Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.08.1979, Blaðsíða 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 Mynd þessi var tekin þegar breskar konur efndu til mótmæla við bandaríska sendiráðið í London, þar sem þær fóru fram á að Bandaríkjamenn beittu áhrifum sínum á sovésk stjórnvöld til þess að fá andófsmanninn Anatoly Sharansky leystan úr haldi. Sams konar mótmæli fóru einnig fram við sovéska sendiráðið í London og við skrifstofu breska utanríkisráðuneytisins. Veður víða um heim Akureyri 14 hálfskýjaó Amsterdam 22 skýjað Apena 31 heiöskírt Barcelona 28 iéttskýjað Berlin 22 heiðskírt BrUssel 22 skýjað Chicago 23 rigning Frankfurt 20 rigning Feneyjar 25 skýjaö Genf 24 heiöskírt Helsinki 21 heiöskírt Jerúsalem 29 heiöskírt Jóhannesarborg 19 skýjaö Kaupmannahöfn 18 heiöskírt Liasabon 35 heiöskírt London 24 skýjaö Los Angeles 22 heiðskírt Madríd 33 heiðskírt Malaga 29 heiðskírt Mallorca 30 léttskýjað Miami 31 skýjaö Moskva 24 skýjað New York 15 heiöskírt Osló 16 skýjað París 24 heiöskírt Reykjavik 12 skúrir Rio De Janeiro 33 skýjaö Rómaborg 31 heiöskírt Stokkhólmur 20 heiöskírt Tel Aviv 30 heiöskirt Tókýó 33 heiöskirt Vancouver 24 heiðskírt Vínarborg 21 heiöskfrt. anna hafa undanfarið verið með stirðasta móti og ísraelstjórn ákvað í dag að senda Yigel Yadin, er hefur verið forsætisráðherra í fjarveru Begins, til Washington til viðræðna. Sú ákvörðun var tekin á fyrsta fundi stjórnarinnar, sem Menachim Begin mætti á eftir veikindin undanfarið en hann fékk vægt hjartaáfall. Begin var ekki fyrr kominn af sjúkrahúsi en annar ráðherra fór á sjúkrahús. Moshe Dayan, utanríkisráðherra, dvelst nú á sjúkrahúsi en hann gekkst undir uppskurð við krabba- meini fyrir tveimur mánuðum. Carter — ekki samið við PLO nema sam- tökin viðurkenni tilverurétt ís- raels. — um deiluna fyrir botni Miðjarðarhafsins Parls. Washinjtton, Tel Avlv — 13. áitúnt. BOUTRAS Ghali. utanríkisráðherra Egyptalands, sagði í dag í viðtali við franska blaðið Le Nouvel Observateur, að Sovétmenn yrðu að taka þátt í samningaviðræðum um deiluna fyrir botni Miðjarðarhafs. „Án beinnar þátttöku Sovétmanna getur ekki verið um að ræða neina varanlega lausn,“ sagði Ghali. I Damaskus lauk fundi æðstu taka upp sveigjanlegri stefnu og manna PLO. Yasser Arafat, leið- að vestræn ríki í Evrópu muni togi PLO, skýrði þar frá viðræðum hugsanlega í náinni framtíð viður- sínum við Bruno Kreisky, kansl- kenna PLO, sem þegar er viður- ara Austurríkis. Arafat var heim- kennt af 105 ríkjum. Hart var ilað á fundinum að halda áfram deilt á Bandaríkin í Damaskus. í tengslum við ríki V-Evrópu. Þykir viðtali við Jurgen Möllermann, þetta benda til þess, að PLO sé að sérfræðing frjálsra demókrata um utanríkismál í V-Þýzkalandi sagði hann að Efnahagsbandalagið væri þegar orðið virkt sem tengiliður milli Araba og ísraelsmanna. Jimmy Carter sagði í Washing- ton um helgina, að Bandaríkin semdu ekki við PLO fyrr en að uppfylltum tveimur skilyrðum. Að PLO viðurkenndi tilverurétt ís- raelsríkis og að PLO viðurkenndi samþykkt Sameinuðu þjóðanna nr. 242, um tilverurétt ísraels. Samskipti ísraels og Bandaríkj- Yasser Arafat — undir forustu hans virðist PLO vera að taka upp sveigjanlegri afstöðu. Begin — sendi Yadin til Washington til að ræða deilur landanna. AP sendir aftur fréttir til Kúbu Havana. 12. áKÚst — AP BANDARÍSKA fréttastofan AP hefur hafið fréttaþjónustu við Kúbu eftir 10 ára hlé í kjölfar byltingar Fidel Castro. Samningur AP og Prensa lat- ina, hinnar opinberu frétta- stofu Kúbu, var gerður á föstu- dag. Samkvæmt honum miðlar Prensa Latina fréttum til Kúbu jafnframt því að AP fær að- gang að fréttum frá Prensa. Kúba var fyrsta þjóðin utan Bandaríkjanna sem fékk notið þjónustu AP en það var árið 1902. Eftir byltinguna á Kúbu féll fréttaflutningur AP til Kúbu niður, og skrifstofu AP í Havana var lokað. Átök meðal stúdenta í Karachi Karachi. 12. áKÚst — Reuter ÁTÖK meðal vinstri og hægri sinnaðra stúdenta við háskól- ann í Karachi brutust út í dag. Sautján stúdentar særðust og fjórir ljósmyndarar. Stúdentar beittu byssum. Helmingur þeirra er særðust hlaut skot- sár. Fjall- göngumenn farast Zermatt, Svi«8, 13. ágúst — Reuter ÍTALSKUR fjallgöngumaður og nitján ára gamall sonur hans fórust í gærdag er þeir féllu niður hinn hrikalega suð- urvegg Matterhorntinds, sem er á landamærum Sviss og Ítalíu. Óvenjulega margir hafa látið lífið á þessu ári við að reyna að klífa tind Matterhorns, sem er 4477 m hár, eða alls 14, þar af sex á síðustu tveimur mánuðum. Egyptar vilja ræða við Sovétmenn Mikið manntjón í flóðum á Indlandi Nýju Dehlí. 13. ágúst. AP — Reuter. AÐ minnsta kosti 1000 manns drukknuðu í flóðum í vesturhluta Indlands um helgina er áin Machu flæddi yfir bakka sína og stíflugarðar brustu. Flóðin byrjuðu síðdegis á laugardag og verst urðu úti bæirnir Morvi, Lilapur og Adepar, en flóðin eru þau verstu í landshlutanum í um 50 ár. Stjórnvöld sendu lyf og vistir samstundis til flóða- svæðisins, sem er í um 500 kílómetra fjarlægð frá Bombay. Herinn var og kvaddur til að aðstoða við björgunarstörf. Opinberar tölur um manntjón af völdum flóð- anna hafa enn ekki verið birtar. Útvarpið í Indlandi skýrði þó frá því í dag, að um 1000 hefðu farizt, en fólk á flóðasvæðinu sagði að talan kynni að fara upp í 5,000. Monsúnrigningarnar hófust nýlega og eru flóðin afleiðingar þeirra. Flóðbylgjan var um sex metra há er hún dundi á bænum Morvi, en þar bjuggu um 60.00 manns. Flóðbylgjan tók heilu húsin með sér auk fólks og kvik- fénaðar. Eru flóðin nú 'i rénun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.