Morgunblaðið - 14.08.1979, Page 41

Morgunblaðið - 14.08.1979, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 21 Úrslit í 5. flokki íslandsmótiö í golfi • Islandsmeistarinn í golfi, Hannes Eyvindsson, býr sig undir að „pútta“. Sagt er frá íslandsmótinu í golfi á bls. 25. Ljósm.: sor. • ÍR skorar í úrslitaleiknum gegn Þór. Frá úrslitakeppninni í 5. flokki er nánar sagt á blaðsíðum 22 og 23. Ljósm: Þorvaidur eirgisson 170 manna klapplið kem- ur með Barcelona hingað NJÓSNARI frá spænska stór- liðinu FC Barcelona fylgdist með leik ÍA og Vals á Akranesi á sunnudaginn en Akurnesing- ar eru sem kunnugt er mótherj- ar Barcelona í Evrópukeppni bikarmeistara. Maður þessi, sem er aðstoðar- þjálfaði hjá félaginu, heitir Torres, og var áður spænskur landsliðsmaður. Hann sagði eft- ir lcikinn að það hefði komið honum á óvart hve margir góðr knattspyrnumenn væri í þess- um tveimur liðum því hann vissi að íslendingar væru alger- ir áhugamenn í iþróttinni. Hann sagði ennfremur að for- ráðamönnum FC Barcelona hefði þótt rétt að afla sér upplýsinga um Akurnesinga vegna mjög góðrar frammi- stöðu liðsins gegn FC Köln í fyrra og Feyenoord á þessu ári, en hvorttveggja væru félög í fremstu röð. Með Torres kom annar maður frá félaginu, sem vinnur að skipulagningu ferðar þessa stórliðs til Islands. Það kom fram hjá honum að 170 áhang- endur liðsins munu fylgja því hingað til lands. - SS Byrjar vel hjá Hamburger SV VESTUR-ÞÝSKA meistaralið- ið Hamburger SV hóf titilvörn sína eins og best verður á kosið, er þýska deildarkeppn- in hófst um helgina. Liðið lék á útivelli gegn Bochum, sem oft hefur reynst erfitt heim að sækja, en Hamburger vann öruggan stórsigur, þrátt fyrir að liðið léki án Kevin Keegan, sem hefur átt við meiðsl að stríða að undanförnu. Ham- burger vann 3—0. Það voru Hartwig, Memm- ering og Magath sem skoruðu mörkin fyrir Hamburger. Bay- ern vann öruggan sigur, 3—1, á nýliðunum í deildinni Bayern Leverkausen. Reiknað er með að Bayers tefli fram sterku liði að þessu sinni og byrjunin lofar góðu. Diírnberger, Rum- enigge og Janzon skoruðu mörk Bayern, en Demuth svaraði fyrir nýliðana með marki úr vítaspyrnu. Annars urðu úrslit leikja um helgina þessi: Worder Bremen — Bayern l'erdrinnen 1—0 FC Köln - 1860 Munchen 2-1 Frankíurt — Dortmund 0—1 Kaiserslautern — Dusseldorf 4—0 Duisburg — Stuttgart 1 — 1 Hertha — Brunswick 0—0 Bayern — Bayer Leverkausen 3—1 Mönchengladbarh — Schalke 04 1 — 1 Bochum — Hamburger 0—3 FJórir SÚ mikla harka, sem varð í seinni hálfleik í leik ÍA og Vals á Akranesi á sunnudaginn, kann að verða þessum tveimur liðum dýrkeypt. Fimm leikmenn voru bókaðir og • Pótur Pétursson hefur skorað mikið af mörkum fyrir hollenska liðiö Feyenoord að undanförnu. Hann var iðinn við kolann gegn Ipswich um helgina, skoraði tví- vegis, p. á m. úrslitamarkiö. menn einum var vikið af leikvelli. Fjórir af þessum mönnum eiga nú yfir höfði sér leikbann, þrír Skaga- menn og einn Valsmaður. Hann er Hörður Hilmarsson fyrirliði liðs- Hróður Péturs vex ojj vex... HRÓÐUR Péturs Péturssonar vex stöðugt, en um helgina var það mark hans sem íærði Feyenoord sigur í 4-liða keppni sem fram íór í Rotterdam. Feyenoord og enska liðið Ipswich háðu frábæra og hörkuspennandi keppni sem endaði ekki fyrr en eftir framlengingu og var þá staðan að lokum 5—4 fyrir Feyenoord. Franz Thijsen skoraði fyrst fyrir Ipswich gegn löndum sínum, en Pétur og Wejnsteijkers komu Feyenoord yfir fyrir hlé. John Wark t'ókst þó að tryggja jafnræði í hálfleik með marki skömmu fyrir hálfleik. Gerd Van Der Lem kom Feyen- oord fljótlega yfir í síðaði hálfleik, en Ipswich jafnaði snarlega með marki Pauls Mariner. Russel Os- man skoraði síðan sjálfsmark, 4—3 fyrir Feyenoord. En 3 mínút- um fyrir leikslok tókst Eric Gates að jafna metin einu sinni enn. Það voru aðeins 3 mínútur eftir af framlengingunni, þegar Pétur Pétursson skoraði úrslitamarkið, sem tryggði Feyenoord 5—4 sigur. Hart verður barist í skosku deildinni ÚRSLIT leikja í skosku úrvals- deildinni í fyrstu umferð keppnistímabilsins urðu sem hér segir: Celtic — Morton 3—2 Dundee Utd. — Dundee 3—0 Hibs — Rangers 1—3 Partick — Aberdeen 1—0 St. Mirren — Kilmarnock 2—2 í leikbann! ins, og mun hann væntanlega ekki leika gegn ÍBV í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Skagamennirnir þrír eru Jón Alfreðsson og Guðjón Þórðarson, sem báðir hafa nú fengið meira en 10 refsistig eins og Hörður og Matthías Hall- grímsson, sem rekinn var útaf í fyrsta skipti í leik hérlendis. Taka þeir væntanlega út bannið í leik gegn Haukum á laugardaginn. Dwyer kemur LOKS mun vera frá því gengið, að Tim Dwyer komi aftur til Vals, þjálfi og leiki körfubolta. Allt hefur verið á huldu um mál þetta að undanförnu, en þó jafnan taldar líkur á því að hann kæmi. Nú er ekkert því til fyrirstöðu og kappinn er væntanlegur hingað til lands þann 5. september næstkom- andi. — gg. Tap gegn Finnum ÍSLENSKA drengjalandsliðið í knattspyrnu tapaði þriðja og siðasta leik sínum í Norður- landakeppni landsliða sem fram hefur farið í Svíþjóð siðustu dægrin. íslendingar léku til úrslita um 5.-6. sætið gegn Finnum, en töpuðu 2—4. Islendingar hafa fengið mik- ið af mörkum á sig í leikjunum þremur sem leiknir hafa verið, eða alls 15 talsins. Það er mjög gott að skora 7 mörk í þremur landsleikjum eins og Island gerði, þannig að rökrétt er að álykta að annaðhvort vörnin eða markvarslan, eða hvort- tveggja, hafi verið í molum í Svíþjóð. Islendingar voru kröftugit framan af leiknum gegn Finn- um og áður en varði hafði Birgir Guðjónsson skorað. Ragnar Margeirsson bætti öðru marki við nokkru síðar, 2—0 fyrir ísland. En síðan ekki söguna meir og Finnar skoruðu á færibandi allt til leiksloka. Fengu skell! ÞAÐ gengur á ýmsu hjá Teiti Þórðarsyni og félögum hans hjá Öster. Stundum leikur liðið eins og það meistaralið sem það er, en þess á milli er Öster tekið í bakariið. Liðið iék um helgina gegn Kalmar FF í sænsku deildakeppninni og reið ekki feitum hesti frá þeirri viðureign. tapaði 0—6. Manna- skipti í körfu- hópnum SEM KUNNUGT er. var fyrir skömmu valinn 16 manna landsliðshópur í körfuknatt- leik til æfinga og undirbún- ings fyrir stórátök á næsta keppnistímabili. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á þeim hópi. sem upphaflega var tilkynntur. Þrír leikmenn hafa dregið sig úr hópnum, þremur hefur þar af leiðandi verið bætt við, auk þess sem hópurinn var stækkaður í 19 manns. Þeir sem drógu sig út úr landsliðs- hópnum voru Jón Jörundsson ÍR, Bjarni Gunnar Sveinsson IS og Jón Héðinssön ÍS. Munu persónulegar ástæður liggja að baki þeim ákvörðunum að vera ekki með landsliðinu. Þeir sex leikmenn, sem kom- ið hafa inn í hópinn, eru Gísli Gíslason ÍS, Júlíus Valgeirsson UMFN, Birgir Guðbjörnsson KR, Árni Lárusson UMFN, Björn Jónsson Fram og Atli Arason Ármanni. — gg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.