Morgunblaðið - 14.08.1979, Síða 4
4
Hópferðabílar
8—50 farþega
Kjartan Ingimarsson
sími 86155, 32716.
VE RZLUNIN
GEísiPP
Nýtt Nýtt
Dömu-, herra- og
barnatréklossar.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979
Sjónvarp kl. 20.30:
Afríka
í kvöld hefur göngu sfna í
sjónvarpinu nýr ástralskur
fræóslumyndaflokkur í sex
þáttum. Þættir þessir eru gerð-
ir í samvinnu við Time Life
útgáfufyrirtækið, um vöxt og
viðgang Afrfkuþjóða að und-
anförnu og framtfðarhorfur. í
þessum þáttum verður einkum
fjaliað um sex ríki: Kenýa.
Zambíu, Tanzanfu, Rhodesfu og
Suður-Afríku.
Fyrsti þátturinn sem ber
nafnið „Otrygg landamæri"
fjallar um sögu Rhodesíu. Þar er
rakin saga landsins og sagt frá
því hvernig Rhodesíúmenn eiga í
stöðugum erjum innbyrðis og við
nágranna sína. I þættinum verða
viðtöl við hvíta íbúa landsins um
hvernig þeim líst á stjórn
svartra og einnig verður rætt við
Jhosua Nkomo um stjórnmála-
ástandið og svarta meirihlutann.
I þættinum kemur m.a. fram sú
skoðun svartra að tími sé kom-
inn til að gamla yfirstéttarkerfið
verði aflagt og að öllum verði
búinn jafn réttur í iandinu, án
tillits til litarháttar.
Þýðandi og þulur er Gylfi
Pálsson.
Rhodosíumenn hafa löngum átt í útistöðum viö skæruliða svartra. Hér eru hermenn stjórnarinnar aö sinna skyldustörfum sínum
Útvarp kl. 19.35:
Reynsla bama af hjónaskilnaði
Útvarpið flytur í kvöld þátt
sem gerður er að tilhlutan
Framkvæmdanefndar barna-
árs.
Um þessar mundir stendur
nefndin fyrir umræðu í fjöl-
miðlum, serstaklega f útvarpi
og sjónvarpi, um efnið börn og
skilnaðir. Fjallað verður um
þetta efni í þremur útvarpsþátt-
um og einum sjónvarpsþætti og
er það fyrsti þátturinn sem
fluttur verður í kvöld.
í þessum þætti verður rætt við
fjögur börn sem eru á aldrinum
8—15 ára, en þau eiga fráskilda
foreldra og munu þau ræða um
reynslu sína af skilnuðunum.
Umræða þessi er byggð á barna-
bókum eftir Ragnheiði Jónsdótt-
ur um Kötlu og félaga hennar,
en söguhetjurnar í þeim bókum
eiga fráskilda foreldra.
Umsjónarmenn þessara þátta
eru Ásta R. Jóhannesdóttir og
Guðbjörg Þórisdóttir.
Útvarp ReykjavíK
ÞRIÐJUDkGUR
14. ágúst
MORGUNNINN____________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tón
leikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Margrét Guðmundsdóttir ies
„Sumar á heimsenda“ eftir
Moniku Dickens (2).
9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. 10.25 Tónleikar.
11.00 Sjávarútvegur og sigling-
ar. Jónas Haraldsson talar
við Guðmund Lýðsson fram-
kvæmdastjóra Samtaka grá-
sleppuhrognaframleiðenda.
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkvnningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Á frí vaktinni Sigrún Sigurð-
ardóttir kynnir óskalög sjó-
manna.
SÍÐDEGIÐ
14.30 Miðdegissagan: „Aðeins
móðir“ eftir Anne De Moor.
Jóhanna G. Möller les þýð-
ingu sfna (6).
15.00 Miðdegistónleikar: Norsk
tónlist.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Þjóðleg tónlist frá ýms-
um löndum. Áskell Másson
fjallar um sýrlenzka tónlist.
17.20 Sagan: „Úlfur, úlfur“ eft-
ir Farley Mowat. Bryndís
Vfglundsdóttir les þýðingu
sína (6).
17.55 Á faraldsfæti. Endurtek-
inn þáttur Birnu G. Bjarn-
leifsdóttur um útivist og
ferðamál frá sunnudags-
morgni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Reynsla barna af hjóna-
skilnaði.
Umsjón: Ásta R. Jóhannes-
dóttir og Guðbjörg Þórisdótt-
ir. Þátttakendur fjögur börn
á aldrinum 8—15 ára, sem
hafa gengið í gegnum skiln-
að foreldra sinna.
20.00 Sönglög eftir Richard
Strauss og Jóhannes
Brahms. Hans Hotter syng-
ur; Geoffrey Parsons leikur á
píanó.
20.30 Útvarpssagan: „Trúður-
inn“ eftir Heinrich Böll.
Franz A. Gíslason les þýð-
ingu sfna (15).
21.00 Einsöngur:
Ólafur Þorsteinn Jónsson
syngur lög eftir Þórarin
Guðmundsson, Ingólf Sveins-
son og Eyþór Stefánsson.
Ólafur Vignir Albertsson
leikur á píanó.
21.20 Sumarvaka.
22.30 Fréttir. Veðurfregnir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Harmonikulög: Jo Basile
og félagar hans leika.
23.30 Á hljóðbergi. Umsjónar-
maður: Björn Th. Björnsson
listfræðingur. „Jane Eyre“
eftir Charlotte Brontö.
Helstu hlutverk og leikarar:
Jane Eyre/ Claire Bloom,
Edward Rochester/ Anthony
Quale, Mrs. Fairfax/ Cath-
leen Nesbitt, Andéle Varens/
Anna Justine Steiger. Fyrsti
hluti.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
14. ágúst
20.00 Fréttir ug veður
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá
20.30 Afríka
Nýr, ástralskur frædlu-
myndaíiokkur í sex þútt-
um. gerður í samvinnu við
Time Life útgáfufyriríæk-
ið. um vöxt og viðgang
Afríkuþjóða að undanfömu
og framtfðarhorfur.
Einkum var kvikmyndað í
^ sex rfkjum, Alsfr, Kenýa,
Zambíu, Tansanfu. Rhodes-
fu og Suður-Afríku.
Fyrsti þáttur. ótrygg
landanwri
Þvðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
21.20 Dýrlingurinn
Breskur myndafiokkur
Annar þáttur. Sendiherra-
dóttirin
Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.10 Umheimurinn
Þáttur um erlend málefni
og viðburði. Umsjónarmað-
ur Ögmundur Jónasson.
23.00 Dagskrárlok.