Morgunblaðið - 20.11.1979, Síða 36

Morgunblaðið - 20.11.1979, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979 36 Minning: Hanna Svanborg Hannesdóttir Fædd 1. júlí 1920 Dáin 9. nóvember 1979. Hún var numin á brott úr þessu lífi á öndverðum vetri, þegar veður fóru harðnandi og kólnandi. Eitt sinn skal hver deyja, og margt verra getur komið fyrir en að bíða bana. Lífið heldur áfram í breytileik og andstæðum sínum og fólk mætir örlögum sínum og forlögum misjafnlega eins og gengur. Lífsálag getur stundum orðið of mikið, ekki sízt hjá manneskjum „með góð sálarein- kenni" eins og prýddu Hönnu Svanborgu Hannesdóttur, svo að vitnað sé í ummæli náinnar vin- konu hennar, sem þekkti hana eins og hún var í eðli sínu. Hanna sáluga var gamal- Reykvíkingur, borin hér og barn- fædd, komin af vönduðu fólki, sem ekki mátti vamm sitt vita í einu né neinu, enda var oft auðfundið, að hún var mótuð af góðu veganesti úr foreldrahúsum. Hún byrjaði kornung að vinna fyrir sér og tók sér sitthvað fyrir hendur. Þegar yngsta systir hennar byrjaði að ganga í skóla, eins konar forskóla, fylgdi Hanna henni fyrstu sporin á námsbrautinni og greiddi skóla- gjaldið fyrir litlu systur með kaupinu, sem hún hún hafði unnið sér inn. Þetta lýsti Hönnu. Hún vildi álltaf vera að veita, enda var hún gjöful á sjálfa sig og velunn- arar hennar minnast hennar vegna einlægni og traustleika í vináttu. Persónuleikinn var varmur, enda þótt hún væri dul í skapi og hljóðlát á vissan hátt. Þegar hún var ung stúlka, þótti hún glaðvær í vinahópi og eftirsótt sem félagi og hún naut vinsælda hjá sam- starfs- og viðskiptafólki í Tízku- versluninni Ninon í Bankastræti, þar sem hún vann við afgreiðslu um árabil og sömuleiðis í Hatta- og skermabúðinni við Laugaveg, þar sem hún saumaði marga skerma, sem nú eru enn í tízku. Það lék allt í höndunum á henni og heimili hennar og Ágústs Guðmundssonar prentara að Frakkastíg 14 bar þess augljóst vitni, hve hún og hennar hæfileik- um búni eiginmaður höfðu list- rænan smekk. Hins vegar skapar eiginkonan að jafnaði heimilið - án hennar getur ekkert heimili verið menningarlegt. Hanna heit- in var frábær hannyrðakona og auk þess músikölsk — hafði yndi af sígildri tónlist (enda af Bergsætt gegnum föðurinn). Hún varð fyrir ýmsum óhöppum og slysum og þungbærum veikind- um og varð nokkrum sinnum að gangast undir stórar skurðaðgerð- ir - hún sýndi lífsvilja og dugnað í þeim þrautum sem og í öðru. írsk vinkona hennar, sem und- anfarið hefur unnið að kaþólsku trúboði ásamt nokkrum öðrum löndum sínum hér á landi, sagði eftir sálumessu, sem írski prestur- inn hélt fyrir Hönnu í Fellahelli í Breiðholti síðastliðinn sunnudag (sú írska kom til hennar sem heimilisaðstoð reglulega einu sinni í viku á mánudegi): „She was a nice woman“ (Hún var elskuleg manneskja). Hún upplýsti líka, að Hanna hefði trúað á bænina og verið gædd trúarviðhorfi og Hanna hefði notið þess að þær bæðu saman og þær hefðu alltaf farið með rósakransinn, tíu Maríubænir og eitt Faðir vor í hvert skipti sem hún var í heim- sókn eða rétt áður en hún yfirgaf húsið. Þess ber og að geta, að Hanna sýndi umburðarlyndi í trúmálum, fyndi hún sanna ein- lægni á bak við. „Hanna reyndi alltaf að sjá ljósu hliðarnar á tilverunni og hún var traust og einlæg manneskja, og það var hægt að tala um allt milli himins og jarðar við hana. Hún skildi vel vandamál lífsins, enda greind kona.“ Þetta sagði vinkona Hönnu, sem lá með henni á sjúkrahúsi, og hún bætti því við, að hún hefði glaðzt yfir því, ef öðrum gekk vel, en tók sér nærri fyrir annarra hönd, þegar illa gekk. Hún var þó ekki allra og hræsnaði ekki fyrir neinum. Hún missti bróður sinn ekki alls fyrir löngu. Þrem dögum áður en hann dó kom hann í heimsókn til systur sinnar og þá sagði hann: „Hanna viltu lesa eitthvað fall- egt fyrir mig?“ Hún las: „Hann er skapari þinn Að vilja hans ert þú til. Og hann er faðir þinn, sem er umhugað um velferð þína. Hann segir nú við þig: Óttast þú ekki, ég er með þér. Guð hjálpi þér að þiggja styrk hans og huggun á þessum reynslutímum." Með þessari fyrirbæn er Hönnu Fæddur 27. september 1912 Dáinn 21. október 1979 Mánudaginn 29. október var til moldar borinn frá Búðakirkju í Fáskrúðsfirði Árni Stefánsson, út- gerðarmaður, og var þar saman komið mikið fjölmenni sem fylgdi hinum látna heiðursmanni til grafar. Hann var fæddur að Hvammi í Fáskrúðsfirði 27. sept. 1912. Foreldrar hans voru Stefán Árnason sjómaður og kona hans Guðfinna Jóhannsdóttir. Ég var ungur maður þegar ég kynntist Árna og þá strax fann ég hvað mikið gott í honum bjó, hann var alltaf glaður og hress og gerði oft að gamni sínu á þann hátt sem þeir einir geta sem eru sönn prúðmenni. Áni kvæntist eftirlif- andi konu sinni, Sigríði Ólafsdótt- ur frá Neskaupstað, 28. sept. 1941. Þeirra hjónaband var farsælt mjög og var Sigríður honum elskuleg eiginkona. Heimili þeirra hjóna var alla tíð að Ásbrú í Fáskrúðsfirði, þau áttu ekki barn en ólu upp systurdóttur Sigríðar frá þriggja ára aldri og voru þau henni elskulegir foreldrar og hef ég oft heyrt Halldóru Árnadóttur tala hlýlega um sína foreldra. Árni var útgerðarmaður í mörg ár, fyrst með lítinn bát, Báru, sem hann átti og gerði út í mörg ár, síðan kom stærri bátur sem hét Stefán Árnason. Hann var skip- stjóri á þessum bátum og færði mikla björg að landi, hann þótti góður stjórnandi bæði á sjó og minnzt við útför hennar í dag. Hennar er saknað af einkasyni Gunnari Svan Ágústssyni, eigin- manni hennar og af tveim systr- um, Svölu og Ingu, sem alltaf voru boðnar og búnar til að létta undir í lifenda lífi. og af vinum og vandamönnum. stgr Ó. hvar ert þú. ljós. sem aö liföir í gær? Þú lifir víst enn. þó að bærist þú fjær, því birtan þin hverfur ei hjarta frá mér né bliðan oií varminn. sem streymdi frá þér. (Úndína. vestur-ísl. skáldkona) Kveðja frá eiginmanni landi. Einu atviki langar mig að segja frá sem sýnir vel hvern mann Árni hafði að geyma. Þeir voru á síldveiðum á Stefáni Árna- syni og það sumar fengu þeir oft síld inni í fjörðum. Ég var þá á lítilli trillu, sem ég átti, úti á miðjum firði og var að vitja um kolanet, ég keyrði með fram mótorbátnum, þeir voru þá með mjög gott síldarkast. Þeir veifuðu til mín og báðu mig að koma og hjálpa þeim að draga nótina, þótti mér þetta nokkurð undarlegt þar sem þarna voru saman komnir hraustir drengir en ég ekki mikill karl. En ég gerði eins og þeir báðu mig um og gekk það fljótt og vel að ná inn nótinni og í henni voru 400 tunnur. Þegar við vorum búnir sagði skipstjór- inn, sem var Árni: komdu með bátinn þinn hérna að, ég horfði á hann en gerði eins og hann bað og henn lét fylla trilluna mína af síld og sagðist þakka mér fyrir hjálp- ina. Þannig var Árni, höfðingi á alla lund. Þriðji bátur sem Árni eign- aðist var Bára SU 526, stórt og myndarlegt skip, þá var Árni hættur að stunda sjó og tók bróðir hans við skipstjórn. Árni var framámaður í sínu byggðarlagi, hann var í hreppsnefnd í mörg ár og einnig var hann oddviti Búða- hrepps og vann að mörgum málum fyrir sitt byggðarlag. Við Fáskrúðsfirðingar þökkum Árna samfylgdina, hann mun ekki gleymast okkur sem þekktum hann. Ég votta eiginkonu hans samúð mína og bið guð að styrkja hana í sorg hennar. Dóttur þeirra og öðrum ástvin- um óska ég guðs blessunar. Stefán Guðmundsson. + Móöir mín, tengdamóöir, amma okkar og langamma, LÁRA GUDMUNDSDÓTTIR kennari, lóst aö Hrafnistu 17. nóvember. Jaröarförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 22. nóvember klukkan 3. Guöný Ella Siguröardóttir örnólfur Thorlacius, barnabörn og barnabarnabörn. Móöir okkar. t KARÓLÍNA ÞÓRDARDÓTTIR, sem lést 11. þ.m., veröur jarösungin frá þjóökirkjunni í Hafnarfiröi miövikudaginn 21. nóvember n.k. kl. 2. Börn hinnar lótnu. + Eiginmaöur minn, ODDUR SIGURDSSON Dal, Vestmannaeyjum, lést 19. nóvember. Fyrir hönd vandamanna. Lovísa Magnúsdóttír. + Hjartkær eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, ' MARÍA MAGNÚSDÓTTIR, Laugarbraut 17, Akranesi, andaöist í Landspítalanum 8. nóvember. Jaröarförin hefur farið fram. Þökkum af alhug auösýnda samúö. Jón Pólsson, Guöný Jónsdóttir, Rúnar Pótursson, Sumarrós M. Jónsdóttir, Svavar Ágústsson, Jóna Maja Jónsdóttir, Ágúst Sörlason og barnabörn. + Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, GUÐJÓN KLEMENSSON Vesturbraut 7, Keflavík, sem andaöist 14. nóvember, verður jarösettur miövikudaginn 21. nóvember kl. 2 e.h. frá Keflavíkurkirkju. Sigrún Kristjónsdóttir, Þórhallur Guðjónsson, Steinunn Þorleifsdóttir, Jóhanna Guöjónsdóttir, Hafsteinn Guömundsson, Kristjón K. Guöjónsson, Ingibjörg Siguröardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginkona mín og móöir okkar, GUÐFINNA ÁSTA SIGMUNDSDÓTTIR, Greniteig 20, Keflavík, lézt 9. nóvember. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu, Þökkum sýnda samúö. Jón Guömundsson og börn. Eiginkona mín, + KRISTJANA MAGNÚSDÓTTIR, lést aö heimili sínu, Skólageröi 69, Kópavogi, aöfaranótt sunnudagsins 18. nóvember. Fyrir hönd vandamanna, Siguröur Jakob Vigfússon. Eiginmaöur minn, + ÞENGILL ÞÓRÐARSON, lést 18. nóvember. fró Höföa, Arnheiöur Guömundsdóttir. + Systir mín og amma okkar, KRISTÍN JÓHANNA GUÐMUNDSDÓTTIR, fró Hafnarfriðí, til heímilis aö Smóratúni 3, Keflavík, veröur jarösungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfiröi þriöjudaginn 20. nóvember kl. 1.30. Hjördis Guömundsdóttir, og börn Marteins Marteinssonar. Minning: Arni Stefánsson Fáskrúðsfirði + Föðursystir mín INGIGERÐUR BENEDIKTSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Foss- vogskirkju miövikudaginn 21. nóvember kl. 3. Fyrir hönd vandamanna Benedikt J. Geirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.