Morgunblaðið - 14.08.1979, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 14.08.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1979 37 Líkneski við gröf Karls Marx í Lundúnum. Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir í grein sinni: „Heimsendataugin er sterk í marxsinnum. Marx var spámaður, sem boðaði dómsdag „borgarastétt- arinnar“, en taugina má rekja til óttans við þann vöxt þekkingar og atvinnulífs, sem veldur því, að framtíðin er ófyrirsjáanleg.“ 3. Meiri og markvissari umræð- ur um ástand og horfur í efna- hags-, atvinnu- og kjaramálum en nú er þurfa að eiga sér stað milli fulltrúa heildarsamtakanna á vinnumarkaðnum á milli samn- inga í þeim tilgangi að reyna að undirbúa samningana og minnka það breiða bil, sem oft er á milli samningsaðila, þegar þeir setjast að samningaborði. Fastanefnd Al- þýðusambandsins og vinnuveit- enda er tilvalinn vettvangur til slíks samráðs, en hefur ekki nýtzt sem skyldi. 4. Treysta verður undirstöður atvinnurekstrarins með afnámi og lækkun opinberra álaga og rýmk- un starfsskilyrða, svo að atvinnu- reksturinn og samtök atvinnurek- enda nái að skipa þann sess, sem þeim ber í markaðsbúskap, þ.á.m. við samningaborðið. <Úr greininni VIÐREISN A VINNUMARK- AÐNUM eftir Baldur GuðlauK»»on Iðgfræð- ing). Framtíðarverkefnið Sjálf náttúran hefur hér á landi búið sjávarútvegi og orkufrekum iðnaði skilyrði, sem varla finnast sambærileg annars staðar. Ef rétt er á haldið og þessi sérstaða þessara atvinnugreina nýtt til fulls, getur framleiðni þeirra orðið eins og bezt gerist í háþróuðustu atvinnugreinum hinna iðnvæddu nágrannaríkja okkar. Mikil fram- leiðni er forsenda þess, að unnt verði að greiða há laun. Þessar útflutningsgreinar einar geta því lagt grunn að því skipulagi af- komuöryggis, sem við hljótum að stefna að. Allar aðrar íslenzkar útflutn- ingsgreinar munu í framtíðinni þurfa að keppa um markaðsað- stöðu við iðnveldi í örum vexti, t.d. Suður-Kóreu, Indónesíu og Malasíu. Þar er kaupgjald lágt og lífskjör lök. Að neita að viður- kenna sérstöðu sjávarútvegs og orkufreks iðnaðar hér á landi er að dæma þjóðina til versnandi lífskjara. Skipuleg nýting sameiginlegra auðlinda allrar þjóðarinnar með hámörkun afraksturs þeirra til lengri tíma að leiðarljósi verður að vera kjarni íslenzkrar efna- hagsstefnu í næstu framtíð. Að unnið sé að þessari skipulegu nýtingu samkvæmt frjálshyggju, en ekki sósíalisma, verður að vera keppikefli Sjálfstæðisflokksins. Það verður ekki létt verk, því að langt er síðan, að ferskir vindar markaðsbúskaparins léku um landbúnað og sjávarútveg. Frum- kvæðið að skipulegri nýtingu auð- lindanna hlýtur því að koma frá ríkinu. Ymsar „séríslenzkar" að- stæður munu halda áfram að útiloka að mestu frjálsa sam- keppni og frjálsa verðmyndun í þeim frumvinnslugreinum, þar sem sameiginlegar auðlindir eru nýttar. En þessar frumvinnslugreinar eru og verða aðeins hluti af atvinnustarfseminni, þótt þær séu mikilvægasti hlutinn og sá, sem allt annað er reist á. Framtíðar- hagsæld þjóðarinnar er því ekki síður háð því, að unnt