Morgunblaðið - 10.01.1980, Blaðsíða 1
40 SIÐUR
7. tbl. 67. árg.
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rússar sækja í átt til
landamæra Pakistans
Kabúl, 9. janúar. AP.
RÚSSAR ílytja herlið með flutningaflugvélum frá Kabul til Kandahar, umdeilds héraðs í Suður-Afghanistan,
samkvæmt fréttum sem bárust til Islamabad í dag.
Samkvæmt pakistanskri blaðafrétt segja afghanskir uppreisnarmenn, að sovézkt herlið sæki frá borginni
Kandahar í áttina að landamærum Pakistans, sem eru í 130 km f jarlægð, til að ná undir sig stöðvum sem sagt er að
afghanskir liðhlaupar hafi yfirgefið.
Þrír útlendingar sögðu, að þeir hefðu séð um 20 stórar flutningaflugvélar lenda á Kandahar-flugvelli. Fréttir
herma að Rússar hafi 5.000 hermenn í þessari mikilvægu borg.
„Pakistan Times“ hefur eftir
uppreisnarmönnum að flestir af-
ghanskir stjórnarhermenn í
Kandahar-héraði hafi hlaupizt
undan merkjum og gengið í lið ineð
uppreisnarmönnum. Diplómatar í
Islamabad staðfestu að sovézkt
herlið sækti lengra inn í Suður-
Afghanistan.
I Washington segja sérfræðingar
að andspyrna skæruliða virðist
töluvert minni en uppreisnarmenn
haldi fram og að miklu færri
afghanskir hermenn hafi svikizt
undan merkjum en fréttir hermi.
Þeir segja líka að það séu af-
ghanskir hermenn en ekki Rússar
sem beri hitann og þungann í
bardögunum. Préttir herma að allt
að 100.000 sovézkir hermenn séu í
Afghanistan.
Sovézka fréttastofan Tass hafði
eftir afghanska landvarnaráð-
herranum, Mohammed Rafeh, að
heraflinn „styddi nýju forystuna
einróma".
Diplómatar í Kabul sögðu, að
nýja stjórnin héldi áfram aftökum
pólitískra fanga þótt aftökurnar
væru í smærri stíl en á dögum
fyrrverandi stjórnar. Einn þeirra
sagði, að vissir embættismenn Am-
in-stjórnarinnar væru teknir af lífi
á laun og jarðaðir í fjöldagröfum í
hlíðum nálægt fangelsinu Pul-I-
Charkhi.
Þessar heimildir herma, að enn
sé barizt í sex héruðum og upp-
reisnarmenn í Pakistan sögðu, að
skæruliðar hefðu tekið fjallabæinn
Iskasham í héraðinu Badakhshan,
12 km frá sovézku landamærunum.
Þeir segja að skæruliðar haldi enn
borginni Faizabad, 80 km sunnan
við sovézku landamærin, veiti
harða mótspyrnu í héraðinu Tak-
har í norðaustri og verjist á
svæðunum Gardez og Khist í hér-
aðinu Paktia súður af Kabul, ná-
lægt landamærum Pakistans.
Afghanskar heimildir herma að
Rússar hafi komið sér upp stórri
herstöð í Kelagay-eyðimörkinni í
Baghlan-héraði norðan við Kabul.
Rússneskir fótgönguliðar klifra yfir garð á veginum frá Kabui til Jalalabad.
Brezk nærvera austan
við Súez til athugunar
London, 9. janúar.AP.
CARRINGTON lávarður, utanríkis-
ráðherra Breta, sagði i dag er hann
fór til Tyrklands, Oman, Saudi-Ara-
biu, Pakistans og trúlega Indlands
til að meta stöðuna i Afghanistan-
málinu, að Bretar væru reiðubúnir
að taka til athugunar „nærveru“
brezka flotans austan Súez-skurðar
ef Bandarikin færu fram á hernað-
araðgerðir. En hann útilokaði að
brezkt herlið yrði sent til Oman.
Átök í
Tabriz
Teheran, 9. janúar. AP.
SEX biðu bana og að minnsta kosti
41 slasaðist i Tabriz i dag i átökum
milli stuðningsmanna og andstæð-
inga Khomeinis erkiklerks.
Hundruð þúsunda írana fóru hóp-
göngur um götur Teheran, Tabriz og
Qom til að minnast trúardýrlings og
tveggja ára afmælis upphafs
írönsku byltingarinnar.
Jafnframt sagði ritari byltingar-
ráðsins, Ayatollah Mohammed Beh-
esti, að nokkur von væri til þess að
gíslunum í bandaríska sendiráðinu
yrði sleppt.
Hann sagði að „nokkur hreyfing"
væri á málinu, þótt hann væri ekki
viss hvort árangurs væri að vænta
eftir nokkra daga eða vikur.
Leonid Brezhnev, forseti Sovét-
ríkjanna. hefur sagt Jimmy Carter
forseta, að rússneskt herlið verði
ekki kallað heim frá Afghanistan
fyrr en það „hefur lokið starfi
sínu“, að sögn háttsetts starfs-
manns Hvíta hússins í dag. Þetta
kom fram þegar Carter kvartaði
yfir innrásinni á „heitu“ línunni 19.
desember.
Filippseyjar hafa skýrt starfs-
mönnum SÞ frá þeirri ósk sinni að
Allsherjarþingið taki fyrir íhlutun
Rússa þar sem Rússar hafa beitt
neitunarvaldi sínu í Öryggisráðinu
að sögn talsmanns samtakanna. Gert
er ráð fyrir að Mexíkó taki undir
beiðnina sem þarf samþykki níu
fulltrúa í Öryggisráðinu.
Tass sakaði í dag Jody Powell
blaðafulltrúa um „mannhaturs- og
mannætu" yfirlýsingar um hugsan-
legar afleiðingar kornsölubannsins á
Rússa. Fréttastofan fullyrti í harð-
orðri yfirlýsingu, að „sovézka þjóðir.
mundi ekki úthella tárum" yfir
ráðstöfun Bandarikjamanna og sagði
að tilraunir til að beita Sovétríkin
þrýstingi hefðu aldrei borið árangur
og mundu ekki gera það.
Carter átti í dag fyrsta fund sinn
af nokkrum með starfsmönnum
fyrrverandi stjórnar og öðrum til að
afla sér aukins stuðnings. Hvíta
húsið sagði að forsetinn hefði fengið
stuðning úr báðum flokkum við
ákveðnu svari við innrás Rússa og
langtíma ráðstafanir sem kynnu að
reynast nauðsynlegar til verndar
hagsmunum í þessum heimshluta.
Gefið var í skyn að komið hefði verið
inn á beitingu hervalds en ekki
fjallað um það ítarlega.
Bernard Rodgers hershöfðingi, yf-
irmaður herafla NATO, kvað innrás-
ina sýna að halda yrði áfram eflingu
hernaðarmáttar NATO og að þrátt
fyrir détente yrði að gera ráð fyrir að
Rússar „réðust á hvaða ríki sem væri
ef þeir hefðu ákveðið það á annað
borð“.
Bretar frestuðu í dag fyrirhugaðri
heimsókn kolaráðherra Rússa.
Saudi-Arabar tilkynntu að þeir
mundu ekki taka þátt í Ólympíuleik-
unum í Moskvu og skoruðu á aðrar
Arabaþjóðir að fara að dæmi þeirra.
Önnur viðbrögð: Sjá bls. 23.
Harold Brown
Tölvur
til Kína
koma til
greina
Peking, 9. janúar.AP.
HAROLD Brown, landvarna-
ráðherra Bandaríkjanna,
ítrekaði á blaðamannafundi i
Peking í dag þá stefnu Banda-
ríkjastjórnar að selja ekki
Kínverjum hergögn, en sagði
að sala á tölvum og öðrum
háþróuðum tækjum, sem geta
komið að gagni i hermálum,
yrði tekin til athugunar.
Ekkert áþreifanlegt sam-
komulag tókst um Afghanistan,
en Brown sagði að Bandaríkja-
menn og Kínverjar hefðu mjög
líkar skoðanir á „þörfinni á því
að styrkja aðrar þjóðir í þessum
heimshluta". Hann sagði að
báðir aðilar mundu gera
áþreifanlegar ráðstafanir í því
skyni, hvor fyrir sig, en skýrði
það ekki nánar.
Hann kvað mesta árangur
viðræðna sinna við kínverska
ráðamenn þann að lagður hefði
verið grundvöllur sem mætti
byggja á í framtíðinni. Hann
sagði að ekki hefði verið rætt
um heimsóknir skipa úr 7.
flotanum og heldur ekki um
þjálfun kínverskra hermanna í
Bandaríkjunum. En hann spáði
auknum samskiptum, m.a.
gagnkvæmum heimsóknum her-
foringja og fyrirlestrahaldi.
Brown tilkynnti að Geng
Biao, varaforsætisráðherra og
aðalritari hermálanefndar
kommúnistaflokksins, hefði
þegið boð um að heimsækja
Bandaríkin, en tími heimsókn-
arinnar hefur ekki verið
ákveðinn.
63 líflátnir fyrir
árásina í Mekka
Riyadh. 9. janúar. AP.
SEXTÍU og þrír úr hópi trúarof-
stækismannanna, sem i nóvember
lögðu undir sig stórmoskuna i
Mekka, mesta helgidóm múha-
meðstrúarmanna, voru hálshöggnir
i dag að sögn hinnar opinberu
fréttastofu Saudi-Arabíu.
Khaled konungur fyrirskipaði
aftökurnar sem fóru fram í átta
borgum, bersýnilega til að sýna að
stjórnvöld réðu fyllilega við ástand-
ið.
Tekið var fram í tilskipun kon-
ungs i Saudi-Arabiu, að dauðarefs-
ing lægi við árás á hænahús sam-
kvæmt kóraninum. Aftökur fara
venjulega fram opinberlega eftir
hádegisbænir og frá fornu fari hafa
menn, sem eru dæmdir til dauða,
verið hálshöggnir.
í hópi hinna líflátnu var Juhai-
man Bin Seif Al-Otaiba, herforingi
mahdíista-hópsins sem réðst á
moskuna. Hann er af ættflokki
Al-Otaiba í Suður-Saudi-Arabíu, en
sá ættflokkur er andvígur stjórn-
völdum.
Fjörutíu og einn hinna líflátnu var
saudi-arabískur borgari. Hinir voru
10 Egyptar, sex Suður-Jemenar, þrír
Kuwaitmenn og einn frá Norður-
Jemen, einn frá Súdan og einn frá
írak.
Stjórnvöld segja að útlendingarnir
í hópnum hafi breytt eftir trúar-
sannfæringu og ekkert erlent ríki
hafi verið viðriðið árásina.
Aðalleiðtogi hópsins, Mohammed
Bin Abdullah Al-Qahtani, sem kall-
aði sig Mahdi eða Messías shíta-
arms múhameðstrúarmanna, beið
bana í hálfs mánaðar umsátri saudi-
arabískra hermanna um stór-
moskuna eftir töku hennar.
Yfirvöld sögðu að í umsátrinu
hefðu 127 hermenn fallið og 451
særzt, 75 árásarmenn hefðu fallið í
bardögunum, 27 látizt í sjúkrahúsi
og 15 lík hefðu fundizt síðar — eða
alls 117 beðið bana.