Morgunblaðið - 20.11.1979, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
Sverrir Friðþjófsson forstöðumaður Fellahellis ræðir hér við hóp unglinga. „Það er eins og sjá hina bestu danssýninjru að horfa á krakkana dansa,“ sagði einn
starfsmannanna i Fellahelli er diskótekið var komið i fullan gang.
Félagsmiðstöðin Fellahellir 5 ára
„Ef unglingurinn
sjálfur er vandamál
þá er til
ungRngavamtanár
Fellahellir, félagsmiðstöðin í
Breiðholti, er 5 ára um þessar
mundir. Æskulýðsráð Reykjavíkur
sér um rekstur miðstöðvarinnar en
forstöðumaður hennar er Sverrir
Friðþjófsson.
Fellahellir er leigður út undir ýmis
konar félagsstarfsemi auk þess sem
húsið sjálft skipuleggur þar ýmiss
konar starf fyrir unglinga. Á mánu-
dags-, þriðjudags- og miðvikudags-
kvöldum er klúbbstarf í gangi, mánu-
daga, miðvikudaga og laugardaga er
tómstundastarf fyrir 10—12 ára
börn, á sunnudögum eru kvikmynda-
sýningar, kynnisferðir og fleira fyrir
börn auk þess sem diskótek er á
þriðjudögum og föstudögum og eru
þá einnig ýmis leiktæki opin til
afnota fyrir unglingana. Ymislegt
starf er einnig á vegum Fellahellis
fyrir fullorðna, t.d. er ljósmynda-
námskeið á fimmtudögum og trimm
á sunnudögum.
Meðal þeirra sem hafa fundaaðset-
ur í Fellahelli eru Í.R., Leiknir,
Mjölnir og Fíladelfíusöfnuðurinn,
auk þess sem íþróttafélag fatlaðra í
Reykjavík æfir þar borðtennis og
Námsflokkar Reykjavíkur hafa þar
kennsluaðstöðu á mánudögum og
miðvikudögum. Þangað sækja hús-
mæður úr Breiðholti og geta þær
komið með börnin sín þar sem séð er
fyrir barnagæslu meðan á kennslu
stendur.
„Aldrei orðið var við
unglingavandamár
„Klúbbarnir eru það vinsælasta
meðal unglinganna hér auk diskótek-
anna,“ sagði Sverrir er Mbl. heim-
sótti Fellahelli s.l. þriðjudag. Fyrir
tveimur árum var hér aðeins einn
klúbbur starfandi en nú eru þeir alls
8. Við skiptum þessum klúbbum í
þrjá hópa, fræðslu-, skemmti- og
tómstundaklúbba.
Hér eru starfandi þrír fræðslu-
klúbbar, kynfræðslu-, afbrota- og
fíkniefnaklúbbur og teljum við þá
vera það mikilvægasta í starfi okkar.
Við ræðum þar þessi vandamál við
krakkana og reynum að fræða þau,
m.a. með því að fá í heimsókn
áfengissjúklinga og fyrrverandi af-
brotamenn."
— Hafið þið orðið vör við það sem
kallað er unglingavandamál?
„Ég hef unnið hér nú í 3 ár og hef
aldrei orðið var við neitt unglinga-
vandamál. En ef unglingurinn sjálf-
ur er þetta vandamál þá er það til.
Unglingur er á miklu breytingaskeiði
og reynir e.t.v. að vera vandamál til
að láta taka eftir sér.
Fólk talar mikið um „kók og
prinspóló-æskuna" en við teljum okk-
ur hins vegar hafa sannað það að sú
æska er tilbúningur fullorðna fólks-
ins. Við seljum hér brauð og mjólk í
frímínútunum og hefur það gefist svo
vel að kaupmenn hafa tekið eftir því
hversu þeim unglingum hefur fækk-
að sem hlaupa í „sjoppur" í frímínút-
unum. Unglingar borða kók og prins
póló einungis vegna þess að það er að
þeim rétt og þau taka við því.
Hins vegar getur það verið vanda-
mál á hverju heimili fyrir sig er
unglingur byrjar að reykja eða
drekka. En það er ekkert allsherjar-
Ferðaklúbburinn á fundi.
Myndir Emilía.
Fjórir af starfsmönnum Fellahellis. Talið frá vinstri: Skúli Björnsson, Olöf
Ingimundardóttir, Guðlaugur Jónsson og Elísabct Þórisdóttir.
Landburður af
fiski á ísafirði
ísafirOi 16. nóv.
ÞAÐ lá vel á landmönnum
ísfirzku línuhátanna þeg-
ar fréttaritari Morgun-
blaösins leit við í beit-
ingaskúrunum í morgun.
Eindæma afli hefur vcrið á
línuna á allri haustvertíð-
inni ok var t.d. afli m.b.
Orra 218 lestir í október.
Það sem af er nóvember
er aflinn orðinn tæpar 150
lestir á bát að meðaltali.
Venjulegur dagsafli bát-
anna hefur verið 10—15
lestir af rígaþorski og góðri
ýsu. Matsskýrslur, sem
fréttaritari skoðaði hjá
þeim í morgun, sýndu að
aflinn var allur 100%
hráefni og í 1. stærðar-
flokki, þorskur að meðaltali
um 4 kíló og ýsan 2,5 kíló
Ljósm. Úlfar Ágústsson.
Landmennirnir á m.b. tiuðnýju keppast við beitinguna. Hver maður beitir 3200 króka á dag i 8—10 tima
skorpuvinnu. Þessa dagana er aflahluturinn 50—70 þúsundir á mann á dag.
samkvæmt nýju matsregl-
unum. Mestur hluti aflans
hefur fengist í Djúpálnum
og vestur á Barðagrunninu.
Þá þykir það bera til
tíðinda að um síðustu mán-
aðamót, þegar ekki gaf á
djúpmið, lögðu bátarnir
línuna í Djúpið og fengu
4—8 tonn á bát. Fékk Orri
t.d. 8 lestir einn daginn
fyrir innan Arnarnes. Það
er álit landmannanna á
m.b. Guðnýju, að þessi fisk-
ur fylgi mikilli smokk-
göngu, sem hér var á ferð-
inni í haust. Virðist þeim
að samhengi sé á milli þess
að Sovétmenn voru neyddir
til að hætta veiðum á
smokkfiski undan strönd-
um Norður-Ameríku og
smokkgöngunnar í haust,
einu ári seinna. Þá er stóra
spurningin, hvort reikna
megi með álíka fiskigöng-
um á mið Vestfirðinga
hvert haust hér eftir.
Síðast þegar smokkur
veiddist hér vestra í upp-
hafi sjötta áratugarins var
svipaður afli á haustvertíð.
—Úlfar.