reynist að auka hagkvæmni og arðbærni annarra atvinnugreina — húsa- smíði, verzlunar, þjónustu og iðn- aðar. Það verður aðeins kleift með því að tryggja, að framkvæmda- frelsi einstaklinganna verði ekki frekar skert. Enn er ekki allur íslenzkur atvinnurekstur kominn á verð- lagsráðajötuna, en hinn „sæli“ svefn ríkisforsjárinnar er bezti bandamaður þeirra, sem um langt skeið hafa leynt og ljóst vegið að frjálsu framtaki hér á landi. Sú atlaga hefur nú tekizt svo, að þorri manna gerir sér ekki lengur grein fyrir, hvers virði einstaklings- frelsið og atvinnureksturinn er fyrir land og þjóð. Rógurinn gegn atvinnurekstrinum er gegndar- laus. Sá, sem „veitir vinnu", er spottaður. Sá, sem „veitir for- stöðu", er dásamaður. Lögmál heilbrigðs atvinnulífs eru öll færð til verri vegar, og reynt er að gera þau tortryggileg í augum fjöldans. Fyrirtæki, sem rekið er með hagn- aði, hlýtur að hafa komizt yfir peningana á óeðlilegan hátt, en hafi það tapað fé, er fullyrt, að rekstur þess sé þjóðhagslega nauðsynlegur. Ef ekki á illa að fara, verður að verjast þessum áróðri og leiðrétta rangfærslurnar. Eðlileg nýting auðlinda þjóðarinnar og þróun og vöxtur atvinnulífs, sem treystir á framtak einstaklinganna og frelsi þeirra til orðs og æðis, er framtíð- arverkefnið. Sjálfstæðisflokkur- inn einn íslenzkra stjórnmála- flokka getur sinnt þessu verkefni, því að hann einn miðar stefnu sína við hugsjónir frjálshyggjunnar. (Úr greininni VANDA ATVINNUVEG- ANNA eftir Jón ÁeberggHon framkvæmda- atjóra). Leikurinn með frelsið Sameiginlegar skattaálögur rík- is og sveitarfélaga eru nú rétt innan við 50% af þjóðartekjunum. Árið 1950 var þetta hlutfall rúm- lega 25%, en var komið upp í tæp 35% árið 1960. Á viðreisnarárun- um varð óveruleg breyting á í þessu efni. Það er fyrst eftir 1970, að skattheimtan er markvisst aukin. Skattheimta Breta nemur nú því sem næst 60% af þjóðar- tekjum þeirra. Þjóðverjar voru á þessu stigi í lok þriðja áratugarins og höfðu þá þjáðst af meiri verð- bólgu en sögur fara af í annan tíma. Allir vita, hvað spratt upp úr þeim jarðvegi. Sannleikurinn er sá, að við höfum verið að leika okkur með frelsið. Skattheimtan er því til sönnunar að svo miklu leyti, sem unnt er að sýna slíkan leik í tölum. Sósíalistar ræða jafnan fjálglega um þá miklu mannúð, er einkenni þjóðskipulag samkvæmt kenningu þeirra, og bera saman við raun- veruleikann á Vesturlöndum. í eðli sínu merkir sósíalismi þó aðeins minna frelsi, minni fram- leiðni og verri lífskjör en í svoköll- uðum auðhyggjuríkjum. Þar að auki sýnir reynslan, að sósíalismi fær ekki staðizt án lögregluríkis. Ríkisstjórnir hafa aldrei verið alvaldar, alvitrar né alréttlátar og verða aldrei. Sósíalismi og frelsi eru andstæður. Hættan, sem við stöndum frammi fyrir, er að fljóta sofandi að feigðarósi. Sjöundi áratugurinn hófst með viðreisn í anda frjálshyggju og einkenndist að öðru leyti af stöð- ugleika og festu í stjórnmálum. Þar fór saman forysta rótgróinna ión Ásbergsson segir í grein sinni: „Skipuleg nýting sameigirtlegra auðlinda allrar þjóðarinnar með hámörkun afraksturs þeirra til lengri tíma nð ieiðarljósi verður að vera kjarni íslenzkrar efnahagsstefnu næstu framtíð." s þjóðernis- og frjálshyggjuafla í Sjálfstæðisflokknum og borgara- vængs Alþýðuflokksins. Áttundi áratugurinn hefur á hinn bóginn einkennzt af efnahagslegri ringul- reið og afturhvarfi til stjórnlynd- isstefnunnar, sem birzt hefur í síauknum skömmtunarráðstöfun- um gagnvart sérþarfahópum. Framsóknarmenn hafa verið við völd allt þetta tímabil og mótað það öðrum fremur. Þar að auki hafa sósíalistar tvívegis tekið sæti í ríkisstjórn. Völd þeirra hafa á hinn bóginn verið miklu meiri en þátttaka þeirra í ríkisstjórn segir til um. Áhrif verkalýðsforystunnar á Alþingi götunnar hafa aukizt í réttu hlutfalli við verðbólguna. Verkalýðsforystan keppir beinlín- is að viðhaldi verðbólgunnar í því skyni að treysta þessi völd sín. Hún hefur í raun og veru unnið að því að rýra lífskjör fólksins í landinu. A árunum 1971 til 1977 var þannig knúin fram 535% launahækkun, er skilaði hverri fjölskyldu aðeins 29% hækkun rauntekna. Frekari sönnunar- gagna þarf ekki við til þess að sýna, að aðgerðir verkalýðsforyst- unnar hafa umfram allt verið leikir í valdatafli, en ekki í kjara- baráttu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki megnað að fara aðrar leiðir í þessum efnum. Stjórnarandstaða hans eftir fa.ll ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar sýnir, að enn einu sinni er lagt atkvæðamat á kröfur sérþarfahópa, en ekki brugðið upp efnahagslegum mælistikum. Sjödagaáætlun endurreisnar Niðurstaða þessa máls er sú, að Sjálfstæðismenn þurfa að fara nýjar leiðir — í fyrsta lagi til þess að vernda einstaklingsfrelsið og í öðru lagi til þess að bæta lífskjör- in með aukinni verðmætasköpun. Við þurfum að vinna til trausts á nýjan leik. Það er ekki nóg að samþykkja almennar frjáls- hyggjuyfirlýsingar í þessu skyni, meðan þingmenn flokksins aðhyll- ast stjórnlyndisstefnu >í fram- kvæmd. Frjálshyggjuyfirlýsingu þarf að fylgja eftir með kjöri frjálshyggjumanna inn á Alþingi. Setja má bæði í gamni og alvöri) fram sjödagaáætlun um frjáls- hyggjuendurreisn. Ef ég ætti að gera slíka áætlun, yrði hún senni- lega þessi: Mánudagur: Skattar yrðu lækk- aðir, þannig að opinberir aðilar tækju aðeins 35% af heildartekj- um þjóðarinnar til ráðstöfunar. Þriðjudagur: Öllum opinberum rekstri, sem er í beinni samkeppni við frjálsan atvinnurekstur, yrði hætt. Jafnframt yrði lögð niður nefnd, sem um árabil hefur unnið að athugun á þessum málum (vegna verkefnaskorts). Miðvikudagur: Sett yrðu ný verðmyndunarlög, þar sem frjáls verðmyndun yrði meginregla. Jafnframt yrðu sett lög um eftirlit með verðmyndun og bann við samkeppnishömlum og hringa- myndunum. Sama dag yrði því lýst yfir, að hér eftir yrði hætt að telja einstakar greinar vinnu- markaðarins hópa með sérþarfir. Fimmtudagur: Gjaldeyrisverzlunin yrði gefin frjáls og gengi krónunnar látið ráðast af markaðsaðstæðum. Sama regla yrði látin taka til vaxta, og vaxtaniðurgreiðslur til sérþarfahópa yrðu um leið af- numdar. Föstudagur: Markmiðum núver- andi menntastefnu yrði breytt úr miðstýringu í valddreifingudog úr hópmeðalmennsku í einstaklings- þroska. Laugardagur: Atvinnurekendum og launþegum yrði tilkynnt, að hér eftir yrðu þeir að taka kjaraákvarðanir í frjálsum samningum og á eigin ábyrgð. Sunnudagur: Tími gæfist til að fara að dæmi skaparans og hvíl- ast. (Úr greininni IIVAÐ VILDUM VIÐ? HVAÐ GERÐUM VIÐ? eítir Þorstein Pálsson Iramkvæmdastjóra). Fráleitt ósamræmi í stjórnskipan landsins — segir í ályktun sýslunefndar N-Þingeyjarsýslu „SÝSLUNEFND Norður-Þingeyj- arsýslu bendir Alþingi oft stjórnmálaflokkum landsins á frá- leitt ósamræmi í stjórnskipan landsins, þar sem víðlend byggða- lög eins og Norður-Þingeyjarsýsla eru í reynd fulltrúalaus á löggjaf- arsamkundu þjóðarinnar, sam- tímis því sem nágrannabyggðir hafa marga þingntenn á Alþingi til að gæta hagsmuna sinna og sjónarmiða, höfðu tvo fram- kvæmdastjóra í fjármagsnúthlut- unarstofnun ríkisins, Fram- kvæmdastofnun, á síðasta kjör- tímabili og tvo ráðherra, og hafa nú einnig tvo ráðherra og svipaða aðstöðu í Framkvæmdastofnun- inni“, segir m.a. í ályktun aðal- fundar sýslunefndar Norður- Þingeyjarsýslu sem samþykkt var á Kópaskeri 30. júlí síðastliðinn. Þá er lögð áhersla á að slík „hrópleg mismunun milli byggð- arlaga í miðstýrðu valdakerfi landsins hefur afdrifaríkar afleið- ingar, en styðst hvorki við réttlæti né skynsöm rök“ eins og segir í ályktuninni. Þá var á aðalfundinum sam- þykkt önnur ályktun til þess að vekja ath.vgii Alþingis og ríkis- stjórnar á nokkrum staðreyndum og stefnumiðum. Sú ályktun er svohljóðandi: „Norður-Þingeyjar- sýsla hefur þrátt fyrir miklar náttúruauðlindir farið öðrum byggðarlögum fremur varhluta af eflingu ríkisvaldsins á atvinnu- vegum landsmanna. Sýslunefnd Norður-Þingeyjar- sýslu býður samt velkomnar hverjar þær framkvæmdir í at- vinnumálum og atvinnuuppbygg- ingu, sem til greina kunna að koma innan sýslunnar á vegum landsstjórarinnar, þar á meðal orkufrekan iðnað, svo sem áburð- arverksmiðju. Sýslunefndin vísar hins vegar á bug hugmyndum um að leiða náttúruauðlindir, t.d. fallvötn, burt úr héraðinu." Vegna fyrri ályktunarinnar áréttar sýslunefndin, „að með ályktuninni er ekki á neinn hátt verið að sneiða að þingmönnum Norðurlandskjördæmis eystra, heldur er verið að benda á mein- lega galla í stjórnskipan landsins, kjördæmaskipun þess. Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra hljóta ávallt að verða fyrst og fremst þingmenn Akureyrar, sem að atkvæðafjölda ber ægishjálm yfir aðra hluta kjördæmisins, en Akureyri er í yzta vesturkanti kjördæmisins, sem nær yfir allan norðausturhluta landsins." Slippfélagið greiðir 9,8 milljónir í eignarskatt í yfirliti Skattstofu Reykjavík- ur sem Morgunblaðið birti 26. júlí síðastliðinn um skatthæstu félög í Reykjavík féll niður nafn Slippfélagsins í Reykjavík. En félagið greiðir kr. 9.809.000.00 í eignaskatt og er því átjánda í röð þeirra félaga er mest greiða í Reykjavík. Heildargjöld félags- ins nema kr. 38.246.533.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.