Morgunblaðið - 14.08.1979, Síða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979
• ÍR-ingar urðu nokkuð óvænt en verðskuldað íslandsmeistarar í 5. flokki.
Ljósm. Bj. Bj.
Úrslit í 5. flokki lauk um helgina:
ÍR-ingar unnu sinn fyrsta Islands-
meistaratitil, unnu Þor 5-1 í úrslitum
I ÍR, Reykjavíkurfélagið
I gamla krækti sér í sinn
'í fyrsta íslandsmeistaratitil
J í sögu sinni, þegar 5.
' flokkur félagsins vann
■ nokkuð óvæntan, en þó
| mjög verðskuldaðan sigur
] í íslandsmótinu í knatt-
] spyrnu, en úrslit í 5. flokki
J urðu á Laugardalsvelljn-
] um á sunnudaginn. Úr-
P slitakeppnin hófst á
] fimmtudagskvöldið. ÍR
] sigraði Þór frá Akureyri í
] úrslitaleik með 5 mörkum
J gegn einu, eftir að staðan í
J hálfleik hafði verið 1-0
] fyrir ÍR. Sex lið voru mætt
■ til leiks, sigurvegarar úr
[ þeim sex riðlum sem leikið
[ hefur verið í um land allt í
5 sumar. Liðunum sex var
J skipt í tvo riðla, í þeim
J fyrri léku ÍA, ÍBK og ÍR
J og í þeim síðari Þór, Sel-
J foss og Sindri frá Horna-
j firði.
Margir gátu sér þess til að ÍA og
ÍBK byggju yfir sterkustu liðun-
í um. ÍR-liðið hafði einnig reynst
Q gott í sumar, en flestir veðjuðu
samt á í A eða ÍBK, Þór, Selfoss og
k Sindri voru stór spurningamerki.
| Það kom því nokkuð á óvart, þegar
» ÍR sigraði ÍBK örugglega 3—0 og
9 gerði jafntefli við ÍA, 2—2 og
^ tryggði sér þar með úrslitasæti.
h Mörk ÍR gegn ÍBK skoruðu Jónas
k Guðbjartsson (2) og Sveinn Arn-
J arsson (Arnars Guðlaugssonar),
1 sem skoraði eitt mark. Mörk ÍR
í gegn ÍA skoruðu síðan þeir Hlyn-
^ ur Jóhannsson og siðara mark ÍR
|| var sjálfsmark. Skagamenn svör-
■ uðu með mörkum þeirra Arnars
J Svanssonar og Jóhannesar Gunn-
iaugssonar. ÍA sigraði ÍBK síðan
3—2, þannig að íA og ÍR voru jöfn
að stigum, en ÍR fór í úrslitin á
betri markatölu.
Þór og Selfoss virtust líklegust
til að heyja einvígi um hitt úr
slitasætið og það kom líka á
daginn að sem liðsheildir voru
bæði liðin sterkari heldur en
Sindri, sem hafði þó greinilega á
að skipa einhverjum snjöllustu
leikmönnum úrslitanna. Þór vann
Selfoss strax á fimmtudagskvöldið
og er liðið lagði Sindra að velli
5—2, var útslitasætið staðreynd.
Mörk Þórs gegn Sindra skoruðu
Eymundur Eymundsson, sem
skoraði þrennu, Hlynur Birgisson
og Ólafur Hilmarsson. Sindri
svaraði með tveimur mörkum Óm-
ars Bragasonar. Selfoss tryggði
sér síðan rétt til að leika gegn IA
um þriðja sætið, með því að sigra
Sindra 3—2. Mörk Selfyssinga
skoruðu þeir Jón Birgir Guð-
mundsson, Hrannar Erlingsson og
Páll Guðmundsson. Mörk Sindra
skoruðu Ómar Bragason og
Þrándur Sigurðsson.
ÍR meistari —
gjafamörk í lokin
ÍR og Þór frá Akureyri leiddu
saman hesta sína i úrsiitaieiknum
og var mikið jafnræði og lítið um
færi framan af. Brá oft fyrir
góðum leikköflum, en framan af
var þó baráttan í fyrirrúmi, er
bæði liðin reyndu að ná betri
tökum á ieiknum.
Stundum virtust færi liggja í
loftinu, en komu svo ekki, Þórsar-
ar náðu smám saman ívið betri
tökum á leiknum, en þá skoruðu
ÍR-ingar skyndilega. Þar var á
ferðinni Jónas Guðjónsson með
stórglæsilegt þrumuskot utan úr
vítateig. Hefði margur meistara-
flokksmaður verið ánægður með
sig að framkvæma eitthvað svipað
marki þessu. Þetta var á 24.
mínútu leiksins, eða einni mínútu
fyrir leikhlé, besta tíma.
Það var sami þæfingurinn
framan af síðari hálfleik, en þegar
ÍR-ingar skoruðu sitt annað mark
fór að draga af norðanmönnum.
Það var Sveinn Arnarsson sem
skoraði með skalla eftir horn-
spyrnu á 35. mínútu og var vörn
Þórs þar illa á verði. Þórsarar
minnkuðu muninn 3 mínútum
síðar með marki Eymundar Ey-
mundssonar af stuttu færi, en
síðan komu mörkin á færibandi
hjá ÍR og var vörn Þórs úti að aka
lengst af. En mörkin voru gullfall-
eg, Jónas skoraði annað mark sitt
með þrumuskoti utan úr teig á 43.
mínútu, en mínútu síðar skoraði
Hörður Theodórsson fallegasta
markið, komst fyrst einn inn fyrir,
en lét verja hjá sér, boltinn barst í
átt að hliðarlínunni þangað sem
Hörður sótti hann. Hann fór sér í
engu óðslega, heldur lagði boltann
fyrir sig og spyrnti upp í vinkilinn
fjær, yfir markvörðinn og tvo
varnarmenn sem allir stóðu á
línunni, glæsimark.
Hörður var aftur á ferðinni 3
minútum síðar, er vörn Þórs færði
honum annað færi. Og hann skor-
aði með þrumuskoti af stuttu færi,
5-1.
Þó að sigur ÍR hafi verið
sanngjarn. var engum blöðum um
|)að að fletta, að hann var of stór
miðað við gang leiksins, því að
lengst af mátti vart milli sjá hvort
liðið var sterkara. Það reyndist
vera IR á lokasprettinum.
Selfyssingar sterkir
Frammistaða Selfyssinga var
með miklum ágætum, en varla
hafa Selfyssingar oft átt lið í