eig., Jóhannes Jóhannesson,
25.6. annar Sómi eig. Sigrún
Hilmarsdóttir á 26.1 of þriðja
Flóalingur eig. Bogi Friðriksson,
26.3.
800 metra stökk: Fyrstur varð
Gutti eig. Sigursteinn Sigursteins-
son 1.07.3 annar Frosti eig.
Ámundi Sigurðsson, 1.11.8 og
þriðji Stormur eigandi Gísli Kon-
ráðsson 1.14.0.
800 metra brokk: Fyrstur Funi
eig. Marteinn Valdemarsson 1.46.8
annar Sómi eig. Guðmundur Ein-
arsson á 1.11.9 þriðji Svarri eig-
andi María Eyþórsdóttir, 1.55.7.
— Fréttaritari